Inga Rósa Þórðardóttir
Einmana börn
Íslensk börn eru einmana og sakna aukinna samskipta við foreldra og fjölskyldu. Nýlegar rannsóknir segja okkur að samskipti foreldra og barna skipti höfuðmáli þegar kemur að líðan barna og áhættu varðandi neyslu og hvers konar óreglu.
Allt fast og öllum sama?
Sveitastjórnarmenn og -konur þessa lands eru líklega flestir foreldrar; pabbar og mömmur, afar og ömmur. Þeir, eins og aðrir foreldrar, ala önn fyrir sínum börnum og vilja þeim allt hið besta, þar á meðal góða og trygga grunnmenntun. Meðal annars þess vegna þykir mér undarlega staða uppi í kjaramálum grunnskólakennara.
Beðið eftir ríkissáttasemjara
Kennarar eru upp til hópa þolinmóðir og umburðarlyndir. Óþolinmæði gefst enda illa í samskiptum við nemendur. Jafnframt er starfið ákaflega skemmtilegt og gefandi en að sjálfsögðu mjög krefjandi, eins og flest skemmtileg störf reyndar eru.
Flugeldagræðgi
Það er verið að sprengja heiminn!“ sagði lítil stúlka í Kópvogi laust eftir miðnætti á nýársnótt. Ályktunin var eðlileg því hávaðinn og lætin voru slík að allt ætlaði bókstaflega um koll að keyra.
Hófsamir jólasveinar
Stekkjastaur kom í nótt, fyrstur jólasveinanna þrettán. Hans biðu þúsundir skóa í þúsundum glugga um allt land. Hugsanlegt er að í einhverjum skónum finnst kartafla nú með morgninum en vonandi finnur ungviðið þó eitthvað ánægjulegra þar.
Umferðarljósið
„Umferðaröryggi er meira á Íslandi en í flestum öðrum Evrópulöndum“. Þetta þótti mér áhugaverð frétt, ekki síst í ljósi þess hvernig aðrar fregnir af umferðarmálum þjóðarinnar hafa hljóðað þetta árið.
Umhverfisvernd í verki
Dómsdagsspár eru ekki nýjar af nálinni og í sögu mannkyns hefur útrýmingu þess verið spáð ítrekað. Sem betur fer hefur þó engin þessara spáa ræst enn sem komið er. Ein nýleg gerir ráð fyrir hruni fiskstofnanna, ekki síst vegna breytinga á sjávarhita í kjölfar gróðurhúsaáhrifa, sem eru tilkomin vegna skammtímahugsunar og gróðasjónarmiða mannkyns.
Óánægðir kennarar
Ákvarðanir um stefnumótun í skólamálum eru teknar á leikvelli stjórnmálanna og eru því í eðli sínu pólitískar. Vafalaust þyrftu kennarar að koma í stórauknum mæli að slíkum umræðum en stéttin er svo störfum hlaðin að hún hefur hvorki tíma né orku til að sinna því verkefni.
Auðleystur vandi
Alþjóðadagur kennara var haldinn hátíðlegur í yfir hundrað löndum þann 5. október sl. Heldur þótti mér þó fara lítið fyrir hátíðahöldum hér á landi og að mestu leið dagurinn í þögn. Stuttar fréttatilkynningar voru reyndar birtar í dagblöðum og á vefmiðlum og á heimasíðum Kennarasambands Íslands og Kennarafélags Reykjavíkur birtist samþykkt frá alþjóðasamtökum kennara í 9 liðum. Að öðru leyti varð ég lítið vör við þennan dag og í fljótu bragði fann ég t.d. enga umfjöllun á heimasíðu Kennaraháskóla Íslands, vöggu kennarastéttarinnar.
Verkefni umhverfisverndar
Ýmsir flögguðu á fimmtudaginn, sumir í heila stöng og aðrir í hálfa. Þann dag hófst fylling Hálslóns eins og alþjóð veit. Snarpar umræður og deilur um þessa stóru framkvæmd hafa staðið í mörg ár og nú er mál að linni.
Til hamingju, Magni
Þegar þessi orð eru skrifuð er múgur og margmenni í Smáralind að taka á móti Magna, rokkstjörnunni okkar. Giskað er á átta þúsund manns og líklega á sú tala eftir að hækka. Tilsýndar í sjónvarpi ber mest á börnum og unglingum en í aðdáendahópnum er hinsvegar fólk á öllum aldri, af báðum kynjum og úr öllum stéttum.
Virðingarleysi í umferðinni
"Lífið er lotterí" segir í gömlum dægurlagatexta og má til sanns vegar færa. Það er þó heldur lakara að stundum virðist lífið líkast rússneskri rúllettu og jafnvel hættulegra að bregða sér akandi milli bæjarhluta eða landshluta en taka þátt í sjálfri rúllettunni alræmdu.
Nýtt skólaár er hafið
Í dag og næstu daga tínast grunnskólanemendur inn í skólana sína með bros á vör og eftirvæntingu í huga. Sumarfríinu er lokið og tími til kominn að bretta upp ermar og takast á við verkefni vetrarins.
Einu sinni var...
