Fréttir
172 173 174 175 176 177 178 179 180 … 334 ›
Varað við fellibylnum Beryl sem er á leið yfir Karíbahafið Fellibylurinn Beryl er nú á leið yfir Karíbahafið. Fellibylurinn hefur verið flokkaður sem afar hættulegur, í flokki fjögur af fimm flokkum. Fellibyljastofnun Bandaríkjanna spáir mannskæðum vindi og mögulega flóðbylgjum þar sem rignir mikið. Beryl er fyrsti fellibylur tímabilsins. Svo stór fellibylur hefur ekki sést svo snemma síðan árið 2005. Erlent 1.7.2024 07:58
Kínversk geimflaug hrapaði til jarðar Eldflaug sem skotið var á loft fyrir slysni við æfingu hrapaði til jarðar rétt fyrir utan borg í Kína í gær og sprakk. Engan sakaði samkvæmt fyrstu rannsókn á vettvangi en stærðarinnar sprenging var á svæðinu. Erlent 1.7.2024 07:35
Flestir á því að Biden valdi ekki starfinu Ný könnun sem gerð var á meðal almennings í Bandaríkjunum bendir til þess að 72 prósent allra skráðra kjósenda telji að Joe Biden forseti hafi ekki vitsmunalega getu til þess að sinna embættinu. Erlent 1.7.2024 06:56
Von á átján stiga hita á Hallormsstað Reikna má með því að landsmenn hristi höfuðið í sumum landshlutum í dag og haldi áfram að bíða eftir sumrinu. Þeir sem eru á Austurlandi gætu þó viljað hafa stuttbuxur og sólarvörn innan seilingar. Innlent 1.7.2024 06:42
Brotist inn í fataverslun Brotist var inn í fataverslun í miðæ Reykjavíkur í nótt. Málið er í rannsókn lögreglu. Innlent 1.7.2024 06:30
Sögulegur dagur fyrir frönsku þjóðina að baki Bandalag vinstri flokka og miðjuflokkar Macrons Frakklandsforseta hvetja kjósendur til að kjósa taktískt gegn öfgahægriflokknum frönsku Þjóðfylkingunni í seinni umferð þingkosninganna sem fer fram í næstu viku. Útlit er fyrir stórsigur Þjóðfylkingarinnar ef marka má fyrstu tölur eftir fyrri umferð kosninganna. Erlent 30.6.2024 23:37
Hrædd um að hún mæti óvart í gömlu vinnuna í fyrramálið Séra Guðrún Karls Helgudóttir, verðandi biskup Íslands, stýrði í dag sinni síðustu messu sem sóknarprestur í Grafarvogskirkju. Guðrún tekur formlega við sem biskup á morgun. Innlent 30.6.2024 22:06
Hundsbitum fari fjölgandi Deildarstjóri hjá Reykjavíkurborg segir málum þar sem hundar bíta fólk og önnur dýr fara fjölgandi. Hann hefur áhyggjur af því hversu margir trassa að skrá hunda hjá sveitarfélögum. Innlent 30.6.2024 21:01
Skúffukaka og mjólk vegna pirrings út af töppum Eins og landsmenn hafa tekið eftir þá eru komnir áfastir tappar á drykkjarfernur frá Mjólkursamsölunni vegna nýrrar Evróputilskipunar. Einhverjir láta tappana fara í taugarnar á sér og segja þá þvælast fyrir en því fólki er boðið í mjólk og skúffuköku hjá Mjólkursamsölunni til að fara yfir hvernig nýju tapparnir virka. Innlent 30.6.2024 20:06
„Ástæða til að hafa áhyggjur“ Franska þjóðfylkingin er stærsti flokkur Frakklands með 34 prósenta fylgi samkvæmt útgönguspám sem birtar voru fyrr í kvöld. Prófessor og sérfræðingur í málefnum Frakklands segir ástæðu til að hafa áhyggjur af því að flokkur með blendna afstöðu til mannréttinda gæti náð völdum. Erlent 30.6.2024 19:30
