Fréttir
42 43 44 45 46 47 48 49 50 … 334 ›
Fimm vistaðir í fangaklefa eftir hópslagsmál Fimm karlmenn í kringum tvítugt voru vistaðir í fangaklefa á Akureyri eftir að hópslagsmál komu upp. Mikill erill var hjá lögreglunni í nótt. Innlent 4.8.2025 10:42
Þórisvatn fullt í fyrsta skipti í sex ár Bæði Hálslón og Þórisvatn, stærstu uppistöðulón Landsvirkjunnar, fylltust í nótt. Er það í fyrsta sinn síðan árið 2019 sem Þórisvatn fyllist. Innlent 4.8.2025 10:28
Elskar auglýsingarnar með Sweeney fyrst hún er Repúblikani Donald Trump Bandaríkjaforseti segist elska auglýsingaherferð American Eagle með Sydney Sweeney, sem hefur verið sögð taktlaus og innihalda kynþáttahyggju, eftir að kom í ljós að leikkonan væri skráður Repúblikani. Erlent 4.8.2025 10:08
Tæplega þrjátíu drepin á meðan þau biðu eftir mat Minnst tuttugu og sjö voru drepnir af ísraelska hernum þegar þeir biðu eftir mat og sex til viðbótar dóu úr hungri á Gasa í gær. Erlent 4.8.2025 09:43
Fyrrverandi ísraelskir foringjar biðla til Trump að ljúka stríðinu Tæplega sex hundruð fyrrum foringjar í öryggisþjónustu Ísraels biðja Bandaríkjaforseta um að setja þrýsting á Ísraela til að enda stríðsátökin á milli Ísrael og Hamas. Erlent 4.8.2025 09:07
Íslenskar konur gáfu nýjan búning á fjallkonuna í Gimli Um helgina er haldin Íslendingadagurinn í Gimli í Manitoba. Hátiðin var með stærra sniði en áður því í ár er fagnað 150 árum frá landtöku Íslendinga við Winnipegvatn. Lögð var sérstök áhersla á þau sterku tengsl sem varað hafa á milli þessara landa í 150 ár, en um leið var lögð áhersla á mikilvægi nýrra tengsla á milli þessara samfélaga. Innlent 4.8.2025 09:05
Tugir drukknuðu og margra enn saknað 68 drukknuðu og 74 er enn saknað eftir að bát hvolfdi nálægt ströndum Jemen í gærmorgun. Um 150 eþíópískir ríkisborgarar voru um borð en einungis tólf var bjargað. Erlent 4.8.2025 08:06
Þorvaldur gagnrýndur fyrir órökstudda spá um eldgos Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur er gagnrýndur af öðrum vísindamanni, Haraldi Sigurðssyni eldfjallafræðingi, fyrir að spá því að ekki sé langt í eldgos í Ljósufjallakerfinu á Snæfellsnesi. Innlent 4.8.2025 07:27
Einn handtekinn vegna líkamsárasar Einn var handtekinn í miðbæ Reykjavíkur fyrir líkamsárás og vörslu fíkniefna en lögregla vistaði viðkomandi í fangageymslu vegna rannsókn málsins. Innlent 4.8.2025 07:25
Gosmóða mældist í Hvalfirði og á Vík í Mýrdal Gasmengun og gosmóða mældist í litlu mæli í Hvalfirði í gær og í nótt. Nokkur gosmóða mældist þá í Vík í Mýrdal. Enn er hætta á skyndilegum framhlaupum við jaðra hraun eldgossins við Sundhnúksgíga. Innlent 4.8.2025 07:13
Demókratar flýja Texas svo þing geti ekki komið saman Þingmenn Demókrata í Texas í Bandaríkjunum eru margir búnir að yfirgefa ríkið til að koma í veg fyrir að hægt sé að kalla saman þing til að samþykkja drög að nýrri kjördæmaskipan. Erlent 3.8.2025 23:30
Hamas til í að gefa gíslum hjálpargögn ef Ísrael hleypir þeim inn á svæðið Hamasliðar segja að þeir séu tilbúnir að vinna með Rauða krossinum til að flytja hjálpargögn til gíslanna sem þeir hafa í haldi sínu á Gasa að því gefnu að Ísraelsmenn uppfylli nokkur skilyrði. Erlent 3.8.2025 22:46
Netþrjótar herja á „mömmur“ landsins „Hæ mamma, þetta er nýja númer mitt. Sendu mér skilaboð á WhatsApp.“ Innlent 3.8.2025 22:04
Maður lést eftir fall af svölum á tónleikum Oasis Áhorfandi á Oasis-tónleikum lést þegar hann féll úr talsverðri hæð á á Wembley-vellinum í Lundúnum í gær. Erlent 3.8.2025 22:03
Spennandi traktorstorfæra á Flúðum Þeir voru ekkert að slaka á eða gefast upp ökumenn átta dráttarvéla, sem tóku þátt í traktorstorfæru á Flúðum um helgina í risa drullupolli. Margir þeirra fóru á bólakaf við aksturinn á meðan það drapst á vélunum hjá öðrum. Innlent 3.8.2025 20:03
Hvalur skaut upp höfði upp við bryggjuna: „Þetta var alveg magnað“ Hjörð hnúfubaka var á sundi nálægt við Hólmavík fimmtudagskvöld þegar einn þeirra tók á sprett að höfninni og skaut upp höfðinu í aðeins örfárra metra fjarlægð frá byggjunni. Innlent 3.8.2025 19:50
