„Trúi varla að Viðreisn sé á móti því að flagga hinsegin fánanum“ Bjarki Sigurðsson skrifar 30. maí 2026 13:55 Sanna Magdalena er oddviti Vinstrisins. Vísir/Vilhelm Borgarfulltrúar Vinstrisins eru afar gagnrýnir á fyrstu mál nýs meirihluta í borginni, sem meðal annars varða niðurfellingu reglna um notkun fána og stofnun öldungaráðs.
Dagskrá fyrsta fundar nýrrar borgarstjórnar Reykjavíkur birtist í gær. Fundurinn er á þriðjudag og þar verður staðfest að Hildur Björnsdóttir taki við sem borgarstjóri og Björg Magnúsdóttir sem forseti borgarstjórnar. Þá verður valið í hin ýmsu ráð borgarinnar en meirihlutinn leggur einnig til ýmsar breytingar á þeim. Þrjú ný ráð verði stofnuð, leikskóla- og daggæsluráð, menningarráð og öldungaráð. Hið síðastnefnda var í fyrra fært inn í mannréttindaráð. Þá er lagt til að reglur um notkun fána við stjórnsýsluhús borgarinnar verði felldar niður. Sanna Magdalena Mörtudóttir, oddviti Vinstrisins, er gagnrýnin á hugmyndirnar. „Þessar fánareglur fjalla um miklu meira en íslenska þjóðfánann og hvenær hann fer upp. Það er líka fjallað um fána Reykjavíkurborgar, fána erlendra ríkja sem eru við móttökur í Höfða og fána tengd viðburðum. Það er ýmislegt þarna sem virðist ekki útfært nægilega vel því ég trúi varla að Viðreisn sé á móti því að flagga hinsegin fánanum til að sýna samstöðu þegar slíkt á við, svo ég taki dæmi,“ segir Sanna. Hugmyndir um daggæslu- og leikskólaráð sýni hvernig meirihlutaflokkarnir horfi á leikskólastarf. „Þannig endurspeglast sýnin hjá þessum hægri flokkum þegar verið er að stofna daggæslu- og leikskólaráð. Heitið eitt og sér gefur ýmislegt til kynna, ef verið er að fara að horfa á ummönnun ungra barna sem daggæslu í stað þess að byggja upp leikskólastigið og hvernig við gerum það best. Að gera góða og öfluga leikskóla sem hægt er að stóla á,“ segir Sanna. Fram undan hjá Vinstrinu er kjörtímabil í minnihluta en Sanna segir það skárra að Sjálfstæðisflokkurinn hafi valið Viðreisn og Framsókn í meirihluta frekar en Miðflokk. „Svona í ljósi þess sem sá flokkur hefur lagt áherslu á í tengslum við mannréttindi og slíkt. Auðvitað er ekki beint fagnaðarefni hjá vinstri flokki að sjá hægri meirihluta taka við völdum. En við óskum þeim velfarnaðar í því sem er fram undan,“ segir Sanna.
Reykjavík Borgarstjórn Sveitarstjórnarmál Íslenski fáninn Vinstrið Mest lesið Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Erlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Trump samdi við Pútín um dísel Erlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Innlent Fleiri fréttir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Sjá meira