Erlent
165 166 167 168 169 170 171 172 173 … 334 ›
Átök í París eftir ákvörðun um að þröngva umdeildu frumvarpi í gegnum þingið Til átaka kom á milli lögreglunnar í París og fleiri borgum Frakklands og mótmælenda í gærkvöldi eftir að ríkisstjórn Emmanuels Macrons forseta ákvað að þröngva breytingum á eftirlaunakerfinu í gegnum franska þingið án þess að greiða um það atkvæði. Erlent 17.3.2023 07:31
Týnda úranið mögulega fundið Hersveitir í austurhluta Líbíu segjast hafa fundið um tvö og hálft tonn af úrani sem leitað hafði verið. Alþjóðakjarnorkumálastofnunin (IAEA) hefur ekki staðfest fund hersveitanna. Erlent 16.3.2023 20:01
Pólverjar fyrstir til að senda orrustuþotur til Úkraínu Andrzej Duda, forseti Póllands, tilkynnti í dag að minnst ellefu MiG-29 orrustuþotur frá tímum Sovétríkjanna yrðu sendar til Úkraínu og að fjórar þeirra yrðu sendar á næstu dögum. Pólland varð þar með fyrsta aðildarríki Atlantshafsbandalagsins til að senda Úkraínumönnum orrustuþotur. Erlent 16.3.2023 16:19
Macron þvingar í gegn breytingar á lífeyriskerfi Franska ríkisstjórnin ákvað að þvinga í gegn óvinsælar breytinga á eftirlaunakerfi landsins rétt áður en atkvæðagreiðsla átti að fara fram um þær í neðri deild þingsins í dag. Ákvörðunin byggir á sérstöku stjórnarskrárákvæði. Erlent 16.3.2023 14:46
Kókaínframleiðsla jókst um þrjátíu og fimm prósent á einu ári Kókaínframleiðsla jókst um 35 prósent milli 2020 og 2021 og hefur aldrei verið meiri. Þetta kemur fram í niðurstöðum nýrrar rannsóknar á vegum Sameinuðu þjóðanna en þar segir að umfang kókaínsölu sé að aukast í Afríku. Erlent 16.3.2023 14:31
Tekist á um dánarbú Leonards Cohen Einkaerfingjar kanadíska ljóðskáldsins og tónlistarmannsins Leonards Cohen saka umboðsmann söngvarans um að reyna að ræna dánarbúinu innan frá. Dánarbúið er metið á tæpar 50 milljónir dala og þessa dagana er tekist á um það fyrir dómstólum í Los Angeles. Erlent 16.3.2023 14:01
Vísindamenn mótfallnir fyrirhugaðri kolkrabbaræktun Sérfræðingar eru uggandi vegna fyrirætlana fjölþjóðlega fyrirtækisins Nueva Pescanova að rækta kolkrabba í matvælaframleiðslu á Kanaríeyjum á Spáni. Til stendur að slátra dýrunum, sem eru afar skynugar skepnur, með aðferðum sem sérfræðingarnir segja grimmilegar. Erlent 16.3.2023 12:40
Fyrsti fundur ráðamanna Japans og Suður-Kóreu í tólf ár Fumio Kishida, forsætisráðherra Japans, og Yoon Suk Yeol, forseti Suður-Kóreu, hittust í morgun og er það í fyrsta sinn sem leiðtogar ríkjanna gera það í tólf ár. Í aðdraganda fundarins samþykktu ráðamenn í báðum ríkjum að taka skref til að binda enda á langvarandi deilur þeirra. Erlent 16.3.2023 12:30
Opnað á ísbjarnatúrisma á Grænlandi Yfirvöld í Grænlandi hafa ákveðið að slaka á reglum sem gilda um það að nálgast ísbirni þar í landi. Reglubreytingin opnar á svokallaðan ísbjarnatúrisma. Erlent 16.3.2023 11:12
Nokkur tonn af úrani horfin í Líbíu Alþjóðakjarnorkumálastofunin (IAEA) segir að um tvö og hálft tonn af náttúrulegu úrani sem var geymt í Líbíu séu horfin. Rannsókn stendur yfir á hvernig það kom til að geislavirka efnið var fært og hvar það er niður komið. Erlent 16.3.2023 10:09
