Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Sunna Sæmundsdóttir skrifar 10. september 2026 13:52 Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, mælti í morgun fyrir fjárlögum á Alþingi og sagði að nú þyrfti að sýna fjárhagslegan aga í stjórnkerfinu. Anton Brink Taka þarf á agaleysi í útgjöldum ríkisstofnana segir fjármálaráðherra sem boðar verulega aukið eftirlit. Þingstörf hófust á ný í morgun þegar ráðherra mælti fyrir hallalausum fjárlögum. Þingmenn stjórnarandstöðunnar gagnrýndu gjaldahækkanir og óttast að sveitarfélög muni fylgja fordæmi ríkisins.
Daði Már Kristófersson, fjármálaráðherra, mælti í morgun fyrir fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar. Gert er ráð fyrir að fimm milljarða króna afgangur verði á rekstri ríkissjóðs á næsta ári og Daði sagði að halda þyrfti rétt á spöðunum til þess að það gangi eftir. „Halda þarf fast í taumana. Reynslan segir okkur að taumhaldið hefur nær alla tíð gengið erfiðlega og hér verður að gera bragarbót. Allir ráðherrar og forstöðumenn ríkisstofnana bera ábyrgð á því að halda fjárútlátum innan heimilda og þá ábyrgð verða þeir að taka alvarlega,“ sagði Daði. Fjármálaráðuneytið vinni nú að því að auka verulega við miðlægt eftirlit með útgjöldum. „Ég vil fá að segja hér að í langsamlega flestum tilfellum og fyrir langsamlega flestar ríkisstofnanir er agi í rekstrinum. En það eru ákveðin vandamál og á þeim þurfum við að taka.“ Karl Gauti Hjartarson, þingmaður Miðflokksins.Vísir/Vilhelm Stjórnarandstaðan hefur látið til sín taka í umræðum um fjárlög og sagði Karl Gauti Hjaltason, þingmaður Miðflokksins, ekki hægt að fara inn í veturinn með bjartsýnina eina að vopni. Samkvæmt fjárlagafrumvarpi á að ná fram þriggja milljarða króna aðhaldi með fækkun stöðugilda hjá ríkinu og Karl Gauti gagnrýndi að ekki væri ráðist í frekari uppsagnir. Aðeins væri gert ráð fyrir að fækka störfum um tvö hundruð. „Ríkisstarfsmönnum hefur fjölgað síðustu ár um mörg hundruð á hverju einasta ári, í fjölda mörg ár. Þetta er hænuskref að mínu mati. Ríkisstjórninni er ekki alvara með að spara,“ sagði Karl Gauti. Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins situr í fjárlaganefnd Alþingis.Vísir/Anton Brink Ingibjörg Isaksen, þingmaður Framsóknar sagðist óttast að 5,2 prósenta almenn hækkun á krónutölugjöldum verði fordæmi fyrir gjaldskrárhækkanir sveitarfélaga og Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sagði þær geta ýtt undir verðbólgu. „Telur hæstvirtur ráðherra að leiðin til þess að efla hagvöxt sé að fara í þessar gríðarlega miklu skattahækka nir sem þessi ríkisstjórn hefur farið í? Hvar hefur það virkað að ná fram auknum hagvexti með því að stórhækka skatta á fyrirtæki og fólk?“
Alþingi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Fjárlagafrumvarp 2027 Stjórnsýsla Rekstur hins opinbera Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Katla skelfur Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Fleiri fréttir Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Sjá meira