Ítalski boltinn
183 184 185 186 187 188 189 190 191 … 197 ›
Totti heldur áfram að klúðra vítaspyrnum Francesco Totti, fyrirliði Roma á Ítalíu, mun halda áfram að taka vítaspyrnur liðsins þrátt fyrir að hafa klúðrað sinni sjöttu vítaspyrnu á leiktíðinni gegn Reggina um helgina. Á sama tíma hefur Totti aðeins skorað úr fjórum vítaspyrnum. Eins ótrúlegt og það hljómar þá ætlar þjálfari liðsins ekki að breyta um vítaskyttu. Fótbolti 26.2.2007 12:36
Inter heldur sigurgöngunni áfram Inter Milan burstaði Catina á útivelli í ítölsku A-deildinni í dag, 5-2, og vann sinn 17. sigur í röð í deildinni. Fjögur markanna komu í síðari hálfleik. Inter heldur 14 stiga forystu í deildinni en Roma er áfram í öðru sæti eftir 3-0 sigur á Reggina. Enski boltinn 25.2.2007 16:38
Tekur Eriksson við af Mancini Ítalskir fjölmiðlar greina frá því í morgun að Sven Göran Eriksson, fyrrum þjálfari enska landsliðsins, muni líklega taki við stjórastöðunni hjá Inter Milan eftir núverandi tímabil, af Roberto Mancini. Forseti Inter, Massimo Moratti, er ósáttur með að Mancini skuli ekki hafa skrifað undir nýjan samning við félagið. Fótbolti 24.2.2007 18:03
Materazzi óánægður með Capello Ítalski varnarmaðurinn Marco Materazzi hjá Inter Milan hefur gagnrýnt landa sinn Fabio Capello harðlega fyrir nýleg ummæli sín um ítalska knattspyrnu. Capello, sem nú stjórnar Real Madrid á Spáni, segir enga raunverulega samkeppni vera í ítölsku A-deildinni og því sé hún leiðinleg. Materazzi segir Capello vera að gera lítið úr sjálfum sér með ummælunum. Fótbolti 23.2.2007 16:20
Framherji á kókaíni Framherjinn Francesco Flachi hjá Sampdoria á Ítalíu féll á lyfjaprófi sem tekið var fyrir leik liðsins gegn Inter Milan í síðasta mánuði. Kókaín fannst í fyrsta sýni og ef sannað þykir að hann hafi neitt efnisins fer hann í lágmark hálfs árs bann. Bannið gæti þó verið lengra í þessu tilviki því stutt er síðan leikmaðurinn tók út tveggja mánaða bann fyrir spillingu í tengslum við ólögleg veðmál í ítalska boltanum. Fótbolti 21.2.2007 17:08
Del Piero markahæstur Alessandro del Piero var í skýjunum yfir þrennunni sem hann skoraði fyrir Juventus í 5-0 sigrinum á Crotone í dag. Þrennan gerir það að verkum að þessi skemmtilegi leikmaður er orðinn markahæstur í B-deildinni með 12 mörk. Fótbolti 17.2.2007 21:35
Framherjakrísa hjá AC Milan Carlo Ancelotti, þjálfari AC Milan, á erfitt verkefni fyrir höndum þegar lið hans mætir Celtic í fyrri leik liðanna í Meistaradeildinni í næstu viku. Brasilíumaðurinn Ronaldo skoraði tvö mörk fyrir liðið í 4-3 sigri á Siena, en er ekki leikfær með liðinu í Meistaradeildinni. Fótbolti 17.2.2007 21:13
Del Piero með þrennu í stórsigri Juventus Gamla brýnið Alessandro del Piero var í miklu stuði hjá Juventus í ítölsku B-deildinni í dag þegar liðið vann 5-0 stórsigur á Crotone. Juventus er nú komið með þriggja stiga forskot á toppi deildarinnar þó tekið sé mið af þeim níu stigum sem dregin voru af liðinu í upphafi leiktíðar vegna spillingarmálsins á Ítalíu. Fótbolti 17.2.2007 19:46
Ronaldo skoraði tvö í fyrsta leik sínum Inter vann í dag 16. sigurinn í röð í ítölsku A-deildinni þegar liðið lagði Cagliari 1-0. Grannar þeirra í AC Milan unnu 4-3 útisigur á Siena þar sem brasilíski framherjinn Ronaldo skoraði tvívegis í sínum fyrsta leik í byrjunarliði liðsins. Inter hefur nú 14 stiga forskot á toppi deildarinnar og er komið með aðra hönd á meistaratitilinn. Fótbolti 17.2.2007 17:12
Materazzi: Við verðum meistarar Marco Materazzi, hinn umdeildi varnarmaður Inter Milan, er sannfærður um að lið sitt hampi meistaratitlinum þar í landi í ár. Hann segir að 2-3 sigrar í viðbót muni fara langt með að tryggja meistaratitilinn, en Inter hefur unnið 15 leiki í röð í deildinni til þessa. Fótbolti 16.2.2007 14:01
