Íslenski handboltinn
110 111 112 113 114 115 116 117 118 … 123 ›
1. deildin í handboltanum Þrír leikir fóru fram í 1. deild karla í handknattleik í kvöld. Stjarnan tapaði heima gegn Fram 27-32, Grótta/KR og FH gerðu 18-18 jafntefli og Afturelding sigraði Selfoss með eins marks mun, 26-25. Sport 13.10.2005 18:53
Óvíst hvort Birkir fari út Birkir Ívar Guðmundsson, landsliðsmarkvörður í handknattleik, segir að það skýrist um eða eftir næstu helgi hvort hann gangi til liðs við þýska handboltaliðið Hamborg. Birkir, sem æfði tvisvar með félaginu í síðustu viku, fékk tilboð frá þýska liðinu en umboðsmaður hans er búinn að gera gagntilboð og hittir forystumenn Hamborgarliðsins síðar í vikunni. Sport 13.10.2005 18:52
Allir markaskorarar handboltans Fjórir leikir fóru fram í DHL-deild karla og 1. deild karla í kvöld. Eyjamenn unnu sinn þriðja leik í röð þegar þeir lögðu Þórsara af velli í úrvalsdeildinni og skelltu sér í kjölfarið upp í 2. sætið og þá minnkuðu Framara forskot FH-inga í eitt stig á toppi 1. deildarinnar. Öll úrslit og markaskorara kvöldsins eru komin á Vísi. Sport 13.10.2005 18:53
HK náði toppsætinu HK komst í fyrsta sætið í úrvalsdeild karla í handbolta eftir sigur á Víkingi í gærkvöldi, 32-25. Þegar ellefu umferðir eru búnar hefur HK 14 stig, Haukar 13 en síðan koma Valur og ÍR með 12 stig. Sport 13.10.2005 18:52
Stoltur faðir og ÍR-ingur Þeir voru margir ÍR-ingarnir sem áttu erfitt með að fela tilfinningar sínar um síðustu helgi þegar ÍR lyfti langþráðum titli í handboltanum. Einn þeirra var Hólmgeir Einarsson, formaður handknattleiksdeildar ÍR, sem hefur lagt ómældan tíma og kraft í að gera ÍR að stórveldi í handboltanum síðustu fimmtán ár. Sport 13.10.2005 18:52
Guðjón Valur með sex mörk Guðjón Valur Sigurðsson skoraði sex mörk fyrir Essen þegar liðið náði jafntefli gegn BM Granollers á heimavelli hinna síðarnefndu á Spáni í fyrri leik liðanna í undanúrslitum Evrópukeppni félagsliða. Lokatölur urðu 29-29 eftir að staðan hafði verið 14-14 í hálfleik. Liðin mætast að nýju á heimavelli Essen í Þýskalandi eftir viku. Sport 13.10.2005 18:52
Gjörbreytt íslandsmót á næsta ári Tillaga um breytt keppnisfyrirkomulag á íslandsmótinu í handbolta liggr fyrir og verða þær kynntar á ársþingi HSÍ næsta laugardag. Yfirgnæfandi líkur eru á að hún verði samþykkt. </font /> Sport 13.10.2005 18:52
Ágúst ekki áfram með Gróttu/KR Ágúst Jóhannsson, þjálfari karlaliðs Gróttu/KR í 1. deildinni í handbolta, mun ekki þjálfa liðið á næstu leiktíð. Þetta tilkynnti Ágúst forráðamönnum Gróttu/KR í byrjun síðustu viku og leikmönnum liðsins í lok vikunnar. Meira verður fjallað um málið í DV á morgun þar sem meðal annars verða raktar ástæður uppsagnarinnar. Sport 13.10.2005 18:52
ÍR-ingar yfir í hálfleik ÍR-ingar hafa betur í hálfleik gegn KA í viðureign liðanna í DHL-deilda karla í handbolta. Jafnræði var með liðunum megnið af hálfleiknum en góður varnarleikur og enn betri markvarsla Ólafs Gíslason varð þess valdandi að ÍR fer með fjögurra marka forystu í hálfleikinn, 19-15. Sport 13.10.2005 18:52
