Lögreglumál
25 26 27 28 29 30 31 32 33 … 278 ›
Sérsveitin kölluð til vegna byssu sem reyndist leikfang Þrír sérsveitarbílar voru kallaðir til á Snorrabraut vegna tilkynningar um mann sem veifaði byssu. Byssan reyndist leikfang. Innlent 13.6.2024 21:38
Eigandi Gríska hússins: „Erum við einhver mafía?“ Eigandi Gríska hússins, Zakaria Handawi, segist ávallt hafa starfað innan laganna ramma. Hann er sjálfur staddur erlendis og botnar ekkert í aðgerðum lögreglu. Innlent 13.6.2024 21:01
Hótanir í garð lögreglumanna komnar á borð saksóknara Lögregla hefur kært tvær hótanir í garð lögreglumanna til héraðssaksóknara. Formaður Landssambands lögreglumanna tengir hótanirnar beint við Palestínumótmæli sem staðið hafa yfir síðustu vikur og mánuði. Innlent 13.6.2024 19:23
Grunur um mansal á Gríska húsinu Þrír voru handteknir í aðgerð lögreglunnar við Gríska húsið á Laugavegi fyrr í dag. Grímur Grímsson yfirlögregluþjónn hjá miðlægri deild lögreglunnar segir aðgerðir lögreglunnar tengjast gruni um vinnumansal á staðnum. Með lögreglu var starfsmaður Skattsins. Innlent 13.6.2024 15:52
Ræddu við 26 einstaklinga varðandi vændi og mansal „Við förum annað slagið og höfum samband við þá einstaklinga, sem eru langmest konur, sem auglýsa vændi. Það er í þeim tilgangi að kanna hvort að þær séu í einhvers konar þvingun eða hvort það sé einhver grunur um mansal.“ Innlent 13.6.2024 15:00
Segir reyksprengjum verið kastað og piparúði nauðsynlegur Aðstoðaryfirlögregluþjónn segir lögregluna hafa neyðst til að beita piparúða gegn mótmælendum við Alþingishúsið í gær. Reyksprengju og blysum hafi verið kastað í átt að Alþingishúsinu. Þingmaður Pírata telur atburðarásina hafa mátt vera á annan veg. Innlent 13.6.2024 12:11
Lögregluaðgerð á veitingastað í miðbænum Lögregla er að störfum við veitingastaðinn Gríska húsið á Laugavegi í miðbæ Reykjavíkur. Að sögn vegfaranda var einn leiddur út af staðnum í járnum. Innlent 13.6.2024 12:06
Tveir handteknir vegna gruns um mansal á nuddstofu í Reykjavík Tveir starfsmenn á nuddstofu í Reykjavík voru handteknir í síðustu viku, grunaðir um mansal. Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn hjá rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, staðfestir þetta í samtali við Vísi. Innlent 13.6.2024 11:48
Mikilvægt að ómenningu sé ekki sýnt umburðarlyndi Diljá Mist Einarsdóttir þingkona Sjálfstæðisflokksins hefur lagt fram fyrirspurn á Alþingi til dómsmálaráðherra varðandi heiðurstengt ofbeldi og umfang þess á Íslandi. Hún segir tilefnið vera ljótt mál um ofbeldi innan palestínskrar fjölskyldu á Suðurnesjum sem virðist vera heiðurstengt. Innlent 13.6.2024 10:54
Willum blandar sér í málið og útskýrir bréfið Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur nú blandað sér í umræðu ráðherra um netsölu áfengis með tilkynningu á vef stjórnarráðsins þar sem hann fer yfir bréfið sem hann sendi Sigurði Inga Jóhannssyni fjármálaráðherra fyrr í þessum mánuði. Bréfið varð til þess að Sigurður Ingi sendi lögreglu erindi um málið. Innlent 13.6.2024 10:50
Erindi ráðherra hafi engin áhrif á rannsókn sem lýkur fljótlega Áfengissala í netverslun hefur verið til rannsóknar og á borði lögreglu í þrjú ár og 360 daga en fimm netverslanir eru nú undir eftirliti lögreglu. Erindi sem Sigurður Ingi Jóhannsson, fjármála- og efnahagsráðherra, sendi lögreglunni varðandi málið hefur lítil sem engin áhrif á rannsókn lögreglunnar. Innlent 13.6.2024 10:46
Um tólf vopnuð útköll lögreglu og sérsveitar í hverri viku Alls fór lögreglan á Íslandi í 180 útköll á síðasta ári þar sem hún þurfti að vopnast. Flest voru útköllin á höfuðborgarsvæðinu, eða alls 97. Sérsveitin fór í alls 461 vopnuð útköll á síðasta ári. Samanlagt eru það 558 útköll eða um 12 útköll á viku. Innlent 12.6.2024 22:23
Piparúði á mótmælendur barst að þingmönnum Pírata Lögregla beitti piparúða á mótmælendur fyrir utan Alþingishúsið í kvöld. Nokkrir þingmenn Pírata voru á svæðinu þegar piparúðanum var hleypt af og barst hluti piparúðans að þeim svo þá sveið í augun. Innlent 12.6.2024 22:22
Vikulangt gæsluvarðhald vegna stunguárásar í Súðavík Héraðsdómur Vesturlands hefur samþykkt vikulangt gæsluvarðhald yfir manninum sem er grunaður um að hafa stungið mann í Súðavík í gærkvöldi. Maðurinn er úrskurðaður í gæsluvarðhald á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Rannsókn málsins er á frumstigi. Innlent 12.6.2024 17:28
