Viðskipti innlent

Völdu til­boð World Class í út­boði sem er aftur í kæru­ferli

Kjartan Kjartansson skrifar
Íris Róbertsdóttir er bæjarstjóri Vestmannaeyja. Bæjaryfirvöldum virðist loksins að verða að vilja sínum að fá World Class til þess að reka líkamsræktarstöð í bænum. Útboð í fyrra var ógilt og búið er að kæra nýafstaðið útboð.
Íris Róbertsdóttir er bæjarstjóri Vestmannaeyja. Bæjaryfirvöldum virðist loksins að verða að vilja sínum að fá World Class til þess að reka líkamsræktarstöð í bænum. Útboð í fyrra var ógilt og búið er að kæra nýafstaðið útboð. Vísir/Ívar Fannar

Vestmannaeyjabær samþykkti tilboð World Class í rekstur í uppbyggingu heilsuræktar við íþróttamiðstöð bæjarins. Kærunefnd hefur kæru vegna útboðsins til meðferðar þar sem haldið er fram að það hafi verið klæðskerasniðið að World Class.

Tvö félög sóttust eftir sérleyfissamningi við Vestmannaeyjabæ um að reka og byggja upp heilsurækt við Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja, annars vegar World Class og hins vegar Sporthöllin. Þetta var annað útboðið á rekstrinum en kærunefndnefnd ógilti útboð sem var haldið í fyrra.

Bærinn tilkynnti báðum bjóðendum í gær að tilboð World Class hefði orðið fyrir valinu. Það hefði verið samþykkt og bindnandi samningur væri þegar kominn á um það.

Tæplega einu stigi munaði á tilboðum World Class og Sporthallarinnar í stigagjöf útboðsins. World Class fékk fleiri stig fyrir fjölda stöðva sem fyrirtækið rekur og fyrir að vera jafnlaunavottað fyrirtæki. Heildartilboðsverð Sporthallarinnar fékka aftur á móti mun fleiri stig en World Class.

Þeir sem stóðu að tilboði Sporthallarinnar kærðu útboðið í síðustu viku. Vísuðu þeir til ósanngjarnra skilmála útboðsins sem þeir töldu sérsniðið að World Class sem væri eina fyrirtækið í heiminum sem gæti uppfyllt þá. 

Þannig var þess krafist að bjóðendur væru með að minnsta kosti fimm þúsund manns í áskrift og að þeir ættu að minnsta kosti milljarð í eigið fé. Þá var það talið þeim til tekna að reka stöðvar víða um landið. Innan við fimm þúsund manns búa í Vestmannaeyjum.

Fylgdu ekki reglum í fyrra útboði

Þetta var í annað skiptið sem sami hópur kærði útboð Vestmannaeyjabæjar á heilsuræktinni. Kærunefnd útboðsmála ógilti fyrra útboð bæjarins frá því í fyrra á þeim forsendum að hann hefði ekki fylgt úboðsreglum.

Eftir að kæran á upphaflega útboðið kom fram gerði Vestmannaeyjabær bráðabirgðasamning við World Class um að reka heilsuræktina. Fékk fyrirtækið leyfi til þess að byggja við aðstöðina á eigin kostnað. Ákvæði í samningnum við bæinn var þó um að sveitarfélagið þyrfti að endurgreiða fyrirtækinu þann kostnað ef það fengi ekki samninginn.


Tengdar fréttir

Kæra aftur út­boð Vest­manna­eyja­bæjar á líkams­ræktar­stöð

Hópur sem sóttist eftir að reka heilsuræktarstöð í Vestmannaeyjum er sagður hafa kært nýtt útboð bæjarins á rekstrinum. Bærinn réðst í nýtt útboð eftir að kærunefnd taldi hann hafa staðið rangt að upphaflegri auglýsingu eftir rekstraraðila og að hann væri bótaskyldur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×