Formúla 1
97 98 99 100 101 ›
Mosley þrýstir á keppnisliðin Max Mosley hefur nú gefið það út að keppnisliðin sem enn hafi ekki skuldbundið sig lengur en til ársins 2007 verði gefinn mánaðarfrestur til að semja eftir sérstakan fund sem haldinn verður í næsta mánuði - ella verði þeim gert að hætta keppni. Sport 13.2.2006 20:13
Forseti Renault dulur Carlos Ghosn, forseti Renault í Formúlu 1, vill lítið gefa upp um framtíðaráform liðsins, en segir að það muni í það minnsta verða með á næsta keppnistímabili. Ghosn er ekki sáttur við framtíðaráform æðstu manna í íþróttinni og segir lið sitt aðeins halda áfram að því tilskyldu að það sjái sér hag í því. Sport 9.2.2006 15:31
Keppnin á Spa blásin af Nú hefur verið staðfest að ekki verði keppt á Spa-brautinni frægu í Formúlu eitt í haust eins og til stóð, því mótshaldarar sjá fram á að ekki verði hægt að ljúka nauðsynlegu viðhaldi á brautinni í tæka tíð. Rekstur brautarinnar sigldi í strand í fyrra, en nú er ljóst að keppnir ársins verða 18 í stað 19. Spa-brautin er mjög vinsæl meðal ökumanna í Formúlu 1 og hefur verið kölluð ein sú allra skemmtilegasta. Sport 8.2.2006 15:40
Williams ætlar á topp þrjú Frank Williams hefur gefið það út að lið hans, sem nú ekur með Cosworth-vélar í stað BMW, eigi að geta náð á topp þrjú í keppni bifreiðasmiða á komandi tímabili í Formúlu 1. Sport 27.1.2006 18:48
Raikkönen hefur áhyggjur Finnski ökuþórinn Kimi Raikönnen segir að lið McLaren Mercedes verði að láta hendur standa fram úr ermum á næstunni, því hann hafi áhyggjur af vél nýja bílsins sem þegar sé farin að verða liðinu til trafala á fyrstu æfingum tímabilsins. Sport 27.1.2006 14:58
Super Aguri verður ellefta liðið Alþjóða akstursíþróttasambandið, FIA, samþykkti í dag formlega að veita liði Super Aguri keppnisrétt í Formúlu 1 á næsta keppnistímabili og verður liðið því það ellefta sem keppir um heimsmeistaratitilinn í ár. Sport 26.1.2006 19:57
Honda er með bestu ökumennina í Formúlu 1 Nick Fry, stjóri Honda-liðsins í Formúlu 1, er ekki í vafa um að ökumenn liðsins muni skila liðinu fyrsta sigrinum í sjö ár á næsta tímabili. Sem kunnugt er hét lið Honda áður BAR, en Honda er nú með í Formúlu 1 í fyrsta sinn síðan 1968. Sport 25.1.2006 16:08
Almenn ánægja með nýjan Ferrari Ferrari hefur nú forlega frumsýnt nýja 2006-bílinn sinn sem hefur fengið heitið 248. Bíllinn var ekinn í fyrsta sinn á Mugello-brautinni á Ítalíu í síðustu viku og var Aldo Costa, hönnuður bílsins var mjög ánægður með útkomuna. "Ég er í skýjunum yfir því hvernig bíllinn er að koma út," sagði hann. Sport 24.1.2006 14:52
Nýr McLaren frumsýndur í Barcelona Pedro de la Rosa, æfingaökumaður hjá McLaren, frumsýndi í dag nýjan bíl frá framleiðandanum á æfingabraut í Barcelona á Spáni. Rosa var ánægður með bílinn og sagði hann gefa góð fyrirheit. "Ég er auðvitað bara búinn að taka örfáa hringi á bílnum, en hann lofar mjög góðu," sagði Spánverjinn. Sport 23.1.2006 14:37
Belgíukappaksturinn úr sögunni Belgíukappaksturinn í Formúlu 1 er úr sögunni ef marka má fréttir frá Belgíu, eftir að Bernie Ecclestone og hans mönnum mistókst að bjarga rekstri Spa-brautarinnar eins og til stóð. Mótshaldararnir í Belgíu urðu gjaldþrota á dögunum, en talið var víst að Formúlumógúllinn Ecclestone gengi í málið og bjargaði keppninni. Sport 20.1.2006 14:54
