Lögregla vopnaðist og skotvopn haldlagt Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 7. júlí 2024 10:48 Sérsveitarmenn á vettvangi í gær. aðsend Mennirnir tveir sem handteknir voru í tengslum við vopnamál í Rangárþingi ytra í gær eru lausir úr haldi. Hald hefur verið lagt á skotvopn en lögregla vill ekki staðfesta hvort skotum hafi verið hleypt af.
Líkt og greint var frá í gær voru tveir handteknir í aðgerðum lögreglu í Rangárþingi ytra í gær en lögregla naut aðstoðar sérsveitar ríkislögreglustjóra við aðgerðina. Í samtali við Vísi sagði ábúandi í Háfshverfi að nágrannar hans hefðu ógnað vinnumanni á gröfu með byssu og hleypt af skotum. Jón Gunnar Þórhallsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Suðurlandi, staðfestir að hinir handteknu séu nú lausir úr haldi. „Þetta snérist um erjur þarna á milli aðila og sérsveit kölluð til og lögregla vopnaðist, það er talað um vopn á vettvangi. Það voru tveir handteknir og vistaðir og í kjölfar yfirheyrslna voru þeir látnir lausir,” segir Jón Gunnar. Þetta hafi verið í gærkvöldi. Hann staðfestir að hald hafi verið lagt á skotvopn, en kveðst ekki geta sagt til um hvort skotum hafi verið hleypt af byssunni. „Það er bara til rannsóknar á þessu stigi og við getum ekkert staðfest það eins og er,” segir Jón Gunnar, sem að öðru leyti getur ekki veitt frekari upplýsingar um málið að svo stöddu. Fréttin hefur verið uppfærð.
Rangárþing ytra Lögreglumál Skotvopn Mest lesið „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ Innlent Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Innlent „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Innlent Einn í gæsluvarðhaldi vegna tengsla sinna við innbrotahrinu Innlent Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV Innlent Galið kerfi, hatur á samfélagsmiðlum og boltastemning í beinni Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Fleiri fréttir Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sjá meira