Mikilvægur sigur hjá ÍR ÍR-ingar unnu í dag mikilvægan sigur á KA-mönnum í DHL-deild karla í handbolta. Lokatölur urðu 35-32 eftir ÍR hafði leitt með fjórum mörkum í hálfleik, 19-15. Sigurinn var sanngjarn og fleytti ÍR-ingum upp fyrir KA og upp að hlið HK og Valsmanna á stigatöflunni með 12 stig. Haukar eru á toppnum með 13 stig, og leika þessa stundina gegn ÍBV. Sport 13.10.2005 18:52
ÍR lagði KA KA-menn sóttu ekki gull í greipar ÍR-inga í Austurbergi í gær, en heimamenn höfðu yfir allan leikinn. Sport 13.10.2005 18:52
Lemgo tapaði fyrir Celje Lasko Flestir leikmanna Lemgo voru fjarri sínu besta í leiknum og liðið mátti í raun þakka fyrir að tapa ekki stærra. Logi þarf aftur á móti ekki að skammast sín fyrir frammistöðuna enda héldu hann og Florian Kehrmann Lemgo á floti í leiknum lengst af. Sport 13.10.2005 18:52
Logi og félagar lágu heima Logi Geirsson og félagar í þýska stórliðinu Lemgo eru að öllum líkindum á leið út úr meistaradeildinni í handbolta eftir fjögurra marka tap gegn Celje Laskov frá Slóveníu í fyrri leik liðanna í 8-liða úrslitum. Lokatölur urðu 29-33 eftir að Celje höfðu haft eins marks forystu í hálfleik. Logi var meðal bestu manna Lemgo í leiknum og skoraði 6 mörk. Sport 13.10.2005 18:52
Lemgo undir í hálfleik Celje Laskov frá Slóveníu hefur hefur betur í hálfleik gegn Loga Geirssyni og félögum í Lemgo í fyrri leik liðanna í 8-liða úrslitum meistaradeildarinnar í handbolta. Lemgo byrjaði betur og leiddi framan af en undir lok hálfleiksins kom skelfilegur leikkafli heimamanna sem Slóvenarnir færðu sér í nyt og leiða þeir í hálfleik, 16-17. Sport 13.10.2005 18:52
Einar skoraði tvö fyrir Wallau Einar Örn Jónsson skoraði tvö mörk þegar Wallau Massenheim sigraði Lubeck 34-32 í þýsku úrvalsdeildinni í handknattleik í gærkvöld. Wallau er í 10. sæti í deildinni með 24 stig. Félagið á nú í miklum fjárhagskröggum eins og kunnugt er og ekki ljóst hvort það getur haldið áfram keppni, en það skýrist á næstu dögum. Sport 13.10.2005 18:52
Góður sigur Valsmanna Valsmenn unnu í kvöld góðan sigur á Þórsurum í DHL-deild karla í handbolta. Lokatölur urðu 36-29 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 19-15 Val í vil. Valsmenn komust með sigrinum upp í annað sæti deildarinnar með 13 stig en Þórsara sitja á botninum með 8 stig. Sport 13.10.2005 18:52
Fram vann Aftureldingu Fram vann í kvöld heimasigur á Aftureldingu í 1. deild karla í handknattleik, 26-20. Jón Pétursson skoraði 7 mörk fyrir Fram en Ernir Arnarsson var atkvæðamestur í liði gestanna með 5 mörk. Frammarar komust með sigrinum upp að hlið FH á toppi 1. deildar með 10 stig en Afturelding er í 4. sæti með 6 stig. Sport 13.10.2005 18:52
Haukar náðu fyrsta sætinu Haukar náðu í gærkvöldi fyrsta sætinu í úrvalsdeild karla í handbolta þegar liðið sigraði nýkrýnda bikarmeistara ÍR með 31 marki gegn 24. Birkir Ívar Guðmundsson varði 26 skot í marki Hauka en Andri Stefan skoraði 8 mörk og Vignir Svavarsson 7. Ólafur Sigurjónsson og Fannar Þorbjörnsson voru markahæstir hjá ÍR með 6 mörk hvor. Sport 13.10.2005 18:51
