Enginn Ronaldo er Juventus tapaði stigum gegn Lecce

Anton Ingi Leifsson skrifar
Paulo Dybala, leikmaður Juventus.
Paulo Dybala, leikmaður Juventus. vísir/getty
Cristiano Ronaldo fékk frí er Juventus gerði 1-1 jafntefli við Lecce á útivelli í ítalska boltanum í dag.

Markalaust var í hálfleik en í upphafi síðari hálfleiks fengu ítölsku meistararnir vítaspyrnu eftir að dómarinn hafði kíkt í VARsjána.

Á punktinn steig Paulo Dybala sem skoraði af miklu öryggi þrátt fyrir að markvörður Lecce hafi farið í rétt horn.

Juventus komst yfir á 50. mínútu en sex mínútum síðar var staðan orðin 1-1. Þá fengu heimamenn víti eftir að boltinn fór í hönd Mathijs De Ligt. Marco Mancosu skoraði af öryggi.

Þrátt fyrir miklu pressu Juventus náðu þeir ekki að koma inn sigurmarkinu og lokatölur því 1-1.

Juventus er á toppi deildarinnar með 22 stig en Lecce er í 17. sætinu með sjö stig. Juve er einu stigi á undan Inter eftir átta umferðir.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira