Ferðaþjónusta

Níu milljóna tap Hótels 1919
Eignarhaldsfélagið Hótel 1919, sem rekur hótel undir nafni Radisson Blu við Pósthússtræti, skilaði um níu milljóna króna tapi í fyrra borið saman við hagnað upp á tæplega 38 milljónir króna á árinu 2016.

Hafa ekki upplýsingar um umfang skattaundanskota í ferðaþjónustu
Skattrannsóknarstjóri býr ekki yfir upplýsingum um umfang þeirra fjármuna sem ríkissjóður verður af vegna skattaundanskota í ferðaþjónustu í gegnum erlendar bókunarsíður.

TripAdvisor kaupir Bókun ehf.
Ferðaþjónustusíðan TripAdvisor hefur keypt íslenska fyrirtækið Bókun ehf., sem framleiðir hugbúnað fyrir ferðaþjónustu. TripAdvisor er stærsta alþjóðlega síðan á þessu sviði og hefur meira en 300 milljón notendur um allan heim.

Þróa leiðir til gjaldtöku og geta fylgst með átroðningi um leið
Íslenskt fyrirtæki þróar kerfi sem sinnir gjaldtöku og fylgist með álagi á einstökum svæðum. Staðarhaldarar geta þannig miðað gjaldtöku við ásókn. Ráðherra segir þjónustugjöld sjálfsögð en mikilvægt sé að virða almannarétt.

Nýjar leiðir við að skjóta undan skatti
Ferðaþjónustan notar erlendar bókunarsíður og erlenda posa til að komast hjá tekjuskráningu. Eftirlit Ríkisskattstjóra oft erfiðleikum bundið. Málum hefur verið vísað til Skattrannsóknarstjóra.

Svifið yfir Íslandi án þess að færa sig úr stað
Innan skamms geta Íslendingar og ferðamenn notið þess að fljúga lágflug yfir íslensk víðerni og náttúru án þess að færa sig úr. Farþegar munu finna fyrir hreyfingum þyrlu sem flýgur yfir landið og sérstakar tæknibrellur sjá um vind, lykt, þoku og raka til að auka enn frekar á upplifunina.

Ferðalangarnir þakklátir eftir hrakfarirnar í Botnsfjalli
Ferðalangarnir tveir, sem bjargað var úr hlíðum Botnsfjalls á sunnudag, eru gríðarlega þakklátir björgunarsveitarmönnum og þyrluflugmönnum Landhelgisgæslunnar sem komu þeim til aðstoðar.

Hvalveiðar gætu vakið alvarleg viðbrögð
Hvalur hf. stefnir á veiðar á stórhvelum í sumar eftir tveggja ára hlé.

Icelandair hótel kaupa Hótel Öldu við Laugaveg
Eftir kaupin eru hótelin í rekstri Icelandair hótela þrettán talsins.

Dvínandi Íslandsáhugi á Google gæti skilað sér í færri ferðamönnum
Í greiningu íslenska vefmarkaðsfyrirtækisins The Engine var kannað hvort gögn frá leitarvélum gætu verið sannspá um ferðamannastraum til Íslands. Áhugi á tilteknu fyrirbæri er gjarnan mældur með því hversu oft það er slegið inn í leitarvélar á netinu.

60 milljón króna tilboð í Hítará
Opnað var fyrir tilboð í Hítará á Mýrum um helgina en alls skiluðu fimm aðilar inn tilboðum í ána.

Þyrla Landhelgisgæslunnar bjargaði ferðamönnum úr sjálfheldu í nótt
Tveimur erlendum ferðamönnum var bjargað úr sjálfheldu í hlíðum Botnfjalls.

Spá verulegri fjölgun skemmtiferðaskipa til landsins
Faxaflóahafnir gera ráð fyrir 167 komum skemmtiferðaskipa til landsins í ár, þar af 14 á Akranesi.

Nýtt 72 herbergja hótel kom með skipi til landsins
Vörubílar með löngum vögnum höfðu það hlutverk að flytja einingarnar frá bryggjunni í Þorlákshöfn til Víkur. Í Vík er einingunum raðað saman eins og kubbum og útkoman verður Hótel Kría.

Opna aftur göngustíg niður að Gullfossi
Neðri stígurinn við Gullfoss hefur verið lokaður undanfarnar vikur en opnar aftur kl.9 í dag.

