Innlent
130 131 132 133 134 135 136 137 138 … 334 ›
Skúli Tómas kominn með lækningaleyfi Skúli Tómas Gunnlaugsson, sem grunaður er um að hafa sett sjúklinga sína í tilefnislausar lífslokameðferðir, er kominn með lækningaleyfi á nýjan leik. Hann er grunaður um röð alvarlegra mistaka og vanrækslu og um að hafa valdið ótímabærum dauða níu sjúklinga. Innlent 8.7.2024 17:35
Rekinn umsvifalaust úr klúbbnum í miðju meistaramóti Davíð Jónsson var rekinn umsvifalaust úr Golfklúbbi Sandgerðis ásamt sonum hans tveimur í miðju meistaramóti. Von er á yfirlýsingu frá Golfklúbbi Sandgerðis vegna málsins. Innlent 8.7.2024 16:20
Læknirinn sem varð fyrir árásinni ætlar lengra með málið Heimilislæknir sem varð fyrir árás sjúklings á heilsugæslu í Reykjavík en fær ekki bætur frá ríkinu vegna málsins hyggst áfrýja dómi Héraðsdóms Reykjavíkur þess efnis. Innlent 8.7.2024 15:56
Bifhjólamaðurinn á Vestfjörðum ekki í lífshættu Svo virðist sem bifhjólaslysið sem varð í norðanverðum Arnarfirði í gær hafi komið til vegna óhapps. Engin umferðarlagabrot virðast hafa átt stað, segir Helgi Jensson, lögreglustjóri á Vestfjörðum. Innlent 8.7.2024 15:54
Náttúran hafi sterkt umboð í samfélaginu og þurfi ekki umboðsmann Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis- orku og loftslagsráðherra, sér ekki ástæðu til þess að stofna sérstakt embætti umboðsmanns náttúrunnar, náttúran hafi þegar sterkt umboð í samfélaginu. Þetta kemur fram í svari ráðherrans við fyrirspurn Valgerðar Árnadóttur, varaþingmanns Pírata. Innlent 8.7.2024 15:27
Lokað frá Heklu að Nóatúni í hálfan mánuð Laugavegi verður lokað í báðar áttir milli gatnamóta Nóatúns og Laugavegs og Laugavegs 172, þar sem bílaumboðið Hekla er til húsa. Veginum verður lokað frá og með 15. júlí út 29. júlí. Innlent 8.7.2024 14:28
Flestir treysta ríkisstjórninni miklu verr eftir að Bjarni tók við Sjötíu og tvö prósent landsmanna treysta ríkisstjórninni verr eftir að Bjarni Benediktsson tók við embætti forsætisráðherra. Hins vegar treysta ellefu prósent ríkisstjórninni betur eftir að Bjarni tók við stjórnartaumunum en átján prósent jafn mikið. Þetta eru niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Maskínu. Innlent 8.7.2024 14:26
Þaulskipulagt af hagsmunaaðilum og þeirra fulltrúum á þingi Formaður atvinnuveganefndar Alþingis á hlut í félagi sem Kaupfélag Skagfirðinga er að kaupa. Kaupin ganga í gegn án aðkomu Samkeppniseftirlitsins vegna breytinga á búvörulögum sem atvinnuveganefnd gerði. Framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda segir um skipulagða aðgerða hagsmunaaðila og fulltrúa þeirra á þingi að ræða. Innlent 8.7.2024 13:41
„Ég þekki líka kolruglaða menn og ég læt drepa þig“ Karlmaður á fertugsaldri hlaut þriggja mánaða fangelsisdóm í Héraðsdómi Reykjaness á dögunum fyrir að hafa haft í ítrekuðum hótunum við lögreglumenn á ellefu mánaða tímabili. Innlent 8.7.2024 13:33
Hillir loks undir framkvæmdir í Vesturbugt eftir sjö ára töf Félagið M3 fasteignaþróun var með hærra tilboð af tveimur í uppbyggingu tæplega tvö hundruð íbúða í Vesturbugt við Reykjavíkurhöfn sem opnuð voru á föstudag. Reykjavíkurborg rifti samningum við fyrri lóðarhafa sem sátu aðgerðarlausir í sjö ár eftir að hafa fengið lóðunum úthlutað til sín. Innlent 8.7.2024 12:58
Nú má heita Roj Mannanafnanefnd samþykkti í síðustu viku sex eiginnöfn, þar af fjögur kvenmannsnöfn og tvö karlmannsnöfn. Hins vegar var einu nafni hafnað. Innlent 8.7.2024 12:39
Samþjöppun á kjötmarkaði og vinstrimenn fagna í Frakklandi Í hádegisfréttum fjöllum við um fyrirhuguð kaup Kaupfélags Skagfirðinga á Kjarnafæði Norðlenska. Innlent 8.7.2024 11:38
Afstaða Sjálfstæðismanna á skjön við lýðheilsustefnu stjórnvalda „Standa þarf vörð um íslenska forvarnarmódelið og gagnreynda áfengisstefnu sem m.a. felst í takmörkun á aðgengi með því að viðhalda einkasölufyrirkomulagi ríkisins,“ segir í nýrri skýrslu heilbrigðisráðherra um áætlun um framkvæmd lýðheilsustefnu til fimm ára. Innlent 8.7.2024 11:27
„Klæðingin er engin skítaredding“ Forstöðumaður samskiptadeildar Vegagerðarinnar segir klæðingu á vegum ekki skítareddingu. Vegakerfið á Íslandi væri ekki að meirihluta á bundnu slitlagi ef ekki væri fyrir hana. Það sem sé hamlandi sé að vegna fjármagns nái Vegagerðin ekki að sinna viðhaldi eftir þörf. Viðhaldsskuld í íslensku vegakerfi kosti líklega tugi eða hundrað milljarða. Innlent 8.7.2024 11:06
Komu sér af vettvangi eftir árás á fjóra á veitingastað Enginn hefur verið handtekinn vegna líkamsárásar sem beindist gegn fjórum einstaklingum og átti sér stað á veitingastað í umdæmi Lögreglustöðvar þrjú, sem fer með mál í Kópavogi og Breiðholti, aðfaranótt sunnudags. Innlent 8.7.2024 10:36
Vill koma upp móttöku flóttamanna við Kaffi Vest Stefán Einar Stefánsson siðfræðingur, víninnflytjandi og fjölmiðlamaður á Mogganum segir mjög óþægilegt að bera fram erfiðar spurningar í viðtölum, en það sé hlutverk blaðamanna. Og er hann þá ekki síst að tala um innflytjenda- og hælisleitendamál. Innlent 8.7.2024 09:04
Myndband með jólalagi lykilsönnunargagn í fíkniefnamáli Adam Benito Pedie hlaut þriggja ára fangelsisdóm í Héraðsdómi Reykjaness í síðustu viku fyrir stórfelld fíkniefnalagabrot. Hann var ákærður fyrir að standa í innflutningi á fíkniefnum til Íslands í lok síðasta árs og upphafi þessa árs. Innlent 8.7.2024 08:41
Ráðherra segir fyrirkomulag borgaraþjónustunnar á Spáni ósjálfbært Utanríkisráðuneytið telur núverandi fyrirkomulag borgaraþjónustu á Spáni ósjálfbært til skemmri og lengri tíma. Áætlaður kostnaður við sendiskrifstofu er um 132 milljónir króna á ári að viðbættum stofnkostnaði fyrsta árið. Innlent 8.7.2024 06:47
Meintur strípalingur og sjö til viðbótar gistu fangageymslur lögreglu Átta gistu fangageymslur lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í nótt, þar af fjórir sem voru til vandræða vegna ölvunar. Sex ökumenn voru kærðir fyrir of hraðan akstur. Innlent 8.7.2024 06:18
Mikil uppbygging framundan á Borg í Grímsnesi Heitasti reiturinn á Suðurlandi hvað varðar uppbyggingu nýrrar íbúðabyggðar í dag er á Borg í Grímsnesi en þar er búið að skipuleggja stóra nýja íbúðabyggð fyrir 220 íbúðir, auk nokkurra stórra lóða undir verslun og þjónustu. Innlent 7.7.2024 20:05
