Ástin á götunni
295 296 297 298 299 300 301 302 303 … 334 ›
Það var kominn tími á þetta „Þetta er alveg meiriháttar. Það var svo sannarlega kominn tími til að lyfta alvöru bikar. Ég er kominn með góða æfingu eftir að hafa unnið 1. deildina, Reykjavíkurmótið, Canella Cup, Íslandsmótið innan hús og ég veit ekki hvað," sagði Sigurbjörn Hreiðarsson, fyrirliði Valsmanna. Sport 23.10.2005 14:59
Þriðja umferð deildarbikarsins Nú hefur verið dregið í þriðju umferð deildarbikarsins á Englandi. Grimsby fær tækifæri til að slá út annað úrvalsdeildarlið, því þeir fá Newcastle í heimsókn í næstu umferð. Félagar Grimsby í fjórðu deildinni, Barnet, fara á Old Trafford og mæta þar Manchester United. Þá verða fimm viðureignir milli úrvalsdeildarfélaga. Sport 23.10.2005 14:59
Hálfleikur á Englandi Nú er hálfleikur í leikjunum sex sem standa yfir í ensku knattspyrnunni, en hægt er að fylgjast með gangi mála í leikjunum á Boltavaktinni hér á Vísi. Það vekur athygli að Manchester United er undir á heimavelli sínum gegn Blackburn og Chelsea hefur fengið á sig fyrsta markið á tímabilinu á heimavelli gegn Aston Villa. Sport 23.10.2005 14:59
Þetta var skot hjá mér „Þetta var skot! Ég sá að Gunnar stóð of framarlega þannig að ég tók þá ákvörðun að skjóta," sagði Húsvíkingurinn Baldur Aðalsteinsson strax eftir leik en hann skoraði eina mark bikarúrslitaleiksins í ár. Sport 23.10.2005 14:59
Loksins titill hjá Val eftir 13 ár Baldur Aðalsteinsson tryggði Val níunda bikarmeistaratitil félagsins þegar hann skoraði sigurmarkið gegn Fram með skoti langt utan af kanti. Framarar voru síst lakari aðilinn í leiknum en það voru nýliðar Valsmanna sem kórónuðu frábært tímabil með því að vinna bikarinn. Sport 23.10.2005 14:59
Hermann hrósar félögum sínum Hermann Hreiðarsson telur að leikmennirnir sem keyptir voru til félagsins í sumar og hreint og klárt hungur, séu ástæður þess að Charlton hefur byrjað svo vel í ensku úrvalsdeildinni í haust, en liðið hefur þegar unnið þrjá útileiki. Sport 23.10.2005 14:59
Valur bikarmeistari Valur er bikarmeistari árið 2005 eftir sigur á Fram 1-0 í úrslitaleik sem lauk nú rétt í þessu. Það var Baldur Aðalsteinsson sem skoraði eina mark leiksins á 52. mínútu og eru Valsmenn vel að sigrinum komnir eftir frábært sumar, þar sem þeir höfnuðu í öðru sæti Landsbankadeildarinnar sem nýliðar í deildinni. Sport 23.10.2005 14:59
Bolton sigraði Portsmouth Bolton Wanderers lyfti sér í þriðja sæti ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu áðan, þegar liðið bar sigurorð af slöku liði Portsmouth, sem á í stökustu vandræðum í deildinni. Það var Kevin Nolan sem skoraði sigurmark Bolton á 25. mínútu leiksins og þar við sat. Sport 23.10.2005 14:59
Jafntefli hjá Luton og Sheffield Einn leikur var á dagskrá í ensku fyrstu deildinni í knattspyrnu í gær. Luton og Sheffield Wednesday gerðu jafntefli, 2-2. Luton er í þriðja sæti í deildinni með 18 stig en Sheffield Wednesday í þriðja neðsta sæti með 7 stig. Sport 23.10.2005 14:59