"Einu sinni var ...". Þannig byrja mörg ævintýri og byrjunin ein vekur eftirvæntingu í huga okkar og ljúfar minningar um sögur sem okkur voru sagðar í æsku. Við erum söguþjóð og flestir njóta þess að segja og hlusta á sögur. Þessa dagana og vikurnar eru flestir í sumarfríi og fjölmargir á ferð um landið.
Gistiskálar í óbyggðum
Tú alfagra land mitt. Þannig hefst þjóðsöngur Færeyinga - og vonandi fer ég rétt með, en mér hafa alltaf þótt þessi orð ekki síður geta átt við um Ísland. Þetta land sem alltaf og alls staðar er fagurt og ekki síður fjölbreytilegt.
Verðskulduð viðurkenning
17. júní var haldinn hátíðlegur um land allt, venju samkvæmt og fátt kom á óvart. Veðurguðirnir léku ýmsa leiki, mismunandi eftir landshornum en mannfólkið brosti og veifaði fánum og blöðrum, jafnt í sólskini sem rigningu.
Vinna unglingar of mikið?
Einn ljúfra sumarboða á Íslandi eru snyrtilegri útivistarsvæði í þéttbýli. Allt vetrarruslið sem við höfum fleygt frá okkur er tekið upp og fjarlægt, gömul laufblöð og dauðar greinar hverfa og í staðinn koma falleg sumarblóm.
Samræmdu prófin
Vissulega má segja að nemendur með umtalsverða lestrarörðugleika hafi ekki mikinn lesskilning. Það er hinsvegar ekki sanngjarnt að nemandi með ágæta íslenskukunnáttu og gott vald á málinu fái mjög lága íslenskueinkunn vegna þess að hann er ófær um að lesa langa texta. Hvernig ætli blindir nemendur þreyti þetta próf?
Refsivöndinn gegn rusli
Það mætti t.d. sekta um 26 þúsund krónur fyrir að spýta út úr sér tyggigúmmíi á víðavangi, hver sígarettustubbur gæti þá kostað um 20 þúsund krónur, tóm drykkjarferna gæti lagt sig á 24 þúsund krónur og í þessum samhengi mætti setja nokkur hundruð þúsund króna verðmiða á akstur utan vega.
Græðum landið grænum skógi
Slíkt verkefni vinnur ekki aðeins gegn mengun af völdum bifreiða og verksmiðja heldur einnig gegn mengun hugans af streitu og óróleika. Það er nefnilega róandi og heilandi að fylgjast með trjánum vaxa. Þau eru ekki að flýta sér en ná þó ótrúlegum árangri og miklu meiri árangri en við mannfólkið.
Innanlandsflug
Mikilvægast er þó að allir landsmenn taki þátt í þessari umræðu, ekki síst þeir sem byggja Vestfirði, Norðurland og Austurland.
Með lýðheilsu að leiðarljósi
Og margt bendir til að útivist á grónum svæðum eða í óræktaðri náttúru hafi bein áhrif á lýðheilsu. Með öðrum orðum skiptir það máli fyrir andlega og líkamlega heilsu okkar að við höfum aðgang að gróðri og náttúru.
Hlúum að móðurmálinu
Eitt það fyrsta sem ég segi nemendum mínum á hverju hausti er að ég ætlist til þess að hver og einn geri sitt besta. Þeir eiga að leggja sig fram, stefna að framförum og gera eins vel og þeir geta, hver og einn á hverjum tíma.
Bara í plati eða alvöru?
En heldur finnst mér illa komið fyrir þeim íslensku karlmönnum sem finnst sögupersóna í leikriti eftirsóknarverðari en raunveruleg kona.
Allir kennarar eru íslenskukennarar
Spyrna þarf hraustlega við fæti svo við missum ekki tökin á tungunni. Þar þarf viðspyrnan að vera mest og best í Kennaraháskóla Íslands...
Allt of mikið af öllu
Nú eiga margir nóg og ýmsir miklu meira en nóg, jafnvel alltof mikið. Þá ályktun má að minnsta kosti draga af neyslu í þessu samfélagi. Peningar fljóta um allt, velta desember mánaðar uppfyllti væntingar kaupmanna, sem voru örugglega talsverðar í ljósi veltu desember mánaða undanfarin ár. Samt virðist fólk ekki láta sig vanta á útsölurnar, sem voru komnar í fullan gang á þriðja í jólum ef marka mátti auglýsingar.
Kannski fáum við betri hugmyndir
Nú hef ég ekki komið í Þjórsárver, því miður, og það sjónarmið hefur stundum heyrst að þeir sem ekki hafi heimsótt náttúruperlur hafi ekki leyfi til að hafa skoðun á nýtingu þeirra. Það sjónarmið er þó á undanhaldi enda algjörlega út í hött.
Skotglaðir Íslendingar og björgunarsveitir
Þegar ég lít yfir upplýstan himininn hugsa ég um mannslífin sem björgunarsveitarmenn eiga eftir að bjarga á nýju ári vegna þess að við keyptum af þeim flugelda.
Skólar eru ekki framleiðslufyrirtæki
Það sem ergir þó mest í þessari umræðu allri er sú fullyrðing menntamálaráðherra að stytting framhaldsskólans sé ekki gerð í sparnaðarskyni.