Íslenski handboltinn
89 90 91 92 93 94 95 96 97 … 123 ›
Tveir leikir í kvöld Tveir leikir fara fram í DHL-deild karla í handbolta í kvöld. Klukkan 19:00 taka Þórsarar á móti toppliði Fram norður á Akureyri, og klukkan 20 mætast svo Selfoss og Fylkir á Selfossi. Sport 31.3.2006 16:57
Haukar elta Fram eins og skugginn Haukar unnu góðan sigur á ÍR í DHL-deild karla í handknattleik í kvöld. Þar með narta þeir enn í hælana á Safamýrarpiltunum í Fram sem hafa 36 stig á toppi deildarinnar en Hafnfirðingarnir koma næstir, stigi á eftir. Sport 26.3.2006 23:19
ÍBV í sterkri stöðu Kvennalið ÍBV stendur með pálmann í höndunum fyrir lokaumferðina í DHL-deild kvenna í handknattleik eftir að liðið sigraði Gróttu 28-24 í Vestmannaeyjum í dag. Á sama tíma töpuðu Íslandsmeistarar Haukar fyrir Val 28-25 og því hefur ÍBV eins stigs forskot á Hauka og Val fyrir lokaumferðina. Sport 25.3.2006 18:18
Fram í góðri stöðu Fram styrkti stöðu sína á toppi DHL-deildar karla í dag þegar liðið lagði Selfoss örugglega á heimavelli sínum í dag 34-25. Valsmenn lögðu KA 30-26 og Afturelding sigraði ÍBV 31-25. Sport 25.3.2006 16:53
Fylkir burstaði Stjörnuna Tveir leikir fóru fram í DHL-deild karla í handknattleik í kvöld. Fylkir burstaði Stjörnuna á heimavelli sínum 24-17 og FH lagði Þór frá Akureyri í Kaplakrika 29-26. Fylkir komst með sigrinum upp fyrir Stjörnuna í fjórða sæti deildarinnar. Sport 24.3.2006 21:21
Tveir leikir í kvöld Tveir leikir fara fram í DHL-deild karla í handknattleik í kvöld og hefjast þeir báðir klukkan 19:15. Fylkir tekur á móti Stjörnunni í Árbænum en það verður væntanlega hörkuleikur þar sem liðin eru í fjórða og fimmta sæti deildarinnar. Þá mætast FH og Þór frá Akureyri í Kaplakrika í Hafnarfirði. Sport 24.3.2006 16:57
Alfreð velur fyrsta landsliðshóp sinn Alfreð Gíslason hefur nú valið sinn fyrsta landsliðshóp síðan hann tók við íslenska landsliðinu í handknattleik á dögunum, en hópurinn mun fara til Þýskalands í æfingabúðir um páskana. Leikirnir verða liður í undirbúningi liðsins fyrir umspilsleikina mikilvægu við Svía í sumar. Sport 24.3.2006 13:35
Valur mætir Tomis Constanta Í morgun var dregið í undanúrslit EHF-keppninnar í handknattleik kvenna og þar mæta Valsstúlkur rúmenska liðinu Tomis Constanta. Leikirnir fara fram 15. og 22. næsta mánaðar, en enn hefur ekki verið ákveðið hvort annað liðið muni hugsanlega selja heimaleik sinn. Sport 21.3.2006 15:07
Haukastúlkur aftur á toppinn Haukar komust aftur á topp DHL-deildar kvenna í handbolta með 8 marka sigri á næst neðsta liði deildarinnar, Víkingi á Ásvöllum í Hafnarfirði, 31-23. Ramune Pekeskyten var markahæst Hauk með 12 mörk en Hekla Daðadóttir var markahæst Víkinga með 7 mörk. Sport 19.3.2006 20:35
Jafnt hjá ÍBV og Val ÍBV og Valur gerðu jafntefli, 24-24 í Vestmannaeyjum í DHL-deild karla í handbolta í kvöld en þetta var frestaður leikur sem fram átti að fara í gær. Mladen Cacic var markahæstur heimamanna í ÍBV með 9 mörk en Hjalti Þór Pálmason skoraði mest Valsmanna eða 7 mörk. Valur er í 3. sæti deildarinnar með 30 stig. Sport 19.3.2006 19:27
