Sveitarstjórnarkosningar 2026
1 2 3 4 5 6 7 … 12 ›
Framboðslistinn í Reykjanesbæ staðfestur Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ var samþykktur á fundi fulltrúaráðs Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ á Hótel Keflavík í gærkvöldi. Innlent 28.2.2026 11:06
„Þetta verða mjög spennandi kosningar“ Það eru verulega spennandi kosningar í vændum í Reykjavík að sögn Ólafs Þ. Harðarsonar stjórnmálafræðings, en spennan gæti magnast enn frekar eftir að kosningaúrslitin liggja fyrir í vor. Sjálfstæðisflokkur og Samfylking tróna yfir aðra flokka í Reykjavík samkvæmt nýrri könnun Maskínu á fylgi flokkanna í borginni og hið nýja Vinstri gæti náð inn að minnsta kosti tveimur fulltrúum úr röðum VG og Vors til vinstri. Innlent 27.2.2026 22:32
„Nú verður fjör” hjá Sjálfstæðismönnum sem kynna lista í Mosó Sjálfstæðisflokkurinn í Mosfellsbæ hefur nú svipt hulunni af sínum lista yfir frambjóðendur flokksins í sveitarfélaginu í komandi sveitarstjórnarkosningum. Hilmar Gunnarsson, ritstjóri og Mosfellingur leiðir listann, en í öðru og þriðja sæti eru þær Jana Katrín Knútsdóttir, bæjarfulltrúi og hjúkrunarfræðingur, og Elísabet S. Ólafsdóttir sáttamiðlari. Innlent 27.2.2026 20:13
Framsókn sviptir hulunni af framboðslista í Mosó Framsóknarflokkurinn í Mosfellsbæ hefur samþykkt framboðslista flokksins í sveitarfélaginu fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Sævar Birgisson, viðskiptafræðingur og bæjarfulltrúi, leiðir listann og þau Halla Karen Kristjánsdóttir, íþróttakennari og formaður bæjarráðs og Leifur Ingi Eysteinsson, tómstunda- og félagsmálafræðingur verma annað og þriðja sæti listans. Innlent 27.2.2026 18:18
Rósin áfram í hnappagati Samfylkingarinnar Stjórn Samfylkingarfélagsins Rósarinnar hefur lokið viðræðum sínum um mögulegt samstarf við stjórnmálasamtökin Vor til vinstri, sem bjóða fram í komandi borgarstjórnarkosningum í Reykjavík í sameiningu með Vinstri grænum undir nafni Vinstrisins. Niðurstaða viðræðnanna er sú að Rósin hyggst ekki fara í samstarf með Vinstrinu, heldur halda áfram starfi sínu innan Samfylkingarinnar. Innlent 27.2.2026 17:41
„Heiða hætt? Nei, bara veik heima“ Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri var ekki viðstödd kynningu á framboðslista Samfylkingarinnar í borginni síðdegis í gær. Eftir því var tekið að Heiða Björg var ekki á hópmynd sem tekin var og frambjóðendur hafa keppst við að dreifa á samfélagsmiðlum. Pólitískir andstæðingar telja fjarveru Heiðu benda til ósættis innan raða Samfylkingarinnar. Innlent 27.2.2026 15:17
Samfylking stærst en Sjálfstæðisflokkur skammt undan Samfylking mælist með mest fylgi í Reykjavík, 24 prósent, en Sjálfstæðisflokkur fylgir henni fast á hæla með 22,7 prósent, samkvæmt nýjum Borgarvita Maskínu. Nýtt framboð Vinstrisins mælist með 9,1 prósents fylgi Innlent 27.2.2026 14:13
Fyrir Heimaey lætur gott heita í Eyjum Tekin hefur verið ákvörðun um það innan Fyrir Heimaey, sem hefur haft forystu í bæjarmálapólitíkinni í Vestmannaeyjum, að ekki verði boðinn fram listi í bæjarstjórnarkosningum í vor. Innlent 27.2.2026 12:59
Borgarfulltrúi sem hlaut ekki náð fagnar endurnýjun Framboðslistar í Reykjavík eru að taka á sig mynd og listi Sjálfstæðisflokksins verður kynntur á morgun. Borgarfulltrúi flokksins, sem þiggur sæti aftarlega á lista og nær því ólíklega inn, fagnar endurnýjun Innlent 27.2.2026 12:03
Íris kveður stjórnmálin í Eyjum Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér í komandi sveitarstjórnarkosningum. Hún segist hafa tilkynnt stjórn Heimaeyjar þessa ákvörðun sína. Mikil spenna er um efsta sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í bænum og Miðflokkurinn er mættur til eyjunnar grænu og fögru. Innlent 27.2.2026 11:06
Þau skipa efstu sæti lista Miðflokksins í Reykjavík Miðflokkurinn í Reykjavík hefur birt nöfn frambjóðenda sinna í fyrstu tólf sætunum í Reykjavík. Ari Edwald er í fyrsta sæti en Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir í því öðru. Innlent 27.2.2026 09:49
Kjartan og Marta út, Björn í tíunda og Friðjón í því ellefta Mikil leynd ríkir um þann lista sem Sjálfstæðisflokkurinn mun tefla fram í komandi sveitarstjórnarkosningum í Reykjavík og kynntur verður á morgun. Vísir tekur forskot á sæluna. Innlent 27.2.2026 08:55
Dóru Björt hafnað: „Nú eru kaflaskil“ Dóra Björt Guðjónsdóttir, borgarfulltrúi og fyrrverandi Pírati, segir komið að kaflaskilum hjá sér eftir að henni var hafnað á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík. Innlent 26.2.2026 19:55
Bæjarstjóri Mosfelssbæjar á lista Samfylkingar í Reykjavík Regína Ásvaldsdóttir, bæjarstjóri í Mosfellsbæ og fyrrverandi bæjarstjóri Akraness, mun skipa sjöunda sæti á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík fyrir komandi Sveitarstjórnarkosningar. Dóra Björt Guðjónsdóttir borgarfulltrúi fékk ekki sæti á listanum. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Dagur B. Eggertsson, fyrrverandi borgarstjóri, munu skipa heiðurssæti á listanum. Innlent 26.2.2026 19:21
Viðreisn býður í fyrsta skipti fram á Akureyri Lovísa Oktovía leiðir lista Viðreisnar á Akureyri en þetta er í fyrsta skipti sem flokkurinn býður fram á Akureyri. Innlent 26.2.2026 11:32
Þau skipa lista Sjálfstæðisflokksins á Ísafirði Jónas Þór Birgisson, lyfjafræðingur, skipar oddvitasæti Sjálfstæðisflokksins í Ísafjarðarbæ í komandi sveitarstjórnarkosningum. Framboðslistinn var samþykktur einróma á fundi flokksins í gær. Innlent 26.2.2026 09:58
Einar Jóhannes fær oddvitasæti Miðflokksins í Kópavogi Einar Jóhannes Guðnason, varaþingmaður Miðflokksins, verður oddviti Miðflokksins í Kópavogi í sveitarstjórnarkosningunum í vor. Innlent 26.2.2026 09:30
Bjarni Guðjóns hættir hjá VÍS Bjarni Guðjónsson hefur sagt upp störfum sem forstöðumaður fyrirtækjaviðskipta hjá VÍS samkvæmt heimildum fréttastofu. Hann hefur verið orðaður við sæti á lista Sjálfstæðismanna í komandi borgarstjórnarkosningum sem fram fara í maí og er talið að hann muni þar skipa annað sætið. Viðskipti innlent 26.2.2026 08:54
Geti átt í samstarfi við nær alla flokka Prófkjör Pírata hefst á morgun en tveir frambjóðendur hafa boðið fram krafta sína í oddvitasætið, Alexandra Briem, núverandi oddviti, og Kristinn Jón Ólafsson, varaborgarfulltrúi. Þau segjast bæði tilbúin að leita að samstarfsflokkum í allar áttir en sá flokkur þurfi að samræmast þeirra grunngildum. Að mati Alexöndru geti það ekki allir. Innlent 25.2.2026 21:52
Trausti vill snúa aftur Trausti Hjaltason vill leiða lista Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum í næstu sveitarstjórnarkosningunum. Hann var bæjarfulltrúi flokksins í tvö kjörtímabil og hefur áður verið varaþingmaður fyrir Suðurkjördæmi. Prófkjör flokksins fer fram 13. mars. Innlent 25.2.2026 20:56
Ellefu í framboði í prófkjöri Pírata Ellefu eru í framboði í prófkjöri Pírata í Reykjavík. Prófkjör fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor hefst á morgun. Tveir sækjast eftir fyrsta sæti, fjórir eftir öðru til fimmta sæti og fjöldi eftir neðri sætum. Innlent 25.2.2026 10:06
Þau skipa lista Sjálfstæðisflokksins á Akureyri Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins á Akureyri fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar var samþykktur á aðalfundi fulltrúaráðs flokksins í gærkvöldi. Tillaga kjörnefndar var þar lögð fram og hún samþykkt. Innlent 25.2.2026 07:31
Guðmundur Ingi í formlegar viðræður við Vor til vinstri Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Rósarinnar og Afstöðu, segist hafa átt í samtölum við fulltrúa Vors til vinstri um mögulegt samstarf samstarf í komandi sveitarstjórnarkosningum í Reykjavík. Innlent 24.2.2026 15:11
Miklar hreinsanir fyrirhugaðar í borgarstjórnarliði xD Brynjar Níelsson, lögmaður og fyrrverandi þingmaður, er á leið í borgarstjórn. Hann ætlar að gefa kost á sér og mun væntanlega skipa þriðja sæti á lista Sjálfstæðisflokksins fyrir komandi borgarstjórnarkosningar. Morgunblaðið boðar miklar hreinsanir á núverandi borgarstjórnarfulltrúum. Innlent 23.2.2026 12:00
Framboðið heitir Vinstrið og Finnur verður í sjötta sæti Sameiginlegt framboð Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs og Vors til vinstri í Reykjavík í komandi borgarstjórnarkosningum heitir Vinstrið. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vori til vinstri. Innlent 23.2.2026 11:10
Líf bar sigur úr býtum Líf Magneudóttir, núverandi oddviti Vinstri grænna í Reykjavík, sigraði í forvali flokksins fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Hún mun vera í öðru sæti á sameiginlegum lista VG og Vors til Vinstri. Sanna Magdalena Mörtudóttir mun hins vegar leiða listann. Innlent 22.2.2026 17:29
Framboðslistinn tilbúinn í Fjarðabyggð Fulltrúaráð Sjálfstæðisflokksins í Fjarðabyggð samþykkti framboðslistann fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. Ragnar Sigurðsson formaður bæjarráðs verður áfram oddviti listans. Innlent 21.2.2026 14:09
Fjölgaði í flokknum vikurnar fyrir forvalið Forval Vinstri grænna í Reykjavík fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor stendur nú yfir og lýkur klukkan fimm á morgun. Í morgun höfðu 27 prósent á kjörskrá greitt atkvæði en fjölgað hefur töluvert í flokknum undanfarnar vikur. Innlent 21.2.2026 11:51
„Ég held ég hafi migið í saltan sjó“ Tveir frambjóðendur vilja oddvitasætið í forvali Vinstri grænna fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor. Sitjandi oddviti segir vinstrið þurfa á reynslu að halda en mótframbjóðandinn boðar meiri róttækni í húsnæðis- og samgöngumálum. Innlent 20.2.2026 20:26
Regína lætur staðar numið í Mosó Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri í Mosfellsbæ hefur ákveðið að hætta störfum að loknum sveitarstjórnarkosningum í vor hver sem útkomin verði. Ákvörðunin sé ekki léttvæg en hún vilji að framboð viti að hverju þau gangi nú þegar kosningabaráttan fer í hönd. Innlent 20.2.2026 12:29