Ronaldo í byrjunarliðinu á morgun Brasilíski sóknarmaðurinn Ronaldo verður að öllum líkindum í byrjunarliði AC Milan í fyrsta skipti þegar liðið tekur á móti Siena í ítölsku A-deildinni á morgun. Þjálfarinn Carlo Ancelotti segir að Ronaldo sé óðum að komast í gott form og sé í nægilega góðu ástandi til að vera í byrjunarliðinu. Fótbolti 16.2.2007 13:52
Nesta vill framlengja við Milan Ítalski landsliðsmaðurinn Alessandro Nesta segist ólmur vilja framlengja samning sinn við AC Milan á Ítalíu, sem þó rennur ekki út fyrr en á næsta ári. Nesta hefur verið orðaður við önnur lið í Evrópu undanfarið. Fótbolti 15.2.2007 18:57
Gangið í lið með mér eða látið lífið Claudio Ranieri byrjaði ekki glæsilega í þjálfarastarfi sínu hjá ítalska liðinu Parma, því í dag var hann látinn biðjast afsökunar á harkalegum yfirlýsingum sínum á blaðamannafundinum þegar hann tók við liðinu. Fótbolti 14.2.2007 16:10
Catania fær þunga refsingu Ítalska liðið Catana þarf að spila síðustu heimaleiki sína í ár fyrir luktum dyrum á hlutlausum velli og þá hefur félagið verið sektað um rúmlega 33 þúsund evrur. Þetta var niðurstaða ítalska knattspyrnusambandsins í dag eftir að lögreglumaður lét lífið í óeirðum fyrir utan Massimo-völlinn í byrjun mánaðarins. Fótbolti 14.2.2007 15:51
Ranieri tekinn við Parma Claudio Ranieri var í dag skipaður þjálfari ítalska A-deildarliðsins Parma, en hann hefur verið atvinnulaus síðan hann var rekinn frá Valencia fyrir tveimur árum. Ranieri stýrði áður liði Chelsea en tekur nú við starfi Stefano Pioli sem var rekinn frá Parma á dögunum. Liðið er í bullandi fallbaráttu og er í næst neðsta sæti deildarinnar með aðeins 3 sigra í 22 leikjum. Fótbolti 13.2.2007 15:01
Eins og að horfa á U2 tónleika með 10 áhorfendum Blaðamaður Sports Illustrated sem fylgdist með leik Chievo og Inter Milan í ítölsku A-deildinni í gær segir að það hafi verið mjög sérstök upplifun að horfa á margar af skærustu knattspyrnustjörnum heimsins spila leik fyrir luktum dyrum. Fótbolti 12.2.2007 18:14
Mancini vill flauta tímabilið af Roberto Mancini vill að keppni í ítölsku A-deildinni verði flautuð af og látin hefjast á ný næsta haust á meðan unnið verður að því að koma öryggismálum í lag á Ítalíu. Lið hans Inter er eitt þeirra sem þarf að spila fyrir luktum dyrum um þessar mundir og því vill Mancini að liðið sem er í efsta sæti i dag verið sæmt meistaratitlinum og mótið flautað af. Fótbolti 12.2.2007 01:16
Ancelotti ánægður með Ronaldo Carlo Ancelotti, þjálfari AC Milan, var mjög ánægður með frammistöðu brasilíska framherjans Ronaldo sem lék sinn fyrsta leik fyrir sitt nýja lið í dag eftir að hafa komið frá Real Madrid í síðasta mánuði. Ronaldo þótti frískur þann tæpa hálftíma sem hann spilaði og gladdi auga þjálfara síns. Fótbolti 11.2.2007 20:48
Ekkert lát á sigurgöngu Inter Mörk frá Adriano og Hernan Crespo tryggðu Inter Milan auðveldan sigur á Chievo í ítölsku A-deildinni í fótbolta í dag en um var að ræða 15. sigur liðsins í deildinni í röð. Engir áhorfendur voru á leiknum, frekar en í þremur öðrum leikjum á Ítalíu í dag. Ronaldo lék sinn fyrsta leik fyrir AC Milan. Fótbolti 11.2.2007 18:11
Getum ekki verið án stuðningsmannanna verið Gennaro Gattuso, leikmaður AC Milan í ítalska boltanum, er ekki sammála yfirvöldum þar í landi sem fyrr í vikunni ákváðu að ákveðnir leikvangar fengju ekki að taka á móti áhorfendum í leikjum helgarinnar. Gattuso segir að leikmenn og stuðningsmenn geti ekki þrifist án hvors annars. Fótbolti 9.2.2007 15:59
