Fréttir
126 127 128 129 130 131 132 133 134 … 334 ›
Á bak og burt eftir að hafa brotið og bramlað í bústað Lögreglunni á Suðurlandi var tilkynnt um innbrot og skemmdir í sumarhúsi í nótt. Þegar lögregluna bar að garði var sá sem braust inn á bak og burt. Málið er til rannsóknar. Innlent 10.8.2024 09:41
Ummælin komi á óvart „jafnvel frá Sjálfstæðisflokknum“ Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs og fyrrverandi borgarstjóri, segir að ákvörðun sem kom til framkvæmda 2018 um ókeypis námsgögn í skólum hafi verið í alla staði jákvætt mál og þýtt aukinn jöfnuð og jafnræði meðal barna. Það komi á óvart að einhver vilji tala þetta niður, „jafnvel frá Sjálftæðisflokknum.“ Innlent 10.8.2024 09:41
Mildast sunnan heiða Veðurstofan spáir hægum vindi á landinu í dag, en segir að þó muni blása aðeins úr norðvestri við norðausturströndina þar sem muni þó lægja smá saman. Þá verði súld eða dálítil rigning norðvestantil og einnig norðaustanlands í fyrstu. Annars verður skýjað með köflum og stöku skúrir inn til landsins síðdegis. Veður 10.8.2024 08:48
Gerðu loftárás á skóla í nótt Ísraelsher gerði loftárás á skóla á Gazasvæðinu í nótt. Herinn segist í árásinni hafa hæft hryðjuverkamenn á vegum Hamas á stjórnstöð samtakanna sem hafi verið í skólanum. Erlent 10.8.2024 07:54
Sleginn í rot í hópslagsmálum í miðbænum Lögreglan var kölluð til vegna hópslagsmála í miðbæ Reykjavíkur í nótt. Eftir slagsmálin var einn einstaklingur líklega nefbrotinn og þá hafði annar verið sleginn í rot. Þrír voru handteknir og vistaðir í fangaklefa vegna málsins. Innlent 10.8.2024 07:26
Myndi fara stystu leið upp í sveit Hægviðri er í kortunum víða um landið um helgina. Haraldur Ólafsson veðurfræðingur segir að útlitið sé „bara þokkalegt.“ Hann myndi fara stystu leið upp í sveit um helgina. Innlent 9.8.2024 23:45
Rússar lýsa yfir neyðarástandi Rússar hafa lýst yfir neyðarástandi vegna gagnárásar Úkraínumanna innan landamæra Rússlands sem hófst fyrr í vikunni. Mikil leynd virðist hvíla yfir aðgerðum Úkraínumanna að sögn íslensks blaðamanns í Úkraínu. Árásin hafi komið Rússum í opna skjöldu. Erlent 9.8.2024 23:18
Heimilið algjörlega í rúst þegar þau komu heim eftir Þjóðhátíð Skæringur Óli Þórarinsson lenti vægast sagt illa í því þegar hann leigði heimilið sitt í Vestmannaeyjum út yfir Þjóðhátíðarhelgina, en þegar hann kom heim á mánudeginum var heimilið gjörsamlega í rúst. Hann segist ekki hafa átt orð þegar hann kom heim til sín. Innlent 9.8.2024 21:49
Ekki góð forgangsröðun að verja fjármunum til efnameiri foreldra Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla- iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, segir að frí námsgögn og skólamáltíðir sé eitthvað sem ætti að mega ræða án þess að fara í upphrópanir. Það sé ekki góð forgangsröðun að verja fjármunum til efnameiri foreldra. Innlent 9.8.2024 20:12
