Handbolti

Leikmenn Svía vona að Danir detti út
Jack Thurin, leikmaður sænska landsliðsins í handbolta, er hreinskilinn. Hann vill að Danir detti út af EM í handbolta í kvöld.

Ungverjar hafa tvisvar kramið handboltahjörtu Íslendinga
Heimsmeistaramótið í Kumamoto 1997 og Ólympíuleikarnir í London 2012 eiga eitt sameiginlegt en á báðum þessum mótum tapaði íslenska liðið aðeins einum leik og sá leikur var á móti Ungverjum.

Sportpakkinn: Belo er fæddur í Ungverjalandi en heldur með vinum sínum í íslenska landsliðinu í kvöld
Zoltán Belányi var lengi í hópi allra bestu hornamanna íslensku deildarinnar og fékk seinna íslenskan ríkisborgararétt. Zoltán er hins vegar fæddur í Ungverjalandi og þekkir vel til handboltans þar. Fram undan er leikur Íslands og Ungverjalands á EM og Arnar Björnsson heyrði í kappanum.

Viss um að Guðmundur vill vinna leikinn sama hvort hann sendi Danmörku áfram eða ekki
Danska handboltalandsliðið er ekki með örlögin í sínum höndum í kvöld er síðasta umferðin í E-riðli Evrópumótsins á handbolta fer fram í Malmö.

Guðjón Valur: Verður gaman að sjá hvernig Ungverjar höndla pressuna
Guðjón Valur Sigurðsson landsliðsfyrirliði viðurkennir að hafa ekki von á því að Ungverjar myndu standa í Dönum en það sýni hversu öflugt ungverska liðið sé.

Icelandair með hópferðir á leikina í milliriðlinum
Það er ljóst að Ísland mun spila í milliriðli EM í Malmö og Icelandair hefur nú sett í sölu tvær pakkaferðir til þess að sjá strákana okkar.

Formaðurinn ósáttur með dönsku stuðningsmennina: Haga sér eins og þeir sitji við kaffiborðið
Frammistaða dönsku stuðningsmannanna í leiknum gegn Ungverjalandi var gagnrýnd eftir leikinn af dönskum handboltasérfræðingi og nú tekur formaður stuðningsmannafélagsins undir.

„Þurfum að komast að því hvort Gummi hringdi í Alexander eða Alexander hringdi í hann“
Jóhann Gunnar Einarsson, sérfræðingur Seinni bylgjunnar, er hrifinn af því sem Guðmundur Guðmundsson er að gera með íslenska landsliðið. Vísir fékk Jóhann Gunnar til að fara yfir Evrópumót íslenska landsliðsins til þessa en fram undan er mikilvægur leikur við Ungverja í dag.

Sigvaldi: Danirnir hóta að hætta að tala við mig ef við vinnum ekki Ungverja
Hornamaðurinn Sigvaldi Björn Guðjónsson sló eftirminnilega í gegn í leiknum gegn Rússum þar sem hann skoraði hvert glæsimarkið á fætur öðru.

Landin bróðirinn klár og kallaður inn í danska hópinn
Nikolaj Jakobsen, landsliðsþjálfari Dana, hefur gert enn eina breytinguna á danska hópnum.

Guðjón Valur: Ég vil ekkert halda mönnum á jörðinni
Landsliðsfyrirliðinn Guðjón Valur Sigurðsson er gríðarlega ánægður með ungu strákana í landsliðinu.

Eftirminnilegustu leikirnir við Ungverja á stórmótum: Þrjú mörk á sig í fyrri hálfleik, draumabyrjun á heimavelli og Voldemortinn
Vísir rifjar upp eftirminnilegustu leiki Íslands og Ungverjalands á stórmótum í handbolta.

Guðmundur: Ungverska liðið ekki ósvipað því íslenska
Þessi byrjun á EM hefur verið ótrúleg og landsliðsþjálfarinn Guðmundur Guðmundsson tekur undir að þetta sé búin að vera rússíbanreið.

Ómar Ingi kominn aftur á völlinn eftir átta mánaða fjarveru
Selfyssingurinn lék æfingaleik með Aalborg í kvöld.

