Erlent
199 200 201 202 203 204 205 206 207 … 334 ›
Segir Vesturlönd hrokafull og misnota mannréttindaráð SÞ Fulltrúi Írans í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna segir Vesturlönd skorta siðferðilegan trúverðugleika til að gagnrýna Íran en Ísland og Þýskaland kölluðu eftir sérstökum aukafundi í ráðinu um ástand mannréttindamála í Íran. Erlent 24.11.2022 14:06
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Yfirmenn sagðir hafa hvatt til nauðgana Ekkert lát virðist ætla að vera á árásum Rússa á orkuinnviði í Úkraínu en þessum árásum hefur verið lýst sem stríðsglæpum. Veturinn er að ganga í garð í Úkraínu og er þegar byrjaður að hafa áhrif á víglínunum og heimilum óbreyttra borgara. Erlent 24.11.2022 13:01
Bein útsending: Mannréttindaráð fundar um Íran að beiðni Íslands og Þýskalands Mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna í Genf heldur í dag sérstakan aukafund um ástand mannréttindamála í Íran. Fundurinn er haldinn að beiðni Íslands og Þýskalands og er honum ætlað að knýja á um að Sameinuðu þjóðirnar hefji markvissa gagnaöflun varðandi framgöngu yfirvalda í Íran gegn friðsömum mótmælendum. Erlent 24.11.2022 09:34
Vilja taka skýrslu af varaforseta Trump Bandaríska dómsmálaráðuneytið vill taka vitnaskýrslu af Mike Pence, fyrrverandi varaforseta, í tengslum við sakamálarannsókn á tilraunum Donalds Trump til þess að halda í völdin eftir að hann tapaði forsetakosningunum fyrir tveimur árum. Pence er sagður opinn fyrir því að gefa skýrslu. Erlent 24.11.2022 08:33
Sakar Rússa enn og aftur um glæpi gegn mannkyni Volodómír Selenskí Úkraínuforseti sakar Rússa enn of aftur um glæpi gegn mannkyninu eftir að þeir skutu eldflaugum sínum enn og aftur á landið með það að augnamiði að eyðileggja orkuinnviði. Erlent 24.11.2022 07:29
Staðfest kórónusmit aldrei fleiri í Kína Kórónuveiran virðist vera að sækja verulega í sig veðrið í Kína þessi dægrin en í gær voru tæplega 32 þúsund tilfelli staðfest af veirunni í landinu öllu en það það mesta sem sést hefur þar frá því veiran fór fyrst að láta á sér kræla. Erlent 24.11.2022 07:21
Færeyingar endurnýja umdeildan fiskveiðisamning við Rússa Færeyingar hafa endurnýjað umdeildan fiskveiðisamning við Rússland. Almenn pólitísk samstaða er um málið og verður samningurinn endurnýjaður til eins árs. Erlent 23.11.2022 22:08
Fjögur hundruð milljónir bandaríkjadala í hernaðaraðstoð Bandaríkjamenn hyggjast styðja Úkraínu um ígildi 400 milljón bandaríkjadala í hernaðaraðstoð. Vopn, skotfæri og loftvarnarkerfi verða meðal hergagna. Erlent 23.11.2022 18:48
Rússar grunaðir um netárás á vefsíðu Evrópuþingsins Netárás var gerð á vefsíðu Evrópuþingsins fyrr í dag. Árásin var gerð mjög skömmu eftir að þingmenn samþykktu þingsályktun um að skilgreina Rússland sem hryðjuverkaríki. Rússneskur hópur hefur lýst yfir ábyrgð. Erlent 23.11.2022 17:36
Víða rafmagnslaust eftir enn eitt stýriflaugaregnið Umfangsmiklar stýriflaugaárásir Rússa á Úkraínu í dag hafa leitt til þess að rafmagnslaust er víða um landið. Minnst þrír eru látnir og níu særðir í Kænugarði og er borgin þar að auki án neysluvatns í kjölfar árásanna. Erlent 23.11.2022 15:32
Skotar mega ekki kjósa um sjálfstæði aftur án leyfis Æðsti dómstóll Bretlands bannað skosku heimstjórninni að halda aðra atkvæðagreiðslu um sjálfstæði Skotlands án samþykkis breska þingsins í dag. Skoskir þjóðernissinnar vonuðust til þess að kjósa aftur um sjálfstæði á næsta ári. Erlent 23.11.2022 14:50
Leggja mikið kapp á að koma jarðsýnum frá Mars til jarðarinnar Geimvísindastofnanir Evrópu (ESA) og Bandaríkjanna (NASA) opinberuðu nýverið áætlun sem snýr að því að sækja jarðsýni til Mars og flytja til jarðarinnar. Vélmennið Perseverance, sem lenti á Mars í fyrra, er þegar byrjað að bora eftir jarðsýnum. Erlent 23.11.2022 14:25
Skilgreina Rússland sem hryðjuverkaríki: Tveggja daga gamalt barn dó í eldflaugaárás á fæðingardeild Þingmenn Evrópuþingsins samþykktu í dag þingsályktun um að skilgreina Rússland sem hryðjuverkaríki. Er það gert með vísan í ítrekaðar árásir Rússa á orkuinnviði Úkraínu, sjúkrahús, skóla og neyðarskýli. Nýfætt barn lést í árás Rússa á fæðingardeild í suðurhluta landsins í nótt. Erlent 23.11.2022 12:09
Skotar þurfa leyfi fyrir nýrri atkvæðagreiðslu Skoska heimastjórnin má ekki halda nýja þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálfstæði, án leyfis frá breska þinginu. Hæstiréttur Bretlands opinberaði þessa niðurstöðu í morgun en Nicola Sturgeon, oddviti heimastjórnarinnar, stefndi á atkvæðagreiðslu í október á næsta ári. Erlent 23.11.2022 11:02
Berjast um mikilvægan skaga við ósa Dniproár Yfirvöld í Úkraínu segjast ætla að reka rússneska hermenn frá mikilvægum skaga vestur af Kherson-borg. Úkraínskir sérsveitarmenn eru þegar sagðir berjast við rússneska hermenn á Kinburn-skaga við ósa Dniproár við Svartahaf. Erlent 23.11.2022 10:28
Segja byssumanninn í Koloradó kynsegin Lögmenn byssumanns sem skaut fimm manns til bana á næturklúbbi samkynhneigðra í Koloradó í Bandaríkjunum fullyrða að hann sé kynsegin. Hán gæti átt yfir höfði sér ákæru fyrir hatursglæp og á að koma fyrir dómara í fyrsta skipti í dag. Erlent 23.11.2022 08:41
Mótmælir formlega niðurstöðum kosninganna Jair Bolsonaro, fráfarandi forseti Brasilíu hefur sent formlega kvörtun til kosningayfirvalda þar í landi þar sem hann mótmælir niðurstöðum forsetakosninganna í október. Þar beið hann naumlega lægri hlut gegn Luiz Inacio „Lula“ da Silva. Erlent 23.11.2022 07:43
Fimmtán særðir eftir sprengjuárás í Jerúsalem Að minnsta kosti fimmtán eru særðir eftir að tvær sprengjuárásir voru gerðar í Jerúsalem í Ísrael í morgun. Erlent 23.11.2022 07:23
Hæstiréttur leggur blessun sína yfir afhendingu skattskýrslna Trump Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur heimilað þingnefnd að fá afhent afrit af skattskýrslum Donalds Trump Bandaríkjaforseta. Demókratar hafa barist fyrir því í þrjú ár að komast yfir gögnin. Erlent 23.11.2022 06:56
Um tíu látnir eftir skothríð verslunarstjóra Walmart í Virginíu Allt að tíu eru látnir eftir að maður hóf skothríð inni í Walmart-verslun í Virginíu í Bandaríkjunum í nótt. Erlendir fjölmiðlar segja að talið sé að árásarmaðurinn sé verslunarstjóri verslunarinnar. Erlent 23.11.2022 06:49
Eignaðist tvíbura með þrítugum fósturvísum Hjón í Tennessee-ríki í Bandaríkjunum eignaðust undir lok síðasta mánaðar tvíbura. Þau notuðust við fósturvísa sem höfðu verið frystir í apríl árið 1992. Um er að ræða heimsmet. Erlent 22.11.2022 19:00
