Ástin á götunni
272 273 274 275 276 277 278 279 280 … 334 ›
Sigurður Jónsson hættur hjá Grindavík Sigurður Jónsson, þjálfari Grindvíkinga í Landsbankadeild karla í knattspyrnu, hefur sagt starfi sínu lausu og er hættur að þjálfa liðið. Grindvíkingar eru í bullandi fallbaráttu í deildinni og því er ekki hægt að segja að þessi tíðindi komi á heppilegum tíma. Formaður knattspyrnudeildar Grindavíkur staðfesti þetta í samtali við NFS í dag. Sport 13.9.2006 14:56
Góður dagur hjá Íslendingunum Fjölmargir leikir fóru fram í norsku og hollensku úrvalsdeildunum í fótbolta í kvöld. Öll Íslendingaliðin unnu góða sigra í sínum leikjum. Sport 10.9.2006 20:28
Andri jafnaði í blálokin Andri Ólafsson skoraði í uppbótartíma fyrir ÍBV og tryggði liðinu dýrmætt stig í leiknum gegn FH í Eyjum í dag. FH náði þar með ekki að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn. Sport 10.9.2006 16:34
Staðan versnar fyrir ÍA ÍA er ennþá í 9. sæti Landsbankadeildar karla eftir að hafa misst unnin leik gegn Breiðablik niður í jafntefli í síðari hálfleik í dag. Atli Guðnason er búinn að koma FH í 1-0 í Eyjum þegar rúmur hálftími er eftir. Sport 10.9.2006 15:55
ÍA skoraði á síðustu mínútu Guðjón Heiðar Sveinsson var að koma Skagamönnum í 2-1 í viðureign liðsins gegn Breiðablik í Kópavogi. Staðan hjá Keflavík og Fylki er 1-1 en það er enn markalaust í leik Víkings og KR. 45 mínútna seinkunn varð á leik ÍBV og FH í Eyjum og er hann því að hefjast núna. Sport 10.9.2006 14:46
Áttum að gera út um leikinn "Þetta er súrt, það er ekki hægt að neita því," sagði Guðmundur Magnússon, þjálfari Breiðabliks. "Mér fannst við hafa undirtökin í venjulegum leiktíma og áttum að gera út um leikinn í byrjun seinni hálfleiks. Þegar líða fór á varð þetta jafn baráttuleikur. Hörkugaman fyrir áhorfendur en hundleiðinlegt fyrir okkur. Það er klárt mál að þetta tímabil er mikil vonbrigði fyrir okkur og ekki það sem við ætluðum okkur. En við verðum bara að bíta í það súra epli," sagði Guðmundur, hundsvekktur eftir leikinn. Sport 9.9.2006 20:56
Valsstúlkur hömpuðu bikarnum Margrét Lára Viðarsdóttir var svo sannarlega á skotskónum þegar Valur vann Breiðablik í bikarúrslitaleik kvenna á Laugardalsvelli. Leikurinn var æsispennandi og tryggði Valur sér sigurinn í vítaspyrnukeppni. Sport 9.9.2006 20:56
Náðum að rífa okkur upp "Þetta var frábær endir á stórkostlegu tímabili," sagði Margrét Lára Viðarsdóttir eftir sigurinn í gær. "Þetta var hörkuleikur, er þetta ekki það sem áhorfendur vilja? Það er alltaf verið að gagnrýna kvennaboltann en ég held að fólk geti dregið þau orð til baka. Tvö frábær lið mættust í leik sem hefði getað endað á hvorn veginn sem var," sagði Margrét en þess má geta að 819 áhorfendur sáu þennan stórskemmtilega leik í Laugardalnum í gær. Sport 9.9.2006 20:56
Eiður Smári kom ekki við sögu Eiður Smári Guðjohnsen sat allan tímann á varamannabekk Barcelona þegar liðið gjörsigraði Osasuna, 3-0, í viðureign liðanna í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld. Leikurinn var eins og lauflétt æfing fyrir Spánarmeistarana sem gerðu út um leikinn í fyrri hálfleik. Sport 9.9.2006 19:52
Hannes lék allan leikinn Landsliðsmaðurinn Hannes Þ. Sigurðsson lék allan leikinn fyrir Bröndby sem gerði jafntefli við AaB í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Sport 9.9.2006 19:45
Valur meistari Valsstúlkur eru bikarmeistarar eftir magnaðan sigur á Breiðablik eftir vítaspyrnukeppni í maraþon-úrslitaleik VISA-bikarsins. Það var Guðný Óðinsdóttir sem tryggði Val sigur með því að skora úr síðustu spyrnu liðsins en hetja liðsins var markvörðurinn Guðbjörg Gunnarsdóttir en hún varði tvær spyrnur frá Blikum. Sport 9.9.2006 19:08
