Innlent
264 265 266 267 268 269 270 271 272 … 334 ›
Blóðsykurshræðsla stýri umræðu um mat Aðjúnkt í næringarfræði segir margar mýtur um mat á sveimi. Blóðsykurshræðsla hafi stýrt umræðunni undanfarið og áhrifavaldar græði á því með sölu óþarfa blóðsykursmæla. Sérstaklega sé mikið af mýtum tengdum lágkolvetnabylgjunni sem ríði yfir og fólk boði þar einfaldar óvísindalegar lausnir. Innlent 26.2.2024 15:13
Þjóðin grætur biskup sinn Heilar tvær opnur og ein síða til eru lagðar undir minningarorð um Karl Sigurbjörnsson biskup í Morgunblaði dagsins en Karl var jarðsunginn frá Hallgrímskirkju klukkan 13. Fá dæmi eru um annað eins. Á samfélagsmiðlum minnast margir Karls biskups með hlýju. Innlent 26.2.2024 14:39
Geti ekki lengur falið sig á bakvið embættismenn og lögfræðinga Forseti bæjarstjórnar Vestmannaeyjar segir að Óbyggðanefnd hafi í síðustu viku hafnað ósk fjármálaráðherra um breytta málsmeðferð vegna kröfulýsingar ríkisins á landi í Vestmannaeyjum. Hann segir ráðherrann ekki geta falið sig á bakvið embættismenn og lögfræðiskrifstofu, valdið sé hennar. Innlent 26.2.2024 13:56
Gripinn glóðvolgur með tvö kíló af kókaíni Erlendur karlmaður hefur verið dæmdur í tveggja ára og átta mánaða fangelsi eftir að hafa verið gripinn með rúmlega tvö kíló af kókaíni í ferðatösku sinni við komuna til landsins í desember síðastliðnum. Innlent 26.2.2024 13:42
Þrjú kynferðisbrotamál tengd leigubílstjórum áhyggjuefni Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur nú til rannsóknar kynferðisbrot leigubílstjóra sem sakaður er um að hafa brotið á konu í lok nóvember í leigubíl. Tvö önnur mál hafa komið upp nýlega sem tengjast kynferðisbrotum leigubílstjóra. Búið er að dæma í einu þeirra. Innlent 26.2.2024 13:06
Reiknar enn með að gjósi í vikunni með litlum fyrirvara Jarðeðlisfræðingur segir enn allt benda til þess að eldgos hefjist í þessari viku með litlum fyrirvara. Þeir sem dvelji í Grindavík verði að vera viðbúnir að yfirgefa bæinn í snatri. Innlent 26.2.2024 12:01
Beðin um að flytja ekki dýr aftur í bæinn Matvælastofnun vill beina þeim tilmælum til Grindvíkinga að flytja ekki dýrin sín aftur inn í bæinn, jafnvel þó aðgengi hafi verið rýmkað. Þetta kemur fram í tilkynningu. Innlent 26.2.2024 12:00
Tíðinda að vænta í kjaraviðræðum um miðja vikuna Vonir eru bundnar við að niðurstaða fáist í kjaraviðræður um eða upp úr miðri þessari viku. Brotthvarf VR og Landssambands verslunarmanna úr breiðfylkingu stéttarfélaga innan Alþýðusambandsins hefur hins vegar flækt stöðuna. Innlent 26.2.2024 11:42
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum Bylgjunnar tökum við stöðuna á Reykjanesi og áframhaldandi jarðhræringum á svæðinu. Innlent 26.2.2024 11:33
Skora á ríkisstjórnina að láta af frystingu Íslandsdeild Amnesty International (AI) hefur sent út áskorun til íslenskra stjórnvalda þar sem hvatt er til þess að þau láti af frystingu framlags til Palestínuflóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna (UNRWA). Málið enn til skoðunar hjá ráðuneytinu. Innlent 26.2.2024 10:26
