Ástin á götunni
330 331 332 333 334 ›
Ronaldinho lofar mögnuðum leik Brasilíumenn mæta Argentínumönnum í úrslitaleik Álfukeppninnar í Þýskalandi í dag. Sport 13.10.2005 19:26
Crespo aftur til Chelsea? Argentínski sóknarmaðurinn Hernan Crespo, sem var í láni hjá AC Milan á síðustu leiktíð frá Chelsea, er hugsanlega á leiðinni aftur til Englandsmeistaranna að sögn forráðamanna Mílanóliðsins. Sport 13.10.2005 19:26
Chelsea fær ekki Essien Jean-Michel Aulas, forseti franska stórveldisins Lyon, segir að helsta stjarna liðsins, miðjumaðurinn Michael Essien, verði ekki seldur til Chelsea þrátt fyrir að Roman Abramovich sé reiðubúinn að greiða fúlgur fjár fyrir landsliðsmanninn frá Ghana. Sport 13.10.2005 19:25
Arsenal keppir við Real um Robinho Real Madrid leiðir enn kapphlaupið um brasilíska ungstirnið Robinho, að sögn umboðsmanns leikmannsins, þrátt fyrir að Arsenal hafi gert formlegt 14 milljóna punda tilboð í hann um helgina. Sport 13.10.2005 19:25
Heiðar ætlar að standa sig "Mér líst mjög vel á að fara aftur í úrvalsdeildina. Fulham er gott félag sem hefur metnað til þess að vera ofarlega í deildinni. Ég ætla að sýna og sanna að ég get staðið mig í úrvalsdeildinni," sagði Heiðar Helguson, sem er einn af þremur íslenskum leikmönnum í ensku úrvalsdeilinni, en fyrir eru Eiður Smári Guðjohnsen hjá Chelsea og Hermann Hreiðarsson hjá Charlton. Sport 13.10.2005 19:25
Heiðar skrifaði undir hjá Fulham Landsliðsmaðurinn Heiðar Helguson skrifaði í gær undir fjögurra ára samning við enska úrvalsdeildarliðið Fulham. Fulham greiðir Watford 150 milljónir króna fyrir Heiðar. Sport 13.10.2005 19:25
Real Madrid býður í Lampard Enskir fjölmiðlar greindu frá því í morgun að Real Madríd hefði boðið 20 milljónir punda í miðjumann Chelsea, Frank Lampard. Að auki átti Chelsea að fá tvo leikmenn frá Madrídarliðinu, Michael Owen og Santiago Solari. Þetta er haft eftir umboðsmanni Lampards. Sport 13.10.2005 19:25
Skagamenn fallnir úr keppni Það leit ekki út fyrir að Skagamenn væru með nokkra löngun til að komast áfram í Intertoto bikarnum þegar þeir léku síðari leik sinn gegn finnska liðinu Inter Turku í gær. Sport 13.10.2005 19:25
Rændur í beinni Brasilíski knattspyrnusnillingurinn Roberto Carlos sem leikur með Real Madrid lenti í byssuvopnuðum ræningjum í gær á meðan hann var í símaviðtali við útvarpsstöð í í heimalandinu sínu. Sport 13.10.2005 19:25
Þjóðverjar og Brasilíumenn mætast Fyrri undanúrslitaleikurinn í álfukeppninni í knattspyrnu verður í dag. Þjóðverjar mæta Brasilíumönnum í Nürnberg. Leikurinn verður sýndur beint á Sýn en flautað verður til leiks klukkan 16. Þessi sömu lið mættust í úrslitaleik í síðustu heimsmeistarakeppni fyrir þremur árum. Brasilíumenn unnu þann leik 2-0 og unnu þá heimsmeistaratitilinn í fimmta sinn. Sport 13.10.2005 19:25
HK lagði KA í 1. deild HK sigraði KA með tveimur mörkum gegn engu í 1. deild karla í knattspyrnu í gærkvöldi. Ólafur Júlíusson og Hörður Magnússon skoruðu mörkin. Þrír leikir eru í deildinni í dag. Völsungur mætir Víkingi Ólafsvík á Húsavíkurvelli klukkan 14 en klukkan 16 keppa Haukar og Knattspyrnufélag Siglufjarðar að Ásvöllum og Fjölnir og Þór á Fjölnisvelli í Grafarvogi. Sport 13.10.2005 19:25
