Mál Lindsay Clancy

Fréttamynd

Réttar­höldin gegn Clancy ó­gild

Dómarinn í málinu gegn Lindsay Clancy hefur gert réttarhöldin gegn henni ógild. Kviðdómendur komust ekki að niðurstöðu eftir margra daga tilraunir.

Erlent
Fréttamynd

Kvið­dóm­endur fá enn eitt tæki­færi

Kviðdómendur í málinu gegn Lindsay Clancy munu fá enn einn daginn til að komast að sameiginlegri niðurstöðu í máli hennar. Þetta verður sjöundi dagurinn sem þau munu verja í að reyna að ljúka málinu.

Erlent
Fréttamynd

Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunar­byrði

Dómarinn í morðmáli Lindsay Clancy hefur enn á ný biðlað til kviðdóms að reyna að ná samstöðu um niðurstöðu eftir mikla dramatík í dómsalnum í gær. Clancy er ákærð fyrir að hafa myrt þrjú börn sín á heimili fjölskyldunnar í Massachusetts í janúar árið 2023.

Erlent
Fréttamynd

Kvið­dóm­endur fá síðasta séns

Kviðdómendur í málinu gegn Lindsay Clancy hafa reynt að komast að sameiginlegri niðurstöðu í máli hennar í fimm daga. Það hefur ekki borið árangur en búist er við því að í dag fái þeir sinn síðasta séns til að komast að niðurstöðu. Annars verður málinu gegn konunni sem kyrkti þrjú ung börn sín vísað frá dómi.

Erlent
Fréttamynd

Ná ekki saman um sak­hæfi Clancy

Kviðdómendur í máli Lindsay Clancy sögðu dómara í dag að þeir gætu ekki komist að einróma niðurstöðu um það hvort hún sé sakhæf eða ekki fyrir að myrða þrjú ung börn sín. Dómarinn bað kviðdómendur um að reyna aftur en þeir hafa reynt að komast að niðurstöðu í fjóra daga.

Erlent
Fréttamynd

Móðirin sem Banda­ríkja­menn deila um

Bandarísk móðir hefur viðurkennt að hafa orðið börnum sínum þremur að bana í janúar 2023. Réttarhöldin yfir henni hafa staðið yfir í rúmar fjórar vikur og styttist í að málið verði lagt fyrir kviðdóm. Hann mun skera úr um hvort móðirin hafi verið sakhæf þegar hún banaði börnunum.

Erlent
Fréttamynd

Sakamálið sem skekur Banda­ríkin

Réttarhöld yfir bandarískri konu, sem játað hefur að hafa myrt börnin sín þrjú, hafa vakið gríðarlega athygli um allan heim. Mikill fjöldi fylgist með réttarhöldum í beinni útsendingu á degi hverjum og hefur málið hrundið af stað umræðu um fæðingarþunglyndi og fæðingarsturlun.

Innlent
Fréttamynd

Lýsti mikilli ör­væntingu áður en hún myrti börnin sín

Kona sem myrti þrjú börn sín árið 2023 hafði lýst yfir áhyggjum af geðheilsu sinni í aðdraganda morðanna. Í aðdraganda þess að hún myrti þrjú ung börn sín skrifaði Lindsay Clancy í dagbók sína að hún upplifði fjarlægð frá börnunum og þáverandi eiginmanni sínum. Hún sagðist vera kvíðin og ekki ráða við móðurhlutverkið. Hún ætti erfitt með að svæfa Callan, átta mánaða son sinn, og óttaðist að verða veik.

Erlent
Fréttamynd

„Hún drap börnin“

Kona sem sökuð er um að hafa myrt þrjú börn sín brast í grát í dómsal í Bandaríkjunum í gær, þegar hún og aðrir í dómsalnum hlustuðu á símtal fyrrverandi eiginmanns hennar til Neyðarlínunnar. Lindsay Clancy er sökuð um að hafa kyrkt fimm ára dóttur sína, þriggja ára son og átta mánaða son og er hún lömuð eftir að hafa reynt að svipta sig lífi í kjölfarið.

Erlent