Ótrúlegt að við skyldum tapa Ólafur Kristjánsson, þjálfari Fram, var mjög svekktur eftir tap liðsins gegn Val í bikarúrslitunum. „Við áttum mikið fleiri færi en þeir og svo kemur ein helvítis fyrirgjöf og hún endar í markinu. Það er alveg ótrúlegt að við skyldum tapa þessum leik." Sport 23.10.2005 14:59
Baldur kemur Val yfir Síðari hálfleikurinn hjá Fram og Val byrjar mun betur en sá fyrri og nú hafa Valsmenn náð forystunni með marki Baldurs Aðalsteinssonar, sem skoraði með góðu skoti á 52. mínútu leiksins. Fylgst er með gangi mála á Boltavaktinni. Sport 23.10.2005 14:59
Slæmur fyrri hálfleikur í gær Íslenska kvennalandsliðið tapaði 0–1 fyrir Tékkum í gær en þetta var fyrsta tap íslenska liðsins í undankeppni fyrir HM í Kína 2007. Sænska landsliðið vann Hvít-Rússa 6–0 á sama tíma og er komið á toppinn í riðlinum. Sport 23.10.2005 14:59
Willum Þór var í skýjunum Willum Þór Þórsson, þjálfari Vals, var í skýjunum eftir sigurinn á Fram. Kópavogsbúinn geðþekki hefur nú unnið nánast allt sem hægt er að vinna í íslenskri knattspyrnu, allar deildirnar fjórar og nú bikarinn eftirsótta. Sport 23.10.2005 14:59
Leikjum lokið á Englandi Leikjunum sex í ensku úrvalsdeildinni er lokið, en þar ber hæst að Manchester United tapaði á heimavelli fyrir Blackburn og Chelsea hélt sigurgöngu sinn áfram með sigri á Aston Villa á heimavelli sínum. Sport 23.10.2005 14:59
Bikarúrslitin á Boltavaktinni Bikarúrslitaleikur Fram og Vals á Laugardalsvelli hefst nú klukkan 14 og þeir sem ekki komast á völlinn geta fylgst vel með gangi mála á Boltavaktinni hér á íþróttasíðu Vísis.is. Sport 23.10.2005 14:59
Woodgate þakkaði stuðningsmönnum Hrakfallabálkurinn Jonathan Woodgate þakkaði stuðningsmönnum Real Madrid fyrir að standa við bakið á sér eftir ófarir sínar í leik Real og Bilbao í gær, en þessi fyrsti leikur hans með aðalliði í nær eitt og hálft ár, snerist upp í algjöra martröð eins og áhorfendur Sýnar fengu að verða vitni að í skrautlegum leik í gærkvöld. Sport 23.10.2005 14:58
Vieira aðvarar Arsenal Miðjumaðurinn Patrick Vieira hjá Juventus hefur gefið út aðvörunarorð til fyrrum félaga sinna í Arsenal og segir að félagið verði að bretta upp ermarnar í leikmannamálum ef það ætli sér að halda framherjanum snjalla Thierry Henry lengur í sínum röðum. Sport 23.10.2005 14:58
Bikarúrslitin í dag Það má búast við miklum baráttuleik í dag þegar Fram og Valur mætast í úrslitaleik VISA-bikarkeppninnar. Ólafur Kristjánsson, þjálfari Fram, hefur þurft að beita öllum ráðum til þess að fá sína leikmenn til þess að einbeita sér að leiknum eftir að hafa fallið í 1.deild um síðustu helgi. Sport 23.10.2005 14:58
Routledge fjarri bata Miðjumaðurinn Wayne Routledge hjá Tottenham á enn langt í land með að ná sér af meiðslum sínum og Martin Jol knattspyrnustjóri liðsins óttast að hann verði frá í að minnsta kosti tvo mánuði í viðbót. Sport 23.10.2005 14:58
Ísland-Tékkland í dag Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu mætir í dag Tékklandi í undankeppni heimsmeistaramótsins sem fer fram í Kína árið 2007. Ísland er í efsta sæti síns riðils eins og staðan er nú og á ágæta möguleika á því að komast í lokakeppnina ef vel gengur í leikjunum sem eftir eru. Sport 23.10.2005 14:59
