Ástin á götunni
304 305 306 307 308 309 310 311 312 … 334 ›
Pearce óttast ekki grannaslaginn Stuart Pearce, knattspyrnustjóri Manchester City, segist ekki hafa neinar áhyggjur af grannaslagnum við United á Old Trafford á morgun, en þar hefur City ekki sigrað í meira en þrjá áratugi. Sport 14.10.2005 06:41
Ætlum að vinna tvöfalt Þóra Helgadóttir, fyrirliði og markvörður Breiðabliks, kom til Breiðabliks fyrir tímabilið en hún hóf feril sinn hjá félaginu. "Þetta sumar er búið að vera virkilega skemmtilegt og það er líka gaman fyrir mig að snúa aftur í mitt gamla félag á uppgangstímum." Sport 14.10.2005 06:41
Mourinho heldur tryggð við Lampard Jose Mourinho segist ekki láta gagnrýni Sven-Göran Eriksson á Frank Lampard á sig fá og bendir á að það sem Lampard geri með enska landsliðinu komi sér ekki við. Sport 14.10.2005 06:41
Owen ver Eriksson Michael Owen vill ekki að landsliðsþjálfarinn Sven-Göran Eriksson fái einn allar skammirnar sem hafa dunið á enska landsliðinu eftir tapið gegn Norður-Írum í Belfast í gær og segir að leikmennirnir verði einnig að axla ábyrgðina. Sport 14.10.2005 06:41
Ferguson vissi af Vieira Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United, hefur nú viðurkennt að hann hafi vitað að Patrick Vieira væri falur eftir lok síðustu leiktíðar með Arsenal, en sagðist hafa ákveðið að gera ekki tilboð í hann af nokkrum ástæðum. Sport 14.10.2005 06:41
Glæsimark Henry slökkti í Írum Snillingurinn Thierry Henry sýndi enn á ný hvers hann er megnugur þegar hann skoraði sigurmark Frakka á Írum í landsleik þjóðanna í gærkvöldi. Írska liðið lék mjög vel í gær með Roy Keane í fantaformi á miðjunni, en þegar maður eins og Henry er annars vegar, má lítið útaf bera í varnarleiknum. Sport 14.10.2005 06:41
Mexikó tryggði sér sæti á HM Landslið Mexikó tryggði sér í gærkvöld sæti á HM í Þýskalandi næsta sumar, þegar liðið burstaði Panama með fimm mörkum gegn engu. Mexíkó og Bandaríkin sitja nú á toppi Ameríkuriðilsins með nítján stig og eru örugg á HM. Sport 14.10.2005 06:41
Góð tíðindi fyrir Manchester City Stuart Pearce, knattspyrnustjóri Manchester City hefur staðfest að þeir Robbie Fowler og Sylvain Distin verði klárir í grannaslag Manchester City og Manchester United um helgina, en þeir hafa báðir átt við meiðsli að stríða undanfarið. Sport 14.10.2005 06:41
Knattspyrnusambandið kærir Chelsea Chelsea er enn komið í fréttirnar fyrir að brjóta reglur enska knattspyrnusambandsins, en í þetta sinn eiga þeir yfir höfði sér harða refsingu eftir að upp komst að félagið lét leikmenn liðsins taka lyfjapróf í fyrrasumar, í trássi við reglur sambandsins. Sport 14.10.2005 06:41
Glen Johnson sendur heim Varnarmaðurinn Glen Johnson var sendur heim frá Þýskalandi með skömm af þjálfurum eftir U-21 árs leik Englendinga og Þjóðverja á dögunum, eftir að hann hafði verið hrokafullur og agalaus í ferðinni. Þykir Johnson hafa stimplað sig endanlega út úr myndinni hjá enska landsliðinu fyrir vikið. Sport 14.10.2005 06:41
Boa Morte samdi við Fulham Portúgalski landsliðsmaðurinn Luis Boa Morte hefur skrifað undir nýjan samning við Fulham, sem gildir til ársins 2010, en í honum er ákvæði sem á að hindra að önnur félög geti lokkað hann í burtu. Sport 14.10.2005 06:41
Englendingar niðurlægðir Enska landsliðið í knattspyrnu þurfti að þola 1-0 tap fyrir lágt skrifuðum Norður-Írum í Belfast í gær í undankeppni HM. Írska liðið er hátt í hundrað sætum neðar á styrkleikalista FIFA og hafði ekki náð að leggja Englendinga síðan árið 1927. Sport 14.10.2005 06:41
Rooney í vandræðum með skapið Wayne Rooney var ljónheppinn að fá ekki að líta rauða spjaldið í leik Englendinga og Norður-Íra í undankeppni HM í gærkvöldi, en hann lét skapið hlaupa með sig í gönur hvað eftir annað í leiknum. Sport 14.10.2005 06:41
Tímabil Newcastle byrjar núna Alan Shearer, fyrirliði Newcastle, hefur lýst því yfir að nýtt upphaf fari í hönd hjá félaginu um helgina með tilkomu Michael Owen og segist veðja á að Owen verði markakóngur í ensku úrvalsdeildinni í ár. Sport 14.10.2005 06:41
Fulham nældi í Christanval Fulham, lið Heiðars Helgusonar í ensku úrvalsdeildinni, gerði í gærkvöld fjögurra ára samning við franska varnarmanninn Philippe Christianval, sem er 27 ára og lék áður með Monaco, Barcelona og Marseille. Sport 14.10.2005 06:41
