Eldgos og jarðhræringar
86 87 88 89 90 91 92 93 94 … 132 ›
Göngufólki hleypt af stað inn í Geldingadal Lörgeglustjórinn á Suðurnesjum hefur ákveðið að opna aðgengi að gosstöðvunum í Geldingadal. Veðurskilyrði fara batnandi og fylgist Veðurstofa Íslands með veðrinu í rauntíma þökk sé veðurstöð sem komið hefur verið upp í dalnum. Unnið er að því að efla rauntímamælingar á gasi við hraunjaðra. Innlent 24.3.2021 11:16
Ekki ljóst fyrr en um ellefuleytið hvort gossvæðið verði opnað Þeir sem höfðu áhuga á því að sækja gösstöðvarnar á Reykjanesi heim í dag þurfa að bíða eftir niðurstöðu samráðsfundar sem hefst klukkan tíu. Þetta staðfestir Davíð Már Bjarnason upplýsingafulltrúi Slysavarnafélagsins Landsbjargar við Vísi. Innlent 24.3.2021 09:58
Kröftugra rennsli í öðrum af litlu gígunum tveimur Sigþrúður Ármannsdóttir, náttúruvársérfræðingur á Veðurstofu Íslands, segir að hvorki hafi opnast ný sprunga á eldstöðvunum í Geldingadal né nýr gígur. Innlent 24.3.2021 06:33
Enginn skjálfti mælst stærri en 3 á síðustu 48 tímum Á síðustu 48 klukkustundum hafa 332 skjálftar mælst á landinu en enginn stærri en 3. Níu skjálftar hafa mælst á bilinu 2 til 3 og 105 á bilinu 1 til 2. Þá hafa 218 mælst minni en 1. Innlent 23.3.2021 23:13
Gosið aldrei sést jafnvel frá Hafnarfirði Eldgosið í Geldingadal sést óvenjuvel frá höfuðborginni í kvöld. Náttúruvársérfræðingur segir engin merki um að gosið hafi aukist. Skyggni og veðurskilyrði í kvöld séu einfaldlega betri en síðustu daga en þó geti verið að minni gígarnir tveir hafi sameinast í einn. Innlent 23.3.2021 22:02
„Þarna var rassinn á mér gjörsamlega að grillast“ Sveinn Snorri Sighvatsson hefur vakið athygli á samfélagsmiðlum síðustu daga eftir að hann reif sig úr öllum fötunum og sat fyrir nakinn – beint fyrir framan glóandi hraunið í Geldingadal. Lífið 23.3.2021 20:02
Aðsóknin alltof mikil miðað við skipulagið Vel hefur gengið að rýma gossvæðið í Geldingadal nú síðdegis, að sögn aðalvarðstjóra á Suðurnesjum. Hann segir óvíst hvort svæðið verði opið almenningi á morgun en ljóst sé að ráðast verði í breytingar á skipulagi. Dagurinn í dag hafi ekki gengið upp. Innlent 23.3.2021 18:55
Myndband af bílaröðinni svakalegu á Suðurstrandarvegi Það er óhætt að segja að margir hafi ákveðið að skella sér að gosstöðvunum í Geldingadal í dag. Og flestir komu á bíl. Innlent 23.3.2021 16:15
Ofan í auga gígsins Hundruð ef ekki þúsundir lögðu leið sína til Grindavíkur í dag og áfram Suðurstrandarveginn í átt að gosstöðvunum. Göngufólk hefur upplifað sólskin og haglél en áfram kraumar í gígnum í Geldingadal. Innlent 23.3.2021 16:08
Ótrúlegt að dróninn hafi lifað þetta af Myndir og myndbönd frá gosinu á Reykjanesskaga hafa vakið mikla athygli síðustu daga, bæði hér á landi og langt út fyrir landsteinana. Björn Steinbekk hefur farið tvær ferðir til að mynda gosið. Lífið 23.3.2021 15:29
Rýma Geldingadal: Gasmengun í dældum gæti nálgast lífshættuleg gildi Nágrenni eldgossins í Geldingadal verður rýmt klukkan 17:00 í dag en Veðurstofan varar við því að hættulegar gastegundir geti safnast fyrir í lægðum og dældum þegar veður lægir. Styrkur gassins þar gæti verið lífshættulegur. Innlent 23.3.2021 15:06
Frumstæðasta kvika sem komið hefur upp í 7000 ár Magnús Tumi Guðmundsson, prófessor í jarðeðlisfræði, segir niðurstöður rannsókna á hraunsýnum úr eldgosinu í Geldingadal mjög athyglisverðar og spennandi. Innlent 23.3.2021 12:06
Löng bílaröð á slóðum gossins Fallegt veður er á suðvesturhorninu í dag og greinilega fjölmargir sem ætlað að nota daginn til að heimsækja gösstöðvarnar við Fagradalsfjall. Innlent 23.3.2021 10:50
Ætti að vera í lagi að fara að gosstöðvunum fyrri part dags Eins og veðurspáin er núna þá ætti að vera í lagi að fara að gosstöðvunum fyrri partinn í dag en ekki er mælt með því að fólk sé mikið á ferðinni seinni partinn í dag, það er eftir klukkan fjögur, eða þá að leggja af stað seinni partinn að svæðinu vegna hættu á gasmengun. Innlent 23.3.2021 09:02
Birta hitamynd af sólarhringsgömlu gosi Veðurstofa Íslands birtir á Facebook-síðu sinni í morgun hitamynd af eldgosinu í Geldingadal sem tekin var rúmum sólarhring eftir að það hófst, það er á laugardagskvöldið 20. mars klukkan 22:38. Innlent 23.3.2021 08:14
Fljúga yfir gosstöðvarnar til að meta umfang hraunsins og hraunflæðið Eldgosið í Geldingadal er enn í fullum gangi. Á móti hefur dregið mjög úr skjálftavirkni á svæðinu sé miðað við það sem var í aðdraganda gossins en það hófst á föstudagskvöld. Innlent 23.3.2021 06:52
„Ógleymanlegur morgunn“ ljósmyndarans Ara Magg við gosið Ljósmyndarinn Ari Magg er á meðal þeirra sem lögðu leið sína að eldgosinu um helgina. Þó að gosið í Geldingadal sé ekki stórt þá nást af því stórkostlegar myndir. Lífið 23.3.2021 06:00
Fyrsta gervihnattarmyndin sem sýnir gosið að degi til Fyrsta gervihnattarmyndin sem tekin er að degi til af eldgosinu í Geldingadal, þar sem skýjahula er ekki fyrir gosinu, hefur verið birt. Innlent 23.3.2021 00:19
Ættu að geta farið nýstikuðu leiðina á einum og hálfum tíma Björgunarsveitin Þorbjörn hefur lokið við að stika gönguleið að gosstöðvunum í Geldingadal. Gönguleiðin hefst við Suðurstrandarveg og sveitin segir að vel búið göngufólk geti farið hana á einum og hálfum klukkutíma. Innlent 22.3.2021 22:57
Aðstoðuðu á annað hundrað manns í gærkvöldi og í nótt Þrátt fyrir lokanir björgunarsveita og lögreglu að eldgosinu reyndi fólk að komast að svæðinu í dag. Björgunarsveitir og lögregla aðstoðuðu vel á hundrað manns sem reyndu að berja eldgosið augum í gærkvöldi og í nótt. Fjörutíu leituðu á fjöldahjálparstöð í Grindavík. Innlent 22.3.2021 20:24
Opna Suðurstrandarveg með takmörkunum í kvöld Suðurstrandarvegur verður opnaður með takmörkunum í kvöld mánudaginn 22. mars en vegurinn hefur staðið lokaður síðan á fimmtudag, degi áður en eldgos hófst í Geldingadal. Innlent 22.3.2021 18:41
Stika langstystu leiðina inn á gossvæðið Björgunarsveitarmenn eru þessa stundina að hefjast handa við að stika gönguleið frá Suðurstrandarvegi upp að Nátthagakrika sem er talin vera besta leiðin inn á gossvæðið í Geldingadal. Innlent 22.3.2021 16:38
Grillað brauð, hjólreiðafólk og þjóðhátíðarstemning við gosið Mikill mannfjöldi var við eldgosið í Geldingadal við Fagradalsfjall þegar Vilhelm Gunnarsson fréttaljósmyndari Vísis leit þar við í gær. Lífið 22.3.2021 14:30
Vaknaði í Grindavík og fattaði að líklega væri verið að leita að honum Daniel Höhne, þýskur karlmaður búsettur á Íslandi, er eigandi bíls sem fannst mannlaus austan við Grindavíkurveg til móts við Bláa lónið í morgun. Hann lagði upp í göngu klukkan tólf á hádegi á sunnudag og í stað þess að fara aftur að bíl sínum ákvað hann að gista í Grindavík og sækja bílinn daginn eftir. Innlent 22.3.2021 10:51
Hleypa þurfi fólki nær og stika leiðina Tómas Guðbjartsson, hjartalæknir og útvistarmaður, segir mikilvægt að auðvelda fólki aðgang að eldgosi á borð við það sem hófst í Geldingadal á föstudaginn. Auðvitað verði að virða lokun nú þegar veður er vont og hætta á gasmengun en í framhaldinu þurfi að hugsa strax í hvaða farveg eigi að beina straumi fólks svo gróðurinn verði ekki fyrir skakkaföllum. Innlent 22.3.2021 10:27
Maðurinn fundinn sem leitað var að við gosstöðvarnar Maður sem leitað hefur verið í nágrenni gosstöðvanna í Geldingadal er fundinn. Þetta segir Davíð Már Bjarnason, upplýsingafulltrúi Landsbjargar í samtali við Vísi. Innlent 22.3.2021 10:01
Þyrla Gæslunnar kölluð út til leitar Lögreglan á Suðurnesjum óskaði eftir aðstoð þyrlu Landhelgisgæslunnar upp úr klukkan hálfátta í morgun til að aðstoða við leit að fólki í nágrenni gosstöðvanna í Geldingadal. Innlent 22.3.2021 08:38
„Fólk var að koma niður örmagna og að detta í ofkælingarástand“ Rúmlega 140 björgunarsveitarmenn tóku þátt í aðgerðum á Suðurnesjum í nótt vegna fólks sem hafði farið að gossvæðinu í Geldingadal og lent í miklum vandræðum þegar veður tók að versna. Innlent 22.3.2021 06:44
Svæðinu við gosið lokað vegna gasmengunar Við mælingar í morgun kom í ljós að gasmengun er á gossvæðinu í Geldingadal og er mælingin komin upp fyrir hættumörk. Innlent 22.3.2021 06:29
Útsýni úr tjaldinu yfir gosstöðvarnar Aðfaranótt sunnudags lögðu margir leið sína að gosstöðvunum í Geldingardal. Svæðið er sérlega erfitt yfirferðar í myrkri og gangan oft upp í móti svo hún getur tekið á. Þá gerði þokan í nótt mörgum erfitt fyrir. Innlent 21.3.2021 23:44