Fréttir
88 89 90 91 92 93 94 95 96 … 334 ›
Óvissustig vegna veðurs á Ströndum og Norðurlandi Ríkislögreglustjóri, í samráði við lögreglustjórana á Vestfjörðum, Norðurlandi vestra og Norðurlandi eystra, lýsir yfir óvissustigi Almannavarna vegna veðurs þar sem spáð er norðanáttar sem gæti fylgt slydda og snjókoma. Innlent 9.9.2024 15:59
Björgunarskip kom fjórum til bjargar Björgunarskipið Hafbjörg var kallað út um klukkan eitt í dag vegna vélarvana báts 17 mílum norðaustur af Neskaupstað. Báturinn er nú kominn í tog og siglir Hafbjörg með skipverjanna fjóra sem voru um borð í átt að landi. Innlent 9.9.2024 15:44
Ummælin óviðeigandi en Helgi Magnús sleppur Dómsmálaráðherra telur sérstakar aðstæður réttlæta ummæli Helga Magnúsar Gunnarssonar, vararíkissaksóknara, sem séu þó til þess fallin að grafa undan trúverðugleika ákæruvaldsins. Hann verður því ekki leystur frá störfum. Helgi Magnús fagnar ákvörðun ráðherra og hlakkar til að mæta aftur til vinnu. Innlent 9.9.2024 15:39
Bein útsending: Hættunni á heitavatnslausum Suðurnesjum afstýrt Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, og Árni Magnússon, forstjóri ÍSOR, kynna í dag árangur af sérstakri jarðhitaleit á Reykjanesi. Innlent 9.9.2024 15:25
Rýnt í kannanirnar: Hnífjafnt hjá Harris og Trump Frá því Kamala Harris tók við tilnefningu Demókrataflokksins til forsetakosninganna í nóvember hafa orðið töluverðar breytingar á fylgi frambjóðanda. Joe Biden, núverandi forseti og fyrrverandi forsetaframbjóðandi, var ekki í góðri stöðu gegn Trump en myndin hefur breyst. Erlent 9.9.2024 15:17
Lögreglan endurtekið kölluð til vegna slagsmála nemenda FS Lögreglufólk á tveimur bílum sinnti útkalli í Fjölbrautarskóla Suðurnesja í hádeginu vegna slagsmála. Þrjár vikur eru liðnar síðan lögregla stöðvaði átök á nýnemakvöldi í skólanum. Innlent 9.9.2024 14:46
Von á 35 metrum á sekúndu í hviðum á Kjalarnesi Gera má ráð fyrir að vindur fari í 35 metra á sekúndu í hviðum á Kjalarnesi þar til eftir hádegi á morgun. Veður 9.9.2024 14:43
Auðlegðarskattur hefði skilað 37 milljörðum í fyrra Auðlegðarskattur, eins og sá sem lagður var á í nokkur ár eftir efnahagshrunið árið 2008, hefði skilað ríkissjóði rétt tæplega 37 milljörðum króna í kassann í fyrra. Innlent 9.9.2024 14:10
Vildi skutla farþega heim á undan blóðugum manni Skólafélagar á þrítugsaldri, karlmaður og kona, sem voru að labba heim úr bekkjarpartýi aðfaranótt 20. janúar síðastliðinn segjast hafa ætlað að hjálpa manni sem var úti á miðri götu. Sá hafi hins vegar endað á stinga karlmanninn sem hlaut lífshættulega áverka. Fólkið náði að stoppa leigubílstjóra á vakt sem vildi þó skutla farþega á Seltjarnarnes áður en hann færi með blóðugan karlmann á sjúkrahús. Innlent 9.9.2024 13:53
Þörf á úrræðum fyrir hátt í hundrað og þrjátíu börn Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu hafa óskað eftir fundi með ráðherrum og kallað er eftir því að skýrsla sem hefur legið ofan í skúffu í rúmt ár verði tekin upp. Samkvæmt henni er þörf á úrræðum fyrir um eitt hundrað og þrjátíu börn með fjölþættan vanda eða miklar þroska- eða geðraskanir. Innlent 9.9.2024 13:30
