Ástin á götunni

Fréttamynd

Gerrard með þrennu

Liverpool sigraði T.N.S. frá Wales 3-0 í 1.umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Steven Gerrard gerði öll þrjú mörk liðsins en leikurinn fór fram á Anfield í Liverpool. Þetta var fyrsta þrennan hans fyrir félagið. Liðin mætast að nýju að viku liðinni á heimavelli T.N.S.

Sport
Fréttamynd

Beretta tekinn við Parma

Mario Beretta hefur verið ráðinn nýr þjálfari ítalska liðsins Parma. Beretta var rekinn frá Chievo seint á síðasta tímabili eftir að liðið var komið niður í fallsvæðið. Það stoppaði þó ekki Parma.

Sport
Fréttamynd

Liverpool bauð í Milito

Spænska liðið Real Zaragoza hefur staðfest að Liverpool hafi komið með tilboð í varnarmanninn Gabriel Milito en segja að leikmaðurinn sé ekki til sölu.

Sport
Fréttamynd

Forseti Barcelona strippar

Forseti spænsku meistaranna í Barcelona, Joan Laporta, reif sig úr görmunum fyrir framan flugvallarstafsmenn í Madrid í gær. Öryggishlið sem Laporta þurfti að fara í gegnum, bjallaði í þrígang og þegar forsetinn reyndi í fjórða skiptið missti hann stjórn á skapi sínu.

Sport
Fréttamynd

Simon Samuelsson til Keflavíkur

Eftir helgi kemur færeyski landsliðsmaðurinn Simon Samuelsson til reynslu hjá Keflavík. Hann hefur leikið með Vogi í Færeyjum og þykir mjög efnilegur framliggjandi miðjumaður. Móðir hans er íslensk og er úr Keflavík en Simon hefur búið í Færeyjum í ellefu ár.

Sport
Fréttamynd

Ólöglegur með Notts County

Varnarmaðurinn Brian O´Callaghan er enn samningsbundinn Keflavík í Landsbankadeildinni í fótbolta. O´Callaghan hefur þegar skrifað undir samning við Guðjón Þórðarson hjá Notts County þrátt fyrir að vera samningsbundinn hjá Suðurnesjaliðinu.

Sport
Fréttamynd

Essien biður um að fá að fara

Michael Essien, hinn gríðarlega eftirsótti leikmaður Lyon, hefur grátbeðið stjórnarmenn félagsins um að fá að fara til Chelsea.

Sport
Fréttamynd

Figo til Inter?

Massimo Moratti, forseti itölsku bikarmeistaranna í Inter Milan, vill fá Portúgalann Luis Figo frá Real Madrid. Figo, sem Evrópumeistarar Liverpool höfði áhuga á allt þar til í gær, er nú að leita sér að nýju liði því krafta hans er ekki lengur óskað á Bernabeau.

Sport
Fréttamynd

Nunez má fara frá Anfield

Rafael Benitez, knattspyrnustjóri Liverpool, hefur tilkynnt Spánverjanum Antonio Nunez að hann megi fara frá félaginu. Nunez, sem lék tuttugu og sjö leiki fyrir Liverpool í fyrra og skoraði í þeim eitt mark, var ekki inn í framtíðarskipulagi Benitez og er vonast eftir því að hann verði seldur aftur til Spánar.

Sport
Fréttamynd

Essien á förum?

Michael Essien hefur gefið það út að hann vilji yfirgefa frönsku meistarana í Lyon og ganga til liðs við enska stórliðið Chelsea. Ensku meistararnir í Chelsea hafa mikinn áhuga á þessum 22 ára landsliðsmanni frá Ghana.

Sport
Fréttamynd

FH-ingar undir í hálfleik

FH-ingar eru undir í hálfleik gegn Neftchi frá Azerbadjan 1-0 í 1.umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu en leikurinn fer fram í Baku í Azerbadjan. Mark Neftchi gerði Mammadov á 20. mínútu.

Sport
Fréttamynd

Greta Mjöll með þrennu fyrir Blika

Greta Mjöll Samúelsdóttir skoraði þrennu fyrir Breiðablik sem komst í kvöld í undanúrslit VISA-bikars kvenna. Breiðablik vann nýliða Keflavíkur 3-1 og hefur unnið alla tíu leiki sína í deild og bikar í sumar. 1. deildarlið Fjölnis kom líka á óvart og sló út úrvalsdeildarlið ÍA.

Sport
Fréttamynd

FH enn undir

Nú þegar 70 mínútur eru liðnar af leik FH og Neftchi frá Azerbadjan er staðan 1-0 í 1.umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu en leikurinn fer fram í Baku í Azerbadjan. Mark Neftchi gerði Mammadov á 20. mínútu

Sport
Fréttamynd

Vignal til Portsmouth

Gregory Vignal, sem Gerard Houllier keypti til Liverpool á sínum tíma undir þeim formerkjum að hann hefði klófest efnilegasta bakvörð Frakka, er kominn til Portsmouth.

Sport
Fréttamynd

FH tapaði í Azerbadjan

FH-ingar töpuðu fyrir Neftchi frá Azerbadjan 2-0 í 1.umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu en leikurinn fór fram í Baku í Azerbadjan.