Stefna á lokun í Reykjadal fram í miðjan maí
Umhverfisstofnun leggur til að lokað verði fyrir aðgang ferðamanna að Reykjadal næstu fjórar vikurnar. Göngustígnum í Reykjadal var lokað þann 31. mars vegna aurbleytu.

Endurbætur á Þingvallavegi tefjast eftir kröfu um umhverfismat
Landvernd hefur kært úrskurð Skipulagsstofnunar vegna endurbóta á Þingvallavegi.

Brugga fyrsta tómatbjórinn
"Það kom upp hugmynd í vetur og okkur langaði að taka hana skrefinu lengra og brugga bjór,“ segir Knútur Rafn Ármannm garðyrkjubóndi og eigandi Friðheima.

Á annan tug milljarða í neðanjarðarhagkefinu vegna Airbnb
Vöxtur í gistiþjónustu á Íslandi er að stórum hluta drifinn áfam af AirBnB sem að mestum hluta fer fram í neðanjarðarhagkerfinu og skilar því ekki sköttum og gjöldum til ríkis og sveitarfélaga.

Ferðaþjónustan viðkvæm fyrir áföllum í efnahagi annarra ríkja
Mikilvægi bandarískra ferðamanna fyrir íslenska ferðaþjónustu hefur aukist umtalsvert á síðastliðnum árum. Ferðaþjónustan er viðkvæm fyrir áföllum í efnahagi annarra ríkja

Mesti vöxturinn er í Airbnb
Vöxtur ferðaþjónustunnar er aðallega í deilihagkerfinu gegnum Airbnb samkvæmt nýrri skýrslu Íslandsbanka. Airbnb er með fjórðung af gistimarkaðnum. Teymi bankans á sviði ferðaþjónustu reiknar með minni fjárfestingu í hótelum á næstu fjórum árum.

Ísland líklega dýrasti áfangastaður í heimi
Verðlag á Íslandi er 28 prósent hærra en annars staðar á Norðurlöndunum að meðaltali.

Bein útsending: Staða íslenskrar ferðaþjónustu
Staða íslenskrar ferðaþjónustu verður til umfjöllunar á morgunfundi Íslandsbanka í dag 11. apríl þar sem ný skýrsla Íslandsbanka verður kynnt.

Tíu tekjuhæstu á Airbnb veltu 1.300 milljónum
Leiguvefurinn Airbnb er orðinn næstumfangsmesta gistiþjónusta landsins með um 30 prósenta hlutdeild. Gistinóttum á vegum Airbnb fjölgaði um 1,6 milljónir í fyrra. Tíu tekjuhæstu leigusalarnir veltu samtals 1,3 milljörðum króna.

Segja aðra flugvelli en í Keflavík vera vanrækta
Vinna þarf að markvissari stýringu á dreifingu ferðmanna til að verja náttúruna, bæta upplifun gesta og heimamanna og skapa atvinnugreininni skýrari ramma. Fjölgun flugferða um aðra flugvelli en Keflavík er mikilvæg að mati þingmanna.

Ferðamenn á Íslandi í æ meira mæli ósáttir við fjölda ferðamanna
Nýjustu tölur frá vinsælum ferðamannastöðum hér á landi sýna að 30-55 prósent ferðamanna þykir fjöldi ferðamanna of mikill.

Framlengja lokun á Skógaheiði
Svæðið er mjög illa farið og Umhverfisstofnun telur ekki raunhæft að opna það að svo stöddu.

Fleiri tekjuháir nýta sér Airbnb
Tekjuháir ferðamenn nýta sér leiguvefinn Airbnb í síauknum mæli. Fyrir fáeinum árum gistu aðallega tekjulægri ferðamenn í Airbnb-íbúðum. Viðsnúningurinn hefur verið hraður, að sögn hagfræðings.

Eigendur Kersins hagnast um nærri 60 milljónir
Hagnaður Kerfélagsins, eiganda Kersins í Grímsnesi, var ríflega 58 milljónir króna í fyrra og næstum tvöfaldaðist frá árinu 2016 þegar hann var 30 milljónir.

Algengt að fararstjórar hafi ekki þekkingu á staðarháttum
Sífellt algengara er að ferðaskrifstofur sendi erlenda fararstjóra, sem hafa enga þekkingu á staðarháttum, til Íslands með hópa af ferðamönnum.