Á hækjum eftir tæklingu í brekkunni á Þjóðhátíð Í vætunni á sunnudagskvöld í Vestmannaeyjum runnu fjölmargir Þjóðhátíðargestir niður brekkuna í Herjólfsdal í drullusvaðinu sem myndaðist þar. Sumir renndu sér niður viljandi og slösuðu jafnvel grunlausa gesti sem skemmtu sér í brekkunni. Innlent 9.8.2024 19:07
Rússar lýsa yfir neyðarástandi og nýtt rafskútufyrirtæki Rússar hafa lýst yfir neyðarástandi vegna gagnárásar Úkraínumanna innan landamæra Rússlands sem hófst fyrr í vikunni. Mikil leynd virðist hvíla yfir aðgerðum Úkraínumanna sem komu Rússum verulega í opna skjöldu. Innlent 9.8.2024 18:18
Flugvél með 62 innanborðs brotlenti í Brasilíu Flugvél með 62 innanborðs, 58 farþegum og fjórum starfsmönnum, brotlenti í dag í Sao Paulo í Brasilíu. Á myndbandi sem er í dreifingu má sjá hvernig vélin hringsnerist á hraðri leið til jarðar. Erlent 9.8.2024 18:16
Brutu rúður í strætóskýlum í Mjódd Tilkynnt var um rúðubrot á tveimur rúðum í biðsal hjá strætó í Mjóddinni. Innlent 9.8.2024 17:37
Aflýsir fundi eftir viðvörun um mögulegan ofurskjálfta Japönsk stjórnvöld hafa gefið út viðvörun vegna mögulegs ofurjarðskjálfta í kjölfar stórs skjálfta sem reið yfir á þriðjudag sem mældist 7,1 að stærð. Erlent 9.8.2024 16:41
Engin fíkniefni reyndust um borð í bátnum Engin fíkniefni reyndust vera um borð í bát sem lögreglan á Suðurlandi var með til rannsóknar. Grunur um saknæmt athæfi í tengslum við fíkniefni kom upp við tollaeftirlit í gær, eftir að báturinn kom til Hafnar í Hornafirði frá Færeyjum. Innlent 9.8.2024 15:55
Einn slasaður eftir aftanákeyrslu í Mosfellsbæ Slys varð á fólki við aftanákeyrslu sem varð í Mosfellsbæ í dag. Þetta staðfestir Árni Friðleifsson aðalvarðstjóri hjá umferðardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Innlent 9.8.2024 14:55
Tveir yfirheyrðir og enn óvissa um refsiverða háttsemi Lögreglufulltrúi hjá miðlægri rannsóknardeild segir enn til skoðunar hvort nokkuð refsivert hafi átt sér stað í tengslum við komu báts frá Færeyjum til Hafnar í Hornafirði í gær. Tveir voru yfirheyrðir vegna málsins í gær. Innlent 9.8.2024 14:54
Fær ekki hjólastólana sína vegna sumarleyfa Sigurður Jóhannesson framkvæmdastjóri Mobility.is segir það fráleitt að sumarfrí opinbers starfsfólks tefji afgreiðslu hjálpartækja fyrir fólk með fötlun. Hann hefur í tvo mánuði beðið eftir vöruskoðun á 14 rafhjólastólum og rafskutlum sem fyrirtæki hans flytur inn. Innlent 9.8.2024 14:27
Mikið álag sem bitnar mest á bráðamóttökunni Mikið álag er á deildum Landspítalans sem bitnar einna helst á bráðamóttökunni í Fossvogi. Yfir tvö hundruð manns hafa leitað á bráðamóttökuna undanfarna tvo daga. Innlent 9.8.2024 14:24
Fjögur sóttu um embætti yfirdýralæknis Fjórir sóttu um starf yfirdýralæknis. Það eru þau Brigitte Brugger, sérgreinadýralæknir, Egill Þorri Steingrímsson, dýralæknir, Vigdís Tryggvadóttir, sérgreinadýralæknir og Þóra Jóhanna Jónasdóttir, sérgreinadýralæknir. Öll starfa þau hjá Matvælastofnun. Egill Þorri á að hefja starf sem nýr sviðsstjóri í september. Innlent 9.8.2024 13:54
