Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: ÍBV - KR 1-0 | Eyjamenn komnir á toppinn | Sjáðu markið Guðmundur Tómas Sigfússon á Hásteinsvelli skrifar 4. júní 2016 18:45
Eyjamenn komu sér á topp Pepsi-deildar karla í dag með 1-0 sigri á KR-ingum á Hásteinsvelli. Leikmenn ÍBV spiluðu líklega besta leik sinn í dag en allir leikmenn liðsins virtust ná mjög vel saman, þessi Eyjastemning sem oft er talað um var við völd. Bjarni Gunnarsson virtist vera rifinn niður í teig KR-inga stuttu eftir að hann kom af bekknum en dómarinn ákvað að gefa ekki neitt. Það var stuttu síðar þegar Mikkel Maigaard slapp í gegnum vörn KR og renndi boltanum á Bjarna að ÍBV tók forystuna. Bjarni lagði þá boltann með vinstri fæti framhjá Stefáni Loga Magnússyni, sem hefði átt að gera betur í markinu. KR-ingar virkuðu í raun aldrei líklegir til að jafna metin eftir mark Bjarna sem kom á 86. mínútu leiksins.Af hverju vann ÍBV? Eyjamenn skoruðu sigurmarkið á 86. mínútu þegar KR-ingar virtust vera að setja meira púður í sóknina. Illa gekk hjá ÍBV að spila með vindinum og sömu sögu má segja um KR-ingana. KR-ingar freistuðu þess að færa sig framar á völlinn undir lokin en Mikkel Maigaard, Daninn knái, í liði Eyjamanna slapp þar í gegn og var ekki í vandræðum með að finna töframanninn, Bjarna Gunnarsson, sem skilaði boltanum í netið. Óeigingjarnt hlaup Sigurðar Grétars Benónýssonar tæmdi svæðið fyrir Bjarna í markinu. Stefán Logi Magnússon getur ekki verið sáttur með sig í markinu þar sem boltinn var alls ekki út við stöng. Karlarnir í Pepsi-mörkunum munu líklega henda einu spurningarmerki við Stefán Loga í markinu. Heilt yfir var ÍBV betra liðið í þessum leik og sýndi mun meiri vilja heldur en KR-ingar. KR-ingar virkuðu eins og 11 einstaklingar úti á vellinum gegn sterkri liðsheild ÍBV.Þessir stóðu upp úrSindri Snær Magnússon átti sinn besta leik fyrir klúbbinn. Smitaði mikið út frá sér og gaf öllum í liðinu trú á verkefninu þar sem hann átti frábæran leik djúpur á miðjunni. KR-ingar fundu nánast aldrei svæði á milli miðju og varnar og er það mest megnis Sindra að þakka. Sigurður Grétar var góður í leiknum en hann gefur ÍBV liðinu mikið. Hann eltir alla bolta og gaf KR-ingum engan frið í öftustu línu. Skora á menn að skoða hlaupið hans Sigga í marki ÍBV þar sem hann frystir Indriða sem kemst því ekki út í Bjarna.Hvað gekk vel? Báðum liðum gekk vel að skapa sér færi gegn vindinum, sem var sterkur á annað markið. KR-ingar sýndu marga góða kafla í fyrri hálfleik og ÍBV voru hættulegir í þeim seinni. Besta færi KR-inga kom í fyrri hálfleik þegar Denis Fazlagic átti skot að marki sem Derby Carillo varði vel. Eins og Bjarni Jóhannesson sagði í viðtali eftir leik áttu Eyjamenn þrjú bestu færi leiksins.Hvað gekk illa? Eins vel og liðunum gekk að skapa færi gegn vindinum virtist það ómögulegt með vindinum. Besta færi Eyjamanna með vindinum kom þegar Sigurður Grétar fór illa með varnarmenn KR-inga og rúllaði boltanum fyrir markið þar sem enginn var mættur. Sóknarlína KR-inga virkaði slök, hvort sem það var varnarlínu ÍBV að þakka eða ekki þá var eitthvað að klikka. Bjarni Guðjónsson hélt hann ætti ás uppi