

Magnús Gottfreðsson sérfræðingur í smitsjúkdómum segir að viðkvæmir hópar og framlínufólk ætti alls staðar að vera í forgangi þegar bólusetningar við kórónuveirunni hefjast að lokum.
Meira en 200 bóluefni við sjúkdómnum Covid-19 eru nú í þróun á heimsvísu en átta þeirra eru á lokastigi prófana.
Miklar vonir eru bundnar við bóluefni gegn Covid-19 og að þegar það komi á markað verði líf okkar líkara því sem það var fyrir faraldurinn. Þúsundir taka þátt í rannsóknum og prófunum á bóluefnum og ferli sem vanalega tekur allt að tíu ár eða meira á aðeins að taka mánuði nú.
Íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að taka þátt í samkomulagi sem Norðmenn hafa gert um þátttöku í samstarfi ríkja um að tryggja öllum þjóðum aðgang að bóluefni við COVID-19 (COVAX).
Lyfjaframleiðandinn AstraZeneca hefur fengið leyfi frá breskum heilbrigðisyfirvöldum til að halda áfram tilraunum sínum með bóluefni gegn Covid-19 sjúkdómnum.
Enginn getur vitað fyrir víst hvaðan fyrsta örugga og áhrifaríka bóluefni gegn kórónuveirunni mun koma. Þetta segir Jeremy Farrar, einn helsti sérfræðingur Breta í smitsjúkdómum.
Lyfjarisinn AstraZeneca hefur nú frestað tímabundið lokaprófunum á bóluefni fyrir kórónuveirunni.
Kvensjúkdómalæknir mælir með að ungar stúlkur séu bólusettar við HPV-veirunni, því bólusetningin geti veitt þeim nánast fullkomna vörn. Það sé hins vegar lykilatriði að konur mæti í skimun fyrir leghálskrabbameini þegar þær fá boðun í hana.
Allir þátttakendur í frumtilraunum með bóluefni sem rússnesk stjórnvöld samþykktu í síðasta mánuði mynduðu mótefni gegn Covid-19 án alvarlegra aukaverkana samkvæmt niðurstöðum sem breska læknaritið Lancet birti í dag.
Yfirlæknir ónæmisdeildar á Landspítalanum segist bjartsýnn á að bóluefni við kórónuveirunni verði aðgengilegt hér á landi um áramótin.
Um er að ræða stærsta sigurinn á sviði lýðheilsu í Afríku frá því að tókst að útrýma bólusótt. Þannig lýsir Alþjóðaheilbrigðisstofnunin (WHO) því að nú hafi tekist að útrýma mænusótt í öllum ríkjum Afríku.
Vísindamenn eru sumir hverjir undrandi yfir tilkynningu Vladimírs Pútín Rússlandsforseta um það að heilbrigðisyfirvöld í landinu hafi lagt blessun sína yfir bóluefni gegn kórónuveirunni sem þróað var í Rússlandi.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra tilkynnti um 500 milljóna króna framlag Íslands á ráðstefnu bólusetningarbandalagsins Gavi í gær.
Hefðbundnar bólusetningar barna hafa raskast víðs vegar um heiminn í yfirstandandi heimsfaraldri. Kallað er eftir átaki til að koma nauðsynlegum bólusetningum aftur í réttan farveg.
Bóluefnissérfræðingur og yfirmaður Jenner-stofnunarinnar við hinn breska Oxford-háskóla segir aðeins helmingslíkur á því að bóluefni sem stofnunin þróar nú við nýju kórónuveirunni virki sem skyldi.
Bóluefnið verður að vera aðgengilegt fyrir alla. Við getum ekki látið stöðuna verða þá að eingöngu þau ríku geti verið bólusett vegna þess að eitt fyrirtæki eigi réttinn að framleiðslu bóluefnisins,“ sagði Andrew Cuomo, ríkisstjóri New York á blaðamannafundi sínum vegna faraldurs kórónuveirunnar.
Vísindamenn við Oxford háskólann í Bretlandi gáfu í dag sjálfboðaliðum tilraunabóluefni gegn Covid-19, sjúkdómnum sem nýja kórónuveiran veldur.
Bóluefni gegn kórónuveirunni er í hraðri þróun. Þá gæti viðurkennt lyf gegn Covid-sjúkdóminum breytt viðbúnaði yfirvalda vegna veirunnar. Það færi þó eftir niðurstöðum úr mótefnamælingu í stóru þýði þjóðar.
Besti tennisleikari heims er á móti bólusetningum. Hann segist þó þurfa að hugsa sinn gang ef bólusetningar verða gerðar að skilyrði fyrir því að keppni geti hafist á ný.
Þetta kom fram í máli Sigríðar Dóru Magnúsdóttur, framkvæmdastjóra lækninga hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins á upplýsingafundi almannavarna í dag.
Um áttatíu manns hafa greinst með inflúensu frá byrjun október og þrír voru lagðir inn á sjúkrahús í desember vegna hennar.
Talsmenn yfirvalda á Samóaeyjum segja að tekist hafi að ná stjórn á mislingafaraldrinum sem herjað hefur á íbúa eyjanna síðustu vikur.
Rúmlega 140 þúsund manns dóu vegna mislinga í fyrra. Það er umtalsverð hlutfallsleg hækkun á milli ára en flestir hinna látnu voru börn undir fimm ára aldri.
Nærri öll sem hafa látist eru börn yngri en fjögurra ára.
Mislingafaraldur gengur nú á eyjunum en tilkynnt hefur verið um hundruð sýktra á hverjum degi síðustu daga.
Þýsk stjórnvöld hafa gert bólusetningar gegn mislingum að skyldu.
Hver kannast ekki við að finna fyrir kuldahrolli, slappleika, beinverkjum, oftsinnis höfuðverk og vita þá að það er eitthvað í aðsigi, maður er að verða lasinn!
Bólusetningar eru fórnarlömb eigin velgengni og það snjóar smám saman yfir minninguna um þessa hryllilegu sjúkdóma sem eitt sinn voru algengir.
Matt Hancock, heilbrigðisráðherra Bretlands, segir að vel komi til greina að setja lög sem skylda foreldra til að bólusetja börn sín. Þetta sagði hann á landsþingi Íhaldsflokksins, sem fram fer í Manchester.
Fullorðinn einstaklingur sem búsettur er á höfuðborgarsvæðinu greindist með mislinga fyrir nokkrum dögum.