Franska þjóðfylkingin leiðir samkvæmt útgönguspám Samkvæmt útgönguspám í fyrri umferð þingkosninganna í Frakklandi leiðir Franska þjóðfylkingin með 34 prósenta fylgi. Erlent 30.6.2024 18:09
Viðbrögð við sögulegum tölum í Frakklandi í beinni Kjörstöðum í Frakklandi hefur verið lokað og útgönguspár gefnar út strax í kjölfarið. Við förum yfir fyrstu tölur í kvöldfréttum Stöðvar 2 klukkan 18:30 og fáum Torfa Tulinius, prófessor og sérfræðing í málefnum Frakklands, til að greina stöðuna í myndveri í beinni útsendingu. Innlent 30.6.2024 18:01
Vöknuðu á floti og stigu út með drulluna upp að hnjám Félögunum Jakobi Magnússyni og Kolbeini Tuma var heldur betur brugðið í brún þegar þeir vöknuðu á tjaldstæðinu við Hróarskeldu í morgun og allt var á floti. Þeir hafi vaknað, stigið út, og drullan hafi náð upp að hnjám. Þetta var „kyngimagnað“ segja þeir. Erlent 30.6.2024 17:39
Ferðamaður sofnaði undir stýri og ók á rútu Börkur Hrólfsson rútubílstjóri var á leið til Keflavíkur um tvöleytið eftir hádegi í gær, þegar sofandi ökumaður ók í veg fyrir hann rétt hjá álverinu í Straumsvík. Engin meiriháttar slys urðu á fólki, en Börkur segir algjörri heppni, loftpúðum og bílbeltum að þakka að ekki hafi farið verr. Hann segir of algengt að ósofnir ferðamenn ætli sér að aka langar vegalengdir eftir langt ferðalag til landsins. Innlent 30.6.2024 17:02
Hjólhýsi fauk af veginum í Borgarfirði Hjólhýsi fauk út af veginum í sunnanverðum Borgarfirði á fjórða tímanum í dag. Nokkrar tafir voru á umferð í kjölfarið. Innlent 30.6.2024 15:58
Séra Arna Ýrr tekur við af verðandi biskupi Sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir hefur verið ráðin sóknarprestur í Grafarvogsprestakalli, en hún tekur við 1. júlí af sr. Guðrún Karls Helgudóttur sem hefur verið ráðin biskup Íslands. Innlent 30.6.2024 15:23
Grafarvogsbúar þurfi ekki að óttast blokkir Borgarstjóri segir áhyggjur íbúa Grafavogs af fyrirhugaðri uppbyggingu í hverfinu óþarfar. Enginn sé að fá margra hæða blokk í bakgarðinn hjá sér. Innlent 30.6.2024 15:01
„Fólk er einfaldlega hrætt“ Allt bendir til þess að þingkosningarnar sem nú eru hafnar í Frakklandi verði sögulegar, að sögn fyrrverandi þingmanns sem búsettur er í París. Hún kveðst aldrei hafa upplifað viðlíka spennu og ótta í frönsku samfélagi og nú, þar sem mikilla breytinga sé að vænta fari kosningarnar eins og kannanir bendi til. Erlent 30.6.2024 13:51
Óður hundur réðst á tvo í Grafarvogi Tilkynnt var um óðan hund sem réðst á tvo í Grafarvoginum síðastliðið föstudagskvöld. Hundurinn var handsamaður og færður í vörslu Dýraþjónustu Reykjavíkur. Deildarstjóri Dýraþjónustunnar hefur áhyggjur af því að bitmálum fari fjölgandi. Innlent 30.6.2024 13:08
Fórna sumarfríinu til að hjálpa fólki á hálendinu Fyrsta hálendisvakt sumarsins leggur af stað upp úr hádegi. Tólf björgunarsveitarmenn sjá um fyrstu vaktina og segir einn þeirra gleðina vera ein af aðalástæðunum fyrir því að fólk nýti sumarfríið sitt í að bjarga ferðamönnum. Innlent 30.6.2024 12:54
