Ítalski boltinn
192 193 194 195 196 197 … 197 ›
Vogel samdi við AC Milan Svissneski miðjumaðurinn hjá PSV Eindhoven, Johan Vogel, skrifaði í dag undir þriggja ára samning við ítalska liðið AC Milan. Sport 13.10.2005 19:16
Mutu með Juventus á sunnudag Rúmenski landsliðsmaðurinn í knattspyrnu, Adrian Mutu er nú búinn að afplána 7 mánaða keppnisbannið sem hann var úrskurðaður í og leikur að öllum líkindum á sunnudaginn með Juventus í lokaumferð ítölsku deildarinnar. Sport 13.10.2005 19:15
Cassano ekki til Juventus Luciano Moggi, forseti ítalska stórliðsins Juventus, sagði í dag að liðið hefði ekki áhuga á að fá ítalska landsliðsmanninn hjá Roma, Antonio Cassano, í sumar. Sport 13.10.2005 19:15
Juventus ítalskur meistari Juventus varð í kvöld ítalskur meistari í knattspyrnu, án þess þó að stíga fæti inná leikvöll. Ástæða þess er 3-3 jafntefli AC Milan gegn Palermo á heimavelli sínum San Siro. Sport 13.10.2005 19:14
Mutu aftur í landsliðið Fyrrum framherji Chelsea, Rúmeninn Adrian Mutu, hefur verið kallaður í landsliðshópinn á ný fyrir leikina gegn Hollandi og Armeníu í undankeppni heimsmeistaramótsins í næsta mánuði. Sport 13.10.2005 19:14
Capello slær met Fabio Capello, stjóri Juventus, varð í kvöld fyrsti stjórinn í sögu ítalska boltanns til að vinna ítalska meistaratitilinn með liðum úr þrem borgum. Hann hafði áður unnið fjóra titla í Mílan og einn í Róm, og í kvöld bættist Tórínó við, en þaðan kemur einmitt Juventus. Sport 13.10.2005 19:14
Inter í úrslit bikarkeppninnar Internazionale sigraði Cagliari 3-1 og 4-2 samtals í tveimur leikjum í undanúrslitum um ítalska bikarinn í knattspyrnu í gærkvöldi. Í úrslitum mætir Internazionale annaðhvort Roma eða Udinese. Sport 13.10.2005 19:14
Fúlir íþróttafréttamenn Íþróttafréttamenn ítalska ríkissjónvarpsins RAI tilkynntu í dag að þeir ætli í verkfall þann 4. júní n.k. Þeir eru æfir af reiði yfir því að áskriftarsjónvarpsstöð skuli hafa fengið sýningarrétt á Ítalíu á sýningum allra 64 leikjanna á HM í knattspyrnu 2006. Fyrirhugað verkfall hefst eins og áður segir 4. júní eða þegar Ítalir mæta Noregi í undankeppni HM. Sport 13.10.2005 19:13
Juventus vann Milan Juventus sigraði AC Milan fyrir framan 68 þúsund áhorfendur á San Siro í dag með einu marki gegn engu. Það var Frakkinn David Trezeguet sem skoraði sigurmarið á tuttugustu mínútu. Juve er þá komið með þriggja stiga forristu á Milan þegar þrjár umferðir eru eftir. Sport 13.10.2005 19:10
Stórleikur í ítalska boltanum Efstu liðin í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu, AC Milan og Juventus, mætast í deildinni í dag. Leikurinn verður sýndur beint á Sýn og hefst klukkan 13. Sport 13.10.2005 19:10
Mourinho vill Crespo aftur Framkvæmdastjóri Cheslea, Portúgalinn Jose Mourinho, hefur sagt að hann vilji fá Hernan Crespo aftur á Stamford Bridge næsta tímabil. Þessi argentínski sóknarmaður er sem stendur á árs lánssamning hjá AC Milan eftir að hann náði sér ekki á strik hjá Chelsea í fyrra. Sport 13.10.2005 19:10
Úrslitaleikur á Ítalíu Á sunnudag fer fram einn af leikjum knattspyrnutímabilsins í Evrópu þegar AC Milan tekur á móti Juventus. Þegar fjórar umferðir eru eftir af leiktíðinni eru liðin eru jöfn að stigum á toppi ítölsku deildarinnar en ef annað hvort liðið nær að knýja fram sigur á það meistartitilinn vísan. AC Milan eru ríkjandi meistarar en Juventus er það lið sem oftast hefur hampað ítalska titlinum. Sport 13.10.2005 19:10
5 leikja bannið stendur hjá Totti Aganefnd ítalska knattspyrnusmbandsins hefur synjað áfrýjun Francesco Totti gegn 5 leikja banni sem sóknarmaðurinn skapbráði var úrskurðarður í á dögunum. Ítalski landsliðsfyrirliðinn var rekinn af leikvelli í annað sinn á skömmum tíma eftir að hafa lent í ryskingum við Francesco Colonnese þegar Roma mætti Siena á dögunum. Sport 13.10.2005 19:09
AC Milan með þriggja stiga forskot AC Milan náði í gær þriggja stiga forskoti í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu með góðum sigri á Fiorentina, 2-1. Það var Andryi Shevchenko sem skoraði bæði mörk Milan sem er með 76 stig en Juventus getur náð Mílanónliðinu að stigum í dag sigri það Bologna í leik sem nú stendur yfir og er sýndur beint á Sýn. Sport 13.10.2005 19:08
