

Bandarískar leyniþjónustustofnanir sökuðu Írani um að standa að baki tölvupósta sem voru sendir kjósendum í nokkrum ríkjum og virtust eiga að ógna þeim til að kjósa Donald Trump forseta. Telja þær að bæði Rússar og Íranir hafi komist yfir gögn um kjósendur.
Barack Obama fyrrverandi forseti Bandaríkjanna kom fram á kosningafundi í Pennsylvaníu í gær þar sem hann fór hörðum orðum um eftirmann sinn í Hvíta húsinu, Donald Trump.
Donald Trump Bandaríkjaforseti er enn með bankareikning í Kína þar sem hann hefur reynt að landa viðskiptasamningum í gegnum tíðina. Forsetinn hefur ekki gefið upp bankareikninginn í opinberri hagsmunaskráningu sinni en upplýsingar um hann er að finna í skattskýrslum hans.
Donald Trump, Bandaríkjaforseti, hefur kallað eftir því að hinn umdeildi dómsmálaráðherra William Barr hefji rannsókn á Joe Biden, mótframbjóðanda Trump og syni hans Hunter Biden.
Kappræður Donalds Trump Bandaríkjaforseta og Joes Biden keppinautar hans í forsetakosningunum fara fram á fimmtudaginn kemur.
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, sagði í dag að Anthony Fauci, sóttvarnalæknir, og aðrir heilbrigðissérfræðingar í ríkisstjórn hans væru fífl.
Starfsmenn bandaríska götublaðsins New York Post eru sumir sagðir fullir efasemda um trúverðugleika gagna og heimildarmanna umfjöllunar þess um son Joe Biden, forsetaframbjóðanda demókrata, í síðustu viku.
Veikindi Donalds Trump Bandaríkjaforseta af völdum kórónuveirunnar komu Anthony Fauci, helsta sóttvarnasérfræðingi Bandaríkjastjórnar, ekki ögn á óvart eftir að hann sé Trump taka þátt í viðburði í Hvíta húsinu þar sem sóttvarnatilmæli voru virt að vettugi.
Lara Trump, tengdóttir Donalds Trump Bandaríkjaforseta, segir hann bara hafa verið að gantast á kosningafundi í gær, þar sem hann virtist styðja það að handtaka ætti Gretchen Whitmer, ríkisstjóra Michigan. Rúm vika er síðan Alríkislögregla Bandaríkjanna opinberaði að ráðabrugg hægri öfgamanna um að ræna Whitmer, rétta yfir henni fyrir landráð og myrða hana.
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, og Joe Biden, mótframbjóðandi hans, svöruðu spurningum kjósenda í sjónvarpssal í gærnótt.
Bandaríska alríkislögreglan FBI er sögð rannsaka hvort að tölvupóstar sem persónulegur lögmaður Donalds Trump Bandaríkjaforseta lét götublaði í té séu hluti af upplýsingahernaði Rússa í aðdraganda kosninga í næsta mánuði.
Þeir Donald Trump, Bandaríkjaforseti, og Joe Biden, forsetaframbjóðandi, mættust ekki í kappræðum í gær eins og til stóð. Þrátt fyrir það voru þeir þó báðir að svara spurningum í sjónvarpi á sama tíma en á mismunandi sjónvarpsstöðvum.
Hlutabréf skotvopnaframleiðenda í Bandaríkjunum hafa hækkað síðustu vikur, að því er virðist í takti við auknar vinsældir Joes Biden.
Leyniþjónustur Bandaríkjanna vöruðu Hvíta húsið við því í fyrra að ráðamenn í Rússlandi væru að nota Rudy Giuliani, einkalögmann Donald Trump, forseta, til að miðla fölskum upplýsingum og áróðri til forsetans.
Donald Trump, Bandaríkjaforseti, og Joe Biden, forsetaframbjóðandi Demókrata, sátu báðir fyrir svörum í beinni útsendingu á sitthvorri bandarísku sjónvarpsstöðinni í gær.