Prófa viðvörunarlúðra í Grindavík Almannavarnir ætla að prófa viðvörunarlúðra í Grindavík og við Bláa lónið í kvöld. Þetta kemur fram í tilkynningu. Innlent 26.2.2024 10:04
Eldur kviknaði í rútu í Hafnarfirði Eldur kom upp í rútu við bensínstöð N1 við Lækjargötu í Hafnarfirði í morgun. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu komu allir farþegar auk bílstjóra sér út í tæka tíð. Innlent 26.2.2024 08:57
Gervihnattamyndir sýni víðfeðmt landris á Íslandi Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur vill að stjórnvöld undirbúi sig undir allar mögulegar sviðsmyndir vegna eldgosa á Reykjanesi, meðal annars þá að Reykjanesbraut kunni að lokast. Gervihnattamyndir sýna víðfeðmt landris á Íslandi og grunar Þorvald að möttulstrókur undir landinu beri ábyrgð. Sé það rétt geti það bent til aukinnar gosvirkni um land allt. Innlent 26.2.2024 08:38
Tóku út gremju sína á leigubifreið og lögreglustöð Sex gistu fangageymslur lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í nótt, meðal annars einstaklingur sem fjarlægja þurfti af bar í miðbænum. Gat hann ekki greint frá því hvar hann ætti heima og fékk því að sofa úr sér hjá lögreglu. Innlent 26.2.2024 06:54
Blendnar tilfinningar til breytinga hjá sundlaugunum Blendnar tilfinningar eru meðal sundlaugargesta vegna breytinga á opnunartímum sundlauga í borginni. Dögum þar sem laugarnar standa opnar fjölgar svo um munar á árinu - en kvöldsund skerðist hins vegar talsvert. Innlent 25.2.2024 21:12
Fundi lokið og annar boðaður í fyrramálið Samningsfundi breiðfylkingarinnar og Samtaka atvinnulífsins í Karphúsinu lauk fyrir skemmstu og hefur annar verið boðaður klukkan níu í fyrramálið. Innlent 25.2.2024 18:49
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Vonir standa til að samkomulag um vopnahlé og gíslaskipti milli Ísrael og Hamas náist á næstunni. Á sama tíma undirbúa Ísraelsmenn að sækja inn í syðstu borg Gasa af auknum þunga á meðan flóttamannaaðstoð Sameinuðu þjóðanna er á barmi algjörs þrots. Magnea Marínósdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur fer yfir stöðuna í myndveri í beinni útsendingu. Innlent 25.2.2024 18:20
Mygla fannst í stjórnsýsluhúsinu Mygla hefur greinst í stjórnsýsluhúsi Norðurþings á Húsavík. Niðurstaða greiningar verkfræðistofunnar Verkís hefur leitt í ljós að myglu er að finna á þremur stöðum en að kjallarinn sé verst farinn. Innlent 25.2.2024 18:11
Forsetahjónin ræddu við Palestínumenn á Bessastöðum Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands og eiginkona hans Eliza Reid ræddu á föstudaginn við Palestínumenn búsetta á Íslandi á Bessastöðum yfir kaffi og kleinum. Þau ræddu um stríðið sem geysar á Gasa og áhrif þess á Palestínumenn hérlendis og annars staðar. Innlent 25.2.2024 17:59
„Oft ansi ljótir hlutir sagðir á meðan maður er að spila“ Ísabella Lindudóttir hefur síðustu ár spilað mikið af tölvuleikjum þar sem margir spila saman. Hún lendir ítrekað í því að talað sé við hana í kynferðislegum tón eða henni jafnvel hótað ofbeldi. Hún segir mikilvægt að þetta sé rætt og reynt að koma í veg fyrir þetta. Innlent 25.2.2024 16:30
„Akkúrat þessi fyrirvari sem veldur okkur áhyggjum“ „Staðan er bara sú að við deilum áhyggjum Veðurstofunnar yfir því hvað geti gerst á næstu dögum,“ segir Hjördís Guðmundsdóttir samskiptastjóri almannavarna um stöðuna á Reykjanesi. Veðurstofan telur eldgos líklegt í vikunni sem nú fer í hönd og að byrjað gæti að gjósa með innan við hálftíma fyrirvara. Innlent 25.2.2024 16:26
Skýra hvað gervigreind megi nota: Hemmi Gunn í Áramótaskaupinu sýndi alþjóð möguleg áhrif Þingmaður Pírata hefur lagt fram frumvarp þar sem kveðið er á um hvað gervigreind má nota og hvað ekki. Innkoma gervigreindarútgáfu af Hemma Gunn í áramótaskaupinu flýtti fyrir útgáfu frumvarpsins. Innlent 25.2.2024 15:40
Mikilvægt að sjá til þess að allir Grindvíkingar hafi þak yfir höfuðið „Það er óvissa með nánast allt þegar kemur að Grindavík,“ sagði Oddný G. Harðardóttir þingkona Samfylkingarinnar í Sprengisandi í morgun. Þar var hún ásamt Ágústi Bjarna Garðarssyni þingmanni Framsóknar en þau ræddu málefni Grindavíkur. Innlent 25.2.2024 15:07
Fagnar því að hálendið sé meira og minna laust við ferðamenn Einn reyndasti landvörður Íslands fagnar því að ferðamönnum sé ekki hleypt á hálendið í miklu magni á sama tíma og það er örtröð á vinsælustu ferðamannastöðunum á láglendi. Innlent 25.2.2024 15:05
Hafa safnað þrjátíu milljónum til að koma fólki til Íslands Samtökin Solaris hafa safnað rúmum þrjátíu milljónum króna í sérstakri söfnun sem hófst byrjun mánaðar. Markmiðið er að nota peninginn til að koma fólki sem hefur fengið dvalarleyfi á Íslandi á grundvelli fjölskyldusameiningar frá Gasa og til landsins. Innlent 25.2.2024 14:57
Hraðinn á fólksfjölguninni valdi vaxtaverkjum Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, segist hafa verulegar áhyggjur af því að stéttaskipting og ójöfnuður festist í sessi í íslensku samfélagi þegar að komi að innflytjendum. Hann telur innflytjendum hafa fjölgað of hratt hér á landi síðustu ár Innlent 25.2.2024 13:27
Hádegisfréttir Bylgjunnar Vonir standa nú til að viðræður um vopnahlé og gíslaskipti milli Ísraelsmanna og Hamas skili árangri, en ísraelsk stjórnvöld hafa samþykkt að senda fulltrúa til Katar til slíkra viðræðna. Íslenskur sjálfboðaliði í Egyptalandi segir ganga hægt að koma fólki af Gasa á meðan stjórnvöld taki ekki þátt. Innlent 25.2.2024 11:55
Piltar taldir hafa verið að verki Ekki er vitað hversu margir gerendur voru að verki þegar pilti var ógnað með hnífi við Laugardalslaug í gær. Tilkynnt var um atvikið um hálftíma eftir að það átti sér stað og talið er að aðrir piltar hafi verið að verki. Innlent 25.2.2024 10:45
Sora-tæknin gerir myndbönd af öllu mögulegu möguleg Myndband sem sýnir Hollywood-stjörnuna Will Smith borða spaghettí vakti athygli heimsbyggðarinnar í febrúar á síðasta ári. Myndbandið, sem var búið til af gervigreind, þótti bæði fyndið og óhugnanlegt. Innlent 25.2.2024 10:30
Sprengisandur: Innrásin í Úkraínu, Grindavík og lífeyrismál Þjóðmálaþátturinn Sprengisandur er í beinni útsendingu á Bylgjunni og hér á Vísi frá klukkan tíu til tólf alla sunnudaga. Í þættinum fær Kristján Kristjánsson til sín góða gesti og fer yfir þau málefni sem eru efst á baugi í samfélaginu hverju sinni. Innlent 25.2.2024 09:40