Orkumál
16 17 18 19 20 21 22 23 24 … 63 ›
Varaaflsvélar komnar til Grindavíkur Fyrstu tvær varaaflsvélarnar eru komnar til Grindavíkur. Sviðsstjóri rafmagnssviðs HS veitna segir þær hluta af undirbúning fyrir verstu sviðsmyndina ef til eldgoss kæmi og ekkert rafmagn né hiti kæmi frá Svartsengi. Innlent 6.11.2023 20:06
Svona var upplýsingafundur almannavarna vegna jarðhræringa Almannavarnir boða til upplýsingafundar í Björgunarmiðstöðinni í Skógarhlíð klukkan 15 vegna jarðhræringanna á Reykjanesinu. Innlent 6.11.2023 14:01
Með áætlanir gjósi í Svartsengi Kvikusöfnun heldur áfram nærri Svartsengi og Tómas Már Sigurðsson, forstjóri HS Orku, segir fyrirtækið með viðbragðsáætlun komi til eldgoss. Stjórnendur funduðu með almannavörnum í dag. Innlent 30.10.2023 23:53
HS Orka jók hlutafé um 5,6 milljarða til að kaupa virkjanir af tveimur fjárfestum Hlutafé HS Orku var aukið um 5,6 milljarða króna til að fjármagna kaup á tveimur vatnsaflsvirkjunum í Seyðisfirði en viðskiptin voru „að stærstum hluta“ fjármögnuð með eiginfjárframlagi frá hluthöfum orkuframleiðandans. Seljandi var Kjölur fjárfestingarfélag, sem er í eigu tveggja manna, en það seldi hlut sinn í GreenQloud fyrir um tvo milljarða króna árið 2017. Eigendur Kjalar stofnuðu skemmtistaðinn Sportkaffi rétt fyrir aldamót. Innherji 30.10.2023 14:55
Tinna er ný markaðsstýra Orku náttúrunnar Orka náttúrunnar hefur ráðið Tinnu Jóhannsdóttur í starf markaðsstýru fyrirtækisins og hefur hún nú þegar hafið störf. Þetta kemur fram í tilkynningu. Viðskipti innlent 27.10.2023 14:46
Áforma að selja Verne Global gagnaverin í heild sinni til að minnka skuldsetningu Breska fjárfestingafélagið Digital 9 Infrastructure, sem hefur verið í kröppum dansi vegna lausafjárerfiðleika og mikillar skuldsetningar, stefnir núna að því að selja alla eignarhluti sína í gagnverum undir hatti Verne Global, meðal annars starfsemina á Íslandi sem það keypti fyrir aðeins tveimur árum. Hlutabréfaverð breska innviðafjárfestingafélagsins hefur fallið í verði um liðlega sextíu prósent á einu ári og nýlega þurfti það að falla frá fyrri áformum sínum um arðgreiðslur til hluthafa. Innherji 27.10.2023 10:23
Daglegar árásir á orkukerfin úr rússneskum IP-tölum „Við verðum daglega vör við að reynt sé að komast inn,“ segir Halldór Halldórsson, öryggisstjóri Landsnets og formaður neyðarsamstarfs raforkufyrirtækja, um stöðugar tilraunir til netárása á raforkukerfið og aðra inniviði. Innlent 26.10.2023 06:27
Orkuúlfur snýr úr sauðagæru HS Orka verður seint talið fyrirtæki sem lætur sér annt um náttúruna, a.m.k. ekki hin síðari ár. Fyrirtækið fór vel af stað á síðustu öld með snyrtilegri jarðhitavirkjun og hitaveitu, en smitaðist síðan af græðgissótt þar sem stóriðju var lofað orku sem fyrirtækið átti í erfiðleikum með að skaffa. Skoðun 16.10.2023 07:00
Níunda gagnaver atNorth rís í Danmörku Nýtt gagnaver atNorth rís í Danmörku. Varmi frá gagnaverinu verður nýttur til að hita fjölda heimila á Kaupmannahafnarsvæðinu. Gagnaverið verður níunda gagnaver atNorth, en með þessari viðbót verður fyrirtækið með starfsemi í fjórum af Norðurlöndunum fimm. Viðskipti innlent 15.10.2023 15:31
Óviðkomandi fletti upp reikningum fimm þúsund viðskiptavina Veitna Öryggisbrestur varð í vefkerfi Orkuveitu Reykjavíkur sem varð til þess að óviðkomandi einstaklingur fletti upp orkureikningum fimm þúsund viðskiptavina Veitna. Orkuveita Reykjavíkur greinir frá þessu, en málið hefur verið tilkynnt til Persónuverndar og kært til lögreglu. Í tilkynningunni segir að málið sé litið alvarlegum augum. Viðskipti innlent 13.10.2023 11:04
Segir algjörlega ábyrgðarlaust að tala gegn aukinni orkuvinnslu Forstjóri Landsvirkjunar sakar þá sem tala gegn aukinni orkuvinnslu um algjört ábyrgðarleysi. Staðan í orkumálum sé grafalvarleg og landsmenn þurfi að gera sér grein fyrir því hvað orkuskortur þýði. Innlent 11.10.2023 21:00
Áform um tugi milljarða í arð ætti að vera stjórn OR „alvarlegt umhugsunarefni“ Áform Orkuveitu Reykjavíkur um að greiða út tugi milljarða í arð til eigenda sinna á næstu árum ætti að vera stjórn fyrirtækisins „alvarlegt umhugsunarefni“ með hliðsjón af versnandi afkomu og að blikur séu á lofti í efnahagsmálum, að sögn stjórnarmanns í OR. Tillaga hans um að fallið yrði frá arðgreiðslum að fjárhæð samanlagt 19 milljarðar á árunum 2024 til 2026 var felld af meirihluta stjórnar Orkuveitunnar. Innherji 11.10.2023 16:16
Gætum neyðst til að kaupa loftslagskvóta fyrir milljarða Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, segir að ef Íslendingar standi ekki við alþjóðlegar skuldbindingar sínar í loftslagsmálum fyrir árið 2030 gætu þeir neyðst til að kaupa loftslagsheimildir fyrir einn til tíu milljarða króna á ári. Þetta kom fram í ávarpi ráðherrans á haustfundi Landsvirkjunar í morgun. Innlent 11.10.2023 12:21
InstaVolt, brautryðjandi í hraðhleðslustöðvum, hefur opnað aðra hraðhleðslustöð sína á Íslandi Garðyrkjustöðin Friðheimar hefur nú gangsett fjögur sérlega hraðvirk 160 kW hleðslutæki við þennan geysi vinsæla ferðamannastað sem er algengur viðkomustaður þegar Gullni hringurinn er farinn. Samstarf 11.10.2023 12:21
Bein útsending: Haustfundur Landsvirkjunar - Leyfum okkur græna framtíð „Leyfum okkur græna framtíð“ er yfirskrift haustfundar Landsvirkjunar sem fram fer á Hilton Reykjavík Nordica í dag. Fundurinn hefst klukkan níu og verður hægt að fylgjast með í spilara að neðan. Viðskipti innlent 11.10.2023 08:30
Með samstilltu átaki getum við aukið orkuvinnslu Mikill samhljómur er í spám Landsvirkjunar og Landsnets um orkuþörf fram til ársins 2035. Við reiknum með að eftirspurnin vaxi um 6,5 TWst á þessum árum, en núverandi orkunotkun hérlendis nemur um 21 TWst á ári. Skoðun 10.10.2023 10:01
Orkuafrek næstu ára Orkuskiptin sem brenna á Íslendingum lúta fyrst og fremst að samgöngum, enda búum við svo vel að hafa fyrir löngu rafvætt heimili og fyrirtæki og varmaorku til húshitunar og annarra nota sækjum við víðast hvar í jarðvarma. Skoðun 9.10.2023 08:01
Þegar orkan er uppseld Öll starfsemi Landsvirkjunar miðast við það hlutverk að hámarka afrakstur af þeim orkulindum sem okkur er treyst fyrir, með sjálfbærni og hagkvæmni að leiðarljósi. Við höfum gert marga og misstóra samninga um afhendingu á orku sem taka mið af mögulegri orkuvinnslu í vinnslukerfinu okkar. Skoðun 7.10.2023 10:00
Vindorka í ósnortinni náttúru eða í byggð? Orkuskiptin eru fram undan og nokkuð ljóst er að vindorkuver munu rísa á Íslandi áður en langt um líður. Hingað til höfum við beislað vatnsaflið og jarðvarmann sem eru staðbundnir virkjanakostir. Þar beislum við orkuna þar sem hún er í iðrum jarðar eða rennur frá hálendinu út í sjó. Skoðun 7.10.2023 07:01
Leyfin og tíminn Ferli leyfisveitinga vegna orkuvinnslu er í ólestri. Afgreiðsla leyfa tekur allt of langan tíma. Eðlilegur eða æskilegur afgreiðslutími hefur sjaldnast verið skilgreindur fyrirfram og stofnun eða stjórnvaldi því nánast í sjálfsvald sett hversu langan tíma afgreiðslan tekur. Skoðun 6.10.2023 10:01
Skoða hvernig vetni nýtist í orkuskiptum Vetni gæti gegnt lykilhlutverki í orkuskiptum flutningabíla og skipa hérlendis, að því er fram kom á norrænni vetnisráðstefnu í Reykjavík. Vetnisvæðing kallar hins vegar á miklar fjárfestingar í innviðum. Innlent 6.10.2023 09:04
Kannaði sölukosti og færði sig til Orkusölunnar sem gerði tilboð Bæjarfulltrúi Akureyrarbæjar, sem lét í sumar af störfum sem framkvæmdastjóri Fallorku, kannaði fýsileika sölu á félaginu fyrir hönd bæjarins nokkru áður en hann var ráðinn til Orkusölunnar. Orkusalan, sem er beinn samkeppnisaðili Fallorku, falaðist innan þriggja vikna eftir viðræðum um kaup á Fallorku. Viðskipti innlent 6.10.2023 06:02
Breytingin er á hraða snigilsins Á afar skemmtilegum morgunverðarfundi í húsnæði Rafal í Hafnarfirði í síðustu viku var birt skýrsla KÍO um stöðu kvenna í íslenska orku- og veitugeiranum. Samkvæmt niðurstöðum skýrslunnar hefur lítil breyting verið á hlut kvenna í geiranum á síðastliðnum tveimur árum. Góðu fréttirnar voru hinsvegar að það voru tvöfalt fleiri kvenkyns en karlkyns framkvæmdastjórar á aldursbilinu 30 til 44 ára. Á heildina litið eru kvenkyns framkvæmdastjórar 38% í geiranum. Hægt er að lesa skýrsluna í heild sinni hér: Úttekt á stöðu kvenna í íslenska orku- og veitugeiranum Skoðun 5.10.2023 12:30
Fagnar gjaldinu en hefur áhyggjur af hnignandi rafbílaeftirspurn Framkvæmdastjóri FÍB, Félags íslenskra bifreiðaeigenda, segist fagna áformum fjármálaráðherra um kílómetragjald rafmagns- og vetnisbíla en að þau hefðu mátt vera betur útfærð. Þá segist hann hafa áhyggjur af því að gjaldið gæti komið niður á áhuga landsmanna á rafmagnsbílum. Innlent 4.10.2023 18:37
Sex krónu kílómetragjaldi komið á um næstu áramót Áform fjármálaráðherra um frumvarp um kílómetragjald á bílanotkun gerir ráð fyrir að sex krónu kílómetragjaldi verði komið á rafmagns- og vetnisbíla á næsta ári. Þannig sé áætlað að eigandi rafmagnsbíls sem ekur sömu vegalengd muni greiða sama gjald fyrir afnot af vegakerfinu og sá sem ekur bensínbíl. Tengiltvinnbílar munu hins vegar greiða tveggja krónu kílómetragjald á næsta ári. Kílómetragjald á bensín- og díselbíla verður komið á í ársbyrjun 2025. Neytendur 4.10.2023 11:38
Bjóða almenningi á þvernorrænt hakkaþon um framtíð hafsvæða Íslenski sjávarklasinn skipuleggur „hakkaþon“ næstu daga þar sem einstaklingar hvaðanæva af Norðurlöndum koma saman til að þróa sjálfbæra leið til að deila hafsvæðum. Að sögn framkvæmdastjóra Sjávarklasans kann að vera stutt í að stjórnvöld þurfi að meta hvernig svæðum á hafinu verði ráðstafað. Almenningi er boðið á föstudag kl. 17:00 að berja afrakstur hakkaþonsins augum. Viðskipti innlent 4.10.2023 06:46
Eigandi Verne Global í kröppum dansi og söluferli gagnavera dregst á langinn Hlutabréfaverð breska fjárfestingarfélagsins Digital 9 Infrastructure, sem rekur meðal annars Verne Global á Íslandi, hrundi um nærri 40 prósent þegar ljóst varð að það myndi ekki standa við áform um arðgreiðslu til hluthafa vegna lausafjárþurrðar og mikillar skuldsetningar og að söluferli á hlutum í gagnaverunum myndi tefjast. Nokkur óskuldbindandi tilboð hafa borist í Verne Global sem verðmeta gagnaver félagsins nálægt bókfærðu virði, eða samtals jafnvirði liðlega 90 milljarða króna. Innherji 3.10.2023 11:42
Lilja ráðin deildarstjóri Auðlindastýringar HS Orku Lilja Magnúsdóttir hefur tekið við stöðu deildarstjóra Auðlindastýringar HS Orku. Hún var áður yfirforðafræðingur HS Orku og hefur starfað hjá fyrirtækinu frá 2020. Viðskipti innlent 2.10.2023 07:40
Kísildalir norðursins Við erum stödd í norður Kaliforníu, nánar tiltekið í útjaðri San Fransisco. Sólin skín hátt á himni og um leið og bíllinn silast um borgina glampar á merki þeirra fjölda fyrirtækja sem hafa skotið rótum, vaxið og dafnað á staðnum sem er hvað þekktastur fyrir nýsköpun í heiminum: Kísildalurinn sjálfur. Skoðun 1.10.2023 07:31
Birta Kristín fengin til að leiða orkusvið Eflu Birta Kristín Helgadóttir hefur tekið við stöðu sviðsstjóra Orku hjá Eflu og tekur þar með sæti í framkvæmdastjórn félagsins. Orkusvið er eitt af fjórum kjarnasviðum fyrirtækisins og telur yfir þrjátíu sérfræðinga. Viðskipti innlent 28.9.2023 12:44