Klæddu Litlu hafmeyjuna í íslenska búninginn
Litla hafmeyjan fékk nýtt yfirbragð í kvöld.

Strákarnir hans Kristjáns komnir í milliriðil þar sem þeir mæta Íslendingum
Að minnsta kosti þrjár Norðurlandaþjóðir verða í milliriðli II á EM 2020 í handbolta.

Viggó: Ætlaði að verða atvinnumaður í fótbolta og spila með Liverpool
Viggó Kristjánsson segir að það sé gaman að takast á við alla athyglina eftir að hafa slegið í gegn í leiknum við Rússa en að sama skapi sé það líka mjög erfitt.

Slóvenar fara með tvö stig í milliriðil Íslendinga
Þremur leikjum er lokið á EM í handbolta.

Dönsku blaðamennirnir pirruðu Guðjón Val: Þið haldið að allt snúist um ykkur
Danir þurfa að treysta á Íslendinga í lokaumferðinni á morgun til þess að komast áfram í milliriðla á Evrópumótinu í handbolta. Dönsku blaðamennirnir hópuðust í kringum fyrirliða íslenska landsliðsins, Guðjón Val Sigurðsson, á blaðamannafundi íslenska liðsins í dag.

Örlög Dana í höndum Guðmundar: Mjög sérstök staða
Danir stóla á það að lið Guðmundar Guðmundssonar muni bjarga þeim á EM. Guðmundur er lítið að spá í því hvað bjargi Dönum heldur meira um sitt lið.

Sænskur spekingur átti ekki orð yfir frammistöðu Dana og Mikkel Hansen: „Ég er í sjokki“
Fyrrum handboltakonan og nú sérfræðingur, Johanna Alm, var nánast orðlaus yfir frammistöðu danska landsliðsins í handbolta í gær og sér í lagi frammistöðu Mikkel Hansen.

Dönsku fjölmiðlarnir sóttu fast að Guðmundi
Kaldhæðni örlaganna hefur hagað því þannig að framhaldslíf Dana á EM hangir á því að Guðmundi Guðmundssyni og strákunum okkar takist að leggja Ungverja.

Ísland hefur aldrei byrjað betur á EM
Íslenska karlalandsliðið í handbolta er að keppa á sínu í ellefta Evrópumeistaramóti í röð en nú í fyrsta sinn eru íslensku strákarnir með fullt hús eftir tvo leiki.

Guðmundur: Upplifað eitt og annað gegn Ungverjum
Ungverjaland hefur reynst erfiður andstæðingur fyrir íslenska landsliðið, ekki síst Guðmund Guðmundsson.

Svona var blaðamannafundurinn fyrir leikinn gegn Ungverjum
Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari og leikmenn íslenska landsliðsins sitja fyrir svörum blaðamanna í Malmö í Svíþjóð fyrir leik liðsins gegn Ungverjalandi á morgun.

Guðmundur er strax búinn að taka einn undirbúningsfund fyrir Ungverjaleikinn
Íslenski landsliðsþjálfarinn var ekki lengi að fá íslensku strákana til að fara að hugsa um verkefnið framundan.

Logi: Eruð þið að átta ykkur á stöðunni?
Logi Geirsson, handboltaspekingur og fyrrum landsliðsmaður, er hrifinn af íslenska landsliðinu líkt og flestir aðrir Íslendingar.

Illa farið með Aron Pálmarsson í skráningu stoðsendinganna á EM
Íslenska karlalandsliðið í handbolta hefur skorað 65 mörk í fyrstu tveimur leikjum sínum og unnið þar flotta sigra á Danmörku og Rússlandi.

Dönsku miðlarnir skrifuðu um frelsarann sem lét ekki sjá sig og litla bróður sem þurfi að hjálpa
Danskir miðlar eru í sárum eftir hörmulega byrjun heims- og Ólympíumeistaranna á Evrópumótinu í handbolta.

Úr Pepsi-deildinni í fótbolta á stórmót í handbolta | Myndband
Viggó Kristjánsson, landsliðsmaður í handbolta, lék í Pepsi-deild karla í fótbolta fyrir sjö árum.