King tryggði Bournemouth sigur á United Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 2. nóvember 2019 14:15 King skoraði sigurmarkið gegn sínu gamla félagi. vísir/getty Manchester United laut í lægra haldi fyrir Bournemouth, 1-0, á Vitaly vellinum í fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Joshua King skoraði eina mark leiksins á lokamínútu fyrri hálfleiks. Þetta var fyrsta deildarmark Bournemouth í 358 mínútur. Norski landsliðsmaðurinn lék skemmtilega á Aaron Wan-Bissaka og kom boltanum framhjá David De Gea. King er fyrrverandi leikmaður United. Með sigrinum komst Bournemouth upp í 6. sæti deildarinnar. United er í 8. sætinu með aðeins 13 stig eftir ellefu leiki. Liðið hefur ekki byrjað jafn illa í 33 ár.13 - Manchester United's haul of 13 points from 11 Premier League games this season is their lowest at this stage of a top-flight campaign since 1986-87 (11). Crestfallen. #BOUMUN— OptaJoe (@OptaJoe) November 2, 2019 United var miklu meira með boltann og sótti stíft en skapaði fá opin færi. Það besta fékk varamaðurinn Mason Greenwood en hann skaut í stöng. Steve Cook og Nathan Aké áttu frábæran leik í vörn Bournemouth og United varð oftast að gera sér skot fyrir utan vítateig að góðu. Enski boltinn