Lögreglumál
106 107 108 109 110 111 112 113 114 … 275 ›
Áframhaldandi gæsluvarðhald vegna manndráps í Barðavogi Karlmaður á þrítugsaldri sem grunaður er um að hafa orðið öðrum manni að bana í Barðagerði í byrjun mánaðar hefur verið úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald. Innlent 1.7.2022 17:53
Undirbúningur brottvísana til Grikklands hafinn Gunnar Hörður Garðarsson, samskiptastjóri Ríkislögreglustjóra staðfestir í samtali við fréttastofu að undirbúningur brottvísana flóttafólks úr landi sé hafinn. Innlent 30.6.2022 14:42
Óviðræðuhæfur maður vistaður í fangageymslu eftir að hafa reynt að sparka í lögreglumenn Lögregla á höfuðborgarsvæðinu handtók mann í gær vegna slagsmála, eignaspjalla og fleiri brota en þegar flytja átti manninn á lögreglustöð freistaði hann þess að sparka í lögreglumenn. Maðurinn gistir fangageymslur þar til hann verður viðræðuhæfur, segir í dagbók lögreglunnar. Innlent 30.6.2022 06:37
Nokkur atvik þar sem lögregla kom andlega veikum og ölvuðum til aðstoðar Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti nokkrum verkefnum á kvöldvaktinni í gær þar sem hún aðstoðaði fólk með andlega erfiðleika eða fólk sem var ölvað. Frá þessu er greint í dagbók lögreglu en ekki greint frá nánar. Innlent 29.6.2022 06:50
Segir Vítalíu ekki hafa kært þremenningana Lögmaður Þórðar Más Jóhannessonar, eins þeirra sem Vítalía Lazareva hefur sakað um kynferðisbrot gegn sér, segir að engin kæra liggi fyrir í málinu, þvert á yfirlýsingar Vítalíu. Þeir þrír sem Vítalía sakaði um að hafa brotið gegn henni í sumarbústað í október 2020 hafa nú kært Vítalíu og Arnar Grant fyrir tilraun til fjárkúgunar. Innlent 28.6.2022 10:28
Flúði af vettvangi eftir umferðaróhapp Ökumaður má eiga von á sekt eftir að hafa flúið af vettvangi eftir umferðaróhapp á höfuðborgarsvæðinu. Lögregla hafði uppi á ökumanninum og segir að hann megi eiga von á sekt fyrir að hafa yfirgefið vettvang án þess að gera ráðstafanir. Innlent 28.6.2022 07:39
Lögregla leitar manns Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur óskað eftir að ná tali af manni sem birtist á myndum sem fylgja fréttinni og má sjá að ofan. Innlent 27.6.2022 14:12
Tveir ungir menn handteknir vegna innbrots í lyfjaverslun Tveir ungir menn voru handteknir í nótt, grunaðir um innbrot í lyfjaverslun í Garðabæ. Tilkynning um innbrotið barst um klukkan 3.15 en þá sáust mennirnir hlaupa af vettvangi og fara á brott í bifreið. Innlent 27.6.2022 06:21
Sérsveit kölluð til eftir að maður mundaði hníf Sérsveitarmenn handtóku mann í Veghúsum í Grafarvogi í gærkvöldi sem dregið hafði fram hníf í samskiptum við fólk í íbúðinni. Maðurinn var einn í íbúðinni þegar lögregla handtók hann. Heimilisfólk hafði yfirgefið íbúðina fyrr um kvöldið. Innlent 26.6.2022 10:27
Réðst á stúlkur og reyndi að ræna þær Ungur drengur í annarlegu ástandi réðst á tvær stúlkur og reyndi að ræna þær í gærkvöldi. Sló hann aðra stúlkuna með krepptum hnefa í andlitið en stúlkurnar náðu að komast undan til foreldra sinna. Innlent 26.6.2022 07:28
