
Erlingur Erlingsson

Mannréttindabrot og stríðsglæpir Rússa í Úkraínu
Þrátt fyrir að mikill fréttaflutningur sé nú um Úkraínustríðið þá er helst fjallað um framgang átakanna, stuðning Vesturlanda og mögulegar leiðir til friðar. Sjaldan er fjallað um þann gríðarlega fjölda stríðsglæpa og mannréttindabrota sem einkennt hafa ólöglegan hernað og hernám Rússa.

Mýtan um óumflýjanlegan rússneskan sigur
Í umræðu um Úkraínustríðið hérlendis undanfarin þrjú ár hefur oft verið vísað til þess að ofurefli Rússlands og þrautsegja þýði að rússneskur sigur sé aðeins tímaspursmál. Því fer fjarri. Í raun er sigur Rússa ólíklegur nema Bandaríkin og Evrópa sinni ekki eigin öryggishagsmunum.

Háskóli á heimsmælikvarða - Silju Báru í rektorinn!
Silja Bára Ómarsdóttir býður sig fram sem rektor Háskóla Íslands. Háskóli Íslands er hryggjarstykkið í æðri menntun og rannsóknum á Íslandi og er ein þeirra stofnana sem Íslendingar bera mest traust til.

Svo langt frá heimsins vígaslóð - Alþjóða og öryggismál í aðdraganda kosninga
Klisjan í ættjarðarkvæði Huldu er sú að Ísland geti forðast áhrif erlendra styrjalda í skjóli fjarlægðar. Höfundur orti ljóðið undir lok Síðari heimsstyrjaldar, sem hafði haft gríðarmikil áhrif á landið og valdið umtalsverðu mannfalli.

Í orði en ekki á borði - stuðningur Íslands við Úkraínu
Rússum hefur orðið ágengt undanfarið í ólöglegri styrjöld sinni gegn Úkraínu og horfur eru heldur neikvæðar. Stuðningur Vesturlanda er áfram gríðarmikilvægur. Pólitískur stuðningur Íslands hefur verið aðdáunarverður, en því miður hefur stuðningur Íslands í verki ekki verið jafn kröftugur, og ekki í samræmi við yfirlýsingar stjórnvalda.