Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Það bendir allt til þess að Andoni Iraola verði næsti knattspyrnustjóri Liverpool eftir að Arne Slot var fyrr í dag sagt upp störfum. Viðræður eru hafnar milli félagsins og fulltrúa Iraola. Enski boltinn 30.5.2026 12:54
Slot rekinn frá Liverpool Arne Slot hefur verið rekinn úr starfi knattspyrnustjóra Liverpool. Þetta fullyrti ítalski blaðamaðurinn, Fabrizio Romano, fyrstur manna í færslu á samfélagsmiðlinum X. Liverpool hefur núna staðfest tíðindin með yfirlýsingu. Enski boltinn 30.5.2026 11:20
Tottenham bætir í vörnina Tottenham bætir við vörn liðsins eftir að liðið bjargaði sér frá falli á lokadegi ensku úrvalsdeildarinnar. Útlit er fyrir að tveir reynsluboltar úr ensku úrvalsdeildinni komi frítt til liðsins. Enski boltinn 29.5.2026 13:17
Tætir í sig færslu Salah: „Liverpool FC ekki Salah FC“ Jamie Carragher, sparkspekingur og fyrrverandi leikmaður Liverpool, segir ummæli Mohamed Salah um leikstíl Liverpool ekki koma sér á óvart. Maðurinn sé sjálfselskur. Það sannist enn og aftur. Enski boltinn 19. maí 2026 07:30
Salah eigingjarn og skuli hent út úr hópnum Mohamed Salah er búinn að vera mjög eigingjarn og á ekki skilið að spila lokaleik Liverpool á tímabilinu, að mati Wayne Rooney sem segir Salah hafa varpað sprengju með skrifum sínum um helgina. Enski boltinn 18. maí 2026 11:00
Síðasta verk Salah að sparka Slot? Ólga er í herbúðum Liverpool á Englandi eftir færslu Egyptans Mohamed Salah um helgina. Liverpool tapaði tuttugasta leik liðsins á leiktíðinni fyrir Aston Villa á föstudagskvöld. Enski boltinn 18. maí 2026 07:01
Gerrard um yfirlýsingu Salah: „Talsverður áfellisdómur yfir stjóranum“ Steven Gerrard segir að yfirlýsing Mohameds Salah um stöðu mála hjá Liverpool sé óþægileg fyrir knattspyrnustjórann Arne Slot. Enski boltinn 17. maí 2026 09:00
Bomba frá Salah: „Liverpool þarf að endurheimta heví metal boltann“ Eftir tapið fyrir Aston Villa, 4-2, stakk Mohamed Salah niður penna á Instagram og sagði að Liverpool yrði að endurheimta einkenni sitt, heví metal fótboltann sem það spilaði undir stjórn Jürgens Klopp. Enski boltinn 16. maí 2026 17:16
Villa í Meistaradeild Evrópu en Liverpool þarf að bíða Aston Villa tryggði sér í kvöld sæti í Meistaradeild Evrópu, í annað sinn á þremur árum, með frábærum 4-2 sigri á heimavelli gegn Liverpool í slag liðanna í 4. og 5. sæti ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta. Enski boltinn 15. maí 2026 20:35
Trúir ekki öðru en að hann verði áfram Hollenski þjálfarinn Arne Slot segist ekki halda annað en að hann haldi starfi sínu hjá Englandsmeisturum Liverpool. Liðinu hefur gengið illa á leiktíðinni. Enski boltinn 14. maí 2026 13:30
Reisa minnisvarða fyrir Jota og Silva Enska fótboltafélagið Liverpool hefur birt myndir af minnisvarða sem það hyggst reisa í grennd við heimavöll þess Anfield. Heiðra á minningu bræðranna Diogo Jota og André Silva sem létust í bílslysi í júlí síðastliðnum. Enski boltinn 11. maí 2026 14:02
„Slot og allir leikmennirnir að bíða eftir að tímabilið sé búið“ „Það á allur hópurinn mikið inni,“ sagði Aron Jóhannsson þegar þau Adda Baldursdóttir ræddu um Liverpool og stjórann Arne Slot í Sunnudagsmessunni á Sýn Sport. Enski boltinn 10. maí 2026 23:29
Liverpool - Chelsea 1-1 |Sóttu stig á Anfield eftir sex tapleiki í röð Liverpool og Chelsea gerðu 1-1 jafntefli í 36.umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í dag á Anfield. Fyrsta stig Chelsea um langa hríð í deildinni. Enski boltinn 9. maí 2026 13:25
Eiginkona þjálfarans segir Burnley bera ábyrgð í andlátinu Eiginkona Matt Beard, fyrrum þjálfara kvennaliða Burnley og Liverpool í ensku úrvalsdeildinni, segir fyrrnefnda félagið eiga stóran þátt í andláti hans. Félagið hafi lagt hann í einelti sem leiddi til andlegra erfiðleika og á endanum sjálfsvígs. Fótbolti 8. maí 2026 07:01
Liverpool hættir við verðhækkanir Liverpool hefur endurskoðað áætlanir um hækkanir á miðaverði í skugga kröftugra mótmæla stuðningsmanna liðsins, eftir samráð við stuðningsmannafélag klúbbsins. Enski boltinn 7. maí 2026 10:00
Segir að óásættanlegt tímabil Liverpool megi ekki endurtaka sig Virgil van Dijk, fyrirliði Liverpool, segir að þetta tímabil hjá Rauða hernum hafi verið óásættanlegt og megi ekki endurtaka sig. Enski boltinn 4. maí 2026 14:00
Slot við Hjörvar: „Ég held að öllum hafi liðið þannig“ Liverpool-stjórinn Arne Slot ræddi við Hjörvar Hafliðason á Old Trafford í gær, eftir 3-2 tapið gegn Manchester United, og sagði alla hafa haft trú á því að það yrði Liverpool sem næði inn sigurmarkinu. Sama vandamál og í allan vetur hefði hins vegar gert vart við sig. Enski boltinn 4. maí 2026 10:00
Sjáðu sigurmark Mainoo og Tottenham stökkva upp úr fallsæti Þrír leikir fóru fram í ensku úrvalsdeildinni í gær og mörkin úr þeim má sjá hér fyrir neðan. Enski boltinn 4. maí 2026 07:00
„Svona hefur þetta verið allt mitt líf“ Markaskorarinn Matheus Cunha ræddi við Hjörvar Hafliðason eftir 3-2 sigur Manchester United gegn Liverpool í dag. Enski boltinn 3. maí 2026 23:05
Mainoo tryggði sigur eftir að United gaf tvö mörk Manchester United vann 3-2 gegn Liverpool eftir að hafa gefið frá sér tvö mörk í seinni hálfleik. Kobbie Mainoo skoraði sigurmarkið með laglegu skoti undir lok leiks. Enski boltinn 3. maí 2026 14:00
Isak aftur meiddur Alexander Isak, framherji Liverpool, meiddist í vikunni og mun ekki taka þátt er hans menn mæta Manchester United í stórleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Enski boltinn 3. maí 2026 11:30
Salah ekki sagt sitt síðasta hjá Liverpool Mohamed Salah hefur ekki spilað sinn síðasta leik fyrir Liverpool því hann fékk góðar fréttir úr læknisskoðun eftir að hafa meiðst gegn Crystal Palace á laugardaginn. Enski boltinn 29. apríl 2026 23:16
Mörkin úr enska: Skaut Arsenal á toppinn og dramatíkin allsráðandi á botninum Dramatíkin var allsráðandi í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í gær. Baráttan bæði á toppi og botni deildarinnar virðist ætla að teygja sig allt til loka tímabilsins. Hér neðar í fréttinni má sjá öll mörk gærdagsins, allt það helsta. Enski boltinn 26. apríl 2026 09:00
Salah gæti hafa spilað sinn síðasta leik fyrir Liverpool Mohamed Salah gæti hafa spilað sinn síðast leik fyrir Liverpool. Salah meiddist á læri gegn Crystal Palace í dag og veit Arne Slot, knattspyrnustjóri Liverpool ekki hvort hann muni snúa aftur á völlinn fyrir lok tímabilsins. Enski boltinn 25. apríl 2026 19:35