Árekstur á Höfðabakkabrú Árekstur varð á Höfðabakkabrú nú fyrir skömmu en tveir sjúkrabílar hafa verið sendir á vettvang. Innlent 12.6.2024 16:53
Einn umdeildasti kennari landsins lætur af störfum Páll Vilhjálmsson framhaldsskólakennari í Garðabæ mun ekki mæta til kennslu næsta haust. Tekist hefur samkomulag milli hans og Kristins Þorsteinssonar skólameistara að komið sé gott. Innlent 12.6.2024 15:27
Lögregla fámál um húsleit í máli Davíðs Viðarssonar Lögregla vill lítið tjá sig um húsleit sem framkvæmd var í síðasta mánuði í tengslum við rannsókn á máli Davíðs Viðarssonar, áður Quang Le. Rannsóknin er afar umfangsmikil og þrír hinna grunuðu hafa setið í gæsluvarðhaldi í að verða 14 vikur. Innlent 12.6.2024 14:09
Hrottaleg árás á átján ára mann enn til rannsóknar Fólskuleg árás á átján ára mann á leið sinni heim úr útskriftarveislu í Árbæ í Reykjavík sunnudaginn 2. júní er enn til rannsóknar hjá lögreglunni. Innlent 12.6.2024 13:40
Stunginn í heimahúsi í Súðavík Ungur karlmaður var handtekinn í heimahúsi í Súðavík seint í gærkvöldi, grunaður um að hafa stungið mann. Maðurinn hlaut lífshættuleg stungusár og var fluttur með sjúkraflugi til Reykjavíkur. Hann er nú kominn úr lífshættu. Innlent 12.6.2024 10:20
Rannsaka kynferðisbrot en ekki innbrot Réttargæslumaður konu sem kært hefur kynferðisbrot um borð í skipinu Polar Nanoq, Áslaug Lára Lárusdóttir, segir staðhæfingar útgerðarstjóra Sigguk A/S um að rannsókn lögreglu snúi að innbroti um borð í Polar Nanoq alrangar. Lögregla rannsaki kynferðisbrot, ekki innbrot. Innlent 11.6.2024 18:21
Senda fólk inn úr sólinni Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur undanfarna daga haft eftirlit með veitingastöðum og kannað sérstaklega hvort umræddir staðir hafi leyfi til útiveitinga, en pottur virðist víða brotinn í þeim efnum. Gestum veitingastaða hefur víða verið vísað inn af útisvæði veitingastaða sem ekki hafa tilskilin leyfi til veitinga utandyra. Innlent 11.6.2024 15:30
Segir allan áburð um kynferðisbrot úr lausu lofti gripinn Frans Heilmann útgerðarstjóri Sigguk A/S, sem er undir hatti Polar Seafood, segir fréttaflutning af meintu kynferðisbroti í frystitogaranum Polar Nanoq illskiljanlegan og ömurlegan. Innlent 11.6.2024 15:30
Sextán ára reyndi að stinga lögguna af Sextán ára gamall strákur gerði tilraun til þess að stinga lögreglu af á Hafnarfjarðarvegi í gær. Hann fór Heiðmerkurleið og inn í Kórahverfi í Kópavogi þar sem hann endaði utan vegar. Bíllinn er stórskemmdur en þrír voru í bílnum. Innlent 11.6.2024 15:22
Einn stunginn þegar tveir hópar voru að útkljá sín mál Einn maður var stunginn eða skorinn með hníf í Kópavogi skömmu fyrir miðnætti í gærkvöld. Hann var fluttur á slysadeild til aðhlynningar með áverka á hendi sem eru ekki taldir alvarlegir. Innlent 11.6.2024 10:19
Skemmdarverk unnin á lögreglubílum Lögreglan á Suðurnesjum óskar eftir upplýsingum um skemmdarverk sem hafa verið unnin á lögreglubílum. Innlent 11.6.2024 08:13
Ók í gegnum grindverk heimahúss og fannst skammt frá Lögreglunni var tilkynnt um hópslagsmál í Kópavogi í gærkvöldi í nótt. Einn var slasaður eftir slagsmálin og var sá fluttur á slysadeild. Einn var handtekinn vegna málsins, grunaður um alvarlega líkamsárás. Innlent 11.6.2024 06:24
Rænulaus maður á almannafæri reyndist ferðamaður í sólbaði Lögreglu var í dag tilkynnt um mann sem var sagður liggja rænulaus á almannafæri í Reykjavík. Sá reyndist vera erlendur ferðamaður að sólbaða sig í góða veðrinu. Innlent 10.6.2024 17:46
Fólkið sem er talið hafa brotið á Maltverjanum látið laust Tveir sakborningar sem grunaðir erum um að brjóta á maltneskum karlmanni í Reykholti í Biskupstungum lok aprílmánaðar hafa ekki verið úrskurðaðir í frekara gæsluvarðhald. Innlent 10.6.2024 11:40
Þrír liggja undir grun en eru líklegast komnir úr landi Mennirnir þrír sem voru handteknir á laugardaginn og yfirheyrðir vegna kynferðisbrots sem er sagt tengjast grænlenska frystitogaranum Polar Nanoq sæta ekki farbanni vegna málsins. Allir þrír hafa þó stöðu sakbornings í málinu og liggja þar af leiðandi allir undir grun um kynferðisbrot. Innlent 10.6.2024 11:29
Banaslys á Vesturlandsvegi í Borgarfirði Banaslys varð á Vesturlandsvegi skammt frá Hraunsnefi í Norðurárdal í Borgarfirði á níunda tímanum í gær. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu. Innlent 10.6.2024 10:25