Sport
Fréttamynd

Arsenal staðfesta áhuga á Vieira

Forráðamenn Arsenal staðfestu í morgun að ítalska liðið Juventus hefði mikinn áhuga á að fá franska miðjumanninn Patrick Vieira í sínar raðir.

Sport
Fréttamynd

Emre til Newcastle á föstudag

Tyrkneski landsliðsmaðurinn í knattspyrnu Emre Belozoglu gengur til liðs við Newcastle á föstudag ef marka má viðtal við Graeme Souness, knattspyrnustjóra liðsins við Sky sjónvarpsstöðina.

Sport
Fréttamynd

FH-ingar eru undir

Neftchi frá Azerbadjan er komið í 1-0 gegn Íslandsmeisturum FH þegar 30 mínútur eru liðnar af leik Neftchi og FH í 1. umferð forkeppni Meistaradeildarinnar. Mark heimamanna kom úr víti.

Sport
Fréttamynd

Reina ætlar sér byrjunarliðssæti

Markvörðurinn Jose Reina, nýjasti liðsmaður Evrópumeistara Liverpool, kveðst ætla að veit Jersey Dudek harða keppni um sæti í byrjunarliði liðsins á næstu leiktíð.

Sport
Fréttamynd

Fyrirliði Stoke vill komast burtu

Fyrirliði Stoke City, Clive Clarke, er á leið frá félaginu. Hann er ekki ánægður með stjórnarhætti Gunnars Þórs Gíslasonar, stjórnarformanns, og segir hann ekki taka ákvarðanir með velferð Stoke City í huga.

Sport
Fréttamynd

Viera fundar með Wenger í vikunni

Framtíð miðjumannsins franska, Patrick Viera hjá Arsenal, ræðst væntanlega í þessari viku, því hann hefur óskað eftir fundi með Arsene Wenger knattspyrnustjóra sínum til að ræða málin.

Sport
Fréttamynd

Mourinho samur við sig

Jose Mourinho er samur við sig þegar kemur að því að stríða kollegum sínum á Englandi í toppbáráttunni í úrvalsdeildinni og nú er hann byrjaður að senda þeim pillur í fjölmiðlum fyrir næstu leiktíð, þar sem hann segir Chelsea verða sterkara en nokkru sinni fyrr.

Sport
Fréttamynd

Upson vill fara til Liverpool

Varnarmaðurinn Matthew Upson hjá Birmingham hefur viðurkennt að hann renni hýru auga til Liverpool og telur að þar sé lykillinn að því að næla sér í landsliðssæti fyrir heimsmeistaramótið á næsta ári.

Sport
Fréttamynd

Þorvaldur hættir með KA

Þorvaldur Örlygsson, knattspyrnuþjálfari 1. deildarliðs KA er að hætta með liðið og við því tekur Guðmundur Valur Sigurðsson, fyrrverandi þjálfari Grindavíkur. Hann mun stýra liðinu gegn Völsungi í deildinni næsta fimmtudag en að þeim leik loknum láta formlega af störfum. Stjórn knattspyrnudeildar KA sendi í dag frá sér fréttatilkynningu þess efnis.

Sport
Fréttamynd

Þorvaldur hættur með KA-menn

Þorvaldur Örlygsson, sem þjálfað hefur meistaraflokk KA síðustu fimm ár, er hættur störfum hjá félaginu. Vegna veikinda dóttur hans treysti hann sér ekki til þess að starfa lengur.

Sport
Fréttamynd

Bikarmeistararnir úr leik

Íslandsmeistarar Vals unnu stórsigur, 1-6 og slógu út bikarmeistara ÍBV í 8 liða úrslitum VISA bikars kvenna á Hásteinsvelli í kvöld en þessi lið mættust einmitt í úrslitaleik bikarsins í fyrra. Dóra María Lárusdóttir skoraði þrennu fyrir Val en þær Elín Svavarsdóttir, Rakel Logadóttir og Margrét Lára Viðarsdóttir eitt mark hver.

Sport
Fréttamynd

Liverpool hættir við Figo

Portúgalski landsliðsmaðurinn Luis Figo fer ekki til Liverpool eins og til hefur staðið en þetta staðfesti knattspyrnustjóri Liverpool, Rafael Benitez nú síðdegis. Krafta Figo er ekki lengur óskað hjá Real Madrid sem hafði gefið í skyn að leikmaðurinn sem á eitt ár eftir af samningi sínum við félagið mætti fara á frjálsri sölu.

Sport
Fréttamynd

1. deild: Jafnt í nágrannaslagnum

Topplið Breiðabliks tapaði í kvöld stigum í annað sinn í sumar í 1. deild karla í knattspyrnu þegar liðið gerði 1-1 jafntefli við nágranna sína í HK en leikurinn fór fram á Kópvaogsvelli. HK sem er í 8. sæti deildarinnar með 10 stig komst yfir í leiknum en Breiðablik jafnaði í síðari hálfleik.

Sport
Fréttamynd

Úrslit fyrstu deildar í gær

Þrír leikir voru í fyrstu deild karla í fótbolta í gær. Víkingur Ólafsvík vann óvæntan útisigur á Þór 4-2. Eyþór Páll Ásgeirsson skoraði tvö mörk, Slavisa Mitic og Hermann Geir Þórsson sitt markið hvor fyrir Ólsara. Lárus Orri Sigurðsson og Arnljótur Ástvaldsson skoruðu fyrir Þórsara.

Sport