Öflugur skjálfti í Bárðarbungu Nokkuð öflugur jarðskjálft, af stærðinni 3,4, mældist í norðanverðri Bárðarbunguöskjunni í morgun. Innlent 30.6.2024 12:10
Kosningar, uppbygging í Grafarvogi og hálendisvakt Allt bendir til þess að þingkosningarnar sem nú eru hafnar í Frakklandi verði sögulegar, að sögn fyrrverandi þingmanns sem búsettur er í París. Hann kveðst aldrei hafa upplifað viðlíka spennu og ótta í frönsku samfélagi og nú, þar sem mikilla breytinga sé að vænta fari kosningarnar eins og kannanir bendi til. Fjallað eru kosningarnar í hádegisfréttum Bylgjunnar. Innlent 30.6.2024 11:54
„Ég mun ekki taka þátt í prófkjöri aftur“ „Ég mun ekki taka þátt í prófkjöri aftur, get bara sagt fólki það,“ sagði Brynjar Níelsson fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Þá sagði hann að smáflokkur í ríkisstjórnarsamstarfinu, Vinstri græn, hefði alltof mikil áhrif, og að íslenska stjórnmálamenn vanti þrek og kjark til að gera eitthvað, vitandi það að fullt af fólki muni garga á þau. Innlent 30.6.2024 11:31
Tekinn próflaus á 120 kílómetra hraða Ökumaður sem var stöðvaður í hverfi 108 í nótt fyrir að aka á 120 km/klst þar sem hámarkshraði er 80 km/klst, reyndist án gildra ökuréttinda. Tveir aðrir voru stöðvaðir í nótt sem reyndust án ökuréttinda, einn þeirra var undir áhrifum fíkniefna. Þá var einn sektaður fyrir að nota ekki bílbelti við akstur. Innlent 30.6.2024 10:34
Samsæriskenningar, borgarstjóri um húsnæðismál og kosningar Fyrsti gestur Kristjáns Kristjánssonar á Sprengisandi í dag er Eiríkur Bergmann Einarsson stjórnmálafræðiprófessor. Hann ræðir nýja bók sína um samsæriskenningar og fjallar um kosningar í Bretlandi og Frakklandi. Innlent 30.6.2024 09:52
Leitin að Slater blásin af Allsherjarleit að breska táningnum Jay Slater, sem hófst í gær, hefur verið blásin af. Hans hefur verið saknað á spænsku eyjunni Tenerife síðan 17. júní. Erlent 30.6.2024 09:34
Stungumaðurinn á hlaupahjólinu áfram í haldi Þrítugur karlmaður sem grunaður er um að hafa stungið tvo í Kópavogi á dögunum hefur verið úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald. Upp úr sauð þegar maðurinn mætti hópi fólks á göngustíg, sem hann hjólaði um á rafhlaupahjóli. Innlent 30.6.2024 08:56
Frakkar ganga að kjörborðinu Kosningar, sem gætu orðið sögulegar, eru hafnar í Frakklandi. Aldrei áður hefur flokkur lengst til hægri verið líklegri til þess að bera sigur úr býtum í kosningum þar í landi. Erlent 30.6.2024 08:43
Hiti víða yfir tuttugu stigum á Austurlandi Útlit er fyrir að hiti fari víða yfir tuttugu stig á austurlandi í dag en lægð á Grænlandssundi veldur suðaustan strekkingi og rigningu seinni partinn. Veður 30.6.2024 08:18
Fleiri foreldrar í vanda með máluppeldi en áður Tinna Sigurðardóttir talmeinafræðingur segi foreldra þurfa meiri og betri leiðbeiningar fyrir talþjálfun barna sinna. Tinna rekur Tröppu, fyrirtæki sem sérhæfir sig í fjarþjónustu fyrir börn, og hefur gert það síðustu tíu árin. Hún segir ekki margt hafa breyst í vanda barna en að foreldrar þurfi meiri aðstoð nú en áður. Innlent 30.6.2024 07:01