Kamala Harris, varaforsetaefni Demókrataflokksins, aflýsti kosningaviðburðum fram yfir helgi í varúðarskyni eftir að einn nánasti ráðgjafi hennar greindist smitaður af kórónuveirunni. Sjálf greindist Harris ekki smituð í gær en hún fer í aðra sýnatöku í dag.
Aðgangi framboðs Donalds Trump Bandaríkjaforseta á samfélagsmiðlinum Twitter var lokað tímabundið eftir að það deildi myndbandi um Joe Biden, mótframbjóðanda forsetans, sem stjórnendur Twitter töldu brjóta notendaskilmála miðilsins.
Þeir Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, og Joe Biden, mótframbjóðandi hans, munu keppa um áhorfendur í nótt, í stað þess að mætast í kappræðum eins og upprunalega stóð til. Báðir munu þeir svara spurningum kjósenda á sitthvorri sjónvarpsstöðinni og á sama tíma.
Samfélagsmiðlarisarnir Facebook og Twitter takmörkuðu deilingar á vafasamri frétt bandarísks götublaðs um Joe Biden, forsetaframbjóðanda Demókrataflokksins, í dag. Talsmaður Facebook segir miðilinn hægja á dreifingu fréttarinnar á meðan staðreyndavaktarar meti sannleiksgildi hennar.
John Bash, saksóknarinn sem William Barr, dómsmálaráðherra Bandaríkjanna, skipaði til að rannsaka hvort að embættismenn í forsetatíð Barack Obama hefðu brotið af sér í starfi varðandi mál Michael Flynn, hefur lokið rannsókn sinni.
Joe Biden, forsetaframbjóðandi Demókrata, fór hörðum orðum um Donald Trump, Bandaríkjaforseta, og viðbrögð hans við kórónuveirufaraldrinum á kosningafundi sem hann hélt með eldri borgurum í Flórída í gær.
Amy Coney Barrett, sem Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur tilnefnt til Hæstaréttar landsins, neitaði í dag að svara spurningu um hvað henni þætti um dómafordæmi sem veitir bandarískum konum rétt til þungunarrofs og hvort fella ætti það fordæmi úr gildi.
Kjósendur í Bandaríkjunum hafa nú þegar greitt rúmlega tíu milljónir atkvæða í komandi kosningum sem fram fara í nóvember.
Donald Trump, Bandaríkjaforseti, mætti á kosningafund í Flórída í gær, tæpum tveimur vikum eftir að hann greindist með kórónuveiruna sem veldur sjúkdómnum Covid-19.
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, stefnir að því að endurræsa framboð sitt til endurkjörs á komandi dögum. Frestur forsetans til að ná tökum á kosningabaráttunni við Joe Biden, sem hefur vaxið ásmegin í könnunum, er að renna út.
Amy Coney Barrett, sem Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur tilnefnt í Hæstarétt Bandaríkjanna mun síðar í dag mæta fyrir þingnefnd í öldungadeildinni og svara þar spurningum þingmanna sem eiga síðan að ákveð hvort hún sé hæf til starfans.
Donald Trump segir að staðfesting lækna hans á því að hann sé ónæmur gagnvart Covid-19 eftir kórónuveirusmit geri það að verkum að hann geti aftur farið á fullt í kosningabaráttunni fyrir forsetakosningarnar í næsta mánuði.
Sean Conley, læknir Donalds Trump Bandaríkjaforseta, hefur gefið út minnisblað þar sem hann greinir frá því að hann telji forsetann ekki lengur eiga á hættu að smita aðra af kórónuveirunni.
Joe Biden og Donald Trump munu ekki mætast í netkappræðum næstkomandi fimmtudag.
Donald Trump, Bandaríkjaforseti, fór mikinn í símaviðtali við vin sinn Sean Hannity á Fox New í gær og sakaði hann meðal annars Ralph Northam, ríkisstjóra Virginíu, ranglega um að hafa tekið ungbarn af lífi.