Sex leikvangar opnir fyrir áhorfendur um helgina Nú stefnir í að aðeins sex af þeim tíu viðureignum sem fyrirhugaðar eru í ítölsku A-deildinni um helgina verði fyrir framan áhorfendur, en í dag var birtur listi yfir heimavelli sem standast nýjar og hertar öryggiskröfur. Þetta eru leikvangar í Róm, Genoa, Siena, Cagliari, Tórínó og Palermo á Sikiley. Fótbolti 8.2.2007 16:57
Mikil ólga á Ítalíu í kjölfar lokunar leikvanga Eins og fram hefur komið í fréttum í dag verður mikill fjöldi leikja í ítalska boltanum á næstunni spilaður fyrir luktum dyrum eftir að öryggisreglur voru hertar gríðarlega á Ítalíu í dag. Kostnaðurinn við hvern dag sem leikjum er frestað er talinn vera um 15 milljónir evra. Fótbolti 7.2.2007 20:30
Aðeins fimm heimavellir í A-deildinni standast kröfur Aðeins fimm leikvangar í A deildinni á Ítalíu eru sagðir standast hertar öryggiskröfur sem tilkynntar verða þar í landi í dag í kjölfar harmleiksins á leik Catania og Palermo á dögunum. Þetta eru Ólympíuleikvangurinn í Róm, heimavöllur Roma og Lazio, Ólympíuleikvangurinn í Tórínó, heimavöllur Juventus og Torino, Renzo Berbera (Palermo), Luigi Ferraris (Sampdoria) og San Filippo (Messina). Fótbolti 7.2.2007 16:08
Celtic mætir Milan á tómum San Siro Ítalska knattspyrnusambandið mun í dag tilkynna úrskurð sinn í öryggismálum eftir óeirðirnar þar í landi sem kostuðu enn eitt mannslífið um daginn, en þegar hefur verið tilkynnt að 11 heimavellir í A-deildinni standist ekk nýja og stranga öryggisstaðla. fyrir luktum dyrum. Fótbolti 7.2.2007 16:03
Ítalski boltinn gæti byrjað á ný á sunnudaginn Keppni í ítalska boltanum gæti hafist á ný á sunnudag að sögn Luca Pancalli, formanns ítalska knattspyrnusambandsins. Forráðamenn félaga í A og B deildunum þar í landi hafa fundað stíft síðustu daga vegna öryggismála á knattspyrnuvöllum þar í landi í kjölfar þess að lögreglumaður lét lífið í óeirðum á dögunum og ákvörðunar er að vænta á morgun. Fótbolti 6.2.2007 14:36
Ákvörðunar að vænta á morgun Ítölsk íþróttamálayfirvöld munu ákveða á morgun hvort leika eigi knattspyrnu þar í landi fyrir luktum dyrum. Útför lögreglumannsins sem lést við skyldustörf á leik Catania og Palermo á föstudag var haldin í gær. Fótbolti 5.2.2007 21:38
Lögreglumaður lét lífið í óeirðum á Sikiley Öllum leikjum í ítölsku A-deildinni í knattspyrnu hefur verið frestað um óákveðinn tíma eftir að lögreglumaður lét lífið í óeirðum á leik grannliðanna Catania og Palermo á Stadio Massimino. Þá hefur vináttuleik Ítala og Rúmena á miðvikudaginn einnig verið frestað. Fótbolti 3.2.2007 14:07
Gattuso framlengir við Milan Harðjaxlinn Gennaro Gattuso hefur framlengt samning sinn við ítalska stórliðið AC Milan til ársins 2011 og fetaði þar með í fótspor Clarence Seedorf félaga síns, en þeir koma til með að klára ferilinn hjá félaginu. Tveir lykilmanna AC Milan fóru hinsvegar á meiðslalistann í dag. Fótbolti 1.2.2007 21:11
Ronaldo loksins farinn til Milan AC Milan náði nú rétt í þessu samkomulagi við Real Madrid um kaup á brasilíska framherjanum Ronaldo og mun landi hans Ricardo Olivera fara til Spánar í staðinn. Talið er að Ronaldo hafi kostað ítalska félagið um 8 milljónir evra, en Olivera fer sem lánsmaður á Bernabeu út leiktíðina. Félögin hafa þráttað um kaupin síðan í síðustu viku. Fótbolti 30.1.2007 15:57
Carlo Ancelotti: Ronaldo er ekki feitur Carlo Ancelotti, þjálfari AC Milan á Ítalíu, segir að nýjasti liðsmaður félagsins, brasilíski framherjinn Ronaldo, sé alls ekki feitur heldur aðeins vel í holdum. Ancelotti segir Ronaldo einungis skorta leikæfingu og að hann þurfi ekki að grennast. Fótbolti 29.1.2007 12:46