Chelsea hefur heppnina með sér Arsene Wenger segir heilladísirnar hafa verið á bandi Chelsea það sem af er leiktíðinni og spáir að þegar liðið loks tapar í úrvalsdeildinni, gæti það haft í för með sér taphrinu, ekki ósvipaða þeirri sem Arsenal lenti í þegar sigurganga þeirra var stöðvuð í deildinni í fyrra. Sport 23.10.2005 14:58
Óvissa með framtíð Henry Arsene Wenger hefur viðurkennt að framtíð franska framherjans Thierry Henry hjá Arsenal sé óljós og bendir á að hann sé alls ekki viss um að félagið geti haldið leikmanninum í sínum röðum. Sport 23.10.2005 14:58
Heiðar þarf enn að vera þolinmóður Landsliðsmaðurinn Heiðar Helguson hjá Fulham í ensku úrvalsdeildinni, þarf að vera þolinmóður enn um sinn, því hann verður áfram á varamannabekk liðsins á mánudagskvöld þegar liðið mætir Tottenham Hotspurs. Sport 23.10.2005 14:58
Neville frá í sex vikur Nú er ljóst að varnarmaðurinn Gary Neville hjá Manchester United verður frá keppni í sex vikur eftir að hann fór í uppskurð vegna meiðsla í nára. Búist var við að Neville yrði klár í slaginn um helgina, en honum sló niður á æfingu og var því drifinn í uppskurð. Sport 23.10.2005 14:58
Bjarni í byrjunarliðinu Bjarni Guðjónsson og samherjar hans í Plymouth fengu nýjan knattspyrnustjóra í gær þegar Tony Pulis tók við stjórnartaumunum. Pulis var rekinn frá Íslendingaliðinu Stoke City í sumar þrátt fyrir að ná ágætum árangri þau þrjú ár sem hann stýrði liðinu en íslensku fjárfestarnir voru ekki sáttur við hvernig Pulis meðhöndlaði íslensku leikmennina hjá Stoke, eins og t.d. Þórð Guðjónsson. Sport 23.10.2005 14:58
Stórsigur Íslands á Andorra Íslenska U-17 ára landsliðið í knattspyrnu vann stórsigur á Andorra í undankeppni EM í Andorra í kvöld. Staðan í hálfleik var 1-0 fyrir Ísland, en í síðari hálfleik fóru íslensku strákarnir á kostum og skoruðu fimm mörk gegn varnarsinnuðu liði heimamanna. Sport 23.10.2005 14:58
Martröð hjá Jonathan Woodgate Jonathan Woodgate er nú rétt í þessu að spila sinn fyrsta leik í byrjunarliði Real Madrid, eftir að hafa verið meira og minna frá keppni í eitt og hálft ár vegna meiðsla. Ekki er hægt að segja að Woodgate hefji endurkomu sína með stæl, því nú rétt áðan kom hann liðið Atletic Bilbao yfir með því að skora sjálfsmark á 25. mínútu leiksins. Sport 23.10.2005 14:58
Tony Pulis á leið til Plymouth Knattspyrnustjórinn Tony Pulis er sagður vera kominn á fremsta hlunn með að skrifa undir samning um að þjálfa Plymouth Argyle, lið Bjarna Guðjónssonar í ensku fyrstu deildinni. Sport 17.10.2005 23:48
Davíð Þór til Reading Davíð Þór Viðarsson, knattspyrnumaður hjá FH, er á leið til enska félagsins Reading sem leikur í ensku 1.deildinni en hann fer til liðsins í október og verður þar til reynslu í óákveðinn tíma. Sport 23.10.2005 14:58
Real lagði Bilbao Áhorfendur fengu nóg fyrir sinn snúð í leik Real Madrid og Atletic Bilbao í kvöld, en leikurinn var í beinni útsendingu á Sýn Extra og er ný lokið. Real hafði sigur 3-1, en þó gekk á ýmsu áður en heimamenn tryggðu sér sigurinn. Sport 23.10.2005 14:58