Ítalski boltinn
180 181 182 183 184 185 186 187 188 … 197 ›
AC Milan vann í vítaspyrnukeppni. Evrópumeistarar AC Milan unnu rússneska liðið Lokomotiv í Moskvu í leik um þriðja sætið á knattspyrnumóti í Moskvu í dag. Fótbolti 5.8.2007 17:54
Nesta hættur með landsliðinu Ítalski varnarmaðurinn Alessandro Nesta hefur tilkynnt að hann sé hættur að spila fyrir landsliðið. Nesta, sem er 31 árs gamall, vann meistardeildina á síðasta tímabili með AC Milan eftir sigur á Liverpool, og hann var einnig hluti af landsliði Ítala sem urðu heimsmeistarar síðasta sumar. Fótbolti 1.8.2007 14:55
Juventus neitar tilboði City í Chiellini Manchester City hefur mistekist að landa ítalska U21 landsliðsmanninnum Giorgio Chiellini frá Juventus. Giovanni Cobolli Gigli, forseti Juventus staðfestir að Juventus hafi hafnað tilboði City. Leikmaðurinn hefur ekki farið leynt með þrá sína fyrir að spila á Englandi en Gigli segir að hann verði ekki seldur. Fótbolti 31.7.2007 14:26
Berlusconi neitar að gefast upp á Shevchenko Silvio Berlusconi, forseti AC Milan, neitar að gefast upp á að fá Andriy Shevchenko aftur til liðsins. Shevchenko fór til Chelsea frá Milan fyrir síðasta tímabil en náði ekki að standa undir væntingum þar. Miklar vangaveltur hafa verið um hvað hvað verði um leikmanninn og hefur hann verið orðaður við endurkomu til Milan. Fótbolti 23.7.2007 20:24
Adriano leitaði í flöskuna Brasilíski stjörnuframherjinn Adriano hjá Inter Milan hefur viðurkennt að vandamál hans á síðustu leiktíð megi rekja til óhóflegrar áfengisneyslu. Adriano missti föður sinn og skildi við konu sína með stuttu millibili og segist hafa leitað huggunar í flöskunni. Fótbolti 21.7.2007 16:43
Milan hefur gefist upp á að landa Eto´o og Ronaldinho Varaforseti AC Milan segir félagið vera búið að gefast upp á að reyna að kaupa þá Samuel Eto´o og Ronaldinho frá Barcelona. Þetta staðfesti hann í viðtali við netsíðu Gazzetta dello Sport í dag og segir ástæðuna einfaldlega þá að leikmennirnir séu alls ekki til sölu. Blaðið Gazetta dello Sport hélt því fram í dag að Milan hefði gert 50 milljón evru tilboð í Eto´o, en varaforsetinn hafnaði því. Fótbolti 19.7.2007 16:23
Totti hótar að segja sig úr leikmannasamtökunum Francesco Totti, fyrirliði Roma á Ítalíu, hefur nú hótað að segja sig úr leikmannasamtökunum þar í landi vegna deilu í tengslum við það hvenær keppni hefst í A-deildinni í sumar. Deildin á að byrja 26. ágúst, eða seinna en flestar aðrar deildarkeppnir í Evrópu. Þetta segir Totti að komi niður á ítalska landsliðinu í undankeppni EM. Fótbolti 18.7.2007 17:11
Giuly á leið til Roma Franski útherjinn Ludovic Giuly hjá Barcelona er við það að ganga til liðs við Roma á Ítalíu. Þetta tilkynnti yfirmaður knattspyrnumála hjá Barcelona í dag. Giuly varð tvisvar Spánarmeistari með Barcelona en var settur á sölulista hjá félaginu í vor. Hjá Roma fær hann aftur tækifæri til að spila í Meistaradeildinni þar sem liðið hafnaði í öðru sæti í A-deildinni á síðustu leiktíð. Kaupverðið er sagt 4,5 milljónir evra. Fótbolti 17.7.2007 16:08
Inter kaupir tvo leikmenn Ítalíumeistarar Inter Milan hafa styrkt hóp sinn enn frekar fyrir næstu leiktíð og nú hafa tveir Suður-Ameríkumenn bæst í hópinn sem er nú við æfingar í fjöllunum á Norður-Ítalíu. Þetta eru sóknartengiliðurinn Luis Jimenez frá Lazio sem er landsliðsmaður Chile og kólumbíski varnarmaðurinn Nelson Rivas frá River Plate í Argentínu. Fótbolti 17.7.2007 14:08
Chivu verður áfram hjá Roma Rúmenski landsliðsmaðurinn Cristian Chivu verður áfram hjá ítalska félaginu Roma eftir að varnarmanninum tókst ekki að semja við Real Madrid sem samþykkti að greiða fyrir hann 20 milljónir evra. Það er því ljóst að Chivu verður með lausa samninga hjá Roma á næstu leiktíð og getur þá farið frá félaginu án greiðslu. Fótbolti 12.7.2007 13:41