Patrekur að komast í gang Patrekur Jóhannesson er að komast í gang á nýjan leik og skoraði þrjú mörk fyrir Minden, sem vann Wetzlar. Sport 13.10.2005 18:51
Garcia og Einar atkvæðamiklir Jaliesky Garcia og Einar Hólmgeirsson voru atkvæðamestir íslensku leikmannana í þýska handboltanum í fyrrakvöld. Sport 13.10.2005 18:51
Tveir fulltrúar Íslendinga 8 liða úrslit Meistaradeildarinnar í handbolta hefjast á morgun og eigum við Íslendingar tvo fulltrúa í keppninni. Sport 13.10.2005 18:51
Grótta/KR sigraði Selfoss Einn leikur fór fram í sjöundu umferð fyrstu deildar karla í handknattleik í kvöld er Selfoss tók á móti Gróttu/KR. Gestirnir höfðu betur 24-17 og eru nú komnir í þriðja sætið með jafn mörg stig og Fram sem situr í öðru sætinu og aðeins tveimur stigum á eftir FH sem er á toppnum. Sport 13.10.2005 18:51
Möguleikar Ólafs svo gott sem úti Möguleikar Ólafs Stefánssonar og félaga hjá Ciudad Real á spænska meistaratitlinum í handbolta eru svo gott sem horfnir eftir eins mark tap gegn Ademar Leon í fyrrakvöld, 29-28. Sport 13.10.2005 18:51
Guðjón Valur með 4 í sigurleik Guðjón Valur Sigurðsson skoraði 4 mörk þegar Essen sigraði Grosswallstadt 29-24 í þýska handboltanum í gærkvöldi. Einar Hólmgeirsson var markahæstur í liði Grosswallstadt með 6 mörk en Snorri Steinn Guðjónsson skoraði eitt mark. Sport 13.10.2005 18:51
Haukar í toppsætið Haukar tylltu sér á topp DHL-deildarinnar í handknattleik karla í kvöld er þeir sigruðu bikarmeistara ÍR örugglega 24-31 í Austurbergi. Markverðir beggja liða voru í sérflokki í leiknum en Birkir Ívar Guðmundsson varði 26 í marki Hauka og Hreiðar Guðmundsson 22 í marki ÍR. Sport 13.10.2005 18:51
Stjarnan sigraði Fram Einn leikur fór fram í úrvaldsdeild kvenna í handknattleik í kvöld er Stjörnustúlkur lögðu Fram 32-22. Eftir leikinn eru Stjörnustúlkur í þriðja sæti með 21 stig, en Haukar eru á toppnum með 32 stig og ÍBV hefur 30. Fram er í áttunda og síðasta sæti með sjö stig. Sport 13.10.2005 18:51
Logi með tvö í sigurleik Logi Geirsson skoraði tvö mörk þegar Lemgo sigraði Hamborg 31-25 í þýska handboltanum í gærkvöldi. Sport 13.10.2005 18:51
Jónatan skoðar samningstilboð Jónatan Þór Magnússon, fyrirliði KA í handboltanum, hefur undir höndum tveggja ára tilboð frá þýska félaginu Ossweil sem sem leikur í annari deild. Jónatan skoðaði aðstæður hjá þýska félaginu um helgina, en hann sagði í samtali við íþróttadeildina í gærkvöldi að hann myndi setjast yfir samningsdrögin og taka ákvörðun í framhaldi af því. Sport 13.10.2005 18:50
Ósanngjarn dómur Leikur Selfoss og Stjörnunnar í 1. deildinni var vægt til orða tekið eftirminnilegur enda gaf Hlynur Leifsson dómari tvo "krossa" og eitt rautt spjald undir lok leiksins. Hlynur var þar með fyrsti dómarinn í háa herrans tíð sem beitir þessari hörðustu refsingu í handboltanum Sport 13.10.2005 18:50
Stefnir í gjaldþrot Wallau Fátt virðist geta bjargað þýska úrvalsdeildarliðinu Wallau Massenheim, en félagið skuldar rúmlega 100 miljónir króna og þar af er stór hluti skattaskuldir. Framkvæmdarstjóri félagsins og aðaleigandi eru grunaðir um sviksamlegt athæfi en þeir neita sök og segjast blásaklausir. Sport 13.10.2005 18:50