Villeneuve ánægður með nýja bílinn Ökuþórinn Jacques Villeneuve er mjög ánægður með nýja BMW-Sauber bílinn sem hann reynsluók í fyrsta sinn í dag og segist viss um að bíllinn eigi eftir að gera góða hluti á komandi keppnistímabili. Sport 19.1.2006 21:16
Nýr BMW-Sauber frumsýndur Nýr keppnisbíll BMW-Sauber liðsins í Formúlu 1 var frumsýndur formlega í Valencia á Spáni í dag og hafa forráðamenn liðsins lofað að láta til sín taka á komandi tímabili. BMW skaffaði áður vélar fyrir lið Williams, en hefur nú keypt lið Sauber og hefur sett stefnuna á heimsmeistaratitil innan þriggja ára. Sport 17.1.2006 15:07
Schumacher prófaði nýja bílinn í dag Michael Schumacher prufukeyrði 2006 árgerðina af Ferrari á Fiorano æfingabrautinni í dag. Schumacher æfði ræsingar og ók bílnum fjóra hringi, en bíllinn verður ekki frumsýndur formlega fyrr en á Mugello-brautinni þann 24. janúar. Sport 16.1.2006 16:25
Hættu að tala um að hætta Ralf Schumacher, ökumaður Toyota og bróðir fyrrum heimsmeistarans Michael Schumacher hjá Ferrari, hefur aldrei verið feiminn við að tjá skoðanir sínar á bróður sínum og nú hefur hann gefið það út að Michael ætti að hætta að tala um að leggja stýrið á hilluna og einbeita sér að því að vinna titla með liði sínu. Sport 16.1.2006 15:29
Nýr Ferrari til sýnis innan skamms Forráðamenn Ferrari hafa tilkynnt að 2006 bíllinn verði frumsýndur á Mugello æfingabrautinni þann 24. janúar næstkomandi, en vel má vera að bíllinn verði prófaður öllu fyrr, jafnvel næsta mánudag að sögn Jean Todt, stjóra liðsins. Sport 12.1.2006 18:34
Schumacher útilokar ekki að skipta um lið Fyrrum heimsmeistarinn í Formúlu 1, Þjóðverjinn Michael Schumacher, útilokar ekki að hann skipti um lið þegar samningi hans við Ferrari lýkur árið 2007. Sport 12.1.2006 15:03
Nýju reglurnar henta Ferrari Nýji ökumaður Ferrari, Felipe Massa, segir að nýjar reglur varðandi hjólbarðanotkun muni verða Ferrari til tekna á næsta tímabili, en Ferrari þótti líða fyrir reglur sem settar voru fyrir síðasta tímabil og kröfðust þess að liðin kepptu á sömu hjólbörðunum í heila keppni. Sport 11.1.2006 16:04
Schumacher íhugar að hætta Fyrrum heimsmeistarinn Michael Schumacher hefur gefið það út að hann sé að íhuga að hætta eftir komandi tímabil í Formúlu 1. Hinn sjöfaldi heimsmeistari vill þó ganga úr skugga um hvort Ferrari-lið hans hefur burði til að komast aftur í fremstu röð áður en hann tekur endanlega ákvörðun. Sport 9.1.2006 16:27
Honda er betra en Ferrari Brasilíski ökuþórinn Rubens Barrichello sem nýverið gekk í raðir Honda-liðsins í Formúlu 1, segir að lið Honda sé sterkara en Ferrari í dag og það hafi orðið til þess að hann ákvað að skipta um lið í sumar. Sport 4.1.2006 15:23
Schumacher segir Ferrari á réttri leið Fyrrum heimsmeistarinn Michael Schumacher segir að Ferrari-liðið sé á réttri leið í að koma sér á meðal þeirra bestu á ný og spáir að næsta keppnistímabil verði mun betra en árið 2005, þar sem liðið olli miklum vonbrigðum. Sport 2.1.2006 15:38
Þýski kappaksturinn í hættu? Enn berast fréttir af því úr Formúlu 1 að illa gangi að reka braut í mótinu og nú er það Hockenheim-brautin í Þýskalandi sem er sögð standa verulega höllum fæti fjárhagslega. Sport 28.12.2005 16:43
Toyota hefur áhuga á Raikkönen Þýska blaðið Bild greinir frá því um helgina að lið Toyota vinni nú hörðum höndum að því að lokka finnska ökuþórinn Kimi Raikkönen til liðs við sig þegar samningi hans við McLaren lýkur eftir næsta tímabil. Toyota er sagt hafa boðið honum 25 milljón evrur í árslaun gegn því að hann geri samning við liðið, en metnaður Toyota að komast á toppinn í Formúlu 1 er mikill. Sport 26.12.2005 15:58
Super Aguri væntanlega með 2006 Japanska keppnisliðið Super Aguri verður væntanlega ellefta liðið í keppnum næsta árs í Formúlu 1, eftir að samþykki fékkst frá öllum tíu liðunum í mótinu fyrir þáttöku nýja liðsins. Liðið mun keppa með vélar frá Honda, en það á nú aðeins eftir að hljóta samþykki FIA til að verða með á næsta ári, en hingað til hefur ekki gengið nógu vel að ganga frá fjárhagshliðinni á málinu enda ekkert ódýrt í Formúlu 1. Sport 21.12.2005 17:30
Ég átti engan þátt í ákvörðun Alonso Flavio Briatore, stjóri Renault-liðsins í Formúlu 1, vísar því á bug að hann hafi átt þátt í því að heimsmeistarinn Fernando Alonso hafi ákveðið að semja við McLaren árið 2007. Briatore er einnig umboðsmaður Alonso, en það var Briatore sem tók Alonso undir sinn verndarvæng hjá liðinu á sínum tíma og gaf honum tækifæri, sem á endanum varð til þess að Alonso varð heimsmeistari aðeins 24 ára gamall. Sport 20.12.2005 16:16
Alonso fer til McLaren árið 2007 Þær stórfréttir bárust úr Formúlu 1 í morgun að heimsmeistarinn ungi, Fernando Alonso hjá Renault, hefur samþykkt að ganga til liðs við McLaren árið 2007 þegar samningur hans við Renault rennur út. Sport 19.12.2005 11:44
Schumacher byrjar vel Fyrrum heimsmeistarinn Michael Schumacher er byrjaður að æfa á fullu eftir stutt frí og í gær náði hann frábærum tíma á æfingum á Jerez brautinni á Spáni. "Mér finnst ég mjög ferskur um þessar mundir og ég er ákaflega einbeittur," sagði Schumacher, sem vill eflaust gleyma síðasta ári sem fyrst og einbeita sér að því að komast á meðal þeirra bestu á ný. Sport 16.12.2005 14:41
Ákvörðun Michelin hefur engin áhrif Forráðamenn heimsmeistara Renault segja að ákvörðun Michelin dekkjaframleiðandans að draga sig út úr Formúlu 1 eftir næsta tímabil hafi engin áhrif á áform liðsins um að verja titilinn á næsta ári. Sport 16.12.2005 14:24
Michelin hættir eftir næsta keppnistímabil Dekkjaframleiðandinn Michelin hefur gefið það út að hann muni hætta að framleiða hjólbarða fyrir Formúlu 1 eftir tímabilið 2006, en ákvörðun þessi kemur í kjölfar þess að alþjóða aksturssambandið, FIA, ákvað á dögunum að öll dekk í keppnum frá og með árinu 2008 skuli vera frá sama framleiðandanum. Sport 14.12.2005 15:33
Vodafone fer frá Ferrari til McLaren Fjarskiptarisinn Vodafone hefur náð samningi við McLaren-liðið í Formúlu 1 um að verða aðal styrktaraðili liðsins frá og með árinu 2007. Vodafone hefur verið hjá erkifjendunum Ferrari síðan árið 2002 og hefur skaffað ítalska liðinu um 23 milljónir punda á ári, en nú er ljóst að þeir styðja við bakið á keppinautum þeirra eitthvað fram á næsta áratug. Ekki hefur enn verið gefið upp hve hár samningurinn er. Sport 14.12.2005 14:05
Ekkert frí hjá Schumacher í ár Fyrrum margfaldur heimsmeistari í Formúlu 1, Þjóðverjinn Michael Schumacher, sleppti að taka sitt venjubundna vetrarfrí í ár eins og hann hefur gert undanfarið og hefur þess í stað fylgst náið með prófunum á Ferrari-bílnum og segist ekki geta beðið eftir að byrja að keyra á ný. Sport 13.12.2005 13:06