Orkuskipti
1 2 3 4 5 6 7 8 … 8 ›
Útboð á vindmyllum í Búrfellslundi án þess að leyfi liggi fyrir Landsvirkjun hefur auglýst útboð á vindmyllum fyrir vindorkuver við Vaðöldu sem ber vinnuheitið Búrfellslundur. Verkefnið er boðið út með fyrirvara um leyfis- og skipulagsmál en sú óhefðbundna leið er farin til að flýta fyrir verkefninu. Innlent 17.1.2024 15:22
Hættuleg vegferð orkumála Stundum velti ég því fyrir mér á hvaða vegferð íslensk stjórnvöld eru þegar kemur að orkumálum hér á landi. Hvorki stefna né umræða bendir til þeirrar almennu skynsemi sem þarf að ríkja þegar um svo mikilvæga innviði er að ræða. Skoðun 16.1.2024 07:01
Jú, það er ástæða til að hafa áhyggjur af næstu árum „Raforkuöryggi felst í að notendur hafi aðgang að raforku þegar hennar er þörf og þar sem hennar er þörf, með hliðsjón af almennri stefnumörkun stjórnvalda á hverjum tíma og skilgreindum áreiðanleika og gæðum. Viðmið fyrir fullnægjandi raforkuöryggi skulu nánar útfærð og skýrð í reglugerð sem ráðherra setur.“ Skoðun 10.1.2024 08:00
Að óttast ekki hagsældarhnignun með aðgerðaleysi í orkumálum Gæfan er fallvölt. Engu að síður virðist hópur vinstrimanna ekki óttast hagsældarhnignun – sérstaklega þegar rætt er um orkumál. Ný framvarðarsveit Samfylkingarinnar fellur blessunarlega ekki í þann hóp. Umræðan 8.1.2024 15:00
Hvernig tryggjum við orkuöryggi þjóðar til framtíðar? Fyrir áramót frestaði Alþingi afgreiðslu frumvarps til bráðabirgðalaga sem var ætlað að lögfesta forgangsröðun orkusölu í þágu heimila og smærri fyrirtækja. HS Orka tekur heilshugar undir nauðsyn þess að orkuöryggi almennings sé tryggt en telur að útfærslan í frumvarpinu hafi verið meingölluð. Skoðun 5.1.2024 07:31
Orkuskiptaárið 2023 Árið 2023 var nokkuð farsælt hvað varðar orkuskipti í vegasamgöngum. Vegasamgöngur eru stærsti einstaki losunarvaldur gróðurhúsalofttegunda á íslenskri ábyrgð og því afar mikilvægt að orkuskipti gangi hratt og örugglega fyrir sig á þeim vettvangi. Skoðun 4.1.2024 16:01
Gleymum ekki grundvallaratriðum Sterkur og fjölbreyttur útflutningur er undirstaða lífsgæða á Íslandi. Þetta virðist oft, og sífellt oftar, gleymast í samfélagsumræðunni. Skoðun 4.1.2024 10:00
Öfugsnúin umræða í orkumálum Hvernig stendur á því að á Íslandi sé framleidd langmest orka miðað við stærð en hér sé samt orkuskortur? Hvernig stendur á því að það vanti fólk í heilbrigðisþjónustu, ferðaþjónustu og alls konar önnur störf en á sama tíma er ekki verið að byggja húsnæði, skóla og aðstöðu fyrir fólkið sem við þurfum svona rosalega mikið á að halda? Skoðun 3.1.2024 11:00
Byggjum orkuöryggi á staðreyndum Sterkar vísbendingar eru um að orkuöryggi almenna markaðarins verði ógnað á árunum 2024-2026. Því upplýsti Landsvirkjun stjórnvöld um stöðuna síðastliðið haust og kallaði eftir því að þau létu greina hana. Íslendingum er að fjölga og það er hagvöxtur í landinu. Skoðun 3.1.2024 07:30
Jón segir ríkisstjórnina komna á endastöð Helsti stjórnarandstæðingurinn á þingi núna kemur úr röðum stjórnarþingmanna. Jón Gunnarsson, fyrrverandi dómsmálaráðherra, er fulltrúi hundóánægðra þingmanna sem telja fráleitt að Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra tali um að nú þurfi að gera orkustefnu til framtíðar. Innlent 2.1.2024 13:17
Vísar ásökun um vanhæfi á bug Orkumálastjóri segir gríðarlega mikilvægt að þingið nái að afgreiða frumvarp um orkuöryggi sem allra fyrst. Hún bendir framkvæmdastjóra Samtaka iðnaðarins sem hefur sakað hana um vanhæfi á að beina áhyggjum sínum að stjórnmálamönnum. Innlent 2.1.2024 12:03
Sakar orkumálastjóra um vanhæfi Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, segir orkumálastjóra efna til óþarfa átaka um orkumál í nýárspistli sínum og hún sé vanhæf til að taka ákvarðanir vegna framkomu hennar undanfarin ár. Innlent 1.1.2024 23:28
Orkumálastjóri skipar fyrirtækjum í fylkingar Orkumálastjóri fer mikinn í nýárspistli sínum sem birtist í morgun og efnir til óþarfa átaka um markmið sem eiga að vera sameiginleg - að auka vægi grænnar orku á Íslandi. Í greininni er kvartað undan málefnalegri umræðu um orkumál á Íslandi, umræðu sem er löngu tímabær með hliðsjón af þeirri alvarlegu stöðu sem uppi er. Í lýðræðissamfélagi er ekki bara eðlilegt heldur nauðsynlegt að skiptast á skoðunum. Í grein sinni býr orkumálastjóri til strámann sem hún fellir svo en það er hins vegar ljúft og skylt að leiðrétta helstu rangfærslur um afstöðu Samtaka iðnaðarins (SI) sem fram koma í umræddri grein. Skoðun 1.1.2024 20:00
Til umhugsunar á nýju ári: Almenningur - þögli hagaðilinn Ekki þarf að fjölyrða um þær alvarlegu afleiðingar sem skortur á raforku til heimila og venjulegra fyrirtækja getur haft á daglegt líf samfélagsins. Mikil umræða hefur verið um málið að undanförnu - en hvað er nákvæmlega átt við þegar vísað er til orkuöryggis almennings? Skoðun 1.1.2024 09:30
Jón Gunnarsson kallar eftir nýjum meirihluta Jón Gunnarsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins hefur kallað eftir myndun nýs meirihluta vegna ummæla Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra um orkumál í viðtali í Ríkisútvarpinu í gær. Innlent 31.12.2023 00:02
„Miklar áhyggjur“ af ákvarðanafælni í orkuskiptum Það er ótrúleg staða að við skulum standa frammi fyrir orkuskorti á komandi árum og séum að brenna olíu í stað þess að nýta umhverfisvænt rafmagn, segir framkvæmdastjóri verkfræðistofunnar EFLU sem fagnaði 50 ára afmæli í árinu. Innherji 30.12.2023 11:53
Jólin - ljós og orkuöryggi Jólasteik í ofninum, kraumandi pottar á hellum, glitrandi perur á húsum og brosandi börn í ljósi jólatrjáa í hlýjum húsum. Þetta er væntanlega myndin sem kemur upp í huga flestra þegar jólin eru nefnd. Það er ekki langt síðan veruleikinn var annar. Skoðun 27.12.2023 08:01
Ætla að gefa Hvammsvirkjun grænt ljós Umhverfisstofnun hefur kynnt áform um að heimila breytingar á vatnshloti í Þjórsá 1, vegna framkvæmda við 95 megavatta Hvammsvirkjun. Telur stofnunin að sjónarmið um raforkuöryggi vegi þyngra en umhverfissjónarmið vatnshlotsins. Innlent 22.12.2023 23:05
Eigendur skrái kílómetrastöðu í janúar Alþingi samþykkti um helgina frumvarp fjármála- og efnahagsráðherra um kílómetragjald á rafmagns, vetnis-og tengiltvinnbíla í flokki fólks- og sendibíla. Fyrsta skráning eigenda á kílómetrastöðu á að fara fram fyrir 20. janúar næstkomandi. Innlent 18.12.2023 17:48
„Verður Grundartangi fallegri eða ljótari ef við setjum vindmyllur þar?“ Nærsamfélög ættu að hafa endanlegt ákvörðunarvald um hvort vindorkugarðar byggist þar upp og aðeins á að setja upp vindmyllur á svæðum sem teljast þegar röskuð. Þetta er meðal tillaga sem starfshópur hefur skilað til umhverfisráðherra. Fyrrverandi umhverfisráðherra segir mmikilvægt að byggja upp græna orku en hlífa náttúruperlum. Innlent 18.1.2024 10:26
Fauk í Guðlaug Þór á þinginu: „Nei, nei, við segjum nei!“ Umhverfisráðherra byrsti sig í óundirbúnum fyrirspurnartíma um orkumál á Alþingi í dag. Stjórnarandstaðan hafði kynt undir ráðherra með gagnrýni á aðgerðir ríkisstjórnarinnar í orkumálum áður en fyrirspurn þingmanns Pírata um rafmagnsreiðhjól fyllti mælinn. Innlent 11.12.2023 23:21
Óskhyggja er ekki skjól Við vinnum eins mikla raforku og virkjanir okkar og vatnsbúskapur framast leyfa. Nýjar virkjanir eru löngu klárar á teikniborðinu en þær skila ekki orku til samfélagsins fyrr en að nokkrum árum liðnum. Erfitt er að tímasetja það með vissu, þar sem þær velkjast enn í löngu og flóknu leyfisveitingaferli. Skoðun 9.12.2023 10:01
Orkustofnun „brestur hæfi“ til að ráðstafa forgangsraforku, að mati SI Fyrirhugað frumvarp um breytingar á raforkulögum, sem veitir Orkustofnun heimild til að veita öðrum en stórnotendum forgang að kaupum á raforku, er gagnrýnt harðlega af Samtökum iðnaðarins sem segja að með því verði samkeppnismarkaður með raforku afnuminn og miðstýring innleidd. Þá fer SI hörðum orðum um Orkustofnun, sem að mati samtakanna brestur hæfi til að fara með þau verkefni sem henni er falin í frumvarpinu, en starfshættir stofnunarinnar eru sagðir hafa „tafið verulega alla uppbyggingu í raforkukerfinu.“ Innherji 7.12.2023 09:42
Umhverfisráðherra segir raforkuskort í landinu óásættanlegan Umhverfis- orku- og loftslagsráðherra segir ekki ásættanlegt að fiskimjölsverksmiðjur þurfi ár eftir ár að keyra starfsemi sína á olíu vegna skorts á rafmagni. Það væri einfaldlega komið að skuldadögum eftir fimmtán ára aðgerðaleysi í virkjanamálum. Innlent 29.11.2023 19:21
Segja nýja sænska rafhlöðu byltingarkennda Forsvarsmenn eina framleiðanda rafhlaðna í Evrópu, sænska fyrirtækisins Northvolt, segjast hafa fundið upp nýja tegund rafhlöðu sem í framtíðinni geti meðal annars nýst í framleiðslu á rafbílum. Viðskipti erlent 21.11.2023 22:55
Að mæta orkuþörf samfélaga Sjaldan hefur brýnna að mæta breyttri orkuþörf samfélaga og sýn þjóða um betri heim fyrir alla. Skoðun 9.11.2023 08:00
Brýnir hagsmunir Vestfirðinga og annarra þegna alþjóðasamfélagsins Nokkuð hefur farið fyrir umræðu um hugsanlega vatnsaflsvirkjun í friðlandinu Vatnsdal. Vatnsdalur þessi og Vatnsfjörðurinn sem hann gengur inn úr, eru birkivaxnir griðastaðir í annars nokkuð hrjóstrugu landslagi Vestfjarða. Skoðun 9.11.2023 07:00
Vilja lækka gjöld á bensín en hækka á dísil Fjármála- og efnahagsráðherra hyggst leggja fram frumvarp um að hækka kolefnisgjald á eldsneyti og lækka bensíngjald. Breytingin snýr að því að hækka gjöld á dísil en lækka á bensín. Innlent 6.11.2023 19:28
Ívilnanir vegna rafmagnsbíla reiðarslag fyrir bílasala Bílasalar voru að uppgötva sér til mikillar hrellingar að allar ívilnanir ríkisins til fólks sem vill kaupa sér rafmagnsbíl stuðli að viðskiptum við umboðin meðan þeir sitja eftir með sárt ennið. Viðskipti innlent 27.10.2023 13:59
Segir algjörlega ábyrgðarlaust að tala gegn aukinni orkuvinnslu Forstjóri Landsvirkjunar sakar þá sem tala gegn aukinni orkuvinnslu um algjört ábyrgðarleysi. Staðan í orkumálum sé grafalvarleg og landsmenn þurfi að gera sér grein fyrir því hvað orkuskortur þýði. Innlent 11.10.2023 21:00
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu: „Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent