ASÍ

Fréttamynd

Georg Páll er næsti for­seti ASÍ

Georg Páll Skúlason, formaður Grafíu, var kjörinn nýr forseti Alþýðusambands Íslands á 47. þingi ASÍ núna rétt fyrir klukkan ellefu. Georg bar sigur úr býtum með 162 atkvæði á móti 127 atkvæðum og tekur því við af Finnbirni Hermannssyni sem forseti ASÍ næstu tvö árin.

Innlent
Fréttamynd

Til­laga um að fækka vara­for­setum naum­lega felld

Tillaga um að fækka varaforsetum ASÍ úr þremur í einn var felld á þingi sambandsins nú síðdegis. Alls féllu 60 prósent atkvæða með tillögunni en tvo þriðju þurfti til að ná lagabreytingunni í gegn sem jafngildir 66 prósentum atkvæða.

Innlent
Fréttamynd

Ögur­stund fyrir fram­tíð Eflingar innan ASÍ

Náið var fylgst með þingfundi á öðrum degi 47. þings Alþýðusambands Íslands (ASÍ) í dag en þar var tekist á um einkar umdeilda tillögu sem varðaði það hvort varaforsetum ASÍ yrði fækkað úr þremur í einn. Tillagan var að endingu felld.

Innlent
Fréttamynd

Niður­staðan hafi á­hrif á fram­tíð Eflingar innan ASÍ

Það ræðst í dag hvort varaforsetum Alþýðusambands Íslands verði fækkað úr þremur í einn líkt og lagt hefur verið til. Formenn Eflingar og VR gefa kost á sér í sama embætti og mikil spenna er í loftinu á þingi sambandsins sem stendur nú yfir. Niðurstaða um varaforsetaembættið gæti haft áhrif á framtíð Eflingar innan ASÍ.

Innlent
Fréttamynd

Tökum stjórn á fram­tíðinni

Framtíð vinnu og verkalýðsbaráttu er ekki eingöngu yfirskrift á 47. þingi ASÍ, heldur eitt mikilvægasta viðfangsefni Alþýðusambands Íslands næstu árin. 

Skoðun
Fréttamynd

„Það væri mjög miður“

„Ef að við tækjum ekki núna umræðu um þetta og gerðum okkur tilbúin fyrir framtíðina þá værum við náttúrulega ekki að vinna vinnuna okkar og ég vona bara að þessar deilur sem eru í gangi í augnablikinu skyggi ekki á þá miklu vinnu sem við þurfum að fara í.“

Innlent
Fréttamynd

„Það andar ekki köldu á milli mín og neinna annarra“

Halla Gunnarsdóttir formaður VR segist ekki skilja hvers vegna tillaga um fækkun varaforseta ASÍ sé orðin að jafn stóru máli og raun ber vitni. Hún segir mun stærri mál til umfjöllunar á ASÍ þingi sem hófst í dag og segir ekki anda köldu á milli hennar og Sólveigar Önnu í daglegu lífi, né á milli hennar og nokkurs annars.

Innlent
Fréttamynd

Hreyfingin stærri en ein­stakar per­sónur

Forsætisráðherra segir sameinaða verkalýðshreyfingu miklu stærri en stök félög, einn flokkur og hvað þá einstakir forystumenn í stjórnmálum eða stéttarfélögum. Hún hvatti til þess að byggt yrði upp meira traust í samfélaginu og innan ASÍ. Deilur milli forystumanna í verkalýðshreyfingunni lita 47. þing ASÍ sem var sett í morgun.

Innlent
Fréttamynd

Bein út­sending: Stormur við setningu ASÍ-þings

47. þing Alþýðusambands Íslands hefst í dag. Vísir verður í beinni í dag frá þinginu auk þess sem fylgjast má með streymi af málþingi sem fram fer í dag frá tíu til eitt í hátíðarsal Hilton Reykjavík.  

Innlent
Fréttamynd

Bar­áttan um varaforsetana: Valdabrölt eða sam­særis­kenningar?

Formaður Eflingar segir það blákalda og augljósa staðreynd að formaður VR reyni að sölsa undir sig ASÍ með tillögu sinni um fækkun varaforseta. Formaður VR segir um að ræða samsæriskenningar, núverandi fyrirkomulag sé ólýðræðislegt. Útlit er fyrir spennandi landsþing ASÍ. 

Innlent
Fréttamynd

Mikil­væg niður­staða fyrir launa­fólk

Niðurstaða viðræðna um forsendur kjarasamninganna er mikið fagnaðarefni. Samningarnir halda og jafnframt hefur náðst fram mikilvæg niðurstaða í málum sem geta skilað launafólki verulegum lífskjarabótum á næstu árum.

Skoðun
Fréttamynd

Vona að á­greiningur liti ekki þing ASÍ

Frambjóðendur til forseta ASÍ vona að ágreiningur síðustu daga vegna endurskoðunar kjarasamninga hafi ekki of mikil áhrif á þing ASÍ sem hefst á morgun. Þeir eru sammála um að verkalýðshreyfingin eigi að hafa frumkvæði að breytingum á vinnumarkaðsmódelinu en eru ekki endilega sammála um hvernig eigi að gera það. Þeir segja kosningabaráttuna háða að mestu af þeim sjálfum. Það sé „engin maskína“ eða peningar að baki baráttunni.

Innlent
Fréttamynd

Þrjú höfuð eru betri en eitt

Þegar þing ASÍ kemur saman í október munu fulltrúar taka fyrir tillögu sem við fyrstu sýn virðist vera mál er snýr að skipulagslegri lagfæringu. Tillagan felur í sér breytingu á reglum um forystu sambandsins, þar sem varaforsetum yrði fækkað úr þremur í einn.

Skoðun
Fréttamynd

Segir Bjarna hafa valið klæki og ó­frið við Eflingu

Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar segir Samtök atvinnulífsins, SA, hafa valið ófrið við Eflingu og sakar Bjarna Benediktsson framkvæmdastjóra SA um að bjóða upp á klæki í stað heiðarlegra samskipta. Hún segir það ekki hennar hlutverk að stilla til friðar í verkalýðshreyfingunni en átök hennar og formanns VR hafa verið til umræðu í aðdraganda þings ASÍ í vikunni. 

Innlent
Fréttamynd

„Ég hef á­hyggjur af Al­þýðu­sam­bandinu“

Formaður Starfsgreinasambandsins segist hafa áhyggjur af stöðunni innan Alþýðusambands Íslands en ársþing sambandsins hefst í næstu viku. Vilhjálmur Birgisson var gestur á Sprengisandi í morgun þar sem hann fór yfir atburðarásina í vikunni þegar kjarasamningar voru framlengdir. 

Innlent
Fréttamynd

Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ

Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar segist telja Höllu Gunnarsdóttur formann VR munu gera tilraun til að sölsa undir sig Alþýðusambands Íslands á aðalþingi sambandsins í næstu viku. Hún segir Höllu hafa komist upp með að draga Samtök atvinnulífsins og stjórnvöld á asnaeyrum án afleiðinga, þvert á móti hafi hún verið verðlaunuð fyrir það í stað þess að trúnaði væri haldið við forystu verka- og láglaunafólks. Því muni fylgja alvarlegar afleiðingar.

Innlent
Fréttamynd

Ræktum sam­taka­mátt ASÍ

Fjöldahreyfingar lifa á tengslum við grasrótina. Þær sækja styrk sinn í fólkið, reynslu þess, kröfur og samtakamátt. Um leið og fjöldahreyfing verður of upptekin af eigin formi, verkferlum og stofnanalegu skipulagi er hætta á að hún fjarlægist þann veruleika sem hún á að spretta úr. Formfesta er mikilvæg upp að vissu marki; hún skapar nauðsynlega umgjörð og ferla. Formfestan má hins vegar aldrei verða svo fyrirferðarmikil að hún kæfi frumkvæði eða geri leiðina frá grasrót til forystu of langa.

Skoðun
Fréttamynd

Full­trúi prentara vill verða for­seti ASÍ

Georg Páll Skúlason, formaður GRAFÍU, stéttarfélags í prent- og miðlunargreinum, ætlar að bjóða sig fram til forseta Alþýðusambandsins á þingi þess í næsta mánuði. Hann segist leggja áherslu á samstöðu innan sambandsins.

Innlent
Fréttamynd

Hægst á verð­hækkun á mat­vöru

Hægst hefur á verðhækkun á matvöru síðustu mánuði eftir miklar hækkanir í byrjun árs. Helstu drifkraftar hækkunar á matvöru eru hækkanir á kjötvöru, mjólk og ferskvöru.

Neytendur
Fréttamynd

Gefa ríkis­stjórninni rauða spjaldið

„Miðstjórn Alþýðusambands Íslands (ASÍ) lýsir yfir þungum áhyggjum vegna fjárlagafrumvarps ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur, sem lagt var fram í liðinni viku. Framganga ríkisstjórnarinnar, ekki síst í ljósi krefjandi aðstæðna sem forsendubrestur kjarasamninga hefur skapað, er með öllu óskiljanleg og kallar á viðbrögð verkalýðshreyfingarinnar.“

Innlent
Fréttamynd

Laun Wolt sendla undir þúsund krónum á klukku­tímann

Forseti ASÍ segir fullreynt að semja við Wolt um að gera kjarasamninga við sendla. Sendlarnir lögðu niður störf í gær og segja laun sín hafa lækkað um fjörutíu prósent. Forseti ASÍ segir þá áður hafa fengið 1500 krónur á klukkutímann, starfsemin standist hvorki lög né reglur í launamálum. Dæmi eru um að sendlar hjá Wolt á Íslandi hafi lánað hvor öðrum kennitölur og hafi ekki atvinnurréttindi, samkvæmt heimildum fréttastofu.

Innlent
Fréttamynd

Gestum komið fyrir á öðru hóteli

Sverrir Einar Eiríksson athafnamaður segir rassíu lögreglunnar á farfuglaheimili og hóteli sem hann rekur í Grímsnesi hafa varðað endurnýjun rekstrarleyfis. Gestum hafi verið komið fyrir á öðru hóteli.

Innlent