Lýsa yfir óvissustigi Ríkislögreglustjóri, í samráði við lögreglustjórann á Suðurlandi, hefur lýst yfir óvissustigi almannavarna vegna jökulhlaups úr Mýrdalsjökli. Innlent 9.9.2024 13:09
Þurfa ekki lengur að treysta á olíuna Nýr samningur sem Orkubú Vestfjarða og Landsvirkjun gerðu með sér í dag um sölu á raforku til fjarvarmaveitna á Vestfjörðum mun tryggja raforkuafhendingu til mikilla muna næstu fjögur árin. Forstjóri Orkubús Vestfjarða segir samninginn mikilvægan þátt í orkuskiptum Vestfjarða. Innlent 9.9.2024 11:51
Sýrlendingar reiðir yfir árásum Ísraela Ísraelar gerðu í gærkvöldi umfangsmiklar árásir á fjölda skotmarka í Sýrlandi. Minnst fjórtán eru sagðir liggja í valnum en árásirnar eru sagðar hafa beinst að mörgum hernaðarlegum skotmörkum í landinu. Ráðamenn í Sýrlandi segja þó að óbreyttir borgarar hafi fallið í árásunum. Erlent 9.9.2024 11:34
Snjókoma á Norðurlandi og boðuð mótmæli á Austurvelli Samtök launafólks hafa boðað til mótmæla á Austurvelli samhliða því og eru Alþýðusamband Íslands, BSRB, VR og Kennarasamband Íslands meðal skipuleggjenda. Við heyrum í formanni VR í fréttatímanum. Þá förum við yfir appelsínugula veðurviðvörun á Norðurlandi þar sem búist er við snjókomu. Innlent 9.9.2024 11:14
„Fyrir mér virðist ég vera mjög auðvelt fórnarlamb“ Tæplega fimmtugur karlmaður sem er grunaður um að hafa stungið karlmann að tilefnislausu á gatnamótum Hofsvallagötu og Hringbrautar í Reykjavík um nótt í janúar lýsir sjálfum sér sem venjulegum fjölskylduföður. Hann segist vera fórnarlamb í málinu. Brotaþoli hlaut lífshættulega áverka. Innlent 9.9.2024 11:12
Tugir látnir eftir öflugasta fellibyl Víetnam í áratugi Að minnsta kosti 59 eru taldir látnir og margra er saknað eftir að fellibylurinn Yagi fór yfir norðurhluta Víetnam um helgina. Fellibylurinn er sá öflugasti sem náð hefur landi í Asíu á þessu ári og sá öflugasti sem skollið hefur á Víetnam í áratugi. Erlent 9.9.2024 10:31
Krefjast þess að ríkisstjórn vakni af blundi á „sögulegum“ mótmælum Meginkrafa mótmæla stærstu heildarsamtaka launafólks landsins á morgun er að ríkisstjórnin vakni af blundi og ráðist í markvissar aðgerðir gegn háu vaxtastigi og verðbólgu, að sögn formanns VR. Hann segir mótmælin söguleg. Innlent 9.9.2024 10:05
Örn réðst á tveggja ára stúlku Tuttugu mánaða norsk stelpa var hætt komin þegar örn reyndi að hremma hana við sveitabæ fjölskyldunnar í gær. Móðir og nágranni komu í veg fyrir að örninn næði að fljúga á brott með barnið. Erlent 9.9.2024 09:59
Hlaup hafið að nýju í Skálm Lítið jökulhlaup er hafið í ánni Skálm. Innviði eru ekki talin í hættu að svo stöddu en ekki er talið útilokað að rennslu og vatnshæð í ánni aukist. Innlent 9.9.2024 09:43
Reglur um fæðingarstyrk geri ráð fyrir einsleitum hópi námsmanna Þórdís Dröfn Andrésdóttir formaður Samband íslenskra námsmanna erlendis, SÍNE, segir nauðsynlegt að breyta reglum um greiðslur til námsmanna úr fæðingarorlofssjóði þannig þær taki mið af fjölbreyttari hópi námsmanna. Þá þurfi einnig að hækka greiðslurnar. Innlent 9.9.2024 09:24