Framlengt í Laugardalnum Eftir venjulegan leiktíma í úrslitaleik Vals og Breiðabliks í VISA-bikar kvenna er staðan 2-2. Blikar höfðu 2-1 yfir í hálfleik en Margrét Lára Viðarsdóttir jafnaði metin með sínu öðru marki í leiknum. Það þarf því að framlengja á Laugardalsvellinum. Sport 9.9.2006 18:21
Breiðablik yfir í hálfleik Breiðablik hefur 2-1 forystu á Val þegar flautað hefur verið til hálfleiks í úrslitaleik VISA-bikar kvenna sem fram fer á Laugardalsvellinum. Margrét Lára Viðarsdóttir kom Valsstúlkum yfir strax á 4. mínútu með glæsilegu marki beint úr aukaspyrnu en Elín Anna Steinarsdóttir jafnaði á 26. mínútu. Það var síðan Ólína G. Viðarsdóttir sem kom Blikum yfir skömmu síðar. Bæði mörkin komu eftir hornspyrnu. Sport 9.9.2006 17:16
HK mistókst að tryggja úrvalsdeildarsætið HK tapaði mjög óvænt fyrir Víkingi Ólafsvík á heimavelli sínum í Kópavogi í dag, 0-1. Ósigurinn þýðir að liðið hefur enn ekki tryggt sér sæti í Landsbankadeild að ári en þeim til happs náði Fjölnir aðeins markalausu jafntefli gegn Leikni á heimavelli og því munar enn þremur stigum á liðunum þegar ein umferð er óleikin. Ósigur HK þýðir jafnframt að Fram hafnar í 1. sæti deildarinnar þrátt fyrir 1-0 tap gegn Þór á Akureyri. Sport 9.9.2006 16:22
HK getur tryggt úrvalsdeildarsætið Tólf þýðingarmiklir leikir fara fram í neðri deildum karla í dag. HK getur tryggt sér úrvalsdeildarsæti ásamt því að leikurinn um þriðja sæti 3. deildarinnar er nú í fyrsta sinn spennuhlaðin viðureign. Sport 8.9.2006 21:15
Boltaveisla á Sýn um helgina Það verður mikið um að vera í íþróttalífinu hér heima sem og erlendis um helgina. Af innlendum vettvangi má nefna að úrslit fara langt með að ráðast í fyrstu- og Landsbankadeild karla í knattspyrnu og þá fer sjálfur bikarúrslitaleikurinn í kvennaflokki fram á morgun. Þá fer allt á fullt í spænska- og enska boltanum um helgina. Sport 8.9.2006 19:40
Elísabet framlengir við Val Knattspyrnudeild Vals gekk í gærkvöld frá nýjum þriggja ára samningi við Elísabetu Gunnarsdóttur, þjálfara kvennaliðs félagsins sem tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn á dögunum. Elísabet mun einnig gegna starfi yfirþjálfara hjá yngri kvennaflokkum félagsins. Þetta kemur fram á heimasíðu Vals í dag. Sport 7.9.2006 16:35
Margrét Lára best Margrét Lára Viðarsdóttir hjá Íslandsmeisturum Vals var í dag útnefnd besti leikmaður 8-14 umferðar Landsbankadeildar kvenna í knattspyrnu. Elísabet Gunnarsdóttir, þjálfari Vals, var kjörin besti þjálfarinn og stuðningsmenn Vals þóttu bestu stuðningsmennirnir á síðari helmingi tímabilsins. Þá var valið úrvalslið síðustu umferðanna. Sport 5.9.2006 14:53
Yfirlýsing frá kvennaráði FH Kvennaráð FH hefur gefið út yfirlýsingu vegna leiðinlegrar uppákomu sem átti sér stað á Valbjarnarvelli í dag þegar ljóst varð að FH gat ekki teflt fram liði í lokaleik sínum gegn Íslandsmeisturum Vals í Landsbankadeildinni. Sport 3.9.2006 17:56
Fjölnir í Landsbankadeildina Kvennalið Fjölnis vann sér í dag sæti í efstu deild á næstu leiktíð þegar liðið lagði ÍR 1-0 í úrslitaleik um sæti í Landsbankadeildinni. ÍR á þó enn möguleika á að vinna sér sæti í deildinni þegar það mætir næstneðsta liði Landsbankadeildarinnar, Þór/KA, í leik um sæti í deildinni á næstu leiktíð. Sport 3.9.2006 17:52
KR valtaði yfir Fylki Keppni í Landsbankadeild kvenna lauk í dag, en fyrr í dag varð ljóst að Valur landaði titlinum og FH féll á óeftirminnilegan hátt. KR-stúlkur völtuðu yfir Fylki 11-1 á útivelli í dag þar sem Fjóla Dröfn Friðriksdóttir skoraði fimm mörk, Breiðablik lagði Stjörnuna 2-0 á útivelli og Keflavík sigraði Þór/KA 3-1. Sport 3.9.2006 17:38