Landsliðsfyrirliði í læknisleik Einari Logi Vignisson skrifar alltaf um boltann í suður-Evrópu í Fréttablaðinu á sunnudögum. Að þessi fjallar hann um dópið á Ítalíu sem er leikmönnum enn hættulegri en samkvæmisdópið. Sport 13.10.2005 19:08
Juventus ekki svipt titlunum Juventus verður ekki svipt titlunum sem liðið vann á síðasta áratug, þrátt fyrir að læknir liðsins hafi verið fundinn sekur um að láta leikmenn nota lyfjavítamínskammta. Þetta er niðurstaða alþjóðlegs íþróttadómstóls. Sport 13.10.2005 19:08
Er Totti á leið til Milan? Silvio Berlusconi gaf í dag vísbendingu þess efnis að AC Milan muni reyna að kaupa Francesco Totti, en hann svaraði spurningum blaðamanna með pólitískum stíl, brosti út að eyrum og sagði: <em>,,Ég segi ekkert á þessari stundu."</em> Sport 13.10.2005 19:07
Alberto Gilardino til Real Madrid? Mörg lið renna hýru auga til knattspyrnumannsins Alberto Gilardino sem leikur með Parma á Ítalíu. Sport 13.10.2005 19:06
Milan náði toppsætinu AC Milan náði fyrsta sætinu í ítölsku úrvalsdeildinni í gærkvöldi með 3-0 sigri á Parma. Brasilíumennirnir Kaka og Cafu og Daninn John Dahl Tomasson skoruðu mörkin. Sport 13.10.2005 19:06
Áfrýja banni Zlatans Ítalska knattspyrnufélagið Juventus ætlar að áfrýja úrskurði aganefndar ítalska knattspyrnusambandsins sem dæmdi sænska sóknarmanninn hjá Juventus, Zlatan Ibrahimovic, í þriggja leikja bann. Sport 13.10.2005 19:06
Totti fær 5 leikja bann - Zlatan 3 Aganefnd ítalska knattspyrnusambandsins dæmdi í gær fyrirliða Roma, Francesco Totti, í fimm leikja bann og Svíann Zlatan Ibrahimovic hjá Juventus í þriggja leikja bann. Sport 13.10.2005 19:06
Inter lagði Juve og Milan vann Inter Milan vann óvæntan 0-1 útisigur á Juventus í stórleik Serie A í ítalska fótboltanum í kvöld og setti fyrir vikið toppbaráttuna í deildinni í háspennu. Julio Cruz skoraði sigurmarkið á 24. mínútu en á sama tíma náði AC Milan að jafna Juve að stigum með 1-0 sigri á Chievo þar sem Clarence Seedorf skoraði sigurmarkið. Sport 13.10.2005 19:05
Juve - Inter á Sýn í kvöld Heil umferð er í ítölsku úrvalsdeildinni í kvöld. Stórleikur kvöldsins er viðureign toppliðs Juventus og Internationale sem er í þriðja sæti deildarinnar. Leikurinn verður í beinni útsendingu á Sýn klukkan 18.30. AC Milan, sem er í 2. sæti, tekur á móti Chievo. Sport 13.10.2005 19:05
Inter yfir gegn Juventus Inter Milan er yfir, 0-1, á útivelli gegn toppliði Juventus í stórleik kvöldsins í ítölsku 1. deildinni í knattpsyrnu en heil umferð er leikin þar í kvöld. Vinni Inter geta erkifjendur þeirra í AC Milan smyglað sér á topp deildarinnar með sigri á Chievo en staðan þar er 0-0 í hálfleik. Leikur Juventus og Inter er sýndur beint á Sýn. Sport 13.10.2005 19:05
Óvænt tap AC Milan í Serie A Juventus læddi sér á topp ítölsku 1. deildarinnar í knattspyrnu í dag, Serie A, eftir 5-2 sigur á Lecce á meðan AC Milan missteig sig í toppbaráttunni og tapaði óvænt fyrir Siena, 2-1. Sport 13.10.2005 19:04
Sampdoria í fjórða sætið á Ítalíu Á Ítalíu skaust Sampdoria upp í fjórða sætið eftir sigur á Palermo, 1-0, í gær. Franceso Flachi skoraði sigurmarki úr vítaspyrnu í uppbótartíma. Roma tapaði heima fyrir Reggina, 1-2, og Messina vann Udinese 1-0. Sport 13.10.2005 19:04
3-0 tap vegna fótboltabullna Ítalska knattspyrnusambandið hefur nú þegar tekið fyrsta skrefið í áttina að hertri meðferð gegn knattspyrnubullum þar í landi í kjölfar ólátanna á leik AC Milan og Inter Milan á San Siro í gærkvöldi. Héðan í frá verður engin miskunn hjá Magnúsi hjá ítalska sambandinu sem hefur boðað róttækar aðgerðir. Sport 13.10.2005 19:03
Óvænt úrslit á Ítalíu Óvænt úrslit urðu í ítalska boltanum í gærkvöld. AC Milan og Brescia skildu jöfn, 1-1. Rui Costa kom Milan yfir en Pierre Wome jafnaði metin fyrir Brescia fimm mínútum fyrir leikslok. Sport 13.10.2005 19:02
Crespo vill vera áfram hjá Milan Argentínumaðurinn Hernan Crespo er staðráðinn í að vera áfram innan raða ítalska liðsins AC Milan en hann er í láni hjá félaginu frá Chelsea þangað til í sumar. Sport 13.10.2005 19:00
Buffon að framlengja Juventus ætla að framlengja samning sinn við ítalska landsliðsmarkvörðinn Gianluigi Buffon til að fæla frá áhugasöm lið á borð við Real Madird, en spænsku risarnir hafa mikin áhuga á markverðinum snjalla og hafa þegar boðið 30 milljón evrur sem forráðamenn Juventus höfnuðu. Sport 13.10.2005 18:59