Eyjastúlkur á toppinn ÍBV tyllti sér á topp DHL-deildar kvenna í handbolta síðdegis með því að leggja FH að velli í Eyjum, 29-23. Eyjastúlkur eru með eins stig forystu á Val og Hauka en Hafnarfjarðarliðið getur endurheimt toppsætið um kvöldmatarleytið þegar Haukar mæta næst neðsta liðinu, Víkingi kl. 18. Sport 19.3.2006 17:32
Fram endurheimti toppsætið Fram komst aftur á topp DHL-deildar karla í handbolta nú síðdegis með því að leggja Stjörnuna að velli í Garðabæ, 29-32. Staðan í hálfleik var 13-18 fyrir Fram. Sergeyi Serenko var markahæstur Framara með 9 mörk. Í Kópavogi vann HK 6 marka sigur á Aftureldingu, 29-23. Sport 18.3.2006 18:03
Valsstúlkur á toppinn Valur komst í dag á topp DHL-deildar kvenna í handbolta með 8 marka sigri á Fram, 21-29 í Framhúsinu. Valsstúlkur eru efstar ásamt Haukum með 26 stig en Haukar eiga leik til góðar gegn Víkingi á morgun. Tveir aðrir leikir fóru fram í deildinni í dag. HK lagði KA/Þór, 31-24 og eru enn í 7. sæti með 11 stig. Að lokum vann Stjarnan fjögurra marka útisigur á Gróttu, 19-23. Sport 18.3.2006 16:23
Jafnt hjá Selfossi og FH Selfoss og FH gerðu jafntefli 26-26 í lokaleik kvöldsins í DHL-deild karla í handknattleik. Selfoss er sem fyrr í neðsta sæti deildarinnar með aðeins 8 stig eftir 21 leik, en FH-ingar eru með 18 stig í 9. sæti deildarinnar. Sport 17.3.2006 22:02
Fylkir lagði KA KA menn töpuðu fyrsta leik sínum undir stjórn nýrra þjálfara í kvöld þegar liðið lá heima fyrir Fylki 28-24. Haukar lögðu Þór fyrir norðan 36-32 og ÍR vann nauman sigur á Víkingi/Fjölni í Austurbergi 29-28. Leik Selfoss og FH er enn ólokið. Sport 17.3.2006 21:16
Sævar og Árni taka við KA Nú hefur verið tilkynnt að Sævar Árnason verði næsti þjálfari KA-manna í DHL-deild karla í handbolta og honum til aðstoðar verður fyrrum aðstoðarþjálfari KA til fjölda ára, Árni Stefánsson. Þetta kemur fram á heimasíðu KA í kvöld. Þeirra bíður það erfiða verkefni að halda KA liðinu á meðal þeirra bestu, en illa hefur gengið hjá norðanmönnum að undanförnu. Sport 15.3.2006 21:24
Reynir hættur að þjálfa KA Reynir Stefánsson hefur stigið af stóli sem þjálfari handknattleiksliðs KA í DHL-deildinni af persónulegum ástæðum. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá félaginu nú undir kvöldið. Ekki er ljóst hver tekur við liði KA í hans stað. Sport 14.3.2006 18:37
Haukar lögðu Selfoss Tveir leikir fóru fram í DHL-deild karla í handknattleik. Haukar lögðu Selfoss 33-28 á heimavelli sínum Ásvöllum og Stjarnan gerði góða ferð í Hafnarfjörðinn og skellti FH 31-26. Þá var einn leikur í DHL-deild kvenna, Grótta marði sigur á FH á útivelli 26-25. Sport 12.3.2006 21:46
Fram burstaði KA Fram var ekki vandræðum með KA menn á heimavelli sínum í DHL-deil karla í handbolta í dag og vann tíu marka sigur 37-27. Jóhann Einarsson skoraði 8 mörk fyrir Fram og Stefán Stefánsson skoraði 6. Hjá KA voru Elfar Halldórsson og Nikola Jankovic markahæstir með 5 mörk hvor. Fram hefur þriggja stiga forskot á toppi deildarinnar, en Haukar eiga leik til góða gegn Selfossi í kvöld. Sport 12.3.2006 18:04
Valur lagði Aftureldingu Tveir leikir fóru fram nú síðdegis í DHL-deild karla í handbolta. Valsmenn skelltu Aftureldingu í Mosfellsbænum 27-25 og Víkingur/Fjölnir lagði Þór naumlega á heimavelli 29-28. Sport 11.3.2006 18:08
