VÍS-bikarinn

Keflavík mætir Njarðvík eða Tindastól eða Haukum
Í dag var dregið í átta liða úrslit VÍS-bikars kvenna og karla í körfubolta. Ljóst er að Keflvíkingar þurfa að bíða nokkuð eftir því að vita nákvæmlega hvaða liði þeir mæta í karlakeppninni.

Grindavík, Höttur og KR í átta liða úrslit bikarkeppninnar
Þrír leikir fóru fram í VÍS-bikar karla í körfubolta í kvöld. Grindavík, Höttur og KR eru öll komin áfram í 8-liða úrslit eftir góða sigra. Í leikjunum þremur mættust lið úr Subway deildinni og næstefstu deild.

„Vona að körfuboltasamfélagið sé einhuga um að svona fáránleiki fái ekki að ráða för“
Formaður körfuknattleiksdeildar Tindastóls segir að félagið viðurkenni brot á reglu um fjölda erlendra leikmanna, í bikarsigrinum gegn Haukum í síðustu viku Strax hafi þó verið reynt að leiðrétta mistökin, og það gert án þess að ein sekúnda liði af leikklukku, og hann voni að aganefnd KKÍ komist ekki að þeirri niðurstöðu að dæma beri Haukum 20-0 sigur.

KKÍ vísar málinu til aganefndar og Tindastól mögulega dæmt tap
Mögulegt er að Haukar taki sæti Tindastóls í 16-liða úrslitum VÍS-bikars karla í körfubolta eftir að stjórn KKÍ ákvað nú í hádeginu að vísa til aga- og úrskurðarnefndar máli varðandi fjölda erlendra leikmanna sem Tindastóll notaði í sigri sínum gegn Haukum á mánudag.

Fjórir erlendir Stólar á vellinum og Haukar kæra líklega
Körfuknattleiksdeild Hauka mun sennilega kæra úrslit leiksins við Tindastól í VÍS-bikarkeppni karla á mánudagskvöld, vegna meints brots Tindastóls á reglum um fjölda erlenda leikmanna.

Valur pakkaði Breiðabliki saman | Fyrsta tap Hauka kom á Sauðárkróki
Alls fóru fram fimm leikir í VÍS-bikar karla í körfubolta í kvöld. Þeir áttu að vera sex en þar sem Sindri gaf leik sinn gegn ÍR þá flugu Breiðhyltingar inn í 16-liða úrslitin. Tindastóll, Valur, Njarðvík, Keflavík og Selfoss fóru svo áfram í kvöld.

Sindri gaf ÍR sigur
ÍR-ingar eru komnir áfram í 16-liða úrslit VÍS-bikars karla í körfubolta án þess að hreyfa legg eða lið því Sindri gaf leikinn við ÍR í 32-liða úrslitum.

Stórsigur Stjörnunnar á Akureyri | KR lagði KR b
Þrír leikir fóru fram í VÍS bikar karla í körfubolta í dag. Stjarnan vann 29 stiga sigur á Þór Akureyri, í Vesturbænum mættust KR og KR b þar sem KR hafði betur. Þá vann

Bikarmeistararnir mega vel við una
Ríkjandi bikarmeistarar karla og kvenna í körfubolta geta ekki kvartað mikið yfir drættinum í 32- og 16-liða úrslit í dag.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: Haukar - Breiðablik 88-81 | Haukar bikarmeistarar 2022
Haukar voru og verða áfram ríkjandi bikarmeistarar eftir sjö stiga sigur á Breiðabliki í úrslitum VÍS-bikars kvenna í körfubolta í kvöld, lokatölur 88-81.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: Stjarnan - Þór Þ. 93-85 | Stjarnan bikarmeistari 2022
Stjarnan er VÍS-bikarmeistari 2022 eftir frábæran sigur á Íslandsmeisturum Þórs Þorlákshafnar, lokatölur 92-85. Þetta er þriðji bikarúrslitatitill Stjörnunnar á síðustu fjórum árum.