Ný aðgerðaáætlun um sýklalyfjaónæmi staðfest Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra, Bjarkey Ólsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra og Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfisráðherra hafa staðfest aðgerðaáætlun um sýklalyfjaónæmi sem unnin var af þverfaglegum starfshópi heilbrigðisráðherra undir forystu Þórólfs Guðnasonar fyrrverandi sóttvarnalækni. Áætlunin felur í sér skilgreindar aðgerðir og verkefni sem ráðast þarf í, forgangsröðun þeirra og kostnaðarmat. Innlent 9.8.2024 13:27
Umferðartafir vegna áreksturs Smávægilegur árekstur varð á Kringlumýrarbraut til norðurs, með þeim afleiðingum að tafir hafa orðið á umferð þar og á Hafnarfjarðarvegi. Innlent 9.8.2024 13:23
Sparkaði í meðvitundarlausan mann og skar annan í andlitið Karlmaður um tvítugt hefur hlotið tíu mánaða fangelsisdóm, þar sem sjö mánuðir og tíu dagar munu verða skilorðsbundnir til þriggja ára, í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir tvær líkamsárásir og nokkur minni háttar fíkniefnalagabrot. Innlent 9.8.2024 13:23
Titringurinn á Sundhnúksgígaröðinni heldur áfram að magnast Um þrjú hundruð smáskjálftar hafa mælst á Sundhnúksgígaröðinni á Reykjanesi frá því á mánudag og heldur skjálftavirknin áfram að aukast. Landris og kvikusöfnun undir Svartsengi er sögð svipuð og síðustu daga. Innlent 9.8.2024 12:36
Hraðskreiður skemmtibátur á sænskum fána tengist rannsókninni Umfangsmikil lögregluaðgerð í Höfn í Hornafirði í gær beindist að bát sem siglir undir sænskum fána. Um er að ræða hraðskreiðan skemmtibát sem kom til Hafnar frá Færeyjum. Innlent 9.8.2024 12:06
Patrik biðst afsökunar Tónlistarmaðurinn Patrik Atlason biðst afsökunar á að hafa talað óvarlega í útvarpsþætti á FM957 í síðustu viku. Um misheppnað grín hafi verið að ræða. Hann fordæmi allt kynferðisofbeldi. Innlent 9.8.2024 11:46
Lögregla heldur þétt að sér spilunum og Bolt mætir til leiks í Reykjavík Í hádegisfréttum verður rætt við Grím Grímsson yfirmann miðlægrar rannsóknardeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu en lögreglan var með mikinn viðbúnað á Höfn í Hornarfirði í gær. Innlent 9.8.2024 11:41
Andmæla ekki notkun vestrænna vopna í áhlaupi á Rússland Hvorki bandarísk né þýsk stjórnvöld gera athugasemdir við Úkraínumenn noti vopn frá þeim til þess að ráðast inn í Rússlandi. Bardagar halda áfram í landamærahéraðinu Kúrsk þar sem Úkraínumenn hafa náð þorpum og bæjarhluta á sitt vald. Erlent 9.8.2024 11:39
Þriðja ungmennið handtekið í tengslum við Swift-tónleikana Austurríska lögreglan handtók þriðja ungmennið í tengslum við fyrirhugaða árás á tónleika bandarísku tónlistarkonunnar Taylor Swift í gærkvöldi. Sá sem var handtekinn er sagður hafa verið í sambandi við grunaðan höfuðpaur. Erlent 9.8.2024 10:43
Maduro lokar X í tíu daga Nicolas Maduro, nýendurkjörinn forseti Venesúela í kosningum sem hafa verið harðlega gagnrýndar, hefur ákveðið að slökkva á samfélagsmiðlinum X, sem áður hét Twitter, í tíu daga hið minnsta. Erlent 9.8.2024 09:57