Haukar lögðu Stjörnuna Haukar gerðu í dag góða ferð í Garðabæinn þar sem liðið skellti heimamönnum í Stjörnunni í DHL-deild kvenna í handbolta 29-26. Hanna G. Stefánsdóttir var markahæst í liði Hauka með 12 mörk og Ramune Pekarskite skoraði 7 mörk. Hjá Stjörnunni skoraði Rakel Dögg Bragadóttir 7 mörk og Sólveig Kjærnested 6 mörk. Sport 11.3.2006 17:55
ÍBV lagði KA/Þór Kvennalið ÍBV gerði góða ferð norður á Akureyri í dag þegar það skellti heimamönnum í KA/Þór 25-19. Pavla Plaminkova skoraði 9 mörk fyrir Eyjastúlkur, en Guðrún Helga Tryggvadóttir skoraði 6 mörk fyrir heimaliðið. Sport 11.3.2006 16:10
Fylkir vann auðveldan sigur á ÍBV Fylkir vann í dag auðveldan sigur á ÍBV í DHL-deild karla í handbolta 27-18 á heimavelli sínum. Ingólfur Axelsson skoraði 10 mörk fyrir Fylki og Hlynur Morthens varði 20 skot í markinu. Ólafur Víðir Ólafsson skoraði 5 mörk fyrir ÍBV. Sport 11.3.2006 16:03
Valsstúlkur í undanúrslit Handknattleikslið Vals varð í dag annað íslenska liðið til að tryggja sér sæti í undanúrslitum Áskorendakeppni Evrópu í kvennaflokki þegar liðið skellti svissneska liðinu Bruhl í síðari viðureign liðanna í Laugardalshöllinni 32-27, en Valur vann fyrri leikinn 25-21 í gær. Sport 11.3.2006 15:48
HK lagði ÍR HK er komið í sjötta sæti í DHL-deild karla í handknattleik eftir sigur á ÍR á heimavelli sínum í Digranesi í kvöld 29-27. HK hefur hlotið 20 stig, en ÍR er í áttunda sæti deildarinnar með 19 stig. Sport 10.3.2006 21:55
Valur vann fyrri leikinn við Bruhl Kvennalið Vals vann sigur á svissneska liðinu Bruhl í kvöld í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Áskorendakeppni Evrópu í handbolta 25-21. Leikurinn fór fram í Laugardalshöll og sá síðari verður leikinn á morgun á sama stað, þar sem svissneska liðið seldi heimaleik sinn. Sport 10.3.2006 20:52
HK tekur á móti ÍR Einn leikur er á dagskrá í DHL-deild karla í handknattleik í kvöld þegar HK tekur á móti ÍR í Digranesi. HK er í áttunda sæti deildarinnar með 18 stig, en ÍR-ingar sitja í sætinu fyrir ofan með einu stigi meira. Leikurinn hefst klukkan 20. Sport 10.3.2006 16:05
Stjarnan lagði KA fyrir norðan Stjarnan vann í kvöld nauman sigur á KA 26-25 fyrir norðan í DHL-deildinni í handknattleik karla, eftir að hafa verið yfir 15-12 í hálfleik. Stórskyttan Tite Kalandadze var markahæstur í liði Garðbæinga með 7 mörk, en Jónatan Magnússon skoraði 9 mörk fyrir norðanmenn. Stjarnan er í fjórða sæti deildarinnar með 26 stig, en KA í því sjötta með 19. stig. Sport 8.3.2006 21:12
Valur á toppinn Valsstúlkur lyftu sér á toppinn í DHL-deild kvenna í kvöld þegar þær burstuðu lið HK 41-26 í Laugardalshöllinni. Þá vann Stjarnan góðan sigur á Fram í Safamýrinni 31-26. Sport 7.3.2006 22:20
Alfreð formlega tekinn við landsliðinu Alfreð Gíslason tók í dag formlega við þjálfun íslenska karlalandsliðsins í handbolta en hann skrifaði undir samning þess efnis á fréttamannafundi hjá HSÍ í dag. Upphaflega átti að skrifa undir í gær en vegna frestunar á flugi frá Þýskalandi var því seinkað þangað til í dag. Sport 4.3.2006 19:14