Birtu myndband af þotunni lenda á drónanum Varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna hefur birt myndband sem sýnir þegar rússneskri herþotu var flogið á bandarískan dróna yfir Svartahafi. Myndbandið sýnir rússneska flugmenn reyna að varpa eldsneyti á drónann og í annarri tilrauninni lendir ein herþotan utan í drónanum svo hreyfill hans skemmist. Erlent 16.3.2023 10:08
Fyrstu merkin um að Venus sé enn eldvirk Reikistjörnufræðingar hafa í fyrsta skipti fundið beinar jarðfræðilegar vísbendingar um að eldvirkni sé enn til staðar á yfirborði nágrannareikistjörnunnar Venusar. Uppgötvunin getur hjálpað vísindamönnum að skilja hvernig Venus og jörðin þróuðust hvor í sína áttina. Erlent 16.3.2023 09:03
Rússar sagðir komnir á staðinn þar sem dróninn brotlenti Rússar eru mættir á staðinn þar sem flygyldi Bandaríkjamanna brotlenti á Svartahafi. Mark Milley, formaður herforingjaráðs Bandaríkjanna, segir drónann líklega á töluverðu dýpi og að erfitt verði að ná honum upp. Erlent 16.3.2023 07:51
Tyrkir sagðir ætla að samþykkja umsókn Finna Útlit er fyrir að yfirvöld í Tyrklandi ætli að samþykkja aðildarumsókn Finna í Atlantshafsbandalagið á næstu vikum en forseti Finnlands mun fara til Tyrklands á morgun. Tyrkir ætla þó ekki að samþykkja umsókn Svía að svo stöddu. Erlent 15.3.2023 16:48
Kafaði 52 metra á einum andardrætti Hinn fjörutíu ára gamli David Vencl sló í gær heimsmetið í frjálsri köfun án hlífðarbúnaðs. Kafaði hann 52 metra ofan í Sils-vatn í Sviss en til samanburðar er djúpi endi Vesturbæjarlaugar 3,8 metrar. Erlent 15.3.2023 15:51
Rússar ætla að sækja drónann í Svartahaf Rússar ætla að reyna að sækja brak bandaríska drónans sem brotlenti í Svartahafi í gær. Bandaríkjamenn segja drónann hafa lent í hafinu eftir að rússneskri herþotu hafi verið flogið utan í hann. Erlent 15.3.2023 15:00
Saksóknarinn í málinu gegn Baldwin segir af sér Saksóknari sem haldið hefur utan um rannsókn yfirvalda í Nýju Mexíkó á dauða Haylynu Hutchins, sem leikarinn Alec Baldwin skaut til bana við tökur myndarinnar Rust, hefur sagt af sér. Það er eftir að lögmenn Baldwins héldu því fram að skipun hennar í embætti sérstaks saksóknara færi gegn stjórnarskrá ríkisins, þar sem Andrea Reeb, umræddur saksóknari, sæti einnig á þingi Nýju Mexíkó. Erlent 15.3.2023 14:20
Bein útsending: Opinbera nýja búninga fyrir tunglferðir komandi ára Forsvarsmenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA) og fyrirtækisins Axiom Space ætla að kynna nýja geimbúninga sem notaðir verða í Artemis áætluninni í dag. Um er að ræða búninga sem geimfarar munu væntanlega klæðast yfirborði tunglsins á komandi árum. Erlent 15.3.2023 14:00
Tókust á við lögreglu og komu í veg fyrir handtöku Imrans Khans Til átaka kom milli lögregluþjóna og stuðningsmanna Imrans Khans, fyrrverandi forsætisráðherra Pakistans, þegar þeir fyrrnefndu reyndu að handtaka þann síðarnefnda í gær. Til stóð að handtaka hann fyrir að mæta ekki í dómsal vegna ákæra um spillingu en það reyndist erfitt. Erlent 15.3.2023 11:18
Deilt um markaðsleyfi þungunarrofslyfja í Bandaríkjunum Alríkisdómari í Amarillo í Texas mun í dag hlýða á málflutning í máli sem samtök andstæðinga þungunarrofs hafa höfðað gegn Matvæla- og lyfjastofnun Bandaríkjanna til að fá þungunarrofslyfið mifepristone bannað. Erlent 15.3.2023 10:29
5.600 tonn af rusli hlaðborð fyrir rottur Parísarborgar Borgaryfirvöld í París segja 5.600 tonn af rusli hafa safnast upp í borginni eftir að sorphirðustarfsmenn lögðu niður störf til að mótmæla fyrirætlunum stjórnvalda um að hækka eftirlaunaaldurinn úr 62 árum í 64 ár. Erlent 15.3.2023 09:00
„Hvert einasta kyssti á mér rassinn“ Ný bók sem inniheldur bréf sem þjóðhöfðingjar og aðrir þekktir einstaklingar sendu Donald Trump áður eða eftir að hann varð forseti, mun sýna fram á að allir „kysstu á honum rassinn“, eins og hann komst að orði í samtali við Breitbart News í gær. Erlent 15.3.2023 07:49
Enn fækkar þeim ríkjum sem styðja Taívan Forseti Hondúras, Xiomara Castro segist hafa fyrirskipað utanríkisráðuneyti landsins að koma á formlegum tengslum við stjórnvöld í Kína. Erlent 15.3.2023 07:40
Fellibylurinn Freddy orðinn sá langlífasti í sögunni Fellibylurinn Freddy hefur skilið eftir sig slóð eyðileggingar í Afríkuríkjunum Malaví og Mósambík en tala látinna á svæðinu fór yfir 200 í gær. Erlent 15.3.2023 07:35
Kjósendur styðja forseta sem ætlar að brjóta gegn stjórnarskrá Hátt í sjötíu prósent svarenda í nýrri skoðanakönnun styðja Nayib Bukele, forseta El Salvador, til endurkjörs þrátt fyrir að stjórnarskrá landsins kveði á um að forseti geti ekki setið fleiri en eitt kjörtímabil í einu. Bukele ætlar að bjóða sig fram engu að síður. Erlent 15.3.2023 07:01
Sendiherra Rússa í Bandaríkjunum kallar uppákomuna „ögrun“ Anatoly Antonov, sendiherra Rússlands í Bandaríkjunum, sagði í samtali við ríkisfréttastofuna RIA í gær að atvik sem átti sér stað í gær þegar rússneskar herþotur höfðu afskipti af bandarískum dróna hefði falið í sér ögrun. Erlent 15.3.2023 06:40
Rændi þrettán ára stelpu og læsti í skúr í tvær vikur Karlmaður í Norður-Karólínu fylki í Bandaríkjunum var á föstudaginn handtekinn grunaður um að hafa rænt þrettán ára stelpu, brotið gegn henni kynferðislega og læst hana inni í skúr í tvær vikur. Maðurinn á yfir höfði sér fjölda ákæra fyrir brot sín. Erlent 14.3.2023 23:33
Ökumaðurinn talinn hafa ekið vegfarendur viljandi niður Saksóknarar í Quebec í Kanada ákærðu karlmann á fertugsaldri fyrir háskaakstur eftir að hann ók pallbíl inn í hóp gangandi vegfarenda í gær. Tveir aldraðir karlmenn létu lífið en ökumaðurinn er talinn hafa ekið viljandi á fólkið. Erlent 14.3.2023 23:32
Fönguðu dauðateygjur verðandi sprengistjörnu Innrautt auga James Webb-geimsjónaukans náði mynd af sjaldséðri og skammlífri tegund risavaxinnar stjörnu í dauðateygjunum. Athuganir sjónaukans veita stjörnufræðingum í fyrsta skipti tækifæri til að fræðast meira um geimryk sem leikur lykilhlutverk í þróun alheimsins. Erlent 14.3.2023 21:55
Konungur Serengeti er dauður Ljónið Bob yngri, oft þekktur sem Konungur Serengeti-þjóðgarðsins í Tansaníu, er dautt. Talið er að nokkur yngri ljón hafi drepið hann. Erlent 14.3.2023 20:46