„Leiðinlegt að þetta sé búið“ Vestri gerði sitt fyrsta jafntefli í Evrópukeppni í sögu félagsins þegar liðið mætti RFS frá Lettlandi í síðari leik liðanna í 2. umferð undankeppni Sambandsdeildarinnar í fótbolta karla á Þróttarvelli í Laugardal í kvöld. Leiknum lauk 1-1 og RFS vann einvígið samanlagt 2-5. Fótbolti 30.7.2026 21:00
Smá munur á Qarabag og Lengjudeildinni Þórður Gunnar Hafþórsson skoraði fyrsta mark Vestra í Evrópukeppni á heimavelli, eða eiginlegum heimavelli, í sögunni þegar Vestfjarðaliðið gerði 1-1 jafntefli við RFS frá Lettlandi á Þróttarvelli í Laugardal í 2. umferð undankeppni Sambandsdeildarinnar í fótbolta í kvöld. Fótbolti 30.7.2026 20:42
Uppgjörið: Vestri – RFS 1-1 (2-5) | Evrópuævintýri Vestra á enda Vestri er úr leik í Sambandsdeild karla í fótbolta eftir að gert jafntefli við lettneska liðið RFS, 1-1, í öðrum leik liðanna í 2. umferð undankeppni keppninnar á Þróttarvelli í Laugardal í kvöld. RFS vann einvígið samanlagt 5-2 eftir 4-1 sigur í fyrri leiknum í Lettlandi og fer áfram í 3. umferð undankeppni Sambandsdeildarinnar. Fótbolti 30.7.2026 17:17
Sérlega gleðileg jól í ár og langt hlé á enda Jólin í ár verða fullkomin fyrir íþróttaáhugafólk eins og rætt var um í Besta sætinu í dag. Stjarnan og Vestri eiga ansi ólík verk fyrir höndum í Evrópukeppnum í kvöld og Besta deild kvenna hefst að nýju eftir langt hlé. Þá eru 8-liða úrslitin að hefjast á HM. Sport 9. júlí 2026 15:03
„Horfa á okkur sem sveitalið frá Íslandi“ „Þetta er stærsti leikur sem allir sem að Vestra koma hafa tekið þátt í. Við viljum gera eins vel og við getum og verða Íslandi til sóma en vitum að þetta verður mjög erfitt,“ segir Samúel Samúelsson, stjórnarmaður hjá Vestra, fyrir fyrsta Evrópuleik í sögu félagsins. Fótbolti 9. júlí 2026 12:01
Markalaust í rjómablíðunni á Suðurnesjunum Grindavík og Vestri mættust í tólftu umferð Lengjudeildar karla í dag. Leikurinn endaði markalaus í frekar tíðindalítlum leik. Fótbolti 4. júlí 2026 16:14
Jöfnuðu í uppbótartíma Vestri tapaði niður unnum leik undir lok leiksins á Avis-vellinum gegn Þrótti í Lengjudeildinni í dag. Sport 27. júní 2026 16:08
Vestri í toppbaráttu eftir afar sætan sigur Bikarmeistarar Vestra hafa stimplað sig inn í toppbaráttu Lengjudeildar karla í fótbolta en þeir unnu Aftureldingu 2-0 í blíðviðri á Ísafirði í dag. Íslenski boltinn 21. júní 2026 16:01
Þjóðhátíðarsigur á Ísafirði Vestri náði góðum sigri gegn Ægi í fimmtándu umferð Lengjudeildarinnar. Ægir þarf að ná í stig ef liðið ætlar að losa sig úr fallbaráttu deildarinnar. Fótbolti 17. júní 2026 17:24
Evrópudagskrá íslensku liðanna klár Dregið var í 2. umferð Sambandsdeildar Evrópu í fótbolta í dag. Alls gætu fjögur íslensk lið spilað í þeirri umferð; Víkingur, Vestri, Valur og Stjarnan, en Víkingur og Vestri fá fyrst tækifæri til að komast áfram í Meistaradeildinni og Evrópudeildinni. Fótbolti 17. júní 2026 12:30
Vestri gæti farið til Búlgaríu eða Írlands Bikarmeistarar Vestra eiga óhemju erfitt verkefni fyrir höndum í 1. umferð undankeppni Evrópudeildarinnar í fótbolta. Kæmust þeir hins vegar áfram er ljóst að þeir færu til Búlgaríu eða Írlands í 2. umferðinni. Fótbolti 17. júní 2026 11:16
Vestri mætir liði sem komst í umspil Meistaradeildarinnar Vestri mun mæta Qarabag frá Aserbaísjan í fyrstu umferð undankeppni Evrópudeildarinnar í fótbolta. Fótbolti 16. júní 2026 15:18
Vestri valtaði yfir Völsung Vestramenn stukku upp í umspilssæti í Lengjudeild karla með 5-1 sigri á lánlausu botnliði Völsungs á Ísafirði í dag. Íslenski boltinn 6. júní 2026 16:53
Grótta í toppbaráttu, Ægir vann aftur og Vestri fagnaði í Breiðholti Gróttumenn halda flugi sínu áfram í Lengjudeild karla í fótbolta en þeir unnu þriðja leik sinn í röð í dag þegar Axel Sigurðarson skoraði sigurmark á 90. mínútu gegn Njarðvík á útivelli. Ægir og Vestri fögnuðu einnig sigri. Íslenski boltinn 31. maí 2026 16:10
Davíð Smári fór illa með gömlu lærisveinana Njarðvíkingar gerðu góða ferð vestur á Ísafjörð og unnu þar öruggan 3-0 sigur gegn bikarmeisturum Vestra í endurkomu þjálfarans Davíðs Smára Lamude, í 6. umferð Lengjudeildar karla í fótbolta í kvöld. HK vann 1-0 gegn Völsungi. Íslenski boltinn 27. maí 2026 20:18
Vestri gæti mætt stórveldi á Þróttarvelli Nú er orðið ljóst hvaða sex lið koma til greina sem mögulegir mótherjar bikarmeistara Vestra í fyrstu umferð undankeppni Evrópudeildarinnar í fótbolta í sumar. Fótbolti 24. maí 2026 11:24
Fylkir á toppinn og 16 ára í stuði Fylkir er á toppi Lengjudeildar karla í fótbolta eftir 1-0 útisigur á Völsungi á Húsavík í dag. Íslenski boltinn 23. maí 2026 15:54
Glæsimark fyrirliðans kveikti í endurkomu Vestra Vestri sótti 1-2 sigur gegn Ægi úr Þorlákshöfn í 4. umferð Lengjudeildar karla. Fyrirliðinn Elmar Atli Garðarson og framherjinn Ibrahima Balde tryggðu Vestra sigurinn. Íslenski boltinn 17. maí 2026 16:12
Ægir sló KA út og bikarmeistararnir flengdir Lengjudeildarlið Ægis vann 2-1 sigur á KA á Akureyri í 16-liða úrslitum Mjólkurbikars karla í fótbolta í dag. Grótta fleygði bikarmeisturum Vestra úr keppni. Íslenski boltinn 14. maí 2026 15:56
Fullkomin byrjun Þróttara heldur áfram Þróttur Reykjavík er á toppi Lengjudeildar karla í fótbolta með fullt hús stiga eftir sigur á Völsungi á Húsavík í dag. Vestramenn unnu sinn fyrsta sigur gegn HK sem tapaði um leið sínum fyrsta leik á tímabilinu. Grótta vann slag nýliða deildarinnar. Íslenski boltinn 9. maí 2026 16:19
Fylkir kláraði Vestra í seinni hálfleik Fylkir er með fullt hús stiga í Lengjudeild karla í fótbolta eftir sigur gegn Vestra á heimavelli í kvöld. Lokatölur 2-0 sigur Fylkis. Fótbolti 4. maí 2026 20:03
Draumabyrjun Þróttara en jafnt fyrir vestan Þróttur vann 2-0 sigur á Njarðvík í 1. umferð Lengjudeildar karla í dag. Bikarmeistarar Vestra og Grindavík skildu jöfn á Ísafirði, 1-1. Íslenski boltinn 25. apríl 2026 16:09
Með Vestra í Evrópu: „Engin þjálfarastaða sambærileg þessari“ Ætla má að einhverjir hafi rekið upp stór augu þegar greint var frá ráðningu Daniel Badu í starf þjálfara Vestra og það eftir súrsætt tímabil hjá liðinu sem varð bikarmeistari og tryggði sér Evrópusæti en féll úr Bestu deildinni. Daniel tekur við liðinu fyrir sögulegt tímabil og ætlar að koma því aftur upp í efstu deild. Íslenski boltinn 25. apríl 2026 09:31
Bikarmeistararnir áfram eftir danskt sigurmark í lokin Bikarmeistarar Vestra komust skrefi nær því að verja titil sinn í Mjólkurbikar karla í fótbolta þegar þeir nældu í síðasta farseðilinn inn í 16-liða úrslitin í dag. Íslenski boltinn 11. apríl 2026 18:17