Útkall vegna skútu sem strandaði í Eyjafirði Landhelgisgæslan og Landsbjörg hafa sent nokkur skip til þess að aðstoða skútu sem er strand fyrir Gása í Eyjafirði. Innlent 7.7.2024 19:01
Viðsnúningur í frönsku þingkosningunum Bandalag vinstri flokka leiðir samkvæmt útgönguspám í Frakklandi og Þjóðfylking Marine Le Pen er þriðji stærsti flokkurinn. Metþátttaka var í síðari umferð þingkosninganna. Sérfræðingur spáir í spilin í beinni útsendingu í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 7.7.2024 18:16
Egill syrgir brottvísun vina sinna Fjölmiðlamaðurinn Egill Helgason segist hryggja það að vinum hans, þau Tomasso og Analis, verði vísað brott og þau send aftur til Venesúela. Það sé sárt og óréttlátt að svo góðu fólki sé hrakið af landinu en hann fái, með sitt íslenska vegabréf, að ferðast um heiminn án vandræða. Innlent 7.7.2024 15:25
Tvær þyrlur sinntu sjúkraflutningi vegna bifhjólaslyss Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út rétt eftir hádegi vegna bifhjólaslyss í Arnarfirði á Vestfjörðum en einn var fluttur á Landspítalann í Fossvogi. Innlent 7.7.2024 14:33
Segir Akranes verða svefnbæ Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, segir nánast alla atvinnustarfsemi á Akranesi vera farna og að stefni í að bærinn verði aðeins náttstaður íbúa. Rúmur fjórðungur Skagamanna sæki þegar atvinnu til Reykjavíkur og þörf sé á aðgerðum til að sporna við þessari þróun. Innlent 7.7.2024 14:15
Útilokar ekki kosningu en Jón vill kjósa áður en það verður of seint „Hvenær rétti tímapunkturinn væri fyrir íbúakosningu og hvað við værum nákvæmlega að kjósa um þurfum við bara að skoða þegar nær líður. Það er ekki búið að ganga frá neinu skuldbindandi samkomulagi. Það er mjög mikilvægt í mínum huga. Það er alls ekki.“ Innlent 7.7.2024 13:30
Íbúum í Árborg fjölgar um 600 til 700 á ári Íbúum í Sveitarfélaginu Árborg heldur áfram að fjölga og fjölga en nú er íbúatalan komin yfir tólf þúsund. Að sögn bæjarstjóra er nýjum íbúum að fjölga um sex til sjö hundruð á ári. Innlent 7.7.2024 13:07
Reikna með að hefja formlegar sameiningarviðræður í haust Samþykkt hefur verið að hefja formlegar sameiningarviðræður sveitarfélaganna Skorradalshrepps og Borgarbyggðar. Lagt er upp með að stefnt verið að íbúakosningu um sameiningu árið 2025. Skiptar skoðanir eru uppi innan sveitarstjórnar Skorradalshrepps um áformin en minnihluti hreppsnefndar telur varaoddvita vanhæfan í málinu. Innlent 7.7.2024 12:59
Annríkt hjá lögreglu á stærsta degi Írskra daga Annríkt var hjá lögreglunni á Vesturlandi í nótt og fram eftir morgni og sinnti hún um sjötíu málum. Innlent 7.7.2024 11:40
Lögregluaðgerðir í Rangárþingi og sameining Skorradals og Borgarbyggðar Lögregla vopnaðist og skotvopn var haldlagt í aðgerðum lögreglu í Rangárþingi ytra í gær. Mennirnir tveir sem handteknir voru í aðgerðunum voru látnir lausir úr haldi í gærkvöldi. Fjallað verður um málið í hádegisfréttum á Bylgjunni. Innlent 7.7.2024 11:37