Innlent
330 331 332 333 334 ›
Draumur um trekant varð að martröð með vændiskonum Maður óskaði eftir aðstoð lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í nótt eftir að hafa farið heim með tveimur konum eftir næturlífið. Innlent 25.5.2023 16:53
Sprenging hjá Sorpu í Gufunesi: „Verstu afleiðingar rangrar flokkunar“ „Það sem þú sérð þarna eru verstu afleiðingar rangrar flokkunar og það er fyrst og fremst vegna hárréttra viðbragða okkar starfsmanna að ekki fór verr.“ Innlent 25.5.2023 16:27
Var send alvarlega veik aftur á undirmannaða geðdeild Kona sem lést á geðdeild Landspítalans fyrir tæpum tveimur árum var send alvarlega líkamlega veik til baka af bráðadeild í Fossvogi vegna erfiðra aðstæðna þar. Mönnun á geðdeildinni var engu að síður talin ófullnægjandi til að sinna hjúkrunarverkefnum þar. Innlent 25.5.2023 16:23
Þrýsta á ráðherra að endurnýja ekki tollfrelsi vara frá Úkraínu Næsta miðvikudag fellur bráðabirgðaákvæði úr gildi um tollfrjálsan innflutning vara frá Úkraínu en Alþingi samþykkti ákvæðið síðasta sumar til að styðja við úkraínskt efnahags-og atvinnulíf vegna innrásarstríðs Rússa. Bretland og Evrópusambandið hafa endurnýjað sín ákvæði um niðurfellingu tolla en ekkert hefur enn komið frá fjármálaráðherra. Innlent 25.5.2023 14:17
Lífsseig mýta kveðin í kútinn: Eldra fólkið virði en ekki byrði Tekjur hins opinbera frá eldra fólki eru mun meiri en kostnaður við hópinn. Þetta sýnir ný greining sem KPMG gerði fyrir heilbrigðisráðuneytið og félags- og vinnumarkaðsráðuneytið. Stjórnvöld hafa hrint af stað aðgerðaráætlun um þjónustu við eldra fólk. Innlent 25.5.2023 12:04
Efnahagslífið á milli steins og sleggju vaxta og verðbólgu Formaður Samtaka atvinnulífsins segir efnahagslífið á milli steins og sleggju hárra vaxta og mikillar verðbólgu. Það hljóti að vera markmið bæði atvinnurekenda og verkalýðshreyfingar að ná niður verðbólgu og vöxtum og gera þess vegna langtíma kjarasamninga á komandi vetri. Innlent 25.5.2023 11:47
Forsetahjónin á leið í opinbera heimsókn til fæðingarlands Elizu Guðni Th. Jóhannesson forseti og Eliza Reid forsetafrú halda í opinbera heimsókn til Kanada 29. maí og verða til 1. júní. Þau verða þar í boði landstjórans Mary Simon. Um er að ræða fyrstu ríkisheimsókn Íslands til Kanada frá árinu 2000, en meðal annars verður fundað með Justin Trudeau forsætisráðherra. Innlent 25.5.2023 11:37
Hræðilegt að þurfa að vera í verkfalli Fjöldi starfsmanna Mosfellsbæjar kom saman á samstöðufundi í dag vegna verkfalls félagsfólks BSRB í sveitarfélaginu. Formaður starfsmannafélags sveitarfélagsins segir stöðuna vera hræðilega. Innlent 25.5.2023 11:30
Vonir um að útbreiðslan sé ekki mikil Niðurstöður sem komnar eru úr greiningu riðusýna í Miðfjarðarhólfi vekja vonir um að útbreiðslan sé ekki mikil. Því er brýnt að hefta hana með fumlausum viðbrögðum og í því sambandi mikilvægast að taka mögulega smitbera úr umferð eins fljótt og hægt er. Innlent 25.5.2023 10:44
Sterabolti breytti lífi sambýliskonunnar í algjöra martröð Karlmaður hefur verið dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir að hafa með áralöngu ofbeldi og hótunum breytt lífi sambýliskonu sinnar í algjöra martröð. Hann fylgdist með ferðum hennar í gegnum síma, talaði um hana sem hóru og hótaði að hringja inn sprengjuhótun á Keflavíkurflugvelli mætti hún til vinnu. Var hann einnig dæmdur fyrir brot á barnaverndarlögum og líkamsárás á frænda konunnar. Karlmaðurinn var gripinn með nokkuð magn stera á sér við heimsókn lögreglu. Innlent 25.5.2023 10:42