í erminni þegar hann henti Hólmberti Aroni Friðjónssyni inn á völlinn, hann virkaði hinsvegar mjög illa. Hann komst í raun aldrei úr skelinni sinni og það þurfti ekki mikið til að koma stóra manninum úr jafnvægi.Hvað gerist næst? Eyjamenn ættu að eflast við þennan sigur þar sem þeir sigra ekki KR-inga á hverjum degi, vonandi ná þeir að nýta sér þennan meðbyr, þeirra vegna. Þeir eiga útileik gegn Stjörnunni á teppinu í Garðabænum í bikarnum í næstu umferð og verður það alvöru próf fyrir liðið. KR-ingar eru enn djúpt hugsi en þeir mæta ekki til leiks í 16-liða úrslitum því þeir töpuðu fyrir Selfossi í 32-liða úrslitum. Bjarni Guðjónsson situr á eldi þessa dagana en það er orðið mjög heitt undir honum.Bjarni Jóhannsson: Bjarni átti að setja svip sinn á leikinn „Ég er mjög ánægður og sérstaklega með seinni hálfleikinn. Við náðum að hemja boltann mjög illa í fyrri hálfleik og fannst við ekki stíga nógu vel inn í leikinn en mér fannst við taka seinni hálfleikinn mjög vel,“ sagði Bjarni Jóhannsson, þjálfari Eyjamanna, eftir flottan sigur á KR-ingum. „Við þorðum að láta boltann ganga og eigum klárlega þrjú bestu færin í leiknum. Það var frábært að klára þetta og tímasetningin á markinu var draumur.“ Bjarni Gunnarsson, oftar en ekki nefndur töframaðurinn hér í Eyjum, kom sterkur inn á í liði ÍBV og töfraði fram sigurmark leiksin. Bjarni hlýtur að vera sáttur með nafna sinn. „Hann kom mjög ferskur inn í leikinn og síðustu orðin sem Alli (Alfreð Elías, aðstoðarþjálfari) sagði við hann voru þau að hann ætti að koma inn í þennan leik til að setja svip sinn á leikinn en ekki til að verjast. Það gerði hann heldur betur.“ KR-ingar settu meira púður í sóknina í lokin og Eyjamenn nýttu sér það í lokin með markinu. „Um leið og þeir komu hærra upp á völlinn, erum við með fljóta leikmenn og erum til í allt.“ Menn kölluðu eftir því að Mikkel Maigaard fengi sæti í byrjunarliðinu en hann hefur slegið í gegn í síðustu leikjum, hvað finnst Bjarna um það? „Hann bregst rétt við því að vera settur á bekkinn. Hann er búinn að eiga mjög góða leiki og leggur upp þetta mark, mikil ógnun af honum. Hann átti góðan leik í dag eins og allt liðið.“ Ég er nokkuð viss um að þessi sigur gefi liðinu meira en þessi þrjú stig. „Við skulum rétt vona það, stundum er erfitt að vinna vel þegar það gengur vel. Vonandi peppar þetta okkur upp, það er frábær tilfinning að vakna í fyrramálið, á sjómannadaginn og vera efstur í deildinni eitthvað fram eftir degi. Ég veit að það eru sjómenn sem styrkja okkur mikið og þetta verður ennþá meira kick í þessa helgi,“ sagði Bjarni brosandi að lokum.Bjarni Guðjónsson: Settum boltann ekki nóg á jörðina „Mér fannst fyrri hálfleikur spilast alveg ágætlega, við spiluðum á móti sterkum vindi og komumst í fínar stöður skipti eftir skipti. „Seinni hálfleikur var þannig að við settum boltann ekki nógu mikið á jörðina og þegar við reyndum það voru sendingarnar ekki nógu góðar,“ sagði Bjarni Guðjónsson, þjálfari KR-inga, eftir dapran leik sinna manna í Eyjum. „Við unnum ekki annan boltann í dag og spilið gekk illa, það kostaði okkur í seinni hálfleik að skapa ekki fleiri færi og skora ekki mark.“ Hvað fer úrskeiðis í dag hjá KR þegar ÍBV skorar markið? „Við fórum of geyst af stað í sóknina og töpum boltanum illa úti á hægri kantinum. Þeir koma á okkur og við vorum komnir hátt með bakvörðinn og kantana og reyndum að fara út hægra megin.“ KR-ingar fylgdu ekki sterkum sigri á Valsmönnum eftir en hverjar eru skýringarnar á því? „Við sköpum ekki nægilega mikið af færum í seinni hálfleik, það gekk betur í fyrri hálfleik. En með vindinum gekk okkur verr að halda boltanum, við töpum baráttunni um annan boltann í seinni hálfleiknum, en það þarf að vinna hana á móti Eyjaliðinu eins og það spilaði með vindinum.“ „Þeir voru klókir í því, þéttir til baka og beittu skyndisóknum, við þurftum meira á því að halda að spila meiri fótbolta og betri fótbolta heldur en við gerðum hér í seinni hálfleik.“
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Flugóður forseti FIFA Fótbolti Þvottabjörn Haalands uppseldur og sá sem bjó hann til kominn á eftirlaun Fótbolti Ástæðan fyrir því að Bellingham sló til Barco eftir leik Fótbolti Gráti nær þegar hann frétti að hann myndi dæma úrslitaleikinn Fótbolti Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Handbolti Siggi Raggi græddi á lygilegri atburðarás Fótbolti „Fjögur ár eru langur tími“ Fótbolti „Ég er fyrst og fremst vonsvikinn með sjálfan mig“ Fótbolti Var rifrildið við Bellingham það sem kveikti í Messi? Fótbolti Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Handbolti Fleiri fréttir Sjáðu tvíburana í FH búa til mark í fyrstu tilraun Ari Leifsson í Stjörnuna Fáum svo mörg færi að það er erfitt að skora ekki Haukakonur fengu stóran skell í síðasta leik fyrir endurkomu Söru Afturelding með fjögurra stiga forskot á toppnum Uppgjörið: Gri/Nja - FH 1-6 | Flugeldasýning sendi FH á toppinn Bubbi fékk áritaða KR-treyju í afmælisgjöf Jóhannes Kristinn í FH en „klárlega hluti af framtíðinni í Víkinni“ Adam Ægir mættur til KA Sjáðu Blika fara á toppinn og glæsimark í Eyjum Búið að opna gluggann: Hvað er búið að gerast og hvað þarf að gerast? Uppgjörið: ÍBV - Valur 2-1 | Ferskir Frakkar, eitraðar Eyjakonur og veiklulegur Valur Uppgjörið: Breiðablik - Víkingur 4-1 | Skoruðu þrjú á sjö mínútna kafla Skoða markaðinn til að þurfa ekki að gefa fleiri leiki „Hann var farinn að spyrja hvenær við ætluðum að flytja til Íslands“ Sjáðu Stjörnuna stimpla sig í titilslag og Hamlett koma Fram af botninum Bónorð strax eftir leik í Garðabæ „Ekkert af þessu gekk og þá líður manni ömurlega“ Uppgjörið: Þróttur-Fram 0-1 | Unnu aftur og komust af botninum Uppgjörið: Stjarnan-Þór/KA 3-2 | Stjörnukonur aftur á sigurbraut Fimm HK-ingar á skotskónum í stórsigri KSÍ ætlar ekki að láta gervigreindina koma í stað starfsfólks Sjáðu dramatíkina í endurkomusigri Blika „Þetta er svo hörmulegur dómur, án gríns“ „Skil ekki hvernig menn geta flaggað á eða séð eitthvað sem gerist ekki“ Fylkismenn keyrðu yfir Vestra í upphafi leiks Frábært að koma úr meiðslum og skora sitt fyrsta mark Valur bætir við sig fyrrum markadrottningu úr Lengjudeildinni Uppgjörið: Breiðablik-Keflavík 2-1 | Kristinn tryggði Blikum sigurinn Þórdís fer frá Þrótti til Breiðabliks Sjá meira