Fordæmalaus sýn á andrúmsloft fjarreikistjörnu Geimvísindastofnun Bandaríkjanna (NASA) hefur birt nýjar mynd sem tekin var með James Webb geimsjónaukanum. Um er að ræða litrófsgreiningu af andrúmslofti fjarlægs gasrisa en greiningin hefur varpað ljósi á hvaða efni finna má í andrúmslofti reikistjörnunnar og er það í fyrsta sinn sem geimvísindamenn öðlast svo nákvæm gögn af þessu tagi. Erlent 22.11.2022 17:04
Njósnararnir í Stokkhólmi eru rússnesk hjón á sjötugsaldri Lögregluþjónar og hermenn handtóku í morgun rússnesk hjón í úthverfi Stokkhólms í Svíþjóð. Klukkan sex að staðartíma í morgun var tveimur herþyrlum flogið að heimili hjónanna og út streymdu menn sem handtóku þau en hjónin eru grunuð um njósnir í Svíþjóð og öðru ríki í um tíu ár. Erlent 22.11.2022 15:29
Ein forystukvenna mæðranna á Maítorgi látin Baráttukona sem átti þátt í að stofna samtökin Mæðurnar á Maítorgi sem kröfðust þess að fá að vita um afdrif fólks sem herforingjastjórn Argentínu lét hverfa er látin, 93 ára að aldri. Tveir synir hennar voru á meðal fórnarlamba stjórnarinnar. Erlent 22.11.2022 11:59
Vopnaframleiðendur beðnir um að bretta upp ermarnar Ráðamenn á Vesturlöndum hafa áhyggjur af því hve mikið vestrænir herir hafa þurft að ganga á skotfærabirgðir sínar vegna vopnasendinga til Úkraínu. Vopnaframleiðendur hafa verið beðnir um að bretta upp ermarnar og auka framleiðslu á vopnum og skotfærum og sérstaklega með tilliti til þess að stríðinu í Úkraínu mun líklega ekki ljúka á næstunni. Erlent 22.11.2022 11:27
Fjölmörg skólabörn í hópi látinna í Indónesíu Fjölmörg skólabörn eru í hópi látinna eftir að mikill jarðskjálfti varð á indónesísku eyjunni Jövu í gær. Börnin voru stödd í skólum sem hrundu til grunna þegar skjálftinn reið yfir. Erlent 22.11.2022 11:04
Snjókoma raskar daglegu lífi Svía og Dana Óvenjumikil snjókoma hefur raskað lífi Dana og Svía síðustu daga. Nokkuð hefur nú dregið úr ofankomunni, en snjóveðrið hefur verið að færa sig í norðurátt. Erlent 22.11.2022 10:24
Tveir handteknir fyrir njósnir í Svíþjóð Svíar hafa handtekið tvo grunaða njósnara. Hinir meintu njósnarar voru handteknir í Stokkhólmi en annar þeirra er grunaður um njósnir gegn bæði Svíþjóð og öðru landi. Hinn er grunaður um að aðstoða þann fyrri við hinar meintu njósnir. Erlent 22.11.2022 09:58
Tæklaði árásarmanninn en tapaði tengdasyninum Miðaldra fyrrverandi hermanni hefur verið hampað sem hetju eftir að hann afvopnaði og yfirbugaði árásarmann sem hóf skotárás á hinsegin skemmtistað í Colorado í Bandaríkjunum um helgina. Hann segist hafa farið ósjálfrátt í stríðsham þegar kúlunum byrjaði að rigna. Tengdasonur hermannsins er á meðal þeirra sem lést í árásinni. Erlent 22.11.2022 08:29
Milljónir í hættu á að deyja sökum kulda Milljónir Úkraínumanna eru í hættu á að deyja í vetur sökum kulda, segir Alþjóðaheilbrigðisstofnunin. Helmingur orkuinnviða landsins er skemmdur eða ónýtur og um 10 milljón manns án rafmagns. Erlent 22.11.2022 08:19
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu: „Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent