Gæsluvarðhaldsfangi flýr úr héraðsdómi
Hvað hefði lögreglan átt að gera? Í miðjum aprílmánuði síðastliðnum höfðu lögregla og sérsveitin afskipti af saklausum sextán ára dreng í tvígang. Sérsveitarmenn veittust að drengnum þar sem hann sat í Strætó í fyrra skiptið, og lögregluþjónar undu sér upp að drengnum þar sem hann sat í bakaríi með móður sinni í síðara skiptið. Skoðun 22.5.2022 09:01
Sér ekki hvað lögreglan hefði getað gert öðruvísi Sigríður Björk Guðjónsdóttir, ríkislögreglustjóri, segir að það sé óþolandi að saklaus ungur drengur skyldi hafa orðið fyrir ítrekuðu áreiti af hálfu lögreglu eingöngu vegna uppruna og kynþáttar. Á sama tíma sjái hún ekki hvað lögreglan hefði getað gert öðruvísi því hún hafi verið að leita að hættulegum manni en verið var að leita að gæsluvarðhaldsfanga sem flúði úr héraðsdómi. Lögreglan hefur nýlokið stefnumótun en upp úr henni spruttu einkunnarorðin: Að vernda og virða. Innlent 17.5.2022 12:14
„Ég sá að löggurnar sem voru í dómnum voru bara sofandi“ Gabríel Douane Boama, sem strauk úr Héraðsdómi Reykjavíkur í apríl, segir lífið í fangelsi ágætt. Hann segist hafa flúið úr héraðsdómi þegar hann sá að lögreglumennirnir hafi ekki veitt honum næga athygli og hann hafi vitað að hann næði að flýja. Innlent 13.5.2022 07:01
Rasismi á Íslandi Rasismi er vandamál á Íslandi eins og annars staðar í veröldinni. Íslenska lögreglan er þar ekki undanskilin. Í þessu felst ekki ásökun eða upphrópun heldur er um að ræða fyrsta skrefið í að takast á við vandann, það er að viðurkenna skilyrðislaust að til staðar sé vandamál. Án slíkrar viðurkenningar er ekki von á því að okkur takist að bæta samfélagið hvað þetta varðar. Skoðun 29.4.2022 11:15
Umboðsmaður barna blandar sér í afskipti lögreglu af unglingspiltinum Umboðsmaður barna hefur óskað eftir fundi með ríkislögreglustjóra til þess að ræða afskipti lögreglu af sextán ára dreng við leitina að strokufanga í síðuðustu viku. Innlent 25.4.2022 20:18
Fékk símtal sem allar svartar mæður hræðast Móðir unglingspilts, sem lögregla hafði í tvígang afskipti af vegna leitar að strokufanga í vikunni, segist hafa verið hrædd og niðurlægð þegar lögreglu var sigað á son hennar. Hún telur lögreglu hafa gert alvarleg mistök og segir vitundarvakningu um raunveruleika ungmenna af erlendum uppruna nauðsynlega. Innlent 24.4.2022 19:22
Stígur fram vegna máls sonar síns Claudia Ashanie Wilson lögmaður telur lögreglu á höfuðborgarsvæðinu hafa gert alvarleg mistök við afskipti af sextán ára syni hennar í vikunni. Lögregla vitjaði piltsins í tvígang í tengslum við leit að ungum strokufanga en þeir eru báðir dökkir á hörund. Rætt verður við Claudiu um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 en hún hefur ekki tjáð sig um það við fjölmiðla fyrr en nú. Innlent 24.4.2022 15:38
Gabríel kominn á Hólmsheiði en félagar hans lausir Strokufanginn, sem leitað var síðustu daga og kom í leitirnar í morgun, hefur verið færður í afplánun í fangelsið á Hólmsheiði. Fimm félagar hans sem einnig voru handteknir eru lausir úr haldi lögreglu. Innlent 22.4.2022 18:13
Hafnar því að rasismi grasseri innan lögreglunnar Dómsmálaráðherra er sannfærður um að lögregla dragi lærdóm af máli strokufanga í kjölfar samfélagsumræðu sem spannst um viðbrögð hennar við leitina. Hann hafnar því að viðbrögðin hafi grundvallast á rasisma. Innlent 22.4.2022 13:33
Handtóku Gabríel og félaga hans í sumarbústað Strokufanginn sem leitað var að í vikunni var handtekinn í sumarbústað rétt utan við borgina ásamt fimm öðrum eftir umfangsmiklar lögregluaðgerðir. Innlent 22.4.2022 11:58
Segir rauðhærða og skeggjaða oft lenda í „þessu veseni“ Brynjar Níelsson, aðstoðarmaður dómsmálaráðherra, telur að fólk þurfi að vera „sérkennilega innréttað“ til að sjá kynþáttafordóma í máli þar sem sextán ára þeldökkur drengur var í tvígang stöðvaður af lögreglu í tengslum við leit hennar að strokufanga. Innlent 22.4.2022 10:21
Lögreglan handtók Gabríel í nótt Lögregla hefur handtekið hinn tvítuga Gabríel Douane Boama, sem slapp úr haldi lögreglu í vikunni. Innlent 22.4.2022 08:23