Nedved áfram hjá Juventus Tékkneski miðjumaðurinn Pavel Nedved hefur samþykkt að vera eitt ár í viðbót hjá Juventus ef marka má fregnir frá Tórínó í dag. Nedved er 34 ára gamall og sagðist líklega leggja skóna á hilluna í sumar ef hann fengi ekki veglega kauphækkun fyrir næsta ár. Fótbolti 11.7.2007 17:20
Enn kært í Ítalíuskandalnum 37 manns voru í dag ákærðir fyrir þátt sinn í Ítalíuskandalnum fræga frá því í fyrra þegar enn einn dómurinn féll í málinu. Nokkrir af þeim sem kærðir hafa verið nú hafa þegar fengið refsingu og einn þeirra er Luciano Moggi, fyrrum framkvæmdastjóri Juventus. Hann fékk fimm ára bann í upphaflegu réttarhöldunum en gæti nú verið að horfa á fangelsisvist. Fótbolti 10.7.2007 14:47
Lippi liggur enn undir feldi Ítalski knattspyrnuþjálfarinn Marcello Lippi, sem stýrði Ítölum til sigurs á HM fyrir nákvæmlega ári síðan, liggur enn undir feldi og hefur ekki tekið neina ákvörðun um framtíð sína. Hann segir 10 félög hafa sett sig í samband við sig og boðið sér starf. Fótbolti 9.7.2007 15:50
Collina ráðinn yfirdómari á Ítalíu Ítalska knattspyrnusambandið hefur ráðið fyrrum knattspyrnudómarann Pierluigi Collina í sérstakt embætti þar sem honum verður falið að hafa umsjón með öllum dómurum í landinu. Er þetta tilraun Ítala til að fegra ímynd sambandsins eftir skandalinn ljóta þar í landi í fyrra. Fótbolti 7.7.2007 17:34
Inter hætt við að kaupa Chivu Inter Milan hefur hætt við að kaupa rúmenska varnarmanninn Cristian Chivu frá Roma. Forráðamenn Inter segja verðmiðann á leikmanninum einfaldlega of háan en Roma vill fá 18 milljónir evra fyrir hann. Real Madrid og Barcelona eru einnig sögð hafa áhuga á varnarmanninum en ljóst er að hann fer ekki til Inter í bráð. Fótbolti 4.7.2007 15:32
Juventus ekki á eftir Lampard Claudio Ranieri segir Juventus ekki vera á höttunum eftir miðjumanninum Frank Lampard hjá Chelsea eins og haldið hefur verið fram í fjölmiðlum. Hann segir að þó Lampard sé frábær leikmaður, vanti Juventus aðeins miðvörð í leikmannahóp sinn fyrir átökin á næstu leiktíð. Fótbolti 3.7.2007 13:45
Kaká að biðja um að vera seldur til Real Madrid? Samkvæmt spænska dagblaðinu AN hefur brasilíski snillingurinn Kaká biðlað til AC Milan um að vera seldur til Real Madrid. Samkvæmt blaðinu hafði Kaká samband við Silvio Berlusconi rétt áður en hann fór í sumarfrí til New York. Fótbolti 1.7.2007 18:54
Trezeguet neitaði United og Liverpool Franski markaskorarinn David Trezeguet hjá Juventus framlengdi samning sinn við ítalska félagið til ársins 2011 á dögunum en hann hefur nú gefið upp að hann hafi neitað tilboðum bæði Manchester United og Liverpool á Englandi og Barcelona á Spáni. Fótbolti 28.6.2007 11:19
Trezeguet framlengdi við Juventus Franski framherjinn David Trezeguet framlengdi í gær samning sinn við ítalska liðið Juventus til ársins 2011 og batt þar með enda á sögusagnir um að hann væri á leið til Arsenal á Englandi. Trezeguet hafði lengi verið ósáttur í herbúðum Juventus og lýsti því yfir á dögunum að hann ætlaði ekki að spila aftur með liðinu. Hann dró þó í land þegar honum voru boðin betri kjör. Hann hefur skorað 145 mörk á sjö árum hjá Juve. Fótbolti 26.6.2007 11:04
Kaka keyptur til Real fyrir 6,7 milljarða? Talsmaður miðjumannsins Kaka hjá AC Milan segir hann hreint ekki vera búinn að útiloka að ganga í raðir Real Madrid á Spáni í sumar. Hann segir leikmanninn kunna vel við sig í Mílanó, en segir spænska liðið þegar vera búið að gera Kaka tilboð "sem hann geti ekki hafnað." Fótbolti 24.6.2007 16:36
Suazo fer ekki til AC Milan Sápuóperunni í kring um framherjann David Suazo virðist hvergi nærri lokið en í dag tilkynntu forráðamenn AC Milan að ekkert yrði af fyrirhuguðum kaupum félagsins á leikmanninum því hann hefði þegar verið búinn að skrifa undir samning við Inter áður en hann skrifaði undir samning hjá félaginu. Það er því útlit fyrir að framherjinn muni enda hjá Inter eftir allt saman. Fótbolti 23.6.2007 14:19
Inter sýknað af símahlerunum Inter Milan hefur verið hreinsað af ásökunum um að félagið hafi hlerað símtöl leikmanna og dómara. Þetta tilkynnti knattspyrnusamband Ítalíu í dag. Fyrrverandi leikmenn Inter, Christian Vieiri og Ronaldo voru meðal þeirra sem sögðu Inter hafa njósnað um sig, og einnig dómarinn Massimo De Santis. Fótbolti 22.6.2007 16:34
AC Milan bregst harðlega við mynd af Kaka Forráðamenn AC Milan á Ítalíu eru æfir vegna myndar sem birtist af leikmanni liðsins, Kaka, í spænska dagblaðinu AS um helgina. Kaka sést halda á eintaki af blaðinu með mynd af fagnaðarlátum Real Madrid þegar liðið vann meistaratitilinn á dögunum og þykir Ítölunum þetta vera beinn áróður spænska liðsins til að lokka miðjumanninn til Spánar. Fótbolti 21.6.2007 14:11
Fenerbahce: Við erum að kaupa Ronaldo Stjórnarformaður Fenerbahce í Tyrklandi segir að félagið sé við það að ganga frá kaupum á brasilíska framherjanum Ronaldo frá AC Milan. Félagið gekk frá kaupum á landa hans Roberto Carlos frá Real Madrid á dögunum og segir stjórnarformaðurinn það ekkert leyndarmál lengur að félagið sé að landa Ronaldo. Fótbolti 20.6.2007 17:24
Camoranesi ósáttur hjá Juventus Svo gæti farið að ítalski landsliðsmaðurinn Mauro Camoranesi færi frá Juventus í sumar eftir að slitnaði upp úr viðræðum umboðsmanns hans við félagið varðandi framlengingu á samningi leikmannsins. Leikmaðurinn á tvö ár eftir af samningi sínum en vildi bættari kjör eftir að hafa hjálpað liðinu upp úr B-deildinni í vor. Fótbolti 20.6.2007 15:21
Suazo snerist hugur - Eto´o út úr myndinni Framherjinn David Suazo skipti heldur betur um skoðun í gær þegar hann gerði samning við AC Milan. Suazo, sem er landsliðsmaður Hondúras, var fyrir helgina sagður hafa gengið í raðir Inter Milan frá Cagliari eftir frábært tímabil í vetur þar sem hann skoraði 14 mörk. Forráðamenn Cagliari tilkynntu fyrir helgi að Inter væri þegar búið að kaupa hann, en nú hefur hann gengið í raðir erkifjendanna. Fótbolti 19.6.2007 11:55
Totti sáttur við sjálfan sig Francesco Totti hjá Roma var að vonum ánægður þegar hann var sæmdur gullskónum um helgina, en það eru verðlaun sem veitt eru markaskorara ársins í Evrópuknattspyrnunni. Totti gleymdi ekki að þakka sjálfum sér þegar hann var spurður út í heiðurinn. Fótbolti 19.6.2007 11:37
AC Milan: Eto´o er fyrsti kostur Varaformaður AC Milan, Adriano Galliani, hefur nú tilkynnt að framherjinn Samuel Eto´o hjá Barcelona sé fyrsti kostur félagsins á leikmannamarkaðnum í sumar. Þetta sagði hann á heimasíðu félagsins. Hann var spurður út í ummæli forseta félagsins á dögunum þar sem hann sagði að félagið ætlaði að næla aftur í Andriy Shevchenko og saðgði þá; "Við forsetinn höfum aldrei verið ósammála á síðustu 30 árum. Hver veit hvað gerist?" Fótbolti 19.6.2007 11:30
Totti fær gullskó Evrópu Ítalinn Francesco Totti hlaut gullskó Evrópu fyrir nýafstaðið tímabil. Totti skoraði 26 mörk fyrir Roma á tímabilinu, einu marki meira en Ruud Van Nistelrooy skoraði fyrir Real Madrid. Fótbolti 18.6.2007 16:59
Milan segist ekki ætla að selja Kaka AC Milan ætlar sér ekki að selja Kaka þrátt fyrir að faðir Brasilíumannsins hafi fundað með Real Madrid. Adriano Galliani, varaforseti AC Milan sagði fréttamönnum þetta í morgun. „Við getum staðfest að Kaka verður ekki seldur en við vissum af fundi föður hans með Real þar sem hann hafði þegar sagt okkur frá honum.“ Fótbolti 15.6.2007 11:43