Klinsmann hefur ekki áhyggjur Jurgen Klinsmann, landsliðisþjálfari Þjóðverja, hefur hvatt leikmenn sína til að láta harða gagnrýni fjölmiðla og sérfræðinga á liðinu sem vind um eyru þjóta og segir það að þola gagnrýni vera hluta af starfinu. Sport 14.10.2005 06:41
Morientes frá í tvær vikur Spænski framherjinn Fernando Morientes hjá Liverpool verður frá keppni í tvær vikur vegna meiðsla á læri sem hann hlaut á landsliðsæfingu í vikunni, en þetta staðfestu læknar spænska liðsins í gærkvöldi. Sport 14.10.2005 06:41
Vill hafa leikmenn sína reiða Rafa Benitez, knattspyrnustjóri Liverpool, segist vilja hafa leikmenn sína reiða á milli leikja og segir það aðeins efla þá til dáða á knattspyrnuvellinum. Þetta segir hann í ljósi frétta sem berast af ósætti milli hans og Djibril Cisse, sem fór í fýlu eftir að Benitez reyndi án afláts að selja hann áður en félagaskiptaglugginn lokaðist í ensku knattspyrnunni á dögunum. Sport 14.10.2005 06:41
Berg hrifinn af Obi Mikel Henning Berg, fyrrum leikmaður Manchester United og þjálfari Lyn, segist ekki hissa á því að United og Chelsea hafi slegist um hinn unga John Obi Mikel, því hann sé ótrúlega hæfileikaríkur leikmaður. Sport 14.10.2005 06:41
Wenger tekur ekki áhættu Arsene Wenger segist ekki ætla að taka neina áhættu þegar hann kallar Sol Campbell aftur inn í byrjunarlið Arsenal og segir að þó hann hafi ekki tekið ákvörðun ennþá, sé ólíklegt að Campbell verði með gegn Middlesbrough um helgina. Sport 14.10.2005 06:41
Ísland tapaði fyrir Búlgaríu Íslenska landsliðið í knattspyrnu tapaði 3-2 fyrir Búlgaríu í Sofia, eftir að hafa náð tveggja marka forystu í leiknum. Íslenska liðið átti nokkra lipra spretti í leiknum og fékk fleiri dauðafæri í honum en í nokkrum öðrum leik í þessari undankeppni, en allt kom fyrir ekki. Sport 14.10.2005 06:41
Vieira ber virðingu fyrir Keane Franski landsliðsmaðurinn Patrick Vieira, sem leikur með Juventus á Ítalíu, sagði í viðtali í gærkvöldi að hann bæri mikla virðingu fyrir Roy Keane, fyrirliða írska landsliðsins. Þjóðirnar mætast í undankeppni HM í dag og þar rifja þeir félagar upp gamla takta frá því þeir mættust reglulega í leikjum Arsenal og Manchester United. Sport 14.10.2005 06:40
Brassar heppnir gegn Sevilla Stjörnum prýtt lið heimsmeistara Brasilíu slapp með 1-1 jafntefli í leik við spænska liðið Sevilla, í leik sem spilaður var í gærkvöld í tilefni af aldarafmæli spænska félagsins. Sport 14.10.2005 06:40
Reynir og Sindri í aðra deild Reynir Sandgerði og Sindri frá Höfn í Hornafirði tryggðu sér í gærkvöld sæti í annari deild karla í knattspyrnu að ári eftir síðari leikina í umspili. Sport 14.10.2005 06:40
Síðari hálfleikurinn byrjaður Síðari hálfleikurinn í leik Búlgaríu og Íslands er hafinn og hann byrjar ekki ósvipað og sá fyrri. Heiðar Helguson fékk glæsilega sendingu inn fyrir vörnina frá Grétari, en skaut yfir markið einn á móti markverðinum. Sannkallað dauðafæri. Sport 14.10.2005 06:41
Bæði lið í dauðafærum Ísland og Búlgaría hafa bæði fengið dauðafæri, nú þegar um rúmur hálftími er liðinn af leiknum. Hermann Hreiðarsson á eflaust eftir að naga sig lengi í handarbökin eftir að hafa skallað boltann yfir á markteig heimamanna nú fyrir stundu. Sport 14.10.2005 06:41
Grétar kemur Íslandi yfir Íslenska liðið byrjar mjög vel í leiknum við Búlgaríu og það tók liðið aðeins níu mínútur að ná forystu í leiknum, en þar var að verki Grétar Rafn Steinsson sem skoraði eftir varnarmistök heimamanna. Sport 14.10.2005 06:41
Mál John Obi Mikel að leysast Norska blaðið Verdens Gang hefur greint frá því að hinn umdeildi John Obi Mikel muni líklega ganga til liðs við Manchester United um áramótin eins og til stóð, en hann hefur verið týndur undanfarið eftir að verða miðpunktur rifrildis Chelsea og Manchester United um kaup á honum. Sport 14.10.2005 06:40
Ronaldo spilar þrátt fyrir áfall Miðjumaðurinn knái hjá Manchester United, Cristiano Ronaldo, ætlar að leggja sig allan fram með landsliði Portúgal í leiknum við Rússa í dag, þrátt fyrir að faðir hans hafi látist vegna veikinda á mánudaginn. Sport 14.10.2005 06:41
Comolli til Tottenham Tottenham Hotspurs hefur ráðið til sín Frakkann Damien Comolli, sem gegna mun starfi yfirmanns knattspyrnumála hjá félaginu og tekur við starfi Danans Frank Arnesen, sem var rekinn frá félaginu fyrir óhollustu á sínum tíma. Sport 14.10.2005 06:41