Kezman til Atletico Madrid Sóknarmaðurinn Mateja Kezman er á förum frá Chelsea til spænska liðsins Atletico Madrid að sögn umboðsmanns hans í dag. Kezman vill ólmur komast frá Chelsea þar sem hann sat meirihluta síðasta tímabils á varamannabekknum. Enskir og spænskir fjölmiðlar segja að félögin hafi komist að samkomulagi um kaupverð sem ekki hefur þó verið gefið upp. Sport 13.10.2005 19:25
Samið um vistaskipti Arnesens Chelsea og Tottenham náðu í gærkvöldi samkomulagi um vistaskipti Franks Arnesens frá Tottenham til Chelsea. Arnesen var tæknistjóri Tottenham en fyrr í sumar reyndi Chelsea að lokka hann til sín. Arnesen var samningsbundinn Tottenham og félagið klagaði Chelsea til enska knattspyrnusambandsins. Sport 13.10.2005 19:25
Wright-Phillips til Chelsea? Enskir fjölmiðlar greina frá því í morgun að Chelsea hafi keypt sóknarmanninn Shaun Wright-Phillips frá Manchester City. Kaupverðið er sagt 18 milljónir punda eða rúmir 2 milljarðar íslenskra króna. Þá samþykkti Chelsea í gær að losa Juan Sebastian Veron undan samningi til þess að hann gæti gengið til liðs við Inter Milan. Sport 13.10.2005 19:25
Heiðar til Fulham á mánudag Heiðar Helguson mun að öllum líkindum skrifa undir 4 ára samning við enska úrvalsdeildarliðið Fulham á mánudaginn. Þetta kemur fram í frétt á stuðningsmannasíðu Watford í dag og segir þar að kaupverðið verði um 1.25 milljónir punda sem samsvarar rúmlega 150 milljónum íslenskra króna. Sport 13.10.2005 19:25
Brasilía í úrslitaleikinn Brasilíumenn leika til úrslita í álfukeppninni í knattspyrnu sem nú stendur yfir í Þýskalandi en þeir lögðu Þjóðverja í undanúrslitaleik í dag, 3-2. Adriano, sóknarmaður Inter Milan skoraði tvö mörk fyrir Brasilíumenn og Ronaldinho eitt úr víti en Lukas Podolski og Michael Ballack fyrir heimamenn sem tvívegis náðu að jafna metin í leiknum. Sport 13.10.2005 19:25
Góður dráttur hjá ÍBV og Keflavík ÍBV og Keflavík verða að teljast heppin í Evrópukeppninni því fyrir stundu voru þau dregin gegn liðum frá Færeyjum og Lúxemborg í Evrópukeppni félagsliða. ÍBV mætir færeyska liðinu B36 en Keflavík Etzella Ettelbrück frá Lúxemborg. Leikið verður 14. og 28. júlí. Sport 13.10.2005 19:24
Markalaust hjá Blikum og Víkingi Efstu liðin í 1. deild, Breiðablik og Víkingur, gerðu markalaust jafntefli á Kópavogsvelli í gærkvöldi. Breiðablik er með 19 stig en Víkingur er í öðru sæti með 12. Í kvöld keppa KA og HK á Akureyrarvelli. Sport 13.10.2005 19:25
Sjötta mark Veigars fyrir Stabæk Veigar Páll Gunnarsson skoraði sjötta mark sitt í norsku 1. deildinni þegar lið hans Stabæk sigraði Mandalskamaratene 2-1. Veigar Páll jafnaði metin 6 mínútum fyrir leikslok en sigurmarkið kom tveimur mínútum síðar. Stabæk, sem tapaði 150 milljónir króna í fyrra, er ásamt Bryne með 30 stig en liðin eru í tveimur efstu sætum deildarinnar. Sport 13.10.2005 19:25
FH til Azerbaijan FH-ingar drógust gegn liði frá Azerbaijan, Neftchi í 1. umferð Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu en drátturinn fór fram í Sviss nú undir hádegið. Fyrri leikurinn fer fram ytra 12. eða 13. júlí. Takist FH-ingum að slá Azerbajana út þurfa þeir að fara til Belgíu og mæta Anderlecht. Velsku meistararnir Total Network Solutions drógust gegn Evrópumeisturum Liverpool. Sport 13.10.2005 19:24
Fulham líklegast að landa Heiðari Skjótt skipast veður í lofti í málum Heiðars Helgusonar sem í vikunni var sagður nær örugglega á leiðinni til nýliða Wigan í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Nýjustu fréttir frá Englandi herma nú að Fulham sé líklegast til að landa Heiðari en Chris Coleman þjálfari Fulham fundaði með Heiðari í gær. Sport 13.10.2005 19:24
Enn óljóst með Heiðar Samkvæmt fréttum á fréttavef BBC var umboðsmaður Heiðars Helgusonar að ræða við forráðmenn úrvaldeildarliðsins Fulham nú upp úr hádegi. Ljóst þykir að Andy Cole yfirgefi félagið og er Heiðari ætlað að taka hans stöðu. Í gær var Heiðar orðaður við nýliða Wigan. Sport 13.10.2005 19:24
Everton í erfiðustu stöðunni Ensku liðin Arsenal, Liverpool og Manchester United eiga ekki á hættu að lenda á móti sterkustu liðum Evrópu, komist þau í riðlakeppni Meistaradeildarinnar. Það sama á ekki við um Everton, takist félaginu að leggja mótherja sína að velli í forkeppninni. Sport 13.10.2005 19:24
Þjálfari Afríku í 2 mánaða bann Mostafa Marinó Anbari, þjálfari 3. deildarliðs Afríku á Íslandsmótinu í knattspyrnu hefur verið úrskurðaður í 2 mánaða leikbann af KSÍ. Þá var félagið ennfremur sektað um 12.000 krónur fyrir að nota leikmann sem ekki var kominn með leikheimild með félaginu í leik í VISA bikarnum 20. maí sl. Sport 13.10.2005 19:24
Ólafur skrifar undir hjá Brentford Ólafur Ingi Skúlason, fyrrum leikmaður Arsenal og fyrirliði 21 árs landsliðsins, skrifar í dag undir tveggja ára samning við enska 2. deildar liðið Brentford. Ólafur Ingi mun hafa náð samkomulagi við Brentford um launaliði samningsins en reiknað er með að hann skrifi undir eftir læknisskoðun í dag. Sport 13.10.2005 19:24
Man Utd kaupir Ji-Sung Manchester United hefur fest kaup á suður kóreska landsliðsmanninum Park Ji-Sung og er hann þessa stundina í læknisskoðun á Old Trafford. Þessi 24 ára gamli miðjumaður kemur frá PSV Eindhoven í Hollandi og er snöggur mjög og harður af sér. Ji-Sung kostar Man Utd um 4 milljónir punda og hefur hann gert 4 ára samning við félagið. Sport 13.10.2005 19:24
Þjálfari Tyrkja tekur pokann sinn Ersun Yanal, landsliðsþjálfari Tyrkja í knattspyrnu var látinn fjúka í kvöld þar sem Tyrkir hafa ekki staðið undir væntingum frá því hann tók við liðinu. Yanal var á 4 ára samning sem hann gerði í apríl 2004 en það voru vonbrigði með árangur liðsins í undankeppni HM sem fylltu mælinn. Sport 13.10.2005 19:24
Chelsea kaupir vinstri bakvörð Spænski varnarmaðurinn Asier del Horno hefur skrifað undir 3 ára samning við Chelsea en hann kemur frá Athletic Bilbao á 8 milljónir punda. Þá bárust nú síðdegis fréttir þess efnis að ítalska stórveldið AC Milan hafi í dag hunsað formlega fyrirspurn Chelsea um úkraínska sóknarmanninn Andriy Shevchenko. Sport 13.10.2005 19:24
Brasilía naumlega í undanúrslitin Brasilía komst naumlega í undanúrslit álfukeppninnar í knattspyrnu í kvöld og mætir þar Þjóðverjum. Heimsmeistararnir gerðu í kvöld 2-2 jafntefli við Japana sem sitja eftir þrátt fyrir að vera jöfn að stigum. Mexíkó er í efsta sæti B-riðls með 7 stig. Sport 13.10.2005 19:24
Man. Utd opnar budduna Manchester United hefur keypt Suður-Kóreumanninn Park Ji Sung frá PSV Eindhoven á tæpar fimm hundruð miljónir króna. Park gerir samning til fjögurra ára við United. Sport 13.10.2005 19:24
Uppgjörið: Keflavík - Afturelding 0-1 | Mosfellingar í efstu deild karla í fótbolta í fyrsta sinn Íslenski boltinn