Lögregla hafi ekki átt annarra kosta völ: „Við erum að leita að hættulegum manni“ Ríkislögreglustjóri segist ekki geta útilokað fordóma í lögreglunni en telur lögreglu ekki hafa sýnt fram á rasisma í tengslum við leitina að strokufanga. Hún segir lögreglu ekki hafa val um að fylgja eftir ábendingum í leit að eftirlýstum manni og að viðbrögð lögreglu hafi verið rétt. Henni þyki leitt að ungur maður hafi dregist inn í málið og að verið sé að ræða hvernig bæta megi aðgerðir í framhaldinu. Innlent 21.4.2022 20:00
Telur mál piltsins ekki merki um rasisma í lögreglunni Doktor í afbrotafræði telur ekki að viðbrögð lögreglu, sem hefur nú haft afskipti af unglingspilti í tengslum við leit að strokufanga tvígang, beri vott um rasisma. Pilturinn er ekkert tengdur málinu en er dökkur á hörund eins og strokufanginn. Innlent 21.4.2022 19:05
Beina sjónum að félögum strokufangans Leit stendur enn yfir að hinum tvítuga Gabríel Douane Boama sem strauk úr Héraðsdómi Reykjavíkur á miðvikudag. Lögregla segir fjölmargar ábendingar hafa borist vegna leitarinnar en allt kapp er lagt á að finna Gabríel. Innlent 21.4.2022 18:40
Fer fram á að lögregla svari fyrir verklag sitt Þingmaður Pírata hefur farið fram á að dómsmálaráðherra og lögreglan mæti á opinn fund allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis til að svara fyrir verklag sitt við leitina að Gabríel Douane Boama. Innlent 21.4.2022 14:08
Maður á Teslu hafi tilkynnt son hennar í bakaríinu Móðir drengsins sem lögregla hefur nú haft afskipti af í tvígang í tengslum við leit að strokufanga segir málið hafa gríðarleg áhrif á son sinn, sem sé nú í raun fangi á eigin heimili. Hún var með syni sínum í bakaríi í Mjóddinni í morgun þegar lögreglumenn renndu í hlað að fylgja eftir ábendingu um mögulega staðsetningu strokufangans - sem reyndist sextán ára sonurinn. Innlent 21.4.2022 13:23
Höfðu afskipti af piltinum í annað sinn Lögregla hafði í morgun í annað sinn afskipti af unglingspilti í tengslum við leitina að hinum tvítuga Gabríel Douane Boama, sem slapp úr haldi lögreglu í fyrradag, að sögn móður hans. Drengurinn sem lögregla hafði afskipti af er alls ótengdur málinu en ríkslögreglustjóri harmaði að drengurinn hefði dregist inn í málið í gær. Innlent 21.4.2022 12:01
Strokufanginn enn ófundinn Lögregla leitar enn að hinum tvítuga Gabríel Douane Boama, sem slapp úr haldi lögreglu í fyrradag. Innlent 21.4.2022 10:13
Þykir leitt að saklaus drengur hafi dregist inn í aðgerðir lögreglu Embætti ríkislögreglustjóra þykir leitt að drengur, sem hafði ekkert unnið sér til sakar, hafi dregist inn í aðgerðir lögreglu í tengslum við leitina að Gabríel Douane Boama. Innlent 20.4.2022 21:43
Leitin að Gabríel stendur enn yfir: „Við erum búin að fara út um allan bæ“ Lögregla leitar enn að hinum tvítuga Gabríel Douane Boama, sem slapp úr haldi lögreglu í gær. Verið er að kanna allar ábendingar um hvar hann gæti verið. Sérsveitarmenn fóru meðal annars inn í strætisvagn við leitina en Gabríel reyndist ekki þar. Innlent 20.4.2022 18:18
Páll skorar á strokufangann að gefa sig fram Páll Winkel forstjóri Fangelsismálastofnunar og sálfræðingar stofnunar hafa þungar áhyggjur af því hverjar afleiðingar stroks ungs fanga geti orðið og biðla til hans að gefa sig fram. Innlent 20.4.2022 16:24
Leit að Gabríel tekin alvarlega og helst leitað í heimahúsum Lögregla leitar enn að fanganum sem slapp úr haldi við Héraðsdóm Reykjavíkur í gær þar sem mál hans var til meðferðar. Aðstoðaryfirlögregluþjónn segir mikla áherslu lagða á að finna manninn. Innlent 20.4.2022 15:13
Strokufanginn ófundinn: Ákærður fyrir rán við Kjarvalsstaði Gabríel Douane Boama, sá sem slapp úr haldi lögreglu við Héraðsdóm Reykjavíkur í gær, er ófundinn. Hann er ákærður fyrir rán við Kjarvalsstaði síðastliðið sumar. Aðalmeðferð málsins fór fram í gær. Innlent 20.4.2022 12:14
Lögreglan lýsir eftir manninum sem strauk úr héraðsdómi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Gabríel Douane Boama, tuttugu ára gömlum karlmanni, sem strauk úr haldi lögreglu við Héraðsdóm Reykjavíkur í dag. Mál hans var til meðferðar þegar hann flúði en hann er hvattur til að gefa sig strax fram. Innlent 19.4.2022 22:53
Leita að gæsluvarðhaldsfanga sem slapp úr haldi lögreglu Yfirvöld leita nú að Gabríel Douane Boama, tvítugum gæsluvarðhaldsfanga sem slapp úr haldi lögreglu við Héraðsdóm Reykjavíkur um sjö leytið dag. Lögregla hefur lýst eftir honum og segir mikilvægt að hann finnist sem fyrst. Innlent 19.4.2022 21:58