Eldur kom upp í móttöku- og flokkunarstöð Sorpu í Gufunesi Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út eftir að tilkynning barst um eld í móttöku- og flokkunarstöð Sorpu í Gufunesi skömmu fyrir klukkan níu í morgun. Innlent 25.5.2023 09:28
Stefán Jónsson nýr yfirlögregluþjónn í Vestmannaeyjum Stefán Jónsson, aðalvarðstjóri lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, hefur verið ráðinn sem yfirlögregluþjónn í Vestmannaeyjum. Hann tekur við að Jóhannesi Ólafssyni sem lætur af störfum vegna aldurs eftir fjóra áratugi í embættinu. Innlent 25.5.2023 09:20
Segja tímana breytta og kanna sölu á skagfirsku félagsheimilunum Byggðarráð Skagafjarðar vill kanna hvort ekki sé skynsamlegt að selja hlut sveitarfélagsins í félagsheimilum sveitarfélagsins til aðila sem sjá tækifæri í að bæta nýtingu húsanna. Tímarnir hafi einfaldlega breyst. Innlent 25.5.2023 07:44
10 til 30 prósent Covid-greindra glími við langvarandi einkenni Á árunum 2018 til 2023 hafa verið skráðar 3.017 komur á heilsugæslur landsins í tengslum við langvarandi einkenni Covid-19. Þar af voru heimsóknir karla 1.040, kvenna 1.982 og kynsegin fimm. Innlent 25.5.2023 06:35
Ríkisstjórnin hafi hugað að tekjulágu fólki Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, segir nauðsynlegt að ráðast í rót verðbólgunnar og sýna aukið aðhald í ríkisfjármálum. Hann segir ríkisstjórnina hafa hugað að tekjulágu fólki en telur að það eigi ekki að reyna að lifa með verðbólguástandinu. Innlent 24.5.2023 23:30
„Maður verður sár að finna fyrir mismunun í starfi“ Verkfallsaðgerðir félagsmanna BSRB fara stígandi og óhætt að segja að sveitarfélögin tíu séu farin að finna fyrir áhrifum þeirra. Starfsfólk grunnskóla í Reykjanesbæ skoraði í dag á bæjarstjórann að stíga inn í deiluna. Innlent 24.5.2023 22:28
Rödd íbúa sé algjörlega hunsuð Íbúasamtök Skerjafjarðar boðuðu til fundar í kvöld vegna fyrirhugaðra framkvæmda í Skerjafirði. Gert er ráð fyrir fjórtán hundruð íbúðum sem rúma um 3500 manns í nýju deiliskipulagi og gæti íbúafjöldi hverfisins því sexfaldast. Innlent 24.5.2023 21:36
Ingi Björn Guðnason ráðinn staðarhaldari á Hrafnseyri Ingi Björn Guðnason, bókmenntafræðingur, hefur verið ráðinn staðarhaldari á Hrafnseyri við Arnarfjörð. Hann var ráðinn úr hópi sautján umsækjenda og tók við starfinu í síðasta mánuði. Innlent 24.5.2023 21:32
Ófaglegar ráðningar, frændhygli og spilling ríki innan lögreglunnar Lögregluþjónn segir slælega stjórnunarhætti og spillingu vera stóra áhrifaþætti í miklu brottfalli hjá lögreglumönnum undanfarin fimmtán ár. Fjölgun lögreglunema sé ekki svarið heldur sé breytinga þörf í stjórnunarháttum og skipulagi lögreglunnar. Innlent 24.5.2023 20:47
Seðlabankinn mun ekki hika við að hækka vexti í tveggja stafa tölu Seðlabankinn mun ekki hika við að hækka meginvexti sína í tveggja stafa tölu ef á þarf að halda til að ná verðbólgu niður að sögn seðlabankastjóra. Bankinn hækkaði vexti um 1,25 prósentustig í morgun og skorar á aðila vinnumarkaðarins að gera hófsama langtímasamninga og stjórnvöld að auka aðhald sitt í efnahagsmálum. Innlent 24.5.2023 19:31
Aðgerðir í húsnæðismálum forsenda langtímasamninga að mati Eflingar Sólveig Jónsdóttir formaður Eflingar segir félagið reiðubúið að gera langtíma kjarasamninga eins og seðlabankastjóri kalli eftir. Til þess að það megi verða þurfi stjórnvöld að hins vegar að koma að málum með vel útfærðar aðgerðir í húsnæðismálum. Verðbólgan og stjarnfræðilega há húsleiga vegna húsnæðisskorts væri að sliga láglaunafólk sem ætti varla fyrir helstu nauðsynjum. Innlent 24.5.2023 19:31
Þurfa að loka göngudeildum yfir sumartímann í miðjum ópíóðafaraldri Göngudeildum SÁÁ og meðferðarstöðinni í Vík verður lokað í sumar vegna fjárskorts á sama tíma og fréttir berast af ópíóðafaraldri. Yfirlæknir segist ekkert hafa heyrt frá heilbrigðisráðherra eftir að hann boðaði aukna fjárveitingu fyrir rúmum tveimur vikum. Innlent 24.5.2023 19:00
Sjálfstæðisflokkurinn verið við stjórn í tíu ár Í gær voru tíu ár liðin frá því að ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks tók við völdum 23. maí 2013. Sjálfstæðisflokkurinn hefur því verið við völd í tíu ár sem hluti af fimm ríkisstjórnum, þar af tveimur sem hafa sprungið. Innlent 24.5.2023 18:51
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Seðlabankinn mun ekki hika við að hækka meginvexti sína í tveggja stafa tölu ef á þarf að halda til að ná niður verðbólgu að sögn seðlabankastjóra. Bankinn hækkaði vexti um 1,25 prósentustig í morgun og skorar á aðila vinnumarkaðarins að gera hófsama langtímasamninga og stjórnvöld að auka aðhald sitt í efnahagsmálum. Innlent 24.5.2023 18:10
Össur styður Úkraínu enn frekar: „Við erum einbeitt í að leggja okkar af mörkum“ Össur hf. hefur undirritað rammasamkomulag um frekara samstarf við endurhæfingaspítala í Úkraínu. Gert er ráð fyrir að fjöldi hermanna og óbreyttra borgara sem þurfa á stoðtækjum að halda sé um tuttugu þúsund. Innlent 24.5.2023 17:36
Segir atlöguna hafa tekið lengri tíma en haldið hefur verið fram Verjandi Shpetims Qerimi, eins sakborninganna í Rauðagerðismálinu svokallaða, segir Armando Beqirai hafa verið myrtan nokkrum mínútum fyrr en haldið hefur verið fram hingað til. Atburðarrásin hafi þá ekki tekið innan við mínútu heldur þrefalt lengri tíma. Innlent 24.5.2023 17:31
Reykvíkingar skipta Lviv inn fyrir Moskvu Dagur B. Eggertsson borgarstjóri Reykjavíkur er nú staddur í Úkraínu en hann og Andriy Sadovyy borgarstjóri Lvív undirrituðu samkomulag um samvinnu borganna að viðstöddu fjölmenni í Ráðhúsinu í Lviv á þriðjudaginn síðastliðinn. Innlent 24.5.2023 16:27
Orð gegn orði um andlát sjúklings á geðdeild Grundvallarmunur er á lýsingum hjúkrunarfræðings sem er ákærður fyrir að valda dauða sjúklings á geðdeild Landspítalans og starfsmanna sem voru á vaktinni á því hvað gerðist. Hjúkrunarfræðingurinn neitaði að hafa hellt næringardrykk í sjúklinginn þar til hann missti meðvitund við aðalmeðferð málsins sem hófst í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Innlent 24.5.2023 15:52
Vilja sérstaka umræðu um efnahagsmál á þingi sem fyrst Þingflokkur Samfylkingarinnar hefur óskað eftir því að haldin verði sérstök umræða um efnahagsmál sem fyrst í ljósi enn einnar stýrivaxtahækkunar peningastefnunefndar Seðlabankans. Meginvextir bankans standa nú í 8,75% og verðbólga mældist 9,9% í apríl. Innlent 24.5.2023 15:51
Bílar fuku af veginum í Öræfum Nokkur vandræði sköpuðust á Öræfu í morgun þar sem bílar fuku út af veginum vegna mikils hvassviðris. Sérstaklega var hvasst við Fjallsárlón en í tilkynningu frá Landsbjörg segir að ferðafólk hafi almennt verið í vandræðum. Innlent 24.5.2023 15:48
Saksóknari Alþjóðlega sakamáladómstólsins vill handtaka Netanjahú og Hamas-liða Erlent