
Ástin á götunni

Stúlknalandsliðið tapaði
Íslenska landsliðið skipað stúlkum 21 árs og yngri tapaði í gær fyrir Þjóðverjum 4-1 á opna Norðurlandamótinu sem fer fram í Svíþjóð. Þýsku stúlkurnar skoruðu fyrsta markið en Margrét Lára Viðarsdóttir úr Val jafnaði metin 1-1.

Newcastle áfram í Intertoto
Newcastle er komið í 4. umferð Intertotokeppninnar í knattpspyrnu eftir 2-0 sigur á áhugamannaliðinu ZTS Dubnica frá Slóvakíu í dag og samanlagt 5-1. Newcastle mætir Deportivo La Coruña í næstu umferð á miðvikudag. Keppt er um þrjú laus sæti í Evrópukeppni félagsliða í Intertoto keppninni og koma þau lið inn í keppnina 9. ágúst.

Djurgarden sigraði Ölme
Djurgarden, lið Kára Árnasonar og Sölva Geirs Ottesen sigraði 2. deildar lið Ölme í sænsku bikarkeppninni í gær. Djurgarden sem er efst í sænsku deildinni átti ekki í erfiðleikum með 2 deildar liðið og vann öruggan 6-0 sigur. Kári Árnason fiskaði víti og skoraði fjórða mark Djurgarden í gær og átti skínandi leik. Sölvi Geir Ottesen kom inná á 65 mínútu.

Naumur sigur Blika á botnliðinu
Breiðablik hélt áfram sigurgöngu sinni í 1. deild karla í knattspyrnu í dag eftir nauman sigur á botnliði Völsungs, 3-2 á Kópavogvelli. Gunnar Örn Jónsson, Kári Ársælsson og Hjalti Kristjánsson skoruðu mörk Blika sem leiddu 3-0 í hálfleik. Á Siglufjarðarvelli gerðu KS og Víkingur Ólafsvík jafntefli, 1-1.

Inter aflýsir vegna hryðjuverka
Ítalska knattspyrnuliðið Inter Milan aflýsti í dag fyrirhugaðri æfingaferð sinni til Englands af öryggisástæðum í ljósi hryðjuverkanna í London. Liðið átti að leika við Portsmouth, Leicester, Norwich og Crystal Palace á Englandi á komandi vikum. Ákvörðun félagsins hefur valdið miklum vonbrigðum og reiði meðal félaganna fyrrnefndu.
Ísland í 2. sæti í Svíþjóð
Íslenska landsliðið í knattspyrnu pilta 17 ára og yngri tapaði fyrir Norðmönnum 2-1 í úrslitaleik Hallandsmótsins í Svíþjóð í dag. Ísland var yfir í hálfleik en Norðmenn skoruðu tvívegis í seinni hálfleik og tryggðu sér með því sigur á mótinu með 7 stig í 3 leikjum, en Íslendingar urðu í 2. sæti með 6 stig.

Guðjón Þórðarson réð ekki Staunton
Steve Staunton, sem spilað hefur meðal annars með Liverpool, Aston Villa og Coventry á ferli sínum, vildi komast að hjá Notts County sem þjálfari og leikmaður, en Guðjón Þórðarson ákvað að ráða hann ekki til starfa.

Panama - Bandaríkin í úrslit
Bandaríkin og Panama mætast í úrslitaleik á meistaramóti Mið og Norður Ameríkuríkja í knattspyrnu. Bandaríkin lögðu Hondúras að velli 2-1 og Panama lagði Kolombíu 3-2.
FH mætir Fram í undanúrslitum
Dregið var í undanúrslit í Visa-bikarkeppni karla í hádeginu í dag en báðir leikirnir fara fram á Laugardalsvellinum. Þar munu mæta annars vegar Valur og Fylkir og hins vegar FH og Fram.
Valur-Breiðablik í undanúrslitum
Breiðablik fær Íslandsmeistara Vals í heimsókn í stórslag í undanúrslitum Visa-bikarkeppni kvenna. Í hinum leiknum fær KR Fjölni í heimsókn.
Stoke kaupir Hoefkens
Enska knattspyrnufélagið Stoke City keypti í morgun belgíska miðvörðinn, Carl Hoefkens frá Germinal Berschot og borgaði fyrir hann 350 þúsund pund eða um 40 milljónir íslenskra króna.

Gæti orðið einn sá besti hjá Dönum
<font face="Helv">M</font>ads Thunø Laudrup, sonur knattspyrnumannsins Michael Laudrup sem nú þjálfar Brøndby, er staddur hér á landi að spila með FC København á Rey Cup- mótinu í knattspyrnu. Mads er einn af efnilegustu leikmönnum Danmerkur og er einn þriggja leikmanna FC København sem leika með U-17 ára landsliði Danmerkur.
Carlton Cole ætlar að standa sig
Carlton Cole, sem verið hefur í láni hjá Charlton Athletic og Aston Villa síðustu tvö tímabil í ensku knattspyrnunni, er viss um að geta staðið sig vel hjá Chelsea, en hann verður í leikmannahópi félagsins á næstu leiktíð.

Fyrsta deild í dag föstudag
Tveir leikir eru í dag í 1. deild karla í knattspyrnu. Í Víkinni eigast við heimamenn Víkingur og Norðanmenn í Þór. Og norðan heiða etja KA og Fjölnir kappi. Báðir leikirnir hefjast klukkan 20.
Joey Barton sendur heim
Joey Barton, leikmaður Manchester City, hefur verið sendur heim frá Tælandi vegna slagsmála, en þar var Manchester City í keppnisferð.
Newcastle býður í Anelka
Newcastle United hefur boðið í franska framherjann Nicolas Anelka og portúgalska landsliðsmanninn Luis Boa Morte.
Valsmenn komast yfir gegn KR
Sigurbjörn Örn Hreiðarsson, fyrirliði Vals, hefur komið sínum mönnum yfir með marki á 25. mínútu. Matthías Guðmundsson lagði boltann á hann í teig KR eftir fyrirgjöf frá Baldri Aðalsteinssyni á hægri kantinum. Er þetta nokkurn veginn í takt við gang leiksins.

Framarar í undanúrslit
Framarar sigruðu ÍBV 2-1 í framlengdum leik og eru þar með komnir í undanúrslit Vísa bikarkeppni karla ásamt Val, Fylki og FH. Andri Fannar Ottóson og Ríkharður Daðason úr víti í framlengingu gerðu mörk Framara en Andrew Sam gerði mark Eyjamanna.

Ferdinand ekki á förum
Rio Ferdinand hefur ekki fengið blíðar viðtökur frá stuðningsmönnum Manchester United í æfingaleikjum að undanförnu, en hann hefur ekki enn skrifað undir samning við félagið.
Framarar komnir yfir
Ríkharður Daðason er búinn að koma Fram yfir gegn ÍBV. Hann gerði markið úr vítaspyrnu.

Robinho að fara til Real
Brasilíumaðurinn Robinho verður orðinn leikmaður Real Madrid innan nokkurra daga. Hinn 21 árs Robinho neitar að æfa með liði sínu Sao Paulo og nú er aðeins talið formsatriði að ganga frá samningum milli Real og Sao Paulo. Spænskir fjölmiðlar telja sig hafa heimildir fyrir því að búið sé að ákveða kaupverðið á stráknum: 2 milljarðar og 358 milljónir króna.

Westerveld til Portsmouth
Hollendingurinn Sander Westerveld, fyrrum markvörður Liverpool, gengur til liðs við Portsmouth á morgun samkvæmt heimildum breska ríkisútvarpsins. Westerveld er þrítugur og lék með Real Mallorca á Spáni á síðustu leiktíð.

Essien leiður á óvissunni
Mikael Essien vill ólmur komast til Chelsea frá Lyon í Frakklandi, en tveimur tilboðum ensku meistarana hefur þegar verið hafnað í leikmanninn.

Robinho til Real
Brasilíski snillingurinn Robinho er genginn til liðs við Real Madrid frá Santos í Brasilíu.Real borgar 16,6 milljónir punda fyrir leikmanninn sem er 21 árs gamall sóknarmaður. Fyrr í dag fór Robinho í læknisskoðun sem hann stóðst með prýði. Fyrir hjá Real hittir hann félaga sína þá Ronaldo og Roberto Carlos.

1-0 fyrir Val í hálfleik
Flautað hefur verið til hálfleiks í leik KR og Vals þar sem staðan er 1-0, gestunum í vil. Sigurbjörn Hreiðarsson skoraði mark leiksins á 25. mínútu en á 40. mínútu fækkaði í liði heimamanna er Sölva Sturlusyni, varnarmanni KR, var vikið af velli fyrir brot.
Stangarskot í Laugardalnum
Þegar 30 mínútur eru liðnar í leik Fram og ÍBV í 8 liða úrslitum Vísa bikarkeppni karla er staðan enn markalaus en bæði lið hafa hins vegar átt skot í stöng.

Táningur hjá Leicester fótbrotnaði
Craig Levin, knattspyrnustjóri Leicester á Englandi, er æfur út í Bobo Balde, varnarmann Celtic, en hann átti einhverja ljótustu tæklingu síðastu ára í æfingaleik liðanna í gær sem varð til þess að táningurinn James Wesolowski fótbrotnaði mjög illa.
Ferdinand ekki á förum
Rio Ferdinand hefur ekki fengið blíðar viðtökur frá stuðningsmönnum Manchester United í æfingaleikjum að undanförnu, en hann hefur ekki enn skrifað undir samning við félagið.
Sætur sigur Valsmanna á KR
Bæði lið mættu til leiks vel meðvituð um mikilvægi hans. Valsmenn eiga að vísu bestu möguleika annarra liða en FH í Landsbankadeildinni en annars er Visa-bikarinn eini raunhæfi möguleikinn á titli fyrir önnur lið.
Fram lagði ÍBV í framlengingu
Framarar unnu góðan sigur á Eyjamönnum í átta liða úrslitum bikarkeppninnar á Laugardalsvellinum í gærkvöldi. Leikurinn var ekki mikið fyrir augað, en æsispennandi engu að síður og úrslitin réðust ekki fyrr en í framlengingu.