Hneyksli fyrir kvennaknattspyrnuna Kvennalið Vals er nú formlega orðið Íslandsmeistari í kvennaknattspyrnu, en ekki er hægt að segja að liðið hafi fengið tækifæri til að ljúka keppni með tilþrifum því lið FH mætti aðeins með 6 leikmenn til leiks á Valbjarnarvöll og því var Valsliðinu dæmdur sigur án þess að flautað væri til leiks. Þjálfari Vals kallar atvikið hneyksli fyrir kvennaknattspyrnuna. Sport 3.9.2006 14:59
Tap fyrir Ítölum Íslenska U-21 árs landslið karla í knattspyrnu tapaði 1-0 fyrir Ítölum í leik liðanna í undankeppni EM á Laugardalsvellinum í kvöld. Leikurinn var ekki sérlega skemmtilegur, en sigurmarkið skoraði Riccardo Montolivo eftir 57 mínútna leik. Gunnar Þór Gunnarsson fékk að líta rauða spjaldið undir lokin líkt og einn leikmanna ítalska liðsins eftir að kom til handalögmála á hliðarlínunni. Sport 1.9.2006 21:03
Jafnt í hálfleik á Laugardalsvelli Staðan í leik Íslands og Ítalíu er 0-0 þegar flautað hefur verið til leikhlés í viðureign liðanna í undankeppni EM. Leikurinn hefur satt best að segja ekki verið mikið fyrir augað til þessa, en vonandi hressist Eyjólfur eitthvað í síðari hálfleik. Sport 1.9.2006 19:50
Ein breyting á íslenska liðinu Lúkas Kostic, þjálfari U-21 árs landsliðsins, hefur gert eina breytingu á liði sínu fyrir leikinn gegn Ítölum í undankeppni EM sem hefst nú klukkan 19. Eyjólfur Héðinsson kemur inn í liðið í stað Guðjóns Baldvinssonar. Íslenska liðið spilar leikaðferðina 4-5-1 í kvöld. Aðgangurr er ókeypis á leik kvöldsins á Laugardalsvelli og því um að gera fyrir alla að drífa sig á völlinn og styðja íslenska liðið gegn sterku liði Ítala. Sport 1.9.2006 18:28
Lúðarnir hefja leik í kvöld Fyrsti sjónvarpsþátturinn um Knattspyrnufélagið Nörd verður á dagskrá Sýnar í kvöld klukkan 21, en þar hefur fyrrum landsliðsþjálfaranum Loga Ólafssyni verið fengið það erfiða verkefni að búa til brúklegt knattspyrnulið úr hópi hæfileikalausra lúða sem aldrei hafa komið nálægt íþróttinni. Sport 31.8.2006 19:24
Hólmar Örn farinn til Silkeborg Keflvíkingurinn Hólmar Örn Rúnarsson gekk í dag í raðir danska knattspyrnuliðsins Silkeborg. Hólmar skrifaði undir samning við félagið á dögunum og upphaflega var reiknað með að hann gengi í raðir liðsins þann 1. janúar, en í dag var gengið frá því að hann héldi strax til Danmerkur og verða Keflvíkingar því án þessa sterka leikmanns í bikarúrslitaleiknum gegn KR í næsta mánuði. Sport 31.8.2006 15:50
Skilaði Neistanum 1,1 milljón Markheppni leikmanna í síðustu umferðum Landsbankadeilda karla og kvenna skilaði Neistanum, Félagi hjartveikra barna, rúmlega milljón krónum. Landsbankinn hafði heitið á liðin sem leika í úrvalsdeild karla og kvenna í knattspyrnu að skora sem flest mörk en fyrir hvert mark sem skorað var í úrvalsdeild kvenna greiðir Lansdbankinn 30.000 krónur. Upphæðin fyrir markið í karladeildinni var 25.000 krónur. Innlent 30.8.2006 23:07
Titillinn er formsatriði hjá Valsstúlkum Þrettánda og næst síðasta umferðin í Landsbankadeild kvenna fór fram í kvöld. Valsstúlkur tryggðu sér nánast Íslandsmeistaratitilinn með því að leggja Keflavík 4-0 á útivelli og það þýðir að Breiðablik, sem vann Fylki 6-2 í kvöld, þarf að vinna lokaleik sinn með yfir 30 marka mun og treysta á að Valur tapi í lokaumferðinni til að eiga möguleika á að verja titil sinn frá því í fyrra. Sport 30.8.2006 21:04
Sex leikmenn í bann Aganefnd KSÍ hefur úrskurðað sex leikmenn í eins leiks bann í Landsbankadeild karla vegna fjölda áminninga og missa þeir því af leikjum sinna liða í 16. umferðinni. Þetta eru Keflvíkingarnir Baldur Sigurðsson og Símun Samuelsen, Hörður Bjarnason og Valur Adolf Úlfarsson úr Víkingi, Jóhann Helgason frá Grindavík og Matthías Guðmundsson úr Val. Sport 30.8.2006 13:28