Hleranir á kaldastríðsárunum
Rannsóknarnefnd þingsins eða fræðimenn? Harðar deilur voru á Alþingi í dag um hlerunarmál. Voru allir þingmenn sem tóku þátt í þeim sammála um að rannsaka ætti málin ofan í kjölinn en þeim bar ekki saman um hvernig það ætti að gera. Stjórnarandstaðan vill rannsóknarnefnd en stjórnarliðar vilja bíða niðurstöðu nefndar sem Páls Hreinsson fer fyrir og á fjalla um aðgang fræðimanna að opinberum gögnum um öryggismál landins á árunum 1941-991. Innlent 8.12.2006 16:39
Árni Páll kallaður aftur til skýrslutöku vegna hlerana Árni Páll Árnason lögmaður verður kallaður aftur í skýrslutöku hjá lögreglustjóranum á Akranesi eftir svarbréf utanríkisráðherra. Enginn er ennþá grunaður um símhleranirnar í utanríkisráðuneytinu en fyrsta áfanga rannsóknarinnar er lokið. Innlent 8.11.2006 12:27
Deilt um hvort öll hlerunargögn séu birt Þjóðskjalasafnið hefur opinberað á Netinu gögn í vörslu safnsins um hleranir á kaldastríðsárunum. Menn eru þó ekki á einu máli um hvort þær 70 blaðsíður sem hafa verið birtar séu allt það sem safninu hefur borist um hleranir á vegum hins opinbera. Innlent 27.10.2006 12:21
Ráðherrar misnotuðu vald sitt með hlerunum Kjartan Ólafsson segir ljóst að Bjarni Benediktsson og Jóhann Hafstein hafi brotið á mannréttindum fólks og misnotað vald sitt, þegar þeir sem dómsmálaráðherrar létu hlera síma Samtaka herstöðvarandstæðinga á sjöunda áratug síðustu aldar. Kjartan hefur fengið afhent gögn um hleranirnar. Innlent 24.10.2006 11:54
Ríkissaksóknari rannsakar meintar hleranir hjá ráðamönnum Ríkissaksóknari hefur ákveðið að mæla fyrir um rannsókn á meintum hlerunum á síma Jóns Baldvins Hannibalssonar, fyrrverandi utanríkisráðherra, og Árna Páls Árnasonar, fyrrverandi starfsmanns utanríkisráðuneytisins og frambjóðanda Samfylkingarinnar fyrir þingkosningar í vor. Innlent 16.10.2006 17:13
Menntamálaráðherra snýr við úrskurði þjóðskjalavarðar Menntamálaráðherra hefur ákveðið að fella úr gildi ákvörðun þjóðskjalavarðar um að synja beiðni Kjartans Ólafssonar, fyrrverandi framkvæmdastjóra Sósíalistaflokksins, um aðgang að gögnum um símahleranir. Þetta kemur fram í tilkynningu frá menntamálaráðuneytinu. Innlent 16.10.2006 15:18
Ástæða til að rannsaka Varaformaður Framsóknarflokksins telur ástæðu til að rannsaka hvort sími utanríkisráðherra hafi á sínum tíma verið hleraður. Árni Páll Árnason, sem býður sig fram í fyrsta sæti Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi, fullyrti í Silfri Egils í dag að sími hans hefði verið hleraður meðan hann starfaði sem lögfræðingur hjá Varnarmálaskrifstofu ráðuneytisins. Innlent 15.10.2006 19:36