
Annáll 2024

Bak við tjöldin: Óheppileg hlátursköst og ráðherrar í ruglinu
Maðurinn er breyskur og öll gerum við mistök. Sem betur fer eru þau stundum bara skemmtileg og jafnvel fyndin. Í þessum síðasta fréttaannál ársins skyggnumst við á bak við tjöldin á fréttastofunni.

Innlendur íþróttaannáll 2024: Heimsmeistari, Evrópumeistarar og alls konar meistarar
Íslenskt íþróttafólk var í sviðsljósinu á árinu 2024 og mörg þeirra náðu frábærum árangri á árinu sem er að líða. Það er því nóg að taka þegar við horfum aftur á bestu íþróttaafrek ársins hjá okkar fólki.

Mest lesið í sportinu: Hlaupadrottningar, strákarnir okkar og hneyksli á ÓL
Einlægar hlaupadrottningar, hneykslismál á Ólympíuleikunum og strákarnir okkar á EM í handbolta voru meðal þess sem lesendur íþróttafrétta á Vísi vildu helst skoða á árinu sem nú er að líða.

Hefðum við átt að sjá framboð Höllu Hrundar fyrir strax í febrúar?
Halla Hrund Logadóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, fyrrverandi orkumálastjóri og forsetaframbjóðandi, átti eina óvæntustu innkomu ársins sem er að líða. Hún var alls staðar!

Sprenghlægilegt og grafalvarlegt klúður ársins
Öll lendum við stundum í veseni. Skrifum óvart niðrandi hluti um konur á bloggsíðu eða krotum á myndir af kunningjum okkar í einhverri skólabyggingu úti á landi.

Tilkynningin sem kom af stað óvæntri atburðarás
Guðni Th. Jóhannesson tilkynnti þjóðinni á nýársdag að hann hygðist ekki bjóða sig fram aftur til embættis forseta Íslands. Tilkynning Guðna, sem kom þjóðinni í opna skjöldu, hratt svo af stað óvæntri atburðarás í pólitíkinni, sem hefur ekki verið leidd til lykta.

Galnar nafnabreytingar og dularfull veikindi
Tvö af stærstu fréttamálum ársins 2024 reyndust eiga mjög óvæntan anga sameiginlegan; algjörlega galnar nafnabreytingar. Farið er yfir þessi mál, og fleiri sem sjokkeruðu þjóðina og heimsbyggðina alla, í annál fréttastofu hér fyrir neðan.

Raunir ársins 2024
Árið 2024 var árið sem við slóum ýmis met sem enginn vill slá. Fjöldi banaslysa í umferðinni á fyrsta mánuði ársins hefur ekki sést áður og manndrápsmál aldrei verið fleiri á einu ári.

Stærstu og umdeildustu sigrar ársins
Við Íslendingar stærum okkur gjarnan af því að gefast ekki upp fyrr en í fulla hnefana. Við berjumst þangað til við vinnum. Við erum þjóð sigurvegara. Í þessum fyrsta annál fréttastofu fyrir árið 2024 verður einmitt farið yfir helstu sigra sem Íslendingar, og reyndar fáeinir útlendingar líka, unnu á árinu.