Nettó-ræninginn handtekinn eftir eltingaleik Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók mann sem réðst á kassastarfsmann og stal peningum úr verslun Nettó í Lágmúla eftir að hafa veitt honum eftirför í gærkvöldi. Ræninginn stakk af á bíl og ók meðal annars á aðra bíla og á móti umferð. Innlent 26.6.2022 07:21
Mikill viðbúnaður lögreglu í Veghúsum Lögreglan var með mikinn viðbúnað í Veghúsum upp úr tíuleytinu í kvöld. Þar mátti sjá fjölda lögreglubíla auk vopnaðra sérsveitarmanna í fullum klæðum. Innlent 26.6.2022 00:08
Fimm mánaða stúlka skotin til bana í Chicago Fimm mánaða stúlka var skotin til bana í aftursæti bíls í South Shore-hverfi Chicago síðdegis í gær. Stúlkan var flutt á spítala eftir að hafa fengið skot í höfuðið og lést hún þar. Maður á fimmtugsaldri hlaut einnig áverka eftir að byssuskot hæfði hann nærri auga. Erlent 25.6.2022 21:14
Rændi Nettó og flúði af vettvangi Matvöruverslunin Nettó í Lágmúla var rænd fyrr í kvöld. Að sögn vitna sló ræninginn til starfsmanns, tók pening úr kassanum og flúði af vettvangi. Engan sakaði í árásinni og vinnur lögreglan nú að rannsókn málsins. Innlent 25.6.2022 19:56
Talinn hafa verið ölvaður þegar hann velti bíl Ökumaður og farþegi voru fluttir á bráðamóttöku eftir að bíll þeirra valt á Hringbraut á öðrum tímanum í nótt. Sá sem ók bílnum er grunaður um ölvun við akstur. Innlent 25.6.2022 08:11
Beinbrot í rafskútuslysum í borginni í gærkvöldi Tvennt hlaut beinbrot í rafhlaupahjólaslysum í Reykjavík í gærkvöldi. Sá þriðji hlaut aðhlynningu á bráðadeild en hann reyndist hafa verið afar ölvaður á hjólinu. Innlent 25.6.2022 07:33
Handlék hníf innan um hóp ungmenna Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók karlmann sem tilkynnt var um að hefði handleikið hníf innan um hóp ungmenna í Árbæ í gærkvöldi. Áður hafði sést til hans koma út úr skóla þar sem innbrotskerfi var í gangi. Innlent 25.6.2022 07:21
Líkamsárásir, innbrot og slys á annasamri vakt lögreglu Nóttin og gærkvöldið voru nokkuð annasöm hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, sem sinnti meðal annars tveimur útköllum vegna líkamsárása og tveimur útköllum vegna innbrota. Innlent 24.6.2022 06:37
„Minna hik við að beita skotvopnum á almannafæri“ Sérsveit Ríkislögreglustjóra vopnaðist margfalt oftar á síðasta ári vegna skotvopna en fimm árum áður. Aðstoðaryfirlögregluþjónn segir minna hik við að beita skotvopnum á almannafæri en áður. Innlent 23.6.2022 20:31
„Maðurinn reyndi augljóslega að drepa okkur. Hvað annað er hægt að kalla þetta?“ Maðurinn sem var í bílnum með syni sínum þegar skotið var að þeim í Hafnarfirði í gær telur ljóst að skotmaðurinn hafi ætlað sér að drepa þá feðga. Maðurinn segist vera í miklu áfalli eftir atburði gærdagsins. Innlent 23.6.2022 19:18
Byssumaðurinn vistaður á „viðeigandi stofnun“ Héraðsdómur Reykjaness úrskurðaði karlmann á sjötugsaldri sem var handtekinn fyrir að skjóta á bíla í Hafnarfirði í gær til vistunar á viðeigandi stofnun í fjórar vikur. Skotárásin er rannsökuð sem tilraun til manndráps. Innlent 23.6.2022 10:33
Tvö innbrot þar sem búðarkössum var stolið Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu bárust í gærkvöldi og nótt tvær tilkynningar er vörðuðu innbrot í verslun og fyrirtæki. Atvikin áttu sér stað í póstnúmerum 103 og 109 en í báðum tilvikum voru búðarkassar með skiptimynt hafðir á brott. Innlent 23.6.2022 06:34
Beitti líklega riffli: „Guðs lifandi feginn að enginn hafi skaðast“ Sex ára barn var í bílnum sem skotið var á fyrir utan leikskóla í Hafnarfirði dag. Íbúi í húsi byssumannsins segist hafa verið skjálfandi hræddur en maðurinn notaði líklega riffil í árásinni. Innlent 22.6.2022 19:04
„Ég var mjög hrædd og óttaslegin“ Berglind Bjarney Ásgeirsdóttir, íbúi að Miðvangi 41 þar sem skotið var á tvo bíla í morgun, sagðist hafa orðið óörugg og óttasleginn vegna ástandsins sem skapaðist í morgun. Henni fannst skorta nægilega upplýsingagjöf frá lögreglunni en einu upplýsingarnar sem hún fékk um málið heyrði hún í útvarpinu. Innlent 22.6.2022 15:45
Var með barnið í bílnum þegar skotið var á hann Faðir og sex ára gamall sonur hans voru í öðrum bílanna sem skotið var á við Miðvang í Hafnarfirði í morgun. Lögreglan rannsakar skothríð sjötugs karlmanns á bílana sem tilraun til manndráps. Innlent 22.6.2022 15:25
Maður í bílnum sem skotið var á Lögreglan er sögð rannsaka skotárás á tvo bíla við Miðvang í Hafnarfirði í morgun sem tilraun til manndráps. Eigandi annars bílsins var inni í honum þegar karlmaður á sjötugsaldri skaut á hann. Innlent 22.6.2022 14:53
Ríkissaksóknari áfrýjar dómi Brynjars Creed Ríkissaksóknari mun áfrýja dómi Héraðsdóms Reykjaness í máli Brynjars Creed til Landsréttar. Að sögn Kolbrúnar Benediktsdóttur, varahéraðssaksóknara sem rak málið fyrir héraðsdómi, snýr áfrýjunin að því að Brynjar verði jafnframt sakfelldur fyrir nauðgun, með því að hafa fengið stúlkur undir lögaldri til þess að framkvæma ýmsar kynferðislegar athafnir í gegnum netið. Innlent 22.6.2022 13:34
Umsátrinu í Hafnarfirði lauk þegar maðurinn gaf sig fram Karlmaður á sjötugsaldri sem grunaður er um að hafa skotið á tvo bíla við Miðvang í Hafnarfirði kom út úr íbúð sinni sjálfviljugur skömmu eftir hádegi og er nú í haldi lögreglu. Þar með lauk tæplega fjögurra klukkustunda löngu umsátursástandi. Innlent 22.6.2022 12:36
Markmiðið að ná manninum út heilum á húfi Aðstoðaryfirlögregluþjónn segir að lögregla sé tilbúin að vera eins lengi og þarf við blokk við Miðvang í Hafnarfirði þar sem grunaður byssumaður er lokaður inni í íbúð. Markmiðið sé að ná manninum heilum á húfi út. Innlent 22.6.2022 12:25
Umsátursástand eftir skotárás í Hafnarfirði Lögreglumenn reyna nú að ræða við karlmann á sjötugsaldri sem er grunaður um að skjóta á kyrrstæðan bíl fyrir utan fjölbýlishús við Miðvang í Hafnarfirði í morgun. Vopnaðir sérsveitarmenn eru á vettvangi og mikil viðbúnaður en grunaði byssumaðurinn er í íbúð í blokkinni. Innlent 22.6.2022 09:29