„Eins og eitt stórt þvagpróf af Reykjavík“ Fyrstu niðurstöður mælinga á ópíóíðum í fráveituvatni á Íslandi sýna að neysla þeirra er nokkuð jöfn alla daga vikunnar. Meiri sveiflur er að finna í neyslu á hefðbundnari vímuefnum eins og MDMA, kókaíni, amfetamíni og kannabis. Innlent 9.9.2024 09:01
Hringdi í skólann og varaði við rétt fyrir árásina Móðir unglingspilts sem skaut fjóra til bana í framhaldsskóla í Georgíu í Bandaríkjunum hringdi í skólann og varaði við „bráðri neyð“ rétt fyrir árásina. Hún hvatti skólaráðgjafa til að fara og finna son hennar strax. Erlent 9.9.2024 08:55
Björgunarsveit í fýluferð vegna neyðarblyss Áhöfn björgunarskipsins Gísla Jóns á Ísafirði var kölluð út á laugardagkvöldið eftir að tilkynning barst frá íbúa sem hafði séð fleiri en eitt neyðarblys á lofti í firðinum. Sveitin var síðar afturkölluð eftir að ljós kom að blysunum hafði verið skotið á loft af hópi fólks sem hafði komið saman vegna hátíðarhalda fyrir utan veitingastað á Skutulsfjarðareyri. Innlent 9.9.2024 08:07
Umfangsmikil leit að manni sem skaut fimm í Kentucky Skólar í miðhluta Kentucky verða lokaðir í dag vegna leitar lögreglu að manni sem skaut á tólf bifreiðar og særði fimm á þjóðvegi norður af borginni London á laugardag. Erlent 9.9.2024 07:54
Kalt, blautt og hvasst Veðurstofan gerir ráð fyrir strekkings norðanátt með rigningu á Norður- og Austurlandi í dag og slyddu eða snjókomu til fjalla. Sunnan heiða verður hins vegar yfirleitt bjart. Veður 9.9.2024 07:11
Breskar konur stíga fram og ásaka Tate um nauðgun Tvær konur hafa rætt við BBC og lýst því að hafa verið nauðgað af áhrifavaldinum Andrew Tate. Þriðja konan segist hafa verið nauðgað af Tristan, yngri bróður Andrew. Erlent 9.9.2024 07:10
Sammála um að Rússar þurfi að eiga aðkomu að næstu friðarráðstefnu Olaf Scholz, kanslari Þýskalands, sagði í samtali við sjónvarpsstöðina ZDF í gær að hann og Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti væru sammála um að Rússar þyrftu að eiga aðkomu að næstu friðarráðstefnu um endalok innrásarinnar í Úkraínu. Erlent 9.9.2024 06:46
Munurinn nemur þriggja ára skólagöngu Mikill munur er á leikskólagöngu barna foreldra sem fæddust á Íslandi og barna innflytjenda. Börn innflytjenda sem sækja leikskóla eru hlutfallslega talsvert færri en börn innfæddra og ganga gjarnan seinna í leikskóla. Þessi þróun ýti undir mismunun í skólakerfinu og á vinnumarkaðnum. Það geri heimgreiðslur sömuleiðis. Innlent 9.9.2024 06:45
Fjórir sagðir látnir eftir árásir Ísraela á Sýrland Minnst fjórir eru sagðir hafa látist í eldflaugaárásum Ísraelshers á bæinn Masyaf í vesturhluta Sýrlands í kvöld. Ekki liggur fyrir hvort hinir látnu séu hermenn Erlent 8.9.2024 23:20
„Gætu orðið áhrifamestu kappræður allra tíma“ Aðeins tveir dagar eru nú í fyrstu kappræður Kamölu Harris og Donalds Trump, sem lýst hefur verið sem mikilvægustu stund kosningabaráttunnar. Frambjóðendurnir mælast hnífjafnir og gríðarleg eftirvænting er fyrir kappræðunum vestanhafs, sem haldnar verða í Fíladelfíu á þriðjudag. Erlent 8.9.2024 22:08