Slysið á sama stað og við sömu aðstæður og fyrri banaslys í fjörunni Banaslysið í Reynisfjöru í gær varð á sama stað og við sömu aðstæður og síðustu tvö banaslys í fjörunni þar á undan að sögn landeigenda. Samráðshópur mun funda eftir helgi um frekari öryggisráðstafanir á svæðinu. Upplýsingaskilti sem sýnir svæðisskiptingu fjörunnar eftir litum fauk í óveðri fyrir nokkru síðan. Innlent 3.8.2025 19:00
Þorgerður styður stofnun leyniþjónustu Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segir við erlendan fjölmiðil að hún styðji stofnun leyniþjónustu á Íslandi. Hún segist ekki hrædd við umræðuna um hugsanlega stofnun íslensks hers. Innlent 3.8.2025 18:34
Síðustu þrjú banaslys orðið á sama stað við sömu aðstæður Banaslysið í Reynisfjöru í gær varð á sama stað og við sömu aðstæður og síðustu tvö banaslys í fjörunni á undan. Þetta segir landeigandi en skoða á eftir helgi hvernig grípa megi til frekari öryggisráðstafana. Rætt verður við Jón Þór Víglundsson upplýsingafulltrúa Landsbjargar í beinni útsendingu í fréttatímanum um slysið. Innlent 3.8.2025 18:11
„Allt uppselt“ af símum eftir rigninguna Fjöldi Þjóðhátíðargesta lenti í því að eyðileggja síma sína í rigningunni á föstudagskvöld. Allir símar seldust upp í kjölfarið hjá raftækjaversluninni Heimaraf. Innlent 3.8.2025 16:04
Þurfum ekki að loka landamærum en þurfum að opna augun „Við þurfum ekki að loka landamærum en við þurfum kannski aðeins að opna augun. Opna augun fyrir því á hvaða stefnu byggir fólksfjölgun á Íslandi. Þegar ég hef verið að skoða þetta á fyrstu mánuðum í embætti, þá hefur stefnuleysið komið mér á óvart og hversu lítið ákvarðanir og hversu lítið lagasetning er byggð á gögnum.“ Innlent 3.8.2025 16:01
Rússneskt eldfjall gýs í fyrsta sinn í sex hundruð ár Eldfjallið Krasheninnikov á Kamtjakkaskaga í Rússlandi byrjaði að gjósa í morgun, í fyrsta sinn um sex hundruð ár. Er það eftir gífurlega kröftugan jarðskjálfta fyrr í vikunni og fleiri eftirskjálfta. Erlent 3.8.2025 14:42
Leggjast yfir hvað megi bæta í Reynisfjöru Landeigendur í Reynisfjöru harma banaslysið sem varð í gær þegar níu ára þýsk stúlka drukknaði í sjónum undan ströndinni. Þeir hyggjast nú leggjast yfir hvað hægt sé að gera betur til að upplýsa þá sem heimsækja fjöruna. Innlent 3.8.2025 14:14
„Við erum auðvitað mjög slegin yfir þessu slysi“ Banaslysið í Reynisfjöru í gær er það fyrsta síðan auknar öryggisráðstafanir voru gerðar á svæðinu fyrir nokkrum árum. Ferðamálastjóri segir tilefni til að leggjast yfir það hvernig megi bæta öryggi á svæðinu enn frekar, en er ekki hlynntur því að fjörunni verði alfarið lokað fyrir aðgengi ferðamanna. Innlent 3.8.2025 13:38
Fullt af furðubátum keppa á Flúðum í dag Það mun allt iða af líf og fjöri á ánni Litlu Laxá á Flúðum í dag því þar fer fram furðubátakeppni þar sem allskonar heimasmíðaðir bátar af svæðinu munu sigla niður ána. Innlent 3.8.2025 13:04
Níu ára stúlka frá Þýskalandi sem lést Stúlkan sem lést eftir að hafa farið í sjóinn við Reynisfjöru í gær var níu ára og frá Þýskalandi. Innlent 3.8.2025 12:44
Segir „erfiðara“ að náða Diddy eftir „hræðilegar yfirlýsingar“ Donald Trump virðist ekki líklegur til að náða Sean „Diddy“ Combs sem var í júlí sakfelldur fyrir að flytja fólk í vændisstarfsemi. Trump hafði áður gefið náðun Diddy undir fótinn en segir nú að „hræðilegar yfirlýsingar“ Combs um forsetann geri honum erfiðara fyrir. Erlent 3.8.2025 12:17
Tilkynnt um þrjár líkamsárásir en flestir gestir „vel búnir, kurteisir og til fyrirmyndar“ Tilkynnt var um þrjár líkamsárásir til lögreglunnar í Vestmannaeyjum í nótt, og tvær slíkar tilkynningar hafa borist lögreglunni á Akureyri um helgina. Heilt yfir hafa hátíðarhöld víðast hvar gengið vel fyrir sig það sem af er helgi samkvæmt upplýsingum frá lögregluembættum um landið. Innlent 3.8.2025 12:06
Vinnsla stöðvuð í Vatnsfellsvirkjun vegna leka Vinnsla hefur verið stöðvuð í Vatnsfellsvirkjun vegna leka nálægt inntaksmannvirkjum stöðvarinnar. Verið er að tæma inntakslónið svo hægt sé að greina ástæður lekans. Til skamms tíma mun lokunin ekki hafa áhrif á framboð raforku en langtímaáhrif eru ekki enn ljós. Innlent 3.8.2025 11:59
Ekki hlynntur lokun Reynisfjöru og líkamsárásir um helgina Ferðamálastjóri segir tilefni til að auka öryggi við Reynisfjöru enn frekar. Hann er ekki hlynntur því að fjörunni verði lokað fyrir ferðamönnum. Fjallað verður um málið í hádegisfréttum. Innlent 3.8.2025 11:42