Spænski boltinn

Fréttamynd

Engin boð borist í Sergio Aguero

Forsetinn Enrique Cerezo hjá Atletico Madrid hefur tekið fyrir þær sögusagnir að Manchester United sé búið að leggja fram kauptilboð í Sergio Aguero en breskir og spænskir fjölmiðlar greindu frá því í gær að United hefði boðið 30 milljónir punda og miðjumanninn Nani í skiptum fyrir Aguero.

Fótbolti
Fréttamynd

Mun færri mættu á kynningu Benzema en hjá Ronaldo og Kaka

Real Madrid kynnti Karim Benzema fyrir stuðningsmönnum sínum á Santiago Bernabeu í dag en áður hafði liðið haldið kynningarfundi fyrir þá Cristiano Ronaldo og Kaka. Real keypti Benzema frá franska liðinu Lyon fyrir upphæð sem gæti farið alla leið upp í 35 milljónir punda.

Fótbolti
Fréttamynd

Laporta: Barcelona er búið að bjóða í David Villa

Forsetinn Joan Laporta hjá Barcelona staðfesti í dag við spænska fjölmiðla að Katalóníufélagið væri ekki búið að gefast upp á að fá framherjann David Villa til félagsins en erkifjendurnir í Real Madrid hafa dregið sig út úr kapphlaupinu á þeim forsendum að kaupverðið sem Valencia vilji fá sé of hátt.

Fótbolti
Fréttamynd

Messi vill fá Mascherano og Fabregas til Barca

Argentínski snillingurinn Lionel Messi hjá Barcelona hefur ákveðnar hugmyndir um hvernig félagið geti haldið áfram á beinu brautinni á næsta tímabili eftir ótrúlegt þrennu tímabil þar sem félagið vann deild og bikar á Spáni auk þess að vinna Meistaradeildina.

Fótbolti
Fréttamynd

Real gefst upp á Alonso - De Rossi næstur á blaði

Samkvæmt breskum og spænskum fjölmiðlum hafa forráðamenn Real Madrid gefið upp vonina á að krækja í spænska miðjumanninn Xabi Alonso frá Liverpool og hafa nú beint athyglinni að ítalska miðjumanninum Daniele De Rossi hjá Roma.

Fótbolti
Fréttamynd

Franck Ribery og Xabi Alonso eru of dýrir fyrir Real Madrid

Jorge Valdano, framkvæmdastjóri Real Madrid, hefur nú viðurkennt að spænska félagið hafi ekki efni á því að kaupa þá Franck Ribery og Xabi Alonso í viðbót við þær hundruðir milljóna evra sem Real hefur eytt í Cristiano Ronaldo, Kaka og Karim Benzema.

Fótbolti
Fréttamynd

Börsungar segja Puyol ekki á förum

Evrópumeistarar Barcelona hafa blásið á þær sögusagnir að varnarmaðurinn Carles Puyol sé á leið til Manchester City. Enska liðið er í leit að varnarmanni og hefur gert tilboð í John Terry, fyrirliða Chelsea.

Fótbolti
Fréttamynd

Ronaldo stefnir á sigur í Meistaradeildinni

Portúgalinn Cristiano Ronaldo ætlar sér og liðsfélögum sínum hjá Real Madrid stóra hluti á næstu leiktíð. Leikmaðurinn hyggur sér í lagi á landvinninga í Meistaradeildinni en úrslitaleikurinn á næsta keppnistímabili verður haldinn á Santiago Bernabeu, heimavelli Madridinga.

Fótbolti
Fréttamynd

Ronaldo: Hverrar krónu virði

Cristiano Ronaldo segir að þær 80 milljónir punda sem Real Madrid borgaði fyrir þjónustu sína sé sanngjarnt verði. Ronaldo verður formlega kynntur fyrir stuðningsmönnum á mánudag og segist ákveðinn í að sýna það að hann sé hverrar krónu virði.

Fótbolti
Fréttamynd

Maicon til Real Madrid?

Hægri bakvörðurinn Maicon gæti verið á leið frá Inter til Real Madrid. Umboðsmaður leikmannsins brasilíska segir að spænska stórliðið hafi áhuga á honum ásamt ensku liðunum Manchester City og Chelsea.

Fótbolti
Fréttamynd

Hleb ánægður hjá Barcelona

Umboðsmaður Aleksander Hleb hjá Barcelona segir að leikmaðurinn sé ánægður hjá félaginu og hann vilji jafnvel vera áfram þó svo að honum standi til boða að fara annað.

Fótbolti
Fréttamynd

Ruben De la Red enn óleikfær

Allt útlit er fyrir að spænski miðjumaðurinn Ruben De la Red hjá Real Madrid muni missa af næsta keppnistímabili með félaginu þar sem læknar hafa enn ekki fundið ástæðu þess að hann hneig niður í leik gegn Real Unión í spænska konugsbikarnum í október á síðasta ári.

Fótbolti
Fréttamynd

Eto'o boðinn nýr samningur

Umboðsmaður Samuel Eto'o segir að Barcelona hafi boðið skjólstæðingi sínum nýjan samning sem gildir til næstu tveggja ára.

Fótbolti
Fréttamynd

Fabiano gæti yfirgefið Sevilla

Umboðsmaður framherjans Luis Fabiano hjá Sevilla viðurkennir að skjólstæðingur sinn gæti mjög hugsanlega yfirgefið Sevilla í sumar. Mörg af stærstu félögum Evrópu eru sögð hafa áhuga á Brasilíumanninum.

Fótbolti
Fréttamynd

Xavi: Ronaldo er óstjórnanlegur

Þó svo að Cristiano Ronaldo sé ekki enn formlega genginn í raðir Real Madrid hefur Xavi Hernandez, leikmaður erkifjendanna í Barcelona, látið Portúgalann sykursæta heyra það í fjölmiðlum.

Fótbolti