Hitabylgja í Evrópu sumarið 2026

Fréttamynd

Bongóblíða um nánast allt land og rofar til í borginni um stund

Hér á landi er sannkallað sumarveður um nánast allt land í dag, þann 17. júlí. Það eru helst íbúar á Raufarhöfn og höfuðborgarsvæðinu sem njóta ekki sólar í dag en hitinn nær rétt um tólf stigum þar en fer mest upp í um tuttugu og þrjú stig á Akureyri. Veðurfræðingur segist sjá fram á að það rofi til í borginni á hverri stundu.

Veður
Fréttamynd

Nánast farin að reikna með hitabylgjum fyrir austan

Síðustu daga hefur veðrið leikið við fólk á austurhluta landsins en á sama tíma hafa gular viðvaranir ríkt á vestanverðu landinu. Hiti fór víða yfir tuttugu og fimm gráður á Austfjörðum og Egilsstöðum um helgina og tjaldsvæði eru mörg hver að fyllast.

Innlent
Fréttamynd

„Ef þú vilt græða þá ferðu í að selja loft­kælingu í Evrópu“

Engin heimsálfa hitnar hraðar en Evrópa og enginn vafi er á því að hitabylgjum sé að fjölga í álfunni segir fagstjóri hjá Veðurstofu Íslands. Hitabylgjan sem geisaði um álfuna nú í sumar hafi náð yfir mun stærra svæði en þær sem mælst hafa á árum áður. Erfitt hefur verið að halda úti markmiði Parísarsamningsins um að halda hlýnuninni innan tveggja gráða. 

Innlent
Fréttamynd

Segja 2.700 hafa látist vegna hita­bylgju

Talið er að yfir 2.700 hafi látist af völdum hita í Englandi og Wales í kjölfar hitabylgju sem þar geisaði í maí og júní. Rauðar veðurviðvaranir vegna hitans voru gefnar út í lok júní en talið er að flest dauðsföll hafi átt sér stað í júnímánuði þegar hiti náði tæpum 37 stigum. 

Erlent
Fréttamynd

Miklir skógar­eldar nærri París

Tvær slökkviflugvélar voru sendar með hraði til að berjast við gróðurelda sem kviknuðu í Fontainebleau-skógi, 60 kílómetra suðaustan við Parísarborg. 

Erlent
Fréttamynd

Allir og amma þeirra á Ítalíu

Svakaleg hitabylgja hefur riðið yfir Ítalíu síðastliðnar tvær vikur en það hefur þó ekki stoppað íslenska ferðalanga sem flykkjast til landsins í massavís. Fjöldi Íslendinga hefur verið í sumarfríi á stígvélinu góða síðustu vikurnar, urmull leikara, poppstjörnur og annað gott fólk.

Lífið
Fréttamynd

Yfir þúsund látnir í hitabylgjunni í Evrópu og hitamet falla víða

Hitamet hafa fallið víða í Evrópu síðustu daga og eru um 1300 manns látnir vegna hennar, samkvæmt framkvæmdastjóra Alþjóðaheilbrigðastofnunarinnar. Hann segir að evrópsk heimili, vinnustaðir og skólar séu ekki byggðir fyrir slíkan hita sem mælst hefur í álfunni síðan í síðustu viku.

Erlent
Fréttamynd

Fleiri en 1300 látnir vegna hita­bylgju í Evrópu

Hitamet hafa verið slegin víða í Evrópu síðastliðna daga þar sem hitabylgja geisar um álfuna. Víða er búist við þrumuveðri í kjölfar hitans og Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin segir fleiri en 1300 látna vegna veðursins. 

Erlent
Fréttamynd

Tónlistarhátíðum af­lýst vegna hita

Hitabylgja geisar enn um stóran hluta Evrópu og víða hefur viðburðum verið aflýst vegna hitans. Í Hollandi hefur einni stærstu raftónlistarhátíð heims verið aflýst á föstudag, 26. júní, en þar í landi var í fyrsta sinn gefin út rauð veðurviðvörun vegna hita nú á dögunum.

Erlent
Fréttamynd

41,5 gráður í Þýska­landi og hita­met slegið

Hitinn fór upp í 41,5 gráður í Þýskalandi í dag og er það hæsti hiti sem mælst hefur í landinu frá upphafi mælinga. Hitamet var sömuleiðis sett í Danmörku og Tékklandi í dag en hitabylgja gengur nú yfir Evrópu.

Erlent
Fréttamynd

Nú­verandi hita­bylgja „sú al­var­legasta sem mælst hefur“

Útlit er fyrir að hitamet verði slegin víðs vegar um Evrópu í dag. Búist er við því að hiti verði allt að 34 stig í Danmörku. Gefin hefur verið út rauð viðvörun víða um álfuna og búist við því að hiti nái allt að 40 stigum í Þýskalandi og Hollandi. Á Balkanskaga á einnig hiti að vera verulegur. Tugir hafa látist í Frakklandi og Spáni síðustu daga og þar á meðal fjögur ung börn.

Erlent
Fréttamynd

Átta­tíu ára gamalt hitamet slegið í Sviss

Áttatíu ára gamalt hitamet hefur verið slegið í Sviss en á fjórum mismunandi veðurstöðvum fór hitinn yfir þrjátíu og sjö gráður en er þetta hæsti hiti sem mælst hefur í landinu í júnímánuði. Í hitabylgjunni sem nú gengur yfir Evrópu hefur hiti víða farið yfir þrjátíu og fimm gráðurnar og er áætlað að allt að fjögurhundruð milljón manns muni upplifa hita yfir þrjátíu gráður í álfunni á næstu dögum.

Erlent
Fréttamynd

Aldrei upp­lifað annan eins hita í Lundúnum

Íslendingur sem búsettur er í Lundúnum segist aldrei hafa upplifað annan eins hita í borginni. Banvæn hitabylgja ríður yfir Evrópu og eru líkur á að nýtt hitamet fyrir júní verði sett á Englandi.

Innlent
Fréttamynd

Fjölskylduferð í skemmti­garð tók ó­vænta stefnu í hitabylgjunni

Mikil hitabylgja geisar í Evrópu og eru rauðar veðurviðvaranir í gildi á stórum svæðum vegna hita. Áhrif hitabylgjunnar hafa verið gríðarlega mikil í Frakklandi. Í suðausturhluta landsins fundust tvö börn, tveggja og fjögurra ára, látin í bifreið í dag. Hitastig á svæðinu mældist 39 gráður á hádegi.

Erlent
Fréttamynd

Leggja bönn á á­fengis­neyslu vegna hitabylgjunnar

Hiti náði fjörutíu gráðum í borginni Bordeaux í dag. Rauðar veðurviðvaranir ná yfir um það bil hálft Frakkland á morgun auk þess sem appelsínugular viðvaranir gilda í stórum hluta landsins. Mikil hitabylgja gengur nú yfir Evrópu meðal annars vegna streymis heits lofts